Morgunblaðið - 11.02.1978, Side 43
MORGUNBLAÖIÐ, LAUGARDAGUR 11. FEBRUAR 1978
43
Hætti viö ÍBV,
en er nútekinn
við hjá AJ AX
HOLLENZKA stórliðið Ajax hefur ráðið nýjan aðal-
þjálfara til félagsins og heitir sá Cor Bronn. Það sem
gerir frétt þessa merkilegri en ella fyrir okkur Is-
lendinga er að Bronn þessi var svo gott sem ráðinn
þjálfari hjá liði ÍBV sumarið 1975, en þá lék IBV í 2.
deild.
Asgeir Sigurvinsson'hafði haft
milligöngu um það fyrir IBV að fá
þennan snjalla þjálfara til að
koma til landsins. Hafði Bronn
fallizt á skilmála ÍBV og var á leið
hingar til lands er babb kom í
bátinn. Eftir að hafa ekið frá Hol-
landi til Luxemborgar til að taka
Islandsvél þar kom í ljós að engar
bókanir voru réttar fyrir hann og
höfðu greinilega orðið mistök hjá
ferðaskrifstofu þeirri, sem átti að
sjá um þessa hlið mála fyrir ÍBV.
Þegar ekki var hægt að kippa
þessum málum í liðinn í Luxem-
borg hélt Bronn til baka til Hol-
lands. Sagðist hann ekki standa í
svona lagaðri vitleysu og Eyja-
menn sáu aldrei neitt af honum.
Réðu Vestmanneyingar George
Skinnear í staðinn, en Bronn er
sem sagt orðinn aðalmaðurinn hjá
Ajax, sem fyrir nokkrum árum
varð þrjú ár í röð bæði Hollands-
og Evrópumeistari.
Þórsarar ráða
enskan þjálfara
AKUREYRARLIÐIÐ Þór hefur
ráðið enskan þjálfara til að sjá
um meistaraflokk liðsins í knatt-
spyrnu á næsta keppnistímabili.
Heitir sá Allan Rogers og er ráð-
inn hingað til lands með hjálp
George Skinnear, þjálfari Eyja-
manna, sem gaf honum hin beztu
meðmæli.
Rogers hefur víða verið við
þjálfun, nefna má félög í Eng-
landi og Iran, en hann hefur einn-
ig verið við þjálfun annars staðar.
Þór féll niður í 2. deild síðastliðið
haust og Rogers fær það verkefni
að koma liðinu í hóp þeirra 10
beztu á nýjan leik.
Undanfarnar þrjár vikur hefur verið staddur hér á landi á vegum
Fimleikadeildar Armanns sænskur þjálfari, Lars Wallner að
nafni. Hann er starfandi þjálfari hjá einu af beztu fimleikafélög-
um Sviþjöðar í Örebro. Einnig þjálfaði hann danska kvenna-
landsliðið í 7 ár.
Mikil ánægja hefur verið með störf Wallners hér á landi og er
meðfylgjandi mynd tekin á æfingu hjá Armanni í síðustu viku.
Wallner segir ungum Armenningi til.
Tekst Forest
hið ótrúlega?
NOTTHINGH^M Forest er svo gott sem komið í úrslit í ensku
deildarbikarkeppninni, en liðið vann Leeds 3:1 í f.vrri leik liðanna á
miðvikudag og var þó leikið á heimavelli Leeds — Elfand Road. Mörk
Forest í leiknum gerðu Peter W'ithe (2) og John O’Hare en Eddie Gray
skoraði f.vrir Leeds.
Þrjá af sterkustu Ieikmönnum
Forest vantaði að þessu sinni, þá
Shilton, Gemmill og Needham.
Þeir höfðu áður leikið með sínum
gömlu félögum en fjarvera þeirra
virtist engu máli skipta og lið
Nottingham Forest er greinilega
erfitt viðureignar um þessar
mundir. Það virtist engú máli
skipta fyrir leikmenn liðsins þótt
43 þúsund áhorfendur hvettu
leikmenn Leeds dyggilega.
Forest á nú góða möguleika á að
vinna þrefalt í Englandi. Liðið
hefur örugga forystu í deildinni,
er i átta-liða úrslitum í FA-
bikarkeppninni og loks er liðið
nær öruggt með að komast i úrslit
deildarbikarsins, þar sem mót-
herjar liðsins verða annað hvort
leikmenn Arsenal eða Manchest-
er City. Takist liðinu að vinna
hina ótrúlegu þrennu verður liðið
fyrst allra til að vinna það afrek.
