Morgunblaðið - 26.02.1978, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 26.02.1978, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. FEBRUAR 1978 VERÖLD Gjaldeyris- greif arnir í (Pól)landi öreiganna Það var á ársþingi pólska kommúnistaflokksins, sem haldið var f Varsjá fyrr í þessum mán- uði. Fundur stóð yfir, og Gierek formaður var að halda alvöru- þrungna ræðu. En það vantaði allnokkra þingfulltrúa f salinn. Þeir voru ekki veikir, ellegar veðurtepptir úti á landi. Þeir voru reyndar saman komnir rétt fyrir utan þinghúsið. Stóðu þar í halarófu utan við litla bókaverzl- un. Þær fregnir höfðu nefnilega borizt út, að nokkrar sjaldfengnar bækur væru komnar í verzlanir. Þingmennirnir voru löglega afsakaðir; það skilja allir í Pól- landi, er maður segist ckki mega vera að einhverju þvf að hann þurfi að flýta sér f biðröð. Þá er einhver torfengin vara komin f verzlanir. Kjöt er líklega eftirsóttasta var- an og verða undir eins langar biðraðir við kjötbúðir, þegar fréttist af því. En það er líka algengt að sjá biðraðir utan við bókabúðir. Þess utan er hvort tveggja selt í stórum stíl á svört- um markaði. Meðalupplög bóka í Póllandi eru svo sem 20 þúsund eintök (það er langtum meira en höfundar á vesturlöndum eiga að venjast). En það er alvanalegt að upplag bókar seljist allt á nokkr- um dögum. Eftirsóttustu bókun- um er strax stungið „undir borð- ið“. Metsölubókin á svörtum markaði um þessar mundir er eft- ir bandarískan geðlækni og fjall- ar um streitu. Hafa langtum færri fengið hana en vildu. Pólverjar eyða næsta ótrúleg- um tíma til þess að verða sér úti um nauðsynjar, og er hætt við því að mönnum á vesturlöndum brygði ef jafnerfitt yrði um að- drætti þar. Svartamarkaðsverslun er geysimikil i landinu og reynir ríkisstjórnin ekkert til þess að draga úr henni. Framboð er svo lítið, að stjórnin verður að láta sér svartamarkaðinn lynda. Hún hef- ur að vísu gert nokkuð til þess að friða neytendur: sett á stofn verslanir sem selja gegn gjald- eyri. Þetta þykir ekki góður sósialismi, en eitthvað urðu yfir- völdin að gera til þess að friða menn, og kalla þau þetta „tíma- bundna lausn“. Vörudreifing og verzlun í Pól- landi er með nokkuð sérstæðum hætti. Ríkið rekur verzlanir og selur þar nauðsynjar við mjög vægu verði — og pólskri mynt. En svo eru aðrar verzlanir, þar sem einungis er selt við gjaldeyri, og þar eru á boðstólum munaðarvör- ur: bílar, litasjónvarpstæki, inn- fluttar snyrtivörur, fatnaður, inn- fluttar sigarettur — og jafnvel niðursoðið pólskt svinsflesk endr- um og eins. En það þykir mest munaðarvara í Póllandi. Aftur á móti eru matvörur margar tor- fengnari; t.a.m. er kjöt oft illfáan- legt í ríkisverzlunum. Fyrir utan verzlanir ríkisins eru svo þrir markaðir og þar selja bændttr afurðir sinar við þvi verði sem þeim sýnist hverju sinni og er ekkert eftirlit með þvi. Auk þess er svartamarkaðurinn, eins og fyrr sagði, og fæst þar flest, sem nöfnum tjóir að nefna, þ.á m. erlendur gjaldeyrir; og loks er að nefna vöruskiptaverzl- un, sem er algeng. Margar húsmæður í Varsjá hafa þann hátt á að þær semja við bændur og koma þeir þá vikulega með vistir. Borga húsmæður það, sem upp er sett og hugsa sig ekki um tvisvar. Þó blöskraði einni kunningjakonu minni, þegar sveitakonan sem færir henni ný- meti reglulega tók upp á þvi ekki alls fyrir löngu að heimta borgun í gjaldeyri! Menn hafa augu og eyru hjá sér og eru snöggir til, er þeir fá veður af eftirsóttri vöru. Eitt sinn kom ég inn á veitingastað i Varsjá og var í fylgd með kunningja mín- um. Það var ungversk salami- pylsa á boðstólum. En hún þykir mikið sælgæti. Þegar við vorum búin að borða bað kunningi minn einn þjóninn að finna sig afsíðis og ræddu þeir saman í hvislingum smástund. Þjónninn vék sér svo frá en kom aftur að vörmu spori með