Morgunblaðið - 26.02.1978, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 26.02.1978, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. FEBRÚAR 1978 25 v Þú bláfjallageimur með heiðjökla- hring, hefur oft átt við að raula á heimleiðinni inn eftir Skúlagötunni á þessum vetri Slik heiðríkja léttir ekki svo litið lundina i amstri dags og prófkjöra Að visu er aðeins einn jökul að hafa i fjallahringnum á þeim slóðum, en háfjöll á borð við Snæfellsnesfjöllin og Skarðsheiðina eru að vetrinum jöklaigildi með sina hvitu kolla upp fyrir kaldblá fjöll hið neðra í vetur höfum við hér fyrir sunnan fengið góðan ,,vetrarauka”. og það i miðju skammdeginu Það er ekki svo litils virði fyrir ibúa þessarar eyjar norður i Dumbshafi Stöku óveðursgusur skerpa bara til- finninguna fyrir heiðrikjunni á eftir Erum við ekki lika farin að kunna betur að meta það sem þetta land hefur upp á að bjóða til yndisauka umfram önnur? Með þéttbýlismynd- un sækjumst við kannski meira eftir nokkru olnbogarými Ekki einungis að sumarlagi, heldur lika á löngum vetrum Skáldin eru næm á slikt og farin að túlka þessi viðhorf Ólafur Jóhann Sigurðsson segir i upphafi eins Ijóða sinna Af stað burt í fjarlægð af flatneskju torgsins þar sem hjólbörum er ekið með andvana raul. Og Ijóðið. sem er lengra. endar á orðunum: „Og snúið til byggða, með birgðir af söng ” Við slik nú- tímaljóð ættu tónskáldin að gera sönghæf lög fyrir almannaraddir, svo maður geti raulað þau þegar við á, engu siður en „Bláfjallageiminn”. Sigurður Þórarinsson jarðfræð- ingur hefur séð okkur fyrir slikum meðfærilegum textum við lög, sem allir kunna, til brúks i baði eða bil, þegar útrás þarf fyrir þvisar skoðan- ir Lagið við þjóðsöng Ástralíu um hana Matthildi fær hjá honum text- ann: Betra er á fjöllum: Mörg er sú plágan er þjakar mann.sem býr i borg brjótandi niður hans sálu og kropp. Þar er vafstur og amstur og eilíft ráp um stræti og torg, aldrei þar verður á jaginu stopp. Og svo kemur viðlagið: Betra er á fjöllum konum og körlum koma þau öllum að nýju i lag. Vistin á öræfum eykur fjör og styrkir þrótt öræfin skulum við gista í nótt. Ekki er slikt hugarfar aðeins til að syngja um. þótt hressilegur söngur hvetji ávallt til dáða Hugarfarsbreyt- ingin hefur á nýliðnum árum ekki breytt svo litið yfirbragði og lifshátt- um fjölda fólks á höfuðborgarsvæð- inu Hinn hefðbundni vetur heldur borgarbúum gjarnan inni við bækur, hljómplötur og sjónvarp eða annað setugaman, sem ekki er staðið upp frá fyrr en vorar En nú hefur vissu- lega gefið til útivistar um hávetur Og þá sjáum við hvernig lifsstillinn á þéttbýlissvæðinu er að breytast. I útjaðri borgarinnar riða hestamenn á öllum aldri fákum sinum til kosta, unglingar setja á sig skauta á Rauðavatni og viðar og göngufólk drifur sig um hverja helgi á fjöll og fjörur með ferðafélögunum Mest munar kannski um skiða- fólkið Nú eru það ekki lengur kapp- arnir einir og kartnir unglingar, sem halda með skiðin sin til fjalla — heldur heilu fjölskyldurnar með ung börn á sleðum og fullorðna á göngu- skiðum Aðstaða og útbúnaður hefur batnað svo. að nú er skiða- sport fleirum en hetjum einum fært Mörgum finnst það sjálfsagt kynleg árátta, að vera að æða út á hjarn i skammdeginu, þegar hægt er að sitja i baðstofuhita hitaveitunnar heima hjá sér og fá allt sem hugur- inn girnist að stólnum sinum á skerminum, öldum Ijósvakans. i bókum og finum hljómplötutækjum Eða þá að liggja i sólinni suður