I gær var endanlega gengið frá
sölu á Gordon McQueen frá Leeds
til Manchester United. Sömdu fé-
lögin um 450 þúsund pund fyrir
þennan sterka miðvörð og er það
hæsta upphæð, sem greidd hefur
verið fyrir leikmann milli enskra
liða. McQueen hafði áður fengið
tilboð frá Tottenham, sem hljóð-
aði upp á 450 þúsund pund, en
sagðist hvergi fara. Hann vildi
aðeins fara til Manchester
United.
Guðrún Sigurþórsdóttir var drjúg I leiknum gegn FH og Ármann vann
óvæntan sigur.
Óvænttap FH
ÖLLUM á óvart tókst Ármanni að
sigra FH í 1. deild kvenna I Laugar-
dalshöllinni i gærkvöldi. Úrslitin
urðu 1 2:1 0 (6:4) og var Ármannslið-
ið yfir allan leikinn. FH-liðið hafði
fyrir leikinn tapað fæstum stigum í
mótinu ásamt Val, eða aðeins tveim-
ur. en eftir þennan óvænta Ármanns-
sigur trónir Valsliðið eitt á toppi
deildarinnar. Þá léku einnig f gær-
kvöldi lið Vfkings og Þórs og unnu
Víkingsstúlkumar sannfærandi sig-
ur, úrlistin urðu 18:13 (12:8) og
munaði átta mörkum á liðunum er
munurinn var stærstur.
í leik Ármanns og FH voru það
stöllurnar Erla og Guðrún, sem stóðu
sig bezt í Ármannsliðinu ásamt bezta
leikmanninum á vellinum, Magneu
markverði Annars var góð barátta í
Ármannsliðinu og dugnaðurinn fyrst
og fremst að baki sigrinum FH-liðið
var mjög dauft og áhugalaust í þessum
leik og engin ein skaraði fram úr
I leik Vikings og Þórs var Ingunn
Bernódusdóttir i miklum ham í liði
Víkings, Guðrún Helgadóttir átti traust-
an leik og Eirika er bráðefnileg og frisk
i iþróttinni. í liði Þórs var það helzt
Anna Gréta sem eitthvað kvað að, en
hennar var vel gætt í seinni hálfleikn-
um
Mörk Ármanns: Jórunn 3 (3 v).
Guðrún 2, Erla 3, Auður 2. Þórunn 1,
Sigriður 1
Mörk FH: Kristjana 5, (1 v), Svan-
hvit 3, Anna 2
Mork Vikings Ingunn 8, Guðrún S.
3 ( 3 v), Stella 2, Eiríka 2, Guðrún H,
Sigrún og Anna 1.
Mörk Þórs: Anna Gréta 4, Dýrfinna
4. Magnea 3, Soffia 1, Sigríður 1
— áij.
Blikastúlk-
ur stefna á
1. deildina
BLIKASTÚLKURNAR standa nú
mjög vel að vigi i 2. deild kvenna i
handknattleik. Liðið vann erfiðasta
andstæðing sinn, lið ÍBK, með 14
mörkum gegn 13 I Ásqarði í Garða-
Framhald á bls. 25.
STJARNAN
ÁENNVON
í gærkveldi fór fram einn leikur i 2. deild íslandsmótsins i handbolta.
Stjarnan og KA léku þá i Ásgarði i Garðabæ og lauk leiknum með sérlega
sannfærandi sigri Stjörnunnar, 25—21 (12—11). og á þvi Stjarnan enn
nokkra möguleika á sæti i fyrstu deild að ári. Leikmenn KA verða hins vegar
að sætta sig við aðra deildina eitt ár enn a.m.k.
Fyrri hálfleikurinn var allan timann i að öðrum ólöstuðum og ekki má
járnum, liðin skiptust á um forystuna
og hún varð aldrei meiri en tvö mörk
og staðan i leikhléi var 12—11 í
siðari hálfleik fóru hlutirnir siðan að
gerast fyrir alvöru. Stjarnan skoraði þá
hvert markið af öðru á hinn fjölbreyti-
legasta hátt og lokaði um leið vörn
sinni. Skoruðu leikmenn KA þá flest
sin mörk úr vitaköstum eða fyrir ein-
staklingsframtök Var oft gaman að sjá
Stjörnuna tæta vörn Norðanmanna i
sundur i seinni hálfleik Stjarnan náði
snemma hálfleiks öruggri forystu, sem
mest varð fimm mörK, 23—18, og
náðu leikmenn KA aldrei að ógna
sigrinum sem varð loks 25—21 eins
og áður segir
Lið KA náði sér aldrei á strik í
leiknum og stóð þar enginn sérstak-
lega upp úr. nema þá helst Jóhann
Einarsson
Stjarnan náði sér aftur á móti mjög
vel á strik, einkum í síðari hálfleiknum.
