Morgunblaðið - 26.02.1978, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.02.1978, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. FEBRUAR 1978 Prófkjör Sjálfstæðis- flokksins í Keflavík t DAG heldur áfram prófkjör Sjálfstæðisflokksins I Keflavík, en í gær var einnig kosið. Kosn- ing fer fram í Sjálfstæðishúsinu en kosningaskrifstofa er opin í JC-húsinu við Kirkjuveg, og er opið í dag, sunnudag kl. 10—22 á báðum stöðum. Listann skipa: Árni R. Árnason, Árni Þór Þorgrimsson, Björn Stefánsson, Einar Guðberg, Einar Kristinsson, Elías A. Jóhannsson, Gunnlaugur Karlsson, Halldór Ibsen, Ingibjörg Elíasdóttir, Ingi- björg Hafliðadóttir, Ingólfur Falsson, Ingólfur Halldórsson, Jó- hann Pétursson, Jóhanna Geir- laug Pálsdóttir, Kristinn Guð- mundsson, Tómas Ibsen Halldórs- son og Tómas Tómasson. Að sögn Helga Hólm formanns uppstillingarnefndar á að kjósa um hið fæsta 5 menn á listanum og tölusetja. Talning á að hefjast kl. 19 í kvöld og gert er ráð fyrir að henni Ijúki undir miðnætti. Ákveðið verð á fisk- beinum til mjölvinnslu YFIRNEFND Verðlagsráðs sjávarútvegsins hefur ákveðið verð á fisk- beinuin. fiskslógí og 'heilum fiski til mjölvinnslu frá 16. febrúar til 31. maí 1978. Var verðið ákveðið af oddamanni og fulltrúum seljenda gegn atkvæðum fulltrúa kaupenda. Verðið er miðað við að seljendur skili hráefninu í verksmiðjuþró. Verðið er sem hér segir: a) Þegar selt er frá fiskvinnslustöðvum til fiskimjölsverksmiðja: Fiskbein og heill fiskur, sem ekki er sérstaklega verðlagður hvert kg .............................kr. 8.60 Karfabein og heill karfi, hvert kg ..........................kr. 11.50 Steinbitsbein og heill steinbítur. hverg kg..................kr. 5.60 Fiskslóg. hvert kg ..........................................kr. 3.90 b) Þegar heill fiskur er seldur beint frá fiskiskipum til fiskimjöls- verksmiðja: Fiskur. sem ekki er sérstaklega verðlagður. hvert kJi ...........................kr. 7.80 Karfi. hvert kg .............................................kr. 10.50 Steinbitur. hvert kg ........................................kr. 5.10 Meðal farþega Flugfélags íslands er fóru til Akureyrar í gærmorgun voru nokkur fjölfötluð börn, sem hér sjást á leið út í flugvélina. Var áætlað að dveljast á Akureyri daglangt og koma til Reykjavíkur í gærkvöldi. Myndina tók Ólafur K. Magnússon. Samkomulag banka og sparisjóða: “7 Styrkir til rannsókna í umhverfisvandamálum Utlánaþakið hækki um 29% á árinu Atlantshafsbandalagið mun á árinu 1978 veita nokkra styrki til fræðirannsókna á vandamálum er snerta opinbera stefnumótun á sviði umhverfismáia. Styrkirnir eru veittir á vegum nefndar handalagsins sem fjallar um vandamál nútímaþjóðfélags. Hafa verið valin eftirfarandi fjögur verkefni til samkeppni að þessu sinni: 1) Alþjóðasamvinna til þess að hindra að' mengun berist milli landa, 2) vandamál er snerta orkuþarfir nú og í framtíðinni, val orkugjafa og umhverissjónar- mið í iðnvæddum löndum, 3) val framtíðarflutningakerfa í borg- um og umhverfissjónarmið og 4) áætlanir um nýtingu lands með tilliti til verndunar landbún- aðarsvæða. Styrkir þessir eru ætlaðir til rannsóknastarfa i 6—12 mánuði og nemur hámarksupphæð hvers © INNLENT Enn bræla í loðnu- miðunum Enn er bræla á loðnu- miðunum og engin veiði en hún hefur verið lítil síðustu tvo sólarhringana. Bátarnir eru ýmist á miðunum, í vari eða í höfn og var í gær ekki útlit fyrir að breytti til hins betra með veður á miðunum. styrks 220 þúsund belgiskum frönkum eða um 1,7 milljónum íslenzkra króna. Gert er ráð fyrir að umsækjendur hafi lokið há- skólaprófi og skal skila umsókn- um til utanríkisráðuneytisins fyrir 31. marz, en þar er einnig að fá nánari upplýsingar um styrk- ina. SEÐLABANKI Islands, viðskipta- bankarnír og Samband íslenzkra sparisjóða hafa gert með sér sam- komulag um, að heildarútlán banka og sparisjóða hækki ekki meira en um 30% á þessu ári, en útlánaþakið, útlán án endur- keyptra afurðalána, hækki ekki um meira en 29%. Eins og undanfarin ár verður útlánaáukningunni skipt í þrjá fjögurra mánaða áfanga og er stefnt að þvi, að í fyrsta áfangan- um, sem varir til aprílloka, verði útlánaaukningin ekki meiri en 10% að meðaltali. Utlánastarf- semi einstakra banka verður bæði miðuð við fjárhæð innlána og lausafjárstöðu, þannig að þeir bankar, sem hafa þrönga lausa- fjárstöðu, stefna að því að auka útlán minna en meðaltalsaukn- ingin er, en hinir, sem hafa rúma lausafjárstöðu geta verið fyrir of- an meðalútlánaaukninguna. 