i álfum við Ijúfar veigar og hitastig. eins og 70 þúsund íslendingar gerðu á sl. ári. Ekki verður því neitað að fósturjörðin er æði hörð viðkomu og svöl, þegar reynt er að komast i samband við hana þann veg að stingast á andlitið ofan i hana með tilhlaupi ofan úr brekkum. Kann þá að fara fótur og fótur. en hressandi er það og vert áhættu Á þessum góða vetri hefur viðrað til skiðaferða frá því fyrstu vikuna í janúar og okkur þannig gefist á þessu landshorni sex vikna vetrar- auki, ef svo má segja í fyrravetur var ekk; hægt að opna lyftur i Blá- fjallafólkvangi fyrr en 19 febrúar Slik óvissa veldur auðvitað erfiðleik- um, sem Norðlendmgar þurfa ekki við að búa Dýrt er að hafa fólk ráðið frá áramótum þegar ekki gefur, en allt ætlar undan álaginu að láta. þegar svo vel viðrar Alla virka daga streyma nú i BláfjöJlin rútubilar fullir af skólakrökkum frá nærliggjandi sveitarfélögum Um helgar eru lang- ar biðraðir við skiðalyfturnar og þá má sjá fjölskyldur i lágum brekkum meðfram veginum öllum. þar sem þær hafa meiri ró Aukningin og áhuginn hefur vaxið örar en hægt hefur verið að fylgja eftir i lyftum. þar sem hreinlætis- og öryggismál. svo sem vegur til að koma þessum skara i burtu. ef hrið skellur á, hafa orðið að ganga fyrir Fólkvangslyft- urnar tvær og barnalyftan hafa get- að gengið nær samfellt frá áramót um og þriðja lyftan kom i gagnið siðar, þar sem brösuglega gekk að fá nægilega öruggt jarðsamband fyr- ir rafmagnið í landi, sem er hraunið eitt Okkar hrjúfa land er á ýmsum sviðum dálítið erfitt Skiðaskálalyft an hefur nokkru bjargað þá sjaldan að lokaði i Bláfjöllum En sfcíðafélög- in þar hafa komið inn með sinar lyftur, þegar þau hafa séð sér fært Og það verulega um hin góðu skiða- sváeði í Skálafelli og Hamragili En ekkert af þessu hefur dugað um miðbik dagsins um helgar. þegar mest var um skiðafólk i vetur Með komu stólalyftu i Kóngsgili næsta vetur, sem flytja á 1000 manns á klukkustund upp á brúnir, ætti nokkurt forskot að fást, i bili a.m.k Þetta gengur hægt og bitandi! J-a. hægt? Það eru ekki nema 7 — 8 ár siðan við byrjuðum að reyna að ná samstöðu sveitarfélaganna um fólk- vangsstofnun Að skipuleggja skiða- svæði i Bláfjöllum fyrir framtiðina er mikið vandaverk Austurriskur sér- fræðingur um skipan slikra svæða hefur reiknað út hve margt fólk svæðið taki í sæmilegum brekkum og ráðleggur að eyðileggja ekki skiðabrekkurnar með mörgum smá- um lyftum, heldur fáum vel völdum. svo skiðafólkið hafi svigrúm til að renna sér Skiðasvæðið taki ekki svo mikinn fjölda, og hópurinn úr öllum sveitarfélögunum, sem þar þarf að fá rými er ekki litill Auk lyfta fólk- vangsins sjálfs, er gert ráð fyrir að skiðafélögin geti fengið að reisa sér skála og setja upp lyftur samkvæmt vissum reglum i brekkunum suður og norður af Kóngsgili En Kóngsgil- ið verði sem mest að vera miðstöð fyrir allt skíðafólk Umræður hafa verið við skiðadeild Ármanns um að kaupa húsið sem fyrir er i gilinu, en þeir vilja byggja nýtt nálægt Reykja- víkurskálanum i staðinn Jafnframt komi þeir sér fyrir með lyftu i næsta gili fyrir innan og nú hefur austur- riski sérfræðingurinn fyrrnefndi fall- ist á að koma megi fyrir lyftu i ofanverðu Kóngsgili. svo sem þeir hafa sótt fastast En hann varar jafnframt við sliku samkrulli fleiri aðila á einum stað af stjórnunar- ástæðum, segir það alls staðar hafa gefist illa i Austurriki Ættu þvi samningar þvi ekki lengur að stranda á því og uppgjöri við