þegar liðið lék oft og tiðum handknatt-
leik eins og hann gerist bestur hér á
landi Hörður Hilmarsson og Magnús
Teitsson áttu stórleik að þessu sinni,
Botnliðin
leika í dag
á Akureyri
í DAG fer fram einn leikur i 1.
deild karla i islandsmótinu i
körfuknattleik Þór og Ármann
leika á Akureyri og hefst leikur-
inn kl. 14.Q0. Er ekki nokkur wafi
að hart verður barizt. þvi að þessi
lið verma nú botnsætin i deild
inni. Ármenningar eru neðstir,
hafa enn ekki hlotið stig og Þór i
næstneðsta sæti með 2 stig, hafa
aðeins unnið Ármann 1 fyrri um-
ferðinni 80:69. Ármenningar
hafa nú misst þjálfara sinn Mike
Wood. sem genginn er i raðir
Framara, en hafa i staðinn fengið
annan bandariskan leikmann. og
verður forvitnilegt að sjá. hvort
hann kemur til með að styrkja
Ármannsliðið. Róðurinn verður
þó vafalaust þungur hjá Ármanni,
þvi að Mark Christeneen og
félagar hans i Þór hafa staðið sig
vel að undanförnu og tapað með
litlum mun fyrir tveimur af topp-
liðunum. ÍS og UMFN.
Þá verða þrir leikir i 2. deild um
helgina. í Vestmannaeyjum leika
ÍV og KFÍ tvo leiki. kl 14 00 á
laugardag og sunnudag og á Sel
tjarnamesi leika á sunnudag kl.
20.00 Breiðablik og Snæfell.
gleyma Baldri Svavarssyni. sem átti
urmul af línusendingum sem gáfu
mörk. Þá varði Ómar markvörður vel
þegar mikið lá við, þar á meðal tvö
vítaköst
Mörk Stjörnunnar Magnús T 7,
Hörður 6 (1 víti), Árni. Magnús og
Gunnar 3 mörk hver. Logi 2 og Eggert
ísdal eitt mark
Mörk KA: Jón 9 (8 viti), Jóhann 5,
Alfreð 3. og Þorleifur tvö mörk
— 99
Bruni
frestað
vegna
veðurs
I GÆR varó aó frcsla brtin-
kcppni karla í hcinisbikarnunt
á skfðum. scm áa'tlað hafði
vcrið að halda í Chamonix í
Frakklandi. .Ellunin cr að
rcyna að koma mólinu á í dag
og færi brunkcppnin þá fratn
áður cn kcppnin hcfst í svigi
karla. Vcðurúllit cr þó allt
annað cn gott og litlar líkur á
að það lagist svo niikið að
kcppnin gcti farið fram.
Aðalþjálfari bandaríska
kvcnnalandsliðsins á skfðum
sagði upp störfum sintim í
gær. Hann gaf ckki upp ncina
ástæðu fyrir uppsögn sinni og
ckki hcldur forystumcnn
skfðamála í Bandaríkjunum.
Þó svo aó fiestum stúlkunum f
liðinu hafi líkað vcl við þjálf-
ara sinn hcfur hann ckki náð
þcim árangri, scm ætlazt var
til af honum.
Dómarar
Aðalfundur Knattspyrnudómarafélags Reykjavíkur
verður haldinn í Glæsibæ (kaffiteríu) fimmtudaginn 16
febrúar kl. 20:30
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnurmál. Stjórnin.
Meistaramót F.S.Í.
Meistaramót í fimleikastiganum verður í íþróttahúsi Kennaraháskóla
Islands sem hér segir:
Laugardaginn 1 1 . febr. kl. 1 5 — keppni pilta í öllum flokkum.
Sunnudaginn 1 2. febr. kl. 10 — keppni í 2 aldursflokkum,
stúlkna, 1 2 ára og yngri og 1 7 ára og eldri.
Sunnudaginn 1 2. febr. kl. 15 — keppni í 2 aldursflokkum,
stúlkna, 13 —14 ára og 1 5 — 1 6 ára.
Fimleikasambandið