Morgunblaðið - 26.02.1978, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 26.02.1978, Blaðsíða 23
MORGUJVBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. FEBRÚAR 1978 23 ff „Löngbið er eftir bílum og íbúðum — nema menn eigi handbæra dollara” W ATVINNUGREINAR Mannræning- inn var „mað- ur ársins” Þeir á dagblaóinu E1 Tiempo, útbreiddasta blaði í Kólumbíu, út- nefna jafnan einhvern „Mann ársins", eins og víöar tfökast, Er hann oftast nær valinn úr hópi stjórnmálamanna, íþróttamanna ellegar listamanna. En að þessu sinni var kjörinn maður úr starfs- stétt, sem aldrei hefur komið til álita áður. Hann var reyndar ekki nafngreindur í útnefningunni en kallaður „Mannræninginn". Eng- inn mun hafa gefið sig fram til að taka við nafnbótinni. En blaða- mennirnir færðu þá ástæðu til valsins, að mannræningjar hefðu ekki einungis slegið öll fyrri met í afköstum á síðast liðnu ári, held- ur væru þeir líka orðnir svo leikn- ir í starfi að varla væru dæmi annars eins úr öðrum atvinnu- greinum, og væru þeir um þessar mundir einna bezt mennt starfs- stétt í landinu. Samkvæmt tölum frá yfirvöld- um f Kólumbíu hefur mannrán- um fjölgað gifurlega á undanförn- um hálfum öðrum áratug. Arið 1961 hafi sjö manns verið rænt, en hvorki fleiri né færri en 100 í fyrra. Eru þetta þó einungis þeir, sem lögreglunni var tilkynnt um. Það er talið vfst, að hinir séu langtum fleiri, sem lögreglan fréttir ekki af. Sagði mér t.d. framámaður i hópi Gyðinga í Bogota, höfuðborginni, að þeir Allt frá af- skiptaleysi upp í misk- unnarlausa hörku Tim 0‘Hara heitir ungur mað- ur, írskur og bjó til skamms tíma í Madrid ásamt með foreldrum sínum. Dag einn ekki alls fyrir löngu handtók lögreglan kunn- ingja hans fyrir það að reykja ntarijúana. Tim hafði sjálfur fikt- að við það að reykja marijúana, en hafði þó ekki verið að reykja með kunningja sínum er sá var tekinn. Aftur á móti bar kunning- inn það, að þeir hefðu verið að reykja báðir í þetta sinn og var Tim handtekinn eftir framburði hans. Attu þeir langa fangelsis- dóma yfir höfðu sér fyrir vikið. Það fór þó svo, að dómari lagði létu lögregluna yfirleitt aldrei vita, er Gyðingi væri rænt heldur greiddu lausnargjaldið umsvifa- laust. Ella væri stór hætta á þvi, að ræningjarnir dræpu fórnar- lambið. Oftast munu mannránsmálin fara „vel“ þannig að aðstandend- ur borga og ræningjarnir skila þá fórnarlambi sinu lifandi að minnsta kosti þótt það kynni að hafa orðið fyrir einhverju hnjaski. En stundum fer verr. Til dæmis að nefna er skammt frá trúnað á frásögn Tims og var hon- um sleppt. En áður en hann kæm- ist heim til sfn var hann stöðvað- ur og handtekinn aftur og í þetta sinn eftir lagagrein, sem hljóðar svo, að þeir sem neytt hafi fíkni- lyfja séu „hættulegir umhverfi sínu“! Tim var þó bráðlega sleppt aftur gegn tryggingu. Foreldrar hans brugðu þá skjótt við, útveg- uðu honum nýtt vegabréf (hitt hafði lögreglan gert upptækt) og komu honum með leynd yfir landamærin til Frakklands. Hefði henn ekki komizt úr landi hefði honuni verið gert að dvelja til athugunar á geðsjúkrahúsi um alllangt skeið og sfða'n hefði hann fengið sex ára skilorðsbundinn dóm. \ Þúsundir ungmenna hafa brennt sig á þvf, að það er afar misjafnlega hart tekið á hass- og marijúananeyzlu í heiminum. Sums staðar eru viðurlög létt og lögreglan nennir varla lengur að taka af mönnum skýrzlu fyrir þessar sakir. Annars staðar eru lög ströng en dómar yfirleitt væg- ir, og enn annars staðar eru lögin því,' að átta ára gömlum syni fátæks skósmiðs í Bogota var rænt. Heimtuðu ræningjarnir jafnvirði tæpra 2000 dollara í lausnargjald. Faðir _ drengsins gata með engu móti reitt það fram og vað hann að segja ræningjun- um það. Fjórum dögum siðar fannst drengurinn og hafði verið myrtur. Svo rammt hefur kveðið að mannránum undanfarið, að lög- reglan í Bogota'er búin að láta prenta og gefa út leiðbeiningar og varúðarreglur handa almenningi. Er þar m.a. brýnt fyrir mönnum að koma fyrir viðvörunarflautum í bílum sinum, vera ekki einir á ferli o.s.frv. Það lætur að líkum, að mikil vertíð er hjá lífvörðum í Kólum- bíu um þessar mundir, og skot- vopn seljast einnig grimmt. Fyrir stuttu sat ég inni á veitingastað í Bogota og var að horfa út um glugga er ég sá hvar tveir stórir og glæsilegir bílar runnu upp að gangstéttinni og námu staðar fyr- ir utan dyrnar. Afturdyr þeirra opnuðust og út stukku fimm menn, allóárennilegir ásýndum, og veifuðu skambyssum. Ég beið ekki boðanna en hentist á fætur og forðaði mér í skjól. Dyra- vörðurinn var