það félag. sem vegna fyrri veru á staðn- um hefur verið látið ganga fyrir Enda ekki hægt að biða mikið leng- ur með að afgreiða úthlutun til ann- arra félaga um lyftur og skóla En umfram allt er átakið auðvitað að koma upp skiðaaðstöðu fyrir allt skíðafólk i öllum sveitarfélögunum sem að fólkvanginum standa Ekki siður þá sem minni kappar eru en hina. enda er skiðaíþróttin gott sport fyrir alla fjölskylduna Forlátið hve langt mál þetta varð um Bláfjallafólkvang Á slikum vetri er hann hugleikinn Maður malar svo mikið og skrifar um útivist og eyðir svo mikilli orku i að ná aurum i þann málaflokk. að við liggur að maður komist hvorki á fjöll né geti litið á reiðhestinn sinn En mér og öðrum til hvatnmgar i slikum um- þenkingum, lýk ég þessum gárum með seinni erindunum hans Sigurð- ar við lagið „Walsing Matthilda” Vinnirðu á skrifstofu daginn út og daginn inn, doðranta fyllandi, stóra og smá hundleiður orðinn á öllu þessu, auminginn aktu til f jalla og þá muntu sjá, að betr'er á fjollum . . Ef að þú kunningi leiður ert á lífinu, löngun öll biluð og taugarnar með, rifðu þig upp úr amstrinu og kifinu æddu til fjalla, þá geturðu séð, að betr'er á fjöllum . . ystu misviturra.manna verða lát- in komast upp með að brjóta lögin og hafa ákvarðanir Alþingis að engu, þegar þeim þóknast, blasir við stjórnleysi óg upplausn í landi okkar. Og stjórnleysi og upplausn bæta ekki lífskjör almennings. Allir vita, að framkvæmda- valdið er veikt. Það hefur t.d. ^kki yfir neinum þeim tækj- um að ráða, sem geta komið í veg fyrir þau lögbrot, sem ASÍ og BSRB hvetja til næstu daga. En einn aðili er til í landinu, sem getur tekið í taumana og sagt sína skoðun á þessu framferði með þeim hætti, að eftir verði tekið og á þann veg, að forystumenn laun- þegasamtaka varist í framtíðinni að taka lögin í sínar hendur meö þeim hætti, sem þeir bersýnilega hafa tilhneigingu til. Hér er átt við kjósendur. Þeir geta á afdrátt- arlausan hátt í kosningum sagt álit sitt á þeim einstaklingum og þeim stjórnmálaöflum, sem standa fyrir lögbrotum. Eins og nú stefnir hlýtur það að vera von manna, að kjósendur láti til sín heyra meö eftirminnilegum hætti um þetta atriði í kosningunum í vor. Þessir sömu kjósendur eru einnig fél^gsmenn i launþega- samtökunum og með atkvæði sínu þar geta þeir ráðið því hverjir veljast til forystu á þeim vett- vangi. Haldi forystumenn ASÍ og BSRB fast við áform sín um ólög- legar aðgerðir hlýtur það að leiða til mjög harðnandi átaka á vett- vangi launþegasamtakanna sjálfra um forystu þeirra. Andstaða Þótt áform ASI og BSRB um ólöglegar verkfallsaðgerðir um næstu mánaðamót valdi þjóðinni þungum áhyggjum er myndin þó ekki öll svört — til allrar ham- ingju. Bersýnilegt er, að innan verkalýðshreyfingarinnar er bæði mjög sterk andstaða gegn fyrir- huguðum ólöglegum aðgerðum og mikil tregða til þess að taka þátt i þeim. Nú er komið fram, að fjöl- mennar starísstéttir ætla ekki að taka þátt i ólöglegum verkföllum um næstu mánaðamót. Sjómenn ætla ekki að taka þátt í þeim, verzlunarmenn ætla ekki að taka þátt í þeim, bankamenn ætla ekki að taka þátt í þeim og fjölmennir aðrir launþegahópar ætla ekki að taka þátt í þeim. Þetta segir sína sögu. Þótt forystumenn ASl, BSRB, launamálaráðs BHM og Farmanna- og fiskimannasam- bands Islands tali á þann veg, að skilja má sem svo að samtök þeirra standi óskorað á bak við áform þeirra fer því víðs fjarri. Innan Alþýðusambands Islands eru fjölmennir