Morgunblaðið - 26.02.1978, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 26.02.1978, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. FEBRUAR 1978 37 Minning: Jón H. Leós deildarstjóri F. 9. desember 1901 D. 16. febrúar 1978 Jón H. Leós, fyrrverandi deildarstjóri i Landsbanka ís- lands, andaðist i Landspítalanum 16. febrúar sl. Hann hafði átt við nokkra vanheilsu að striða siðustu árin. Jón Leós var Ísfirðingur að uppruna, fæddur þ. 9. des. 1901, sonur hjónanna Kristinar Halidórsdóttur og Leós Eyjóifs- sonar, kaupmanns á Ísafirði. Stóðu að honum merkarog traust- ar vestfirskar ættir. Um tvítugt hleypti Jón heimdraganum og fór til Kaupmannahafnar til náms. Þar lauk hann prófi frá Köbmands- skolen 1924. Þegar heim kom hóf hann störf á póststofunni á Isa- firði og 1927 varð hann póstfull- trúi í Reykjavík. Árið 1934 réðst hann til Landsbanka tslands og starfaði þar sem gjaldkeri til 1958, en þá varð hann deildar- stjóri í víxladeild bankans og gegndi því starfi til 1971 er hann lét af störfum vegna aldurs. Hafði Landsbankinn þá notið krafta hans í 37 ár. Störf hans í bankan- um — sem annars staðar — ein- kenndust af sérstakri reglusemi og árvekni en þar kom einnig glöggt i Ijós hans einstaka lipurð og hjálpfýsi. sem alla tið var hans aðalsmerki. Munu margir viðskiptamenn bankans eiga hon- um þökk að gjalda fyrir góða sam- vinnu við úrlausn á oft vandasöm- um málum. Fyrstu kynni min af Jóni Leós voru er ég 11 ára sveitastúlkan lagði leið mína í fyrsta sinn vest- ur á Reynimel 43 til að heimsækja Svanlaugu frænku mina, sem þá var nýlega gift og hafði ég heyrt mikið talað um hið fallega heimili þeirra. Þegar á Reynimel kom, var Svanlaug ekki heima. en hús- bóndinn bauð mig velkomna og með sínu hlýja viðmóti eyddi allri feimni minni. Hann hitaði handa mér kakó, sýndi mér myndir og spjallaði við mig um heima og geima. Þannig var Jón, hlýr og elskulegur maður, sem vildi öllum gott gera, ungum sem öldn- um. Hann var mjög barngóður og átti jafnauðvelt með að bregða á leik með börnum og að stytta öldnu fólki stundir með glaðlegu samtali og frásögnum. Jón var mjög reglusamur i starfi og leik. Hann var félagshyggjumaður og alltaf glaður í góðum hópi. Vegna þessara eiginleika hans voru hon- um falin mörg trúnaðarstörf. Hann starfaði mikið i Leikfélagi Reykjavíkur frá 1933—1952 og var gjaldkeri félagsins um skeið. Hann fékkst töluvert við leiklist á þeim árum og nú fyrir nokkrum vikum sáum við hann á sjónvarps- skerminum í gervi bóndans i hinni ágætu kvikmynd Lofts heitins Guðmundssonar. Niður- setningnum. Fór Jón þar á kost- um. Hann var formaður Póst- mannafél. i Reykjavík 1931—1934. Formaður Alþýðu- flokksfélags Reykjavikur frá 1947—1950, formaður Félags starfsmanna Landsbanka Íslands 1949—1952 og formaður ís- firðingafélagsins i Reykjavik 1947—1963. ÖIl þessi trúnaðar- Terelynebuxur frá kr. 2.975. — Gallabuxur kr. 2.500,- Leðurlíkijakkar kr. 5.500. — . Úlpur margar gerðir, lágt verð. Peys- ur nýkomnar. Skyrtur, nærföt o.fl. ódýrt. Andrés Skólavörðustíg 22. ÚTSALA á kvenskóm og leðurstígvélum. Verð kr. 8000 - Verð kr. 7000 - Póstsendum. SKÓSEL, Laugavegi 60, sími 21270. störf rækti Jón af mikilli elju og trúmennsku. 1 einkalifi sinu var Jón mikill gæfumaður. Árið 1941 kvæntist hann ungri og glæsilegri stúlku. Svanlaugu Böðvarsdóttur frá Laugarvatni. Eignuðust þau 4 börn en þau eru: Leó Már. tækni- fræðingur. kvæntur Sigrúnu Dröfn Jónsdóttur, Ingunn. íþróttakennari, gift Gunnari Kristjánssyni, vélstjóra. Kristín. húsmóðir i Bolungarvik, gift Erni Jónssyni rafvirkjameistara. og yngstur er Böðvar Leós, myndlist- arnemi, sem nýlega hefur stofnað heimili með Grétu Baldursdóttur, laganema. öll eru börnin hin mannvænlegustu og bera gott vitni um þá ástúð og umhyggju. sem þau nutu i uppvextinum. Jón var góður heimilisfaðir. sem stöðugt hugsaði um hag fjölskyld- unnar. jjann var gestrisinn með afbrigðum og fagnaði vinum og vandamönnum með sínu hlýja brosi og þétta handtaki. Hann var fróður og vel lesinn og mjög áhugasamur um þjóðmálin. Það var þvi ætið ánægjulegt að koma á heimili þeirra hjóna, sem voru mjög samtaka um að taka vel á móti gestum sinum, hvort sem þeir dvöldu um skamma stund eða langa. Var oft gest.kvæmt hjá þeim, enda frændgarðurinn stór i báðar ættir, og áttu ættingjar þeirra beggja utan af landi gott athvarf hjá þeim hjónum. Móðir Svanlaugar. Ingunn Eyjólfsdóttir, dvaldi i 7—8 siðustu ár ævi sinnar á heimili Jóns og Svanlaugar og naut þar mikillar ástúðar og umhyggju. Var Jón henni einstaklega góður og var mjög kært með þeim frá fyrstu tið. Sat hann margar stund- ir hjá henni, las fyrir hana og færði henni fréttir úr daglega lífinu. Hún fékk þvi i rikum mæli að njóta þeirrar frásagnargleði og kímni sem Jóni var gefin. Með Jóni Leós er genginn eftir- tektarverður maður. sem við. sem eftir lifum minnumst með þökk og hlýju. Þar sem góðir menn fara eru Guðs vegir. O.P. heimilistæki sf SÆTÚNI 8 - SÍMI 24000 Sjómenn á togurum, farskipum, bátum og vakta- vinnufólk i landi missiroft af uppáhaldsþáttunum sinum i sjónvarpinu vegna óreglulegs vinnutima. Hins vegar er frivaktin og fritiminn oft lengi að liða. Með tilkomu Philips myndsegulbands er þetta liðin tið. Með Philips myndsegulbandstæki er hægt að taka beint upp sjónvarpsefni og sýna það siðan aftur hvenær sem þú óskar. Timarofi er á.tækinu svo að hægt er að stilla hvenær segul- bandið tekur sjálfvirkt upp sjónvarpsefni. Þannig er t.d. hægt að stilla tækið, að það taki upp sjónvarpsefni eftir 1—2 eða 3 daga á ein- hveijum vissum tima. Ef og þegar hægt verður að velja um fleiri en eina rás á íslandi þá getur Philips myndsegulbandið ennfremur tekið upp sjónvarpsefni á einni rás, meðan horft er á aðra. | UMfl

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.