dálítinn böggul, sem hann fékk kunningja mínum en sá laumaði einhverjum seðlum að þjóninum í staðinn. Þjónnirin hafði selt honum heila, stóra salamipylsu og hann borgað 300 zloty. (tæpar 5000 ísl. kr.) fyrir. Hann hefði getið fengið svona pylsu fyrir 60—70 zloty i ríkis- verzlun. En þær fást því miður nærri aidrei í ríkisverzlunum. Almenningur rekur einnig um- fangsmikla símaþjónustu og ber- ast fréttir af nýkomnum, sjald- séðum vörum undrahratt út. Einn daginn eru t.d. komnar í búðir Kleenex-þurrkur, tveim dögum síðar Earl Grey te ellegar ítalskir skór og eru þá ailar símalínur uppteknar um hrið en siðan myndast langar viðraðir og varan elst upp á skammri stund. Reynd- ar er líka uppiýsingaþjónusta á vegum hins opinbera; menn geta hringt og fengið upplýsingar um vörur, sem eru á boðstólum hverju sinni. En það getur tekið timann sinn að ná sambandi við þá miðstöð. Fyrir utan þetta er að nefna „neðanjarðarútgáfu", sem stend- ur með miklum blóma. Lesmál sem hið opinbera telur almenn- ingi ekki hollt einhverra hluta vegna er prentað og því dreift með ólöglegum hætti í stórum stíl. Til að mynda munu velflestir menntamenn í Varsjá hafa komið höndum yfir reglugerðina um rit- skoðun, 70 siðna bók, sem laumað var úr landi í fyrra og hún gefin út þar. Þeir, sem ég hafði tal af höfðu lika allir veður af bréfi því, sem 14 hátt settir embættismenn kommúnistaflokksins rituðu undir og kröfðust þar þess, að lýðræði yrði aukið í flokknum og alþýðu manna veitt meiri hlut- deild'i stjórn og ákvörðunum. Pólskur almenningur býr yfir- leitt við góð efni nú orðið, enda kvarta fæstir um iaun sín. En framboð vöru hefur ekki aukizt að sama skapi og það hefur valdið almennum og viðvarandi urg í landiriu. Pólverjar horfa ekki í það að greiða svartamarkaðsvöru dýru verði. Aftur á móti verður mikill urgur um leið og stjórnvöld hyggjast hækka vöruverð í ríkis- verzlunum. Það er naumast hægt að bera saman vöruverð í Póliandi og á vesturlöndum; vöruverð í Pól- landi er svo margs konar. Það er vöruskiptaverð, opinbert verð, „ferðamannaverð", svartamark- aðsverð, „kunningjamarkaðs- verð“ og mun þó ekki upptalið. Hið opinbera selur langódýrast; vörur í ríkisverzlunum eru flestar niðurgreiddar og það svo, að vest- urlandamönnum þykir þær hlægi- lega ódýrar. Föt og rafmagnstæki eru seld við mjög sanngjörnu verði — en eru oft ekki til ellegar léleg þau sem fást. Löng bið er eftir bilum og ibúðum — nema menn eigi handbæra dollara. Þá er alls eng- in bið. Reyndar eru allar vörur, sem fást gegn dollurum miklu ódýrari í Póllandi en á vestur- löndum. Pólsk yfirvöld halda þvi fram, að erlendur gjaldeyrir nemi minna en 10% þeirrar upphæðar, sem keypt er fyrir að jafnaði, en það er grunsamlega lág tala. Þús- undir Pólverja eiga ættingja er- lendis og senda þeir síðarnefndu oft gjaldeyri heim ellegar koma með hann sjálfir. Aður fyrr geymdu menn gjaldeyri sinn heima en nú er búið að heimila þeim að stofna gjaldeyrisreikn- inga í bönkum og er þá ekki spurt um það hversu féð sé fengið. — HELLA PICK. ÓGNARÖLD Maðurinn sem á metið -1 múgmorðum MIÐBAUGSGINEA heitir Iftið land og liggur í Afríku vestan- verðri rétt fyrir norðan miðbaug. Miðbaugsgfnea var áður nýlenda Spánverja, en hlaut sjálfstæði árið 1968. Upp frá þvf hefur setið þar að vöfdum Macias nokkur Nguena Biyogo og stjórnað með tilstyrk hers sfns. Macias þessi er frægastur af þvf, að hann er tal- inn hafa látið myrða fleiri þegna sfna en aðrir þjóðhöfðingjar sem nú eru uppi, og er þá langt til jafnað. Að sögn diplómata og flótta- manna frá Miðbaugsgíneu hafa tugþúsundir manna verið myrtar f landinu á undanförnum níu ár- um, þ.e. frá því, að Maeias kom til vaida. Menn eru teknir af lifi fyrir litlar sem engar sakir. Algengasta líflátsaðferðin mun vera barsmíðar. Fáum fréttamönnum hefur