hópar, sem vilja ekki eiga hlut að ólöglegum aðgerðum. Þannig segir Björn Þórhallsson, formaður Landssam- bands ísl. verzlunarmanna, sem cinnig á sæti í miðstjórn ASt í Morgunblaðinu í gær: „Eg er and- vigur þessum ólöglegu aðgerð- um.. . Mér er ekki kunnugt um neitt verzlunarmannafélag, sem ætlar að taka þátt í aðgerðunum, en mér er hins vegar kunnugt um nokkur, sem munu ekki verða með.. Guðmundur H. Garðars- son, formaður Verzlunarmanna- félags Reykjavíkur, sem er stærsta launþegafélag landsins, segir um fund í stjórn og trún- aðarmannaráði VR: „Á þessum fundi kom ekki fram ein einasta rödd um það að efna ætti til ólög- legra verkfalla og forysta félags- ins mun ekki hvetja til sliks.. Bjarni Jakobsson, formaður Iðju hefur lýst því yfir á fundi í Iðju og í Fulltrúaráði verkalýðsfélag- anna í Reykjavík, að hann sé and- vigur ólöglegum aðgerðum í hvaða mynd sem er. Jón Ingi- marsson, formaður Iðju á Akur- e.vri telur, að félagið muni naura- ast leggja út i ólöglegar aðgerðir. Gunnar Kristmundsson, formað- ur Alþýðusambands Suðurlands segir i viðtali við Morgunblaðið að hann muni ekki hvetja fólk til verkfallsaðgerða, sem ekki séu löglegar. Sverrir Garðarsson, for- maður Félags ísl. hljómlistar- manna tekur i sama streng. Þrír forystumenn sjómanna, þeir Ösk- ar Vigfússon, formaður Sjó- mannasambands Islands, Hilmar Jónsson, formaður Sjómanna- félags Reykjavíkur og Pétur Sig- urðsson hafa allir lýst því yfir, að sjómenn muni ekki taka þátt í þessum aðgerðum. Sagt er að Far- manna- og fiskimannasamband ís- lands styðji áform ASI og BSRB um ólöglegar aðgerðir um næstu mánaðamót. Garðar Þorsteinsson, ritari FFSI skýrir frá þvi í Morgunblaðinu í gær, að Ingólfur Ingólfsson, formaður samtakanna hafi ekkert umboð haft til þess að lýsa sliku yfir. Sagt er, að Banda- lag háskólamanna styðji aðgérðir ASl og BSRB. Jónas Bjarnason, formaður BHM segir hins vegar, að ekki sé forsenda fyrir því að fara í ólöglegar aðgerðir nú. Inn- an BSRB er ekki samstaða um þessar aðgerðir. Hersir Oddsson, varaformaður BSRB, hefur lýst því yfir að hann sé þeim andvígur og greiddi atkvæði gegn þeim í stjórn BSRB. Þórhallur Halldórs- son, formaður Starfsmannafélags Reykjavikurborgar segir, að mik- ill meirihluti félagsmanna sinna telji sér skylt að virða landslög. Sólon Sigurðsson, formaður Landssambands ísl. bankamanna hefur lýst þvi yfir, að Landssam- bandið muni ekki hvetja til ólög- legra aðgerða. Af þessu er ljóst, að fjölmennir starfshópar og stór hluti laun- þegasamtakanna vill enga aðild eiga að ólöglegum verkfallsað- gerðum sem ASI og BSRB áforma eftir nokkra daga. Það vekur vissulega bjartsýni um, að hinir skynsamari menn verði að lokum ofarrá i verkalýðshreyfingunni. Verkalýðsfélögin hafa mótmælt efnahagsráðstöfunum ríkisstjórn- arinnar. Þau geta fylgt þeim mót- mælum eftir með fullkomlega lög- leguni hætti, sem enginn getur haft neitt við að athuga. Þau geta sagt upp samningum fyrir mán- aðamót, tekið upp viðræður við vinnuveitendur og boðað lögleg verkföll frá 1. apríl ef þeirn sýnist svo. En hið pólitíska uppgjör, sem forystumenn sumra verkalýðs- félaga bersýnilega vilja verður að fara fram í almennum kosningum næsta vor. Þá fá þeir að segja sitt og þá segja kjósendur sitt og þeim dómi verða allir að hlita. Þetta er okkar lýðræðislega þjóðskipulag og við skulum standa vörð um það og gegn stjórnleysi og upplausn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.