1 frétt Seðlabankans um þetta sam- komulag segir, að vegna mikilla útlána i janúar, verði um litla aukningu að ræða næstu tvo mán- STJÓRN Kaupmannasamtaka Is- lands hefur sent frá sér mótmæli við þeirri ákvörðun stjórnvalda að lækka verzlunarálagningu samfara sfðustu gengisfellingu. Telur stjórnin að með þessari ákvörðun séu virt að vettugi stað- fest rök opinberra entbættis- manna og stofnana um stöðu verzlunarinnar á s.l. ári. uðina. Hins vegar megi búast við verulegri hækkun afurðalána vegna vertíðarframleiðslu. Þá segir í frétt Seðlabankans: ,,Þá var á fundi þessum fjallað um afurðalánastarfsemi Seðla- bankans og viðskiptabankanna. Sá vandi hefur komið upp í þess- um efnum, að endurkaupanleg lán Seðlabankans hafa vaxið mun hraðar á undanförnum árum en ráðstöfunarfé hans í formi bund- inna innstæðna frá innlánsstofn- unum. A síðari helmingi ársins 1977 var svo komið, að endur- kaupanleg afurðalán voru komin rúmlega 4 milljarða fram úr bundnu fé, sem þá hafði náð því hámarki, er lög leyfa. I þvi skyni að koma í veg fyrir, að þetta yrði þess valdandi að draga þyrfti í heild úr afurðalánum, var ákveð- Framhald á bls. 47. Þá segir i frétt frá Kaupmanna- samtökunum að hún vilji benda á að með síendurteknum gengisfell- ingum hafi átt sér stað stórfelld eignaupptaka á vörubirgðum verzlana sem byggist á því að bannað hafi verið að hækka vöru- birgðir til samræmis við hækkað innkaupsverð. Þjóðleikhúsið frum- sýnir á Húsavík ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ tekur upp þá nýbreytni fimmtudaginn 2. marz að frumsýna leikrit á Húsavík. Er það bandarfskur gamanleikur, „Á sama tfma að ári“, eftir Bernard Sfade. Leik- ritið, sem höfundur kallar rómantískan gamanleik, var frumsýnt fyrir tveimur árum á Broadway og hefur sfðan farið sigurför vfða um lönd, að þvf er segir í frétt frá Þjóðleikhúsinu. Persónur leiksins eru aðeins tvær, karl og kona (Bessi Bjarnason og Margrét Guð- mundsdóttir), sem hittast á sveitahóteli og eiga þar saman helgi. Þar sem bæði eru gift, stendur gamanið stutt og ákveða þau að hittast þessa sömu helgi ár. hvert. Spannar leikritið tuttugu og fimm ár í lífi þeirra, þar sem áhorfendur sjá þau á fimm ára fresti. 1 verkinu á að speglast ýmis kon- ar þjóðfélagsþróun og tízku- fyrirbrigði í bandarísku þjóð- lífi s.l. aldarfjórðung. Verkið hefst 1951 og lýkur 1975. Þýðandi leikritsins er Stefán Baldursson, leikmynd gerði Birgir Engilberts og leikstjóri er Gfsli Alfreðsson. Höfundurinn, Bernard Slade, hóf feril sinn sem leikari, starf- aði síðan við ýmis Ieikhússtörf og hefur samið þrjú leikrit auk sjónvarpsþátta. Á Húsavík eru ráðgerðar nokkrar sýningar áður en leik- flokkurinn snýr aftur til Reykjavíkur. Ætlunin er að sýna leikritið síðan víða um land. Þetta er í annað sinn sem Þjóðleikhúsið frumsýnir leikrit utan Reykjavíkur. Aður var barnaleikritið „Furðuverkið", frumsýnt í Grlndávfk fyrír nokkrum árum. Bessi Bjarnason og Margrél Guðmundsdóttir í hlutverkum sfnum. Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Rvík: Utankjörstaðakosn- ing stendur yfir NÚ STENDÚR yfir utankjör- staðakosning í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins til borgar- stjórnarkosninganna f Reykja- vík. Kosið er í Valhöll, Háaleit- isbraut 1, annarri hæð, og stendur kosiiingin yfir í dag kl. 14—17 og næstu viku kl. 17—19 á sama stað. Til að kosningin verði bind- andi þarf að kjósa minnst 'A af fylgi Sjálfstæðisflokksins við sfðustu borgarstjórnarkosning- ar, en þá kusu 8092, og er kjör- nefnd skylt að gera tillögu um þá á framboðslista sem fá yfir 50% atkvæða. Kjósa skal um minnst átta og mest 12 fram- bjóðendur, en þeir eru alls 39. Kaupmannasamtökin mótmæla lækkun verzlunarálagningar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.