ver- ið hleypt inn i landið á undan- förnum árum, og nærri engum vestrænum. Það er því nærri ógerningur að ganga úr skugga um sannleiksgildi sagna, sem þaðan berast. En nokkuð er það, að flóttamönnum, diplómötum, kaupsýslumönnum og tækni- mönnum, sem þar hafa verið ein- hvern tíma stíðustu árin ber öllum nokkurn veginn saman í frásögnum. Þeir segja svo frá, að Macias stjórni með tilstyrk herlögreglu, skipaðrar mönnum af ættflokki hans er Fangnefnist, en auk þess hafi hann sér til hjálpar nokkur hundruð Sovétmenn, Kínverja og Kúbumenn, enda kalii hann stjórn sína marxíska. Er hann og búinn að reka alla bandariska diplómata úr landi. Það er talið, að nærri 145 þús- und manna hafi flúið frá Miðbaugsgíneu til nágrannaríkj- anna Kamerúns og Gabons elleg- ar tii Nígeriu eða Spánar. Þetta er geysihátt hlutfall, nærri helming- ur þjóðarinnar. Ekki er vitað með vissu hversu margir hafa látið lifið, en fiestir kunnugir telja að þeir hijóti að vera tugir þúsunda alls. Mörg fjölþjóðleg samtök, svo sem Heimskirkjuráðið, Samtökin gegn þrælahaidi, og Amnesty International, hafa fordæmt stjórn Maciasar opinberlega og segir í einni samþykkt, að „hún sé ein allra mesta ógnarstjórn í heiminum“. Macias fer ekki i manngreinar- álit, þegar morðfýsnin grípur hann. Hann hefur látið myrða eina sjö fyrrverandi ráðherra sína, ef ekki fleiri. Og einn fyrr- verandi ráðherra komst undan nauðuglega; Macias hafði gefið út skipun um að drepa hann, en ráðherranum tókst að flýja til skógar. Var hann tvo daga á flóttanum unz hann komst úr landi, en herlögreglan leitaði að honum dyrum og dyngjum um allt land. Ráðherra þessi heitir Pedro Ekong Andeme og fór áður með heilbrigðismál fyrir Macias. Ég náði tali af Ekong fyrir skömmu; það var í Younde í Kamerún, og fór fundur okkar fram með leynd, því að Ekong telur sig fráleitt óhultan enn þótt hann sé sloppinn frá Miðbaugs- gíneu. Ekong sat i fangeisi í Malabo, höfuðborginni í Miðbaugsgineu, í fjögur ár, frá 1971 til 1975. Hann var fangelsaður fyrir þá sök eina að hafa tekið til máls þegar Macias vildi að hann þegði. Ekong segír svo frá, að hann hafi hírzt i tveggja metra löngum og tveggja Macias kannar heiðursvörðinn í opinberri heimsókn f Nigerfu. feta breiðum klefa ailan þennan tíma, allsnakinn og varð að sofa þannig á beru steingólfinu. Hann reyndi að fyigjast með því er fangar voru teknir af iífi í fangelsisgarðinum og hafa tölu á þeim. Taidi hann 157 á þeim fjórum árum, sem hann sat þarna. Flestir voru barðir til dauða. Tók það mislangan tíma, en kvalavein fanganna glumdu um fangelsið á meðan — „þangað til hryggurinn var brotinn. Þá hættu þeir að æpa“. Fáeinir hlutu þó þau for- réttindi að verða leiddir fyrir af- tökusveit og skotnir. Flestir, sem teknir voru af lífi, höfðu verið fangelsaðir af stjórnmálaástæð- um, að því er Ekong sagði. En auk þess kvað hann herlögreglumenn oft hafa drepið merin, sem ekkert höfðu andæft stjórninni, „bara af því að þeim datt það i hug“. Malaboborg er á Fernandó Pó- eyju, (Miðbaugsgínea er í tveim hlutum Fernando Pó-eyju og Ríó Múni uppi á meginlandinu), sem nú er reyndar búið að skíra upp og heitir hún Macias Nguema Biyogo-eyja. Þar býr nærri fjórðungur þjóðarinnar. Þótt margir séu drepnir i Malabó eru þó langtum fleiri myrtir uppi á meginlandinu, að því er Ekong segir. Diplómat frá Kamerún, sem dvaldist i tvö ár í Miðbaugsgíneu, lét svo um mælt er hann kom þaðan, að Macias virtist ráðinn i þvi að útrýma öllum stjórnmála- leiðtogum háttsettum embættis- mönnum, menntamönnum og kaupsýslumönnum og helzt ölium öðrum en ættbræðrum sínum Fangmönnum. Flestallir and- stæðingar hans úr hópi stjórn- málamanna eru annað tveggja dauðir eliegar flúnir úr landi. En alþýða manna, sem er mestan Framhald á bls. 36

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.