Morgunblaðið - 26.02.1978, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 26.02.1978, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. FEBRUAR 1978 21 Með rúmlega 60 ár að baki verða Fóstbræður að sætta sig við að þeir elstu hverfi úr hópnum — þegar kallið kemur. Erfiðara er að sætta sig við þegar félagar á besta aldri eru kvaddir eins og Sigbjörn Eiriksson. Þeir komu tveir i kórinn ungu mennirnir úr Kennaraskóla Is- lands i byrjun árs 1948, Sigbjörn og Steinar Þorfinnsson. Þeir reyndust báðir hæfileikamenn á sviði söngsins og félagar góðir. Þeir hafa nú báðir verið kallað- ir frá okkur, Steinar hinn 10. mars 1977 og Sigbjörn að morgni hins 18. þ.m. Eigi verður Sigbjörn kvaddur öðruvfsi en að minnst verði hans einstæða starfs i þágu kórsins. Hann var virkur söngmaður til ársins 1961 er hann gerðist félagi Gamalla Fóstbræðra. Það hafði lengi verið draumur Fóstbræðra að eignast þak yfir höfuðið. Sá draumur rættist vor- dag einn árið 1972, þegar Félags- heimili Fóstbræðra var vígt að Langholtsvegi 109. Mikil gleði rikti meðal kórfélaga sem um ára- bil höfðu unnið að byggingunni, en litu nú verk handa sinna full- skapað. Þrátt fyrir framlög Fóstbræðra voru skuldir miklar og séð var að rekstur heimilisins myndi því að- eins takast að boðin yrði fram sjálfboðavinna áfram. Sérstak- lega var þörf á manni sem vildi taka að sér daglegt eftirlit með húsi og húsbúnaði. Sigbjörn Eiríksson hafði búið sér og fjölskyldu sinni heimili að Drekavogi 8, stutt frá nýja félags- heimilinu. Þaó var lán Fóst- bræðra. Hann bauðst til að taka þettaJitarf að sér. Fljótlega kom i ljós áhugi hans á því að skila þessu starfi svo að óaðfinnanlegt væri. Munu bæði Fóstbræður og aðrir er til þekktu lengi minnast árvekni hans og umhyggju, enda var svo komið að þessi tvö nöfn, Sigbjörn og Félagsheimili Fóst- Sérverslun með listræna húsmuni Borgartún 29 Sími 20640 Húsgögn Alvars Aalto Hinn heimsfrægi finnski arkitekt Alvar Aalto hannaði flest húsgögn sín upp úr 1930. Síðan hafa pau öðlast sívaxandi vinsældir um allan heim; eftirsótt af hinum vandlátu vegna forms og frágangs. Hin sériaka samlíming finnska birkisins sem einkennir h sgögn Alvars Aalto gerir þau afar sterk. Bogadregnar og mjúkar línur þeirra skapa rólegt og notalegt yfirþragð og gerir þau auðveld í allri umgengni. Þessi húsgögn verða fallegri eftir því sem þau eru notuð lengur. Gjörðu svo vel að kynna þér verð og gæði Kveðja: Sigbjörn Eiríksson NYTT SNIÐ Smókingaleigan AÓalstræti 4 Sími 15005 >kkur sem eftir lifum að hafa átt slíkan mann sem Sigbjörn að fóst- bróður. Við Fóstbræður allir, ungir sem gamlir, þökkum samfylgdina og sendum eiginkonu hans og börn- um. okkar dýpstu samúðarkveðj- ur. S.H. bræðra. voru í hugum okkar orðin óaðskiljanleg. Aldrei þáði Sigbjörn laun fyrir starf sitt fyrir félagsheimilið en gullmerki Fóstbræðra var hann sæmdur fyrir það svo og önnur störf í þágu kórsins. Segja má að Sigbjörn hafi gegnt starfi sínu til dauðadags i þess orðs fyllstu merkingu. Eigi lét hann deigan siga þótt sjúkdómur drægi smátt og smátt úr þreki hans, og siðasta kvöldið á sjúkrahúsinu spurði hann um ým- 's atriði er snerti heimilið. Þegar honum var tjáð að allt /æri i lagi sagði hann: ,,það er ;ott“. Það voru kveðjuorð hans til •’óstbræðra. Já það er gott að lauðastríði er lokið fyrst hjá því /arð ekki komist. Það er lott fyrir Fæddur 24. júlí 1925 Dáinn 18. febrúar 1978 Karlakórinn Fóstbræður er ein- stæður félagsskapur fyrir þær sakir að fáir segja skilið við hann af fúsum vilja. Þegar hinu eigin- lega söngstarfi lýkur er ekki kvatt fyrir fullt og allt heldur er félags- skap og söng haldið áfram meðal „Gamalla Fóstbræðra". Þetta er auðskilið þegar höfð eru i huga þau sannindi að fátt sameinar bet- ur hug og hjörtu manna en ein- mitt söngurinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.