lengi að sannfæra mig um það að engin hætta væri á ferðum. Þetta voru bara lifverðir þingmanns nokkurs, sem pantað hafði borð þarna og var nú kom- inn til að snæða hádegisverðinn sinn. Um svipað leyti bauð ég hagfræðingi og tveimur lögfræð- ingum, kunningjum mínum, til kvöldverðar heima. Þegar við vor- Framhald á bls. 47. ströng og þeim stranglega fram- fyigt. Marijúna- og hassneyzla eru orðin mikill vandi löggjafar- og dómsvaldi og lögreglu víða um heim. Er nú svipað komið í því efni og var á bannárunum, þegar framleiðsla og neyzla áfengis var bönnuð að lögum en samt var haldið áfram að brugga og allur almenningur drakk eftir sem áður. Það er talið láta nærri, að 35 milljónir Bandarfkjamanna hafi einhvern tfma reykt marijúana, og einar 18 milljónir reyki það að staðaldri; og eru þessar tölur úr opinherum skýrslum. Flestir neytendurnir eru á aldrinum 18—25 ára. En söluverðmæti á ári er talið nálægt fimm milljörðum dollara. Verrá er að henda reiður á út- breiðslu marijúana í öðrum lönd- um en Bandarfkjunum. Flestir kunnungir munu þó sammála um það, að neyzlan í Evrópu færist stöðugt í vöxt. En sums staðar, einkum i Austurlöndum. hafa mcnn reykt hass og marijúana svo að öldum skiptir, eins og kunnugt er. FIKNILYFl (SJÁ: Verzlun & viðskipti) Detta gerðist líka .... Hlátur og gnístan tanna Forstöðumaður tækniháskólans í Maíasiu viðurkenndi á dögun- um að hann hefði kvatt til inn- fædda særingamenn vegna hálfgildings sturlunar sem stakk sér allt í einu, niður á meðal námsmeyjanna. For- stöðumaðurinn upplýsti við sama tækifæri að þetta hefði jafnvel gengið svo langt að hann hefði neyðst til að loka skólanum daglangt, en þá tóku fyrrnefndar stúlkur allt í einu ýmist að öskra af kæti eða skelfingu — og létu í hvorugu tilvikinu af fyrr en þær voru orðnar örmagna. — Tilkoma særingamannanna hafði að mati forstöðumannsins borið „jákvæðan árangur". Hver er maðurinn Kim Jung-Il, sonur Norður- Kóreu forseta og líklegasti arf- taki hans að flestra dómi, er helsjúkur eftir banatilræði sem honum var sýnt, er segir í óstað- festri frétt í japönsku dagblaði. Að sögn þess stóðu háttsettir foringjar i norður-kóreanska hernum fyrir tilræðinu og tókst flugumönnum þeirra að vinna skemmdarverk á bifreið for- setasonarins með þeim afleiðingum að hann slasaðist lífshættulega. Víst er um það að Kim hefur ekki komið fram opinberlega í vetur en ,sex mánuði, hvað er harla óvenjuleg hlédrægni fyrirmanna á þessum slóðum, að ekki sé meira sagt. Og sögusagnir eru á kreiki um það i . Japan að sendimenn frá föður hans hafi verið þar á ferð snemma í vetur og þá haft samband við kunna japanska lækna „vegna sonar háttsetts embættismanns, sem hefur ekki komið til meðvitundar í meira en tvo mánuði“, eins og það er orðað í fréttinni. Hálfur sannleikur Aðalfulltrúi Banda- ríkjamanna í mann- réttindanefnd Sam- einuðu þjóðanna hef- ur krafist þess opin- berlega að nefndin fjalli án tafar og áf fullri einurð um marg- vísleg brot á almenn- um mannréttindum í löndum eins og Mið- baugs-Guineu (sjá frá- sögn hér í opnunni), Eþíópíu, Kambódíu, Uruguay, Braziliu, Argentínu og svo kommúnistaríkjum Austur-Evrópu eins og þau leggja sig. Banda- rikjamaðurinn heldur því fram að nefndin hafi vísvitandi leitt hjá sér að víta yfirgang stjórnvalda i fyrrnefndum löndum og einblini í staðinn á Suður-Afríku, Chile og hernámssvæði tsraelsmanna, rétt eins og allt sé eins og best verði á kosið i öðrum heimshlutum. Svolítid dæmi Uruguay, sem getið er hér efra, er í annarri frétt um ofbeldi og pólitík kallað það landið utan kommúnistablokkarinnar þar sem ráða- mennirnir séu iðnastir við að tukthúsa þegna sína. Bandarískur prófessor í alþjóðarétti hefur semsagt full.vrt opinberlega að i Uruguay séu sem stendur allt að átta þúsundir pólitiskra fanga; og ennfremur að um 60,000 Uruguaymenn, eða einn af hverjum 45 íbúum landsins, hafi gist fangelsi yfirvalda af pólitiskum sökum síðan árið 1972. Afbrotum f jölgar f .... .f„ , .. Afbrotum fjölgar óhugnanlegá á Bretlandseyjum að nýjustu skýrsl- ur sýna. Þannig jókst afbrotatíðni í Englandi og Wales um hvorki meira né minna en 13% á síðast- liðnu ári. Háværar raddir eru fyr- ir bragðið uppi um það að nauð- synlegt sé að taka lögbrjótana fastari tökum. Vægari dómar og vaxandi linkind hafa ekki borið þann árangur sem menn höfðu vonað, fullyrða þessar sömu radd- ir; og úr því miskunsemin dugi ekki, þá sé ekki annað ráð tiltæk- ara en að sýna hinum ólöghlýðnu fulla hörku.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.