Morgunblaðið - 26.02.1978, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 26.02.1978, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. FEBRÚAR 1978 27 Vinsældalistar og fréttir ðr poppheiminum.... „Kókainið” var heróín VIÐ sögðum frá því hér um daginn að Greg Her- bert, saxófónleikari hljómsveitarinnar Blood, Sweat and Tears, hefði fundist látinn í hót- elherbergi sínu í Amst- erdam. Talið var að of stór skammtur af eitur- lyfjum hefði orðið hon- um að bana, en nú hefur komið í Ijós að dauði hans var „slys“. Þannig er mál með vexti, að hljómsveitin hafði komið til Amster- dam kvöld nokkurt í vik- unni sem leið, eftir erfiða flugferð frá Hamborg. Hljómsveitarmeðlimirnir voru allir í frekar slæmu skapi og langaði nokkra þeirra til að lyfta sér að- eins upp. Fór Herbert við þriðja mann út til að kanna hvort hann gæti ekki fengið keypt eitur-. lyf. Ekki leið á löngu áð- ur en eiturlyfjasali varð á vegi þeirra, og sást það síðast til Herberts að hann hvarf á braut ásamt salanum, tautandi kóka- ín, kókaín. Eiturlyfjasal- inn var þó ekki betri en svo að hann seldi Her- bert Heróin og sagði að það væri kókaín. Með það hélt Herbert aftur á hót- el sitt og hugðist reyna varninginn. Venja er að menn taki kókaín í nefið, þegar þeir nota það, og brá Herbert ekki út af þeirri venju. En „kókaín- ið“ var heróín og saxó- fónleikarinn lést skömmu eftir neyzlu þess. Áttunda breiðskífa Ný plata kemur öt með þeim félögum í vestur-þýzku hljómsveitinni Tangerine Drcam í næsta mánuði. Platan, sem ber nafnið „Cyclone“, er sú áttunda sem hljómsveitin hefur gefið út, en fyrir skömmu sendi einn liðsmanna hennar, Edgar Fröse, frá sér sína þriðju „sóló-plötu“. Tangerine Dream var stofnuð fyrir rúmum tíu árum af þeim Edgar Fröse, sem leikur á hljómborð og gitar, Christoph Franke, sem leikur á hljómborð, og Pete Baumann, sem leikur á hljómborð og flautu. Fyrst í stað var tónlist þeirra rokk, en hún breyttist og hefur þokast meir og meir í átt að elektróniskri tónlist. Þá er tónlist þeirra undir miklum áhrifum frá gotneskri tónlist, og hafa þeir haldið marga tónleika í kirkjum, því stemmningin þar hæfir þeim vel. Abba — komin á toppinn í Bretlandi. V insældalistar um allan heim Sænska hljómsveitin ABBA trónar nú í efsta sæti brezka vinsældalistans, en hún var I fjórða sæti í sfðustu viku. Lagið sem var efst, „Uptown top tanking" með þeim Altheu og Donnu, er hins vegar fallið niður f fjórða sæti. Annars eru breytingar á listanum allmargar og þrjú ný lög eru nú meðal þeirra tíu cfstu. I Bandarfkjunum situr allt við sama hevgarðshornið, ekkert nýtt lag er þar á lista, heldur hafa lögin aðcins skipt um sæti innbyrðis. Það er sama sagan í Vestur-Þýzkalandi og Hollandi og f Bandarfkjunum, og f Hong Kong er aðeins eitt nýtt lag, „Hey Deanie“ með Shaun Cassidy. Tfu vinsælustu lögin f London, staða þeirra í sfðustu viku f sviga. 1. (4). Take a chance on me — ABBA 2. (2) Figaro —Brotherhood of man. 3. (3) If I had words — Scott Fitzgerald og Yvonne Keely 4. (1) Upton top tanking — Althea og Donna 5. (20) Wishing on a star — Rose Royce 6. (11) Hot legs/I was only joking — Rod Stewart (10) Sorry I’m a lady — Baccara 8. (14) Come back my love — Darts 9. (6) Native New Yorker — Odyssey 10. (7) Lovely day — Bill Withers Työ lög jöfn í sjötta sæti. New York 1. (1) Stayin’ alive — Bee Gees 2. (3) Just the way you are — Bill Joel 3. (8) Emotion — Samantha Sang 4. (6) Sometimes when we touch — Dan Hill 5. (9) (Love is) thicker than water — Andy Gibb 6. (7) Dance, dance, dance —Chic 7. (2) Short people — Randy Newman 8. (5) We are the champions — Queen 9. (4). Baby come back — Olayer 10. (10) You’re in my heart — Rod Stewart Bonn 1. (1) Surfin’ USA — Leif Garrett 2. (3) Rockin’ all over the world — Status Quo 3. (2) Needless and pins — Smokey 4. (7) Mull of Kintyre — Wings 5. (6) Lady in black — Uriah Heep 6. (4) Don’t stop the music — Bay City Rollers 7. (9) The name of the game — ABBA 8. (5) Don’t let me be misunderstood — Leory Gomez 9. (8) Black is black — Belle Epoque 10. (10) Ti amo — Umberto Tozzi Amsterdam 1. (1) If I had words — Yvonne Keeley og Scott Fitzgerald 2. (3) Take a chance on me — ABBA 3. (2) Mull of Kintyre — Wings 4. (6) She’s not there — Santana 5. 5. (8) I can’t stand the rain — Eruption 6. (4) Smurfenbier — Vader Abraham (5) Tingelingeling — Andre van Duin 8. (7) Singing in the rain — Sheila and black devotion 9. (10) Black Betty — Ram Jam 10. (9) Is je moeder niet thuis — Nico Haak Tvö lög jöfn í sjötta sæti. Hong Kong 1. (1) Mull of Kintyre — Wings 2. (2) You make loving fun — Fleetwood Mac 3. (3) Here you come again — Dolly Parton 4. (6) The name of the game — ABBA 5. (5) May way — Elvis Presley 6. (7) You're in my heart — Rod Stewart (8) Emotion — Samantha Sang 8. (4) How deep is your love — Bee Gees 9. (10) Don’t it make my brown eyes blue — Crystal Gayle 10. (12) Hey Deanie — Shaun Cassidy. Allt er f er- tugum fært Hver man eftir Lonnie Donegan, sem fyrir um það bil 20 árum var einn vinsælasti tónlistarmað- ur í Bretlandi. Donegan, sem nú er 46 ára gamall, hefur nú gefið út nýja plötu með sínum gömlu lögum og kom hún út fyr- ir skömmu. Samfara því hefur verið gef- in út litil plata með einu af hans þekktustu lögum, „Rock island line“, en það var fyrsta lag hans sem náði verulegum vinsældum. „Rock in island line“ kom út fyrir 23 árum, en Donegan var þá að mestu óþekktur og lék á banjó í jazz- hljómsveit Chris Barbers. ðnn- ur lög fylgdu í kjölfar „Rock island line“ og á timabilinu frá 1955 til 1961 átti hann 21 lög sem náðu miklum vinsældum. Donegan var einna fyrstur til að leika skiffle-tónlist i Bret- landi, en skiffle-tónlistin er blanda úr þjóðlagatónlist, dreifbýlistónlist og rokk, og var yfirleitt leikin á órafmögnuð hljóðfæri. A hinni nýju plötu Donegans leika með honum nokkrir af þekktustu tónlistarmönnum Bretlands, það eru Elton John, Ringo Starr, Leo Sayer, John Entwhistle, Brian May, Rory Gallagher, Mick Ralphs, Justin Hayward, John Lodge, Ronnie Wood og Gary Brooker. Platan heitir „Puttin’ on the style“ og dregur hún nafn sitt af einu af kunnustu lögum Donegans. Það var hinn góðkunni Adam Faith, sem dreif Donegan í að gefa út plötuna, en Faith átti einnig mörg vinsæl lög i kring- Elton John er aðeins einn af mörgum kunnustu hljóðfæraleikur- um Bretlands, sem leikur með Donegan á hinni nýju plötu hans. um 1960. „Mér fannst að hann ætti að hljóðrita gömlu lögin sín að nýju“, sagði Faith, „en Donegan leist í fyrstu ekkert á það.“ Að sögn Donegans hringdi Faith dag einn í hann, og sagði honum að hann ætti bókaða tíma í stúdiói. „Hann var ekki lengi að telja mig á að fara i stúdíóið, þvi ég hafði ekk- ert annað að gera og mig lang- aði til að hætta í kabarettinum, sem ég tók þá þátt í.“ Stúdíó- vinnan gekk betur en ég hafði nokkurn tíma þorað að vona, og mér þótti mjög gaman að vinna að plötunni. Samstarfið við hljóðfæraleikarana var mjög gott og ég varð dáiftið hissa þegar þeir sögðu mér að þeir hefðu fengið áhuga á tónlist af að hlusta á lögin mín.“ Donegan sem undanfarin 14 ár hefur tekið þátt i kabarett- sýningum viða um heim á lítið sameiginlegt með tónlistar- mönnum nútímans. Hann er alitaf vel klæddur, er hægri- sinnaður og hefur aldrei notað eiturlyf. „Ræflarokkið og allt sem því fylgir er bölvað rusl,“ sagði Donegan. „Eg hef angan áhuga á að spila fyrir unglinga sem ganga i druslum og hafa stungið öryggisnælu í gegnum kinn sér. En ég hefði gaman af að koma fram og leika fyrir fólk, sem er komið til að hlusta á tónlistina."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.