Morgunblaðið - 26.02.1978, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 26.02.1978, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. FEBRUAR 19Œ8. - 31 smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar Munið sérverzlunina með ódýran fatnað. Verðlistinn Laugarnesvegi 82. S. 31330. 26" sjónvarp Til sölu. Vel með farið. 3ja ára gamalt. Upplýsingar i síma 27 1 96. kl. 7-—8.30. Ofnasmiðjan með lágu verðtilboðin. Plötuofnar s/f, Smiðjuvegi 26. Kópavogi. Skólar, félagasamtök. félagsheimili. Siminn okkar er 29320. Tivoli. Deildarbungubræður, Reykjavík og hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar fyrir fullorðið fólk. Geymið auglýs- inguna. Vörubill óskast til kaups eða leigu. Einnig óskast starfsfólk til loðnu- frystingar. Unnið allan sólar- hringinn. S. 11618 kl. 2—6. Veiðimenn Haukadalsá efri i Dalasýslu er til leigu sumarið 1978. Rétt- ur áskilinn að taka hvaða til- boði sem er eða hafna öllum. Tilboð berist fyrir 20. marz n.k. til Jósefs Jóhannessonar Giljalandi eða i pósthólf 51 Búðardal. Veiðifélagið Haukar. Til sölu Volvo 89 árgerð 1974 10 hjóla, getur selst með eða án palls eða flutningskassa. Upplýsingar gefur Ármann Leifsson, simi 94-7148 Bolungavík, og Veltir h.f. Simi 35200 Reykjavik. Góður bíll óskast ekki eldri en '73 árgerð. BMV, Honda. Saab 99, Volvo og Mazda 323, koma helzt til greina, þó kæmu aðr- ar gerðir til greina. Uppl. i síma 27196 kl. 7—8.30. er fluttur að Ármúla 28, simi 37033. Kaupi allan brota- málm langhæsta verði. Stað- greiðsla skipstjórar Vanur skipstjóri á allan veiði- skap getur tekið að sér afleys- ingar simi 52602. Geymið auglýsinguna. Kona óskar eftir vinnu hátfan daginn. Allt kemur til greina. Hefur reynslu i skrifstofustörfum. Tilboð sendist Mbl. merkt: „H — 920". Au pair stúlkur óskast til vinarlegra fjöl- skyldna. Góðir skólar i ná- grenninu. Mrs. Newman, 4 Crickle- wood Lane, London NW2, England. Dönsk stúlka 19 ára hefur áhuga á að koma til Islands i ca. 5 mán. frá marz. en þá byrjar hún i skóla, og ætlar að læra vefn- að sem aðalgrein. Hana lang- ar til að dveljast á sveitabæ og vinna bæði inni og úti- störf. Hún er vön hestamann- eskja og hefur unnið i V2 ár á barnaleikskóla, svo hún hefur einnig áhuga á að komast að við leikskóla. Raghild Röstböll, Elmevænget 1 7. 2880 Bagsværd, Danmark. Kvm. IOOF 10 = 1 5 9 2 2 7 8 V2 = Bingó Aðalfundur íþróttafélags kvenna verður haldinn mánudaginn 6. marz kl. 8.30 að Hverfisgötu 21. Stjórnin. Hjálpræðisherinn í kvöld kl. 20.30 hjálpræðis- samkoma. Brig. Ingibjörg Jónsson stjórnar. Fíladelfia í Reykjavík Systrafundur verður mánu- daginn 2 7. febrúar. að Há- túni 2 kl. 8.30. Verið allar velkomnar. Stjórnin. Fíladelfia Safnaðarguðsþjónusta kl. 14. Ræðumaður Enok Karlsson. Ath. aðeins fyrir söfnuðinn Kl. 20 almenn guðsþjónusta ræðumaður Enok Karlsson, fjölbreyttur söngur. Félag kaþólskra leikmanna Aðalfundur félagsins verður haldinn í Stigahlíð 63, mánu- daginn 2 7. febrúar kl. 8.30 síðdegis. Venjuleg aðalfund- arstörf. Sýndar litskugga- myndir frá förinni að Kirkju- bæjarklaustri sl. sumar. Stjórn F. K.L. m UTIVISTARFERÐIR Sunnud 26.3 1. kl. 10.30 Gullfoss i klakaböndum og viðar Fararstj. Þorleifur Guð- mundsson. Verð 3000 kr. 2. kl. 10.30 Esja, vetrarfjallganga með Pétri Sigurðssyni. Verð 1 500 kr. 3. kl. 13.00 Fjöru- ganga á Kjalarnesi. Fararstj. Einar Þ. Guðjohn- sen. Verð 1500 kr., frítt f. börn m. fullorðnum. Farið frá B.S.Í., bensínsölu. Útivist. Elím, Grettisgötu 62 Sunnudagaskóli kl. 1 1 al- menn samkoma kl. 20.30. Allir velkomnir. Bænastaðurinn Fálkagötu 10 Sunnudagaskóli kl. 10.30 Samkoma kl. 4. Bænastund virka daga kl. 7 e. h. Aðalfundur Áfengisvarnanefndar kvenna í Reykjavík og Hafnarfirð. verður haldinn fimmtudaginn 2. marz kl. 8.30 að Hverfis- götu 21. Stjórnin. kynningarfundur fyrir þátttakendur í ísraelsför Nessóknar, verður i Safrv aðarheimili Neskirkju, þriðju- daginn 28. febrúar kl. 20 30 Hörgshlið 12 Samkoma í kvöld, sunnudaq kl 8. Sálarrannsóknar- félag íslands Félagsfundur að Hallveigar- stöðum fimmtud. 2. marz kl.. 20.30 Árni Óla flytur erindi. Visindi og sálarlif. Minningarspjöld Félags einstæðra foreldra fást i Bókabúð Blöndals. Vesturveri, i skrifstofunni Traðarkotssundi 6. Bókabúð Olivers, Hafnarfirði, hjá Jóhönnu s. 14017, Ingi- björgu s. 27441 og Stein- dóri s. 30996. Skrifstofa Félags einstæðra foreldra Traðarkotssundi 6, er opin alla daga kl. 1 —5. Simi 1 1822. FMIIIIFÍUIG ÍSUWIS OLOUGOTU 3 .. SÍMAR. 11798 OG 19533. Sunnudagur 26. febr. 1. kl. 11. Skiða ganga. Gengið verður um Leiti og Eldborgir. Fararstjóri: Kristinn Zophoníasson. 2. kl. 11. Geitafell (509 m). Létt ganga. Fararstjóri: Sigurður Kristins- son. Verð kr. 1 .000 i morgunferðirnar gr. v/bilinn. 3. kl. 13. Hólmarnir- Grótta-Seltjarnarnes. Fjöruganga á stórstraums- fjöru. Fararstjórar: Gestur Guðfinsson og Guðrún Þórðardóttir. Verð kr. 500 gr. v/bilinn Farið frá Umferðarmiðstöð- inni’ að austanverðu. Munið ferða- og fjallabókina Vetrarferðin í Þórs- mörk verður 4.—5. marz. Nánari upplýsingar á skrif- stofunni. Ferðafélag íslands. — Goðsögnin um Elizabeth Taylor Framhald af bls. 17. á móti þessum skara og hrópað að honum. Þegar hún sá Brooks bætast við, hrópaði hún að honum: „Þú, skepnan þín. Ég býst við, að þú sért kominn til að fá að vita, hvenær ég komi aftur til vinnu!" Elizabeth Taylor giftist Eddie Fisher, þegar hún hafði náð sér eftir dauða Mike Todds, og með því að virðast stela Fisher frá Debbie Reynolds fékk hún á sig orð fyrir að vera hættuleg kona — femme fatale. Þegar litið er til baka, virðist hin almenna reiði, sem hún bakaði sér, ekki vera eins hræsnisfull og hún virtist þá. Ekkja Todds var að brjóta eina af elztu og ströngustu reglum mannlegs samfélags, þótt óskrifuð sé — að látinn mann verði að syrgja, og að það taki um eitt ár. Mike Todd hafði haft gott lag á að vekja á sér athygli, og mynd hans var enn í full- um gangi umhverfis jörð- ina og þess vegna fannst öllurr^heiminum lengi svo stutt síðan hann dó. Todd lyfti Elizabeth upp í hóp þeirra 10 stjarna, sem með myndum sínum höfðu hlotið mesta aðsