Morgunblaðið - 26.02.1978, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 26.02.1978, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. FEBRUAR 1978 HELGI HÁLFDANARSON: ÖVINURINN ðSVNILEOI í Morgunblaðinu birtist í gær (15.2.) grein eftir dr. Jón Gíslason skólastjóra, Forngrískir leikir í Ijóðum og lausu máli. Þar lætur dr. Jón í Ijósi undrun sína og þó nokkra hneykslun á því, að Þjóðleikhúsið skuli nota ljóðtexta, sem ég hef gert, til flutnings á leikriti Sófóklesar, Ödípúsi konungi. Hann lýsir því yfir, að sér leiðist flutningur leikrita í ljóðum, og finnur því formi margt til foráttu, sem ég mun ekki ræða án frekara tilefnis, þótt ég sé þar mjög á öðru máli. Mig furðar, hversu dr. Jón hefur allt á hornum sér í þessari grein sinni. Honum þykir jafnvel tímabært að setja út á það eína sem enn hefur birzt af þýðingu minni, nafnið Ödfpús, vegna þess að það sé „latneska myndin". Auðvitað valdi ég ekki þetta nafn vegna þess að það væri latnesk mynd, heldur vegna þess, að það er hin hefðbundna íslenzka mynd þessa griska nafns. Steingrímur Thorsteinsson notar í Goðafræði Stolls myndina Ödípus. Og má ég geta þess, að dr. Jón Gíslason ræðir allmikið um konung þennan í ágætu riti sínu, Goðafræði Grikkja og Rómverja, og nefnir hann þá ýmist Ödípús eða Ödipús, þó að nú þyki honúm ekkert duga nema Oidipús, því það sé hin gríska mynd nafnsins (sem það raunar er ekki). Sú mynd virðist mér ónothæf í íslenzkum texta. Dr. Jón fjallar nokkuð um þýðingar sjálfs sín á forngriskum leikritum, og lýsir því hve erfiðlega sér hafi gengið að fá þær fluttar; hvar sem hann hafi leitað á, hafi öll sund lokazt og ýmsu verið barið við. Síðan segir hann; „En hér er við einhvern ósýniiegan óvin að kljást, sem ekki er gott að hafa hendur i hári á. Hann hagar sér eins og Refsinornir, rekur slóð fórnarlambsins og gefur þvi engin grið." Ég verð að segja sem er, að mér þykir hörmulegt, að dr. Jón skuli láta svo um mælt. Þegar svona er til orða tekið, hvað er þá eðlilegra en ýmsum komi í hug sá maður, sem þarna virðist öðrum fremur hafa fipað æskilegan gang mála, sem sé undirritaður, hvort sem dr. Jón ætlast til þess eða ekki, að svo sé skilið. Vegna þessara ummæla kemst ég ekki hjá að láta þess getið, að þýðingu á leikriti hef ég aldrei — segi og skrifa aidrei — boðið neinu leikhúsi, útvarpi né sjónvarpi; enda stæði ég fremur betlandi á Lækjar- torgi en að ganga á milli manna og bjóða fram slíkan varning. Fyrsta leikritið sem ég þýddi fyrir Þjóðleikhúsið var Sem yður þóknast eftir Shakespeare, og var það sannarlega ekki vegna þess að mér hefði það til hugar komið, heldur fyrir þrábeiðni leikstjórans, sem var vinur minn Lárus Pálsson. Lárus vissi til þess, að ég hafði ögn verið að leika mér að nokkrum af sonnettum Shakespeares, þó að ekki hefði ég birt neitt af slíku. Mun það hafa valdið þessu hlálega uppátæki hans. Síðar var svo beðið um fleira eftir sama höfund, og urðu til þess bæði forráðamenn Þjóðleikhússins og aðrir. Fleiri en einn útgefandi bauð mér útgáfu, og ég samdi við þann sem fyrstur bauð. En vegna útgáfunn- ar sjálfrar bættust enn í hópinn nokkur Shakespeares- leikrit, og hafa sum þeirra siðan verið föluð til flutn- ings i leikhúsum og útvarpi. Haustið 1968 tilkynnti Leikfélag Reykjavíkur að Antígóna eftir Sófókles í minni þýðingu yrði meðal næstu vérkefna sinna. Af þvi tilefni skrifaði dr. Jón Gíslason grein í Morgunblaðið (21.9. ’68), þar sem hann bendir á að þýðing sín á leikriti þessu hafi verið gefin út og hlotið góða dóma. Mátti lesendum þá furðulegt þykja, að fitjað skyldi upp á nýrri þýðingu, fyrst til var góð þýðing fyrir. Ég sendi því blaðinu daginn eftir smá-athugasemd þess efnis, að misskiln- ings myndi gæt'a um eóli verksins. Þar segir m.a.: „Þegar Leik-félag Reykjavíkur fór þess á leit við mig, að ég þýddi Antigónu, tók ég því víðs fjarri, og benti einmitt á, að til væri mjög nýleg þýðing beint úr frummáli eftir vandvirkan fræðimann. Kom þá að kjarna þessa máls. Leikfélagið lagði allt kapp á að flytja leikritið í bundnu máli, sem næst hinu forna ljóðformi þess. Nú er þýðing dr. Jóns hins vegar gerð á lausu máli, svo sem víða hefur tíðkazt jöfnum hönd- um, ekki sízt um fræðilegar þýðingar, þar sem ná- kvæmni merkinga skiptir meira máli en orðahljómur á leiksviði.” Og síðar: „Mér var að sjálfsögðu vel ljóst, hvílíkum kostum þýðing dr. Jóns er búin, ekki sízt frá fræðilegu sjónar- miði, og kom mér aldrei til hugar að ganga svo að verki mínu, að hún yrði mér ekki jafnan til ráðuneyt- is, enda þótt mér væri sett annað markmið. Ekkert af þessu vildi ég að færi á milli mála, og þegar ég skilaði þýðingu minni, lét ég fylgja henni svo fellda athuga- semd á titilblaði: „Þýðing þesssi er gerð fyrir Leikfé- lag Reykjavíkur til flutnings á leiksviði í fornlegum ljóðstíl. Hún er ekki gerð úr frummáli, heldur eftir erlendum Ijóðþýðingum, og með hliðsjón af hinni vönduðu lausamáls-þýðingu dr. Jóns Gíslasonar.” Var svo um talað, að athugasemd þessi kæmi fram opinber- lega, áður en sýningar hæfust.“ Nú vil ég geta þess, að fyrir nokkrum árum fór Sveinn Einarsson þjóðleikhússtjóri þess á leit við mig, að ég gerði Orestesar-þríleik Æskilosar sömu skil og Antígónu áður. Mun honum hafa þótt ég ærið tregur til; og var það þó ekki vegna þýðingar dr. Jóns á því verki, enda nú sem fyrr um annars konar þýðingu að ræóa, heldur blátt áfram vegna þess, að mér hraus hugur við að færast slíkt ofboð i fang. Þó kom þar, að ég skilaði þjóðleikhússtjóra þýðingu, sem hann taldi hæfa sinum þörfum. En þegar til kom, var svo háttað verkefnum Þjóð- leikhússins ög mannafla, að fresta varð sviðtöku þrí- leiksins um óákveðinn tíma. Og í hans stað bað þjóð- leikhússtjóri mig nú um að þýða fyrir sig ödípús konung, sem þá yrði sýndur fyrr. Þrátt fyrir öll mín undanbrögð lauk okkar viðskiptum á sama veg og fyrr, og er nú flutningur þeirrar þýðingar að hefjast. Þýðing mín á Antígónu hafði verið gefin út um leið og hún var flutt á sínum tíma. Þegar Ödípús konungur bættist við, þótti illa á því fara, að þar vantaði einn þriðjunginn af Þebu-leikjunum svo- nefndu, ödfpús f Kólónos. Varð því að ráði, að þessir leikir yrðu samferða, svo sem mjög er venja. En vegna beiðni skólakennara var þó að því horfið að prenta nú þegar Ödfpús konung, en Ödípús í Kólónos síðar. Þegar ég var að fást við þríleik Æskilosar, hafði ég Frá Skákþingi So vétr ík j anna EINS og skákáhugamönnum er kunnugt urðu þeir Boris Guljko og Jozef Dorfman jafnir og efstir á Skákþingi Sovétríkjanna 1977. Þeir urðu því að tefla einvígi um titilinn og er því nýlokið. Áður en fjallað verður um einvígið skulum við til gamans rifja upp úrslitin á meistaramótinu sjálfu. Þau urðu þessi: 1—2. Dorfman og Guljko 9'A v. af 15 mögulegum. 3—4. Petrosjan og Polugaevsky 9 v. 5—7. Bagirov, Geller og Tal 8 v. 8—9. Kuzmin og Romanishin 7'A v. 10—11. Balashov og Sveschnikov 7 v. 12—14. Kochiev, Smyslov og Tukmakov 6'A v. 15. Grigorjan 5lA v. 16. Alburt 5 v. Boris Guljko (t.v.) og Jozef Dorfman við verðlaunaafhendingu á Skákþingi Sovétrfkjanna. Eins og sjá má á þessari upp- talningu voru allir sterkustu skákmenn Sovétríkjanna að Karpov undanskildum mættir til leiks. Fyrirfram voru tveir ungir og upprennandi skák- menn, þeir Kuzmin og Romanishin, taldir sigurstrang- legastir, auk hinna þraut- reyndu skákmanna af eldri kynslóðinni, þeirra Petrosjans, Polugaevskys og Tals. Mótið var æsispennandi frá upphafi til enda, en lengst af var Petrosjan í forystusætinu. Hann byrjaði mjög vel, hafði hlotið 5‘A vinning eftir sjö um- ferðir, en tapaði í áttundu um- ferð fyrir Kuzmin. Við það var sem allur kraftur væri úr hon- um, hann gerði sjö síðustu skákirnar jafntefli og þeir Guljko og Dorfman skutust upp fyrir hann á endasprettinum. Þeir Guljko sem er 32 ár'a og Dorfman, sem er aðeins 24 ára, tefldu síðan til úrslita um titil- inn og bjuggust flestir við spennandi viðureign, enda báðir svo til óþekktar stærðir. Sú varð einnig raunin á. í fyrstu skákinni, sem Guljko hafði hvilt í kom upp óvenju- legt afbrigði drottningarbragðs og náði Dorfman snemma að jafna taflið. Var siðan samið um jafntefli eftir 25 leiki. 1 annarri skákinni beitti Guljko afbrigði af spænskum leik sem mjög er í tízku um þessar mundir (1. e4 — e5 2. Rf3 — Re6 3. Bb5 — Bc5). Kapparnir fylgdu bókunum síðan lengi og virtist Dorfman alltaf hafa rýmra tafl. Guljko gaf þó ekki millimeter eftir í vörninni og eftir 39. leik hans Hf8-f7 kom upp þessi staða: Svart: Guliko_________________ Hvítt: Dorfman Skák eftir MARGEIR PÉTURSSON 40. Dd3? (Nauðsynlegt var 40. Rc6 — Dc8 41. He7 og jafntefli eru eðlilegustu úrslitin. Nú vaknar svarta liðið heldur bet- ur til lifsins og hvita staðan veróur skyndilega óverjandi) Db2! 41. Dfl (41. Df3 kom ekki til greina vegna 41. . .. Da2 42. Ha6 — Bb6) Dc2 (Biðleikur- inn. 1 rannsóknum sínum á bið- stöðunni fann Dorfman enga haldgóða vörn) 42. Ha6 — Bc5 43. Rc6 — Hd7 44. Rb4 — Dxe4+ 45. Kh2 — Hd2 46. Ha2 — Ilxa2 47. Rxa2 — Df3 48. Dg2 (Eða 48, Kgl — Dxg3+) Dxf2 og hvítur gafst upp. 1 þriðju skákinni fékk Guljko mun betri stöðu eftir byrjunina og að loknum 21. leik svarts. b7-b5, kom upp þessi staða: Svart: Dorfman Guljko lék hér 22. Rg3 en mannsfórnin 22. .. . Bxf5! hefði vafalaust gefið honum betri möguleika. 22. ... Hxfð gengur auðvitað ekki vegna 23. Hxc8 + og svartur yrði því að leika 22. ... exf5 23. Dxd5+ — Kh8. Hvítur hefur þá steka sókn eftir 24. Hc6! T.d. 24. ... Dd2 25. Hxh6+ — Kg7 26. Dc6 — Hg8 27. Dg6+ — Kf8 28. Hxc8 + !. Eftir þessa yfirsjón Guljkos náði Dorfman að bjarga sér í jafntefli. Lokin urðu þannig: 22. Rg3? — Bb7 23. Ddl — g4 24. Bxf5 (Nú leiðir fórnin aðeins til jafnteflis. Betra var 24. Rh5 — Bg5 25. Rf4 og hvítur stendur ennþá betur) — exf5 25. Rxf5 — Hxf5 26. Dxg4+ — Hg5 27. De6+ — Kh7 28. Hc7 — Hbg8 29. Hxe7+ (En ekki 29. Hxb7? — Hxg2+ 30. Khl — Hxh2+ 31. Kxh2 — Dd2+ og svartur mátar) H8g7 30. Hxg7+ — Hxg7 31. Df5+ — Kg8 32. De6+ — Kh7 33. Df5 + — Kg8 34. De6+ Jafntefli. Byrjun fjórðu skákarinnar var mjög róleg frönsk vörn, en í þessari- stöðu varð Guljko á mjög alvarleg yfirsjón: Hvftt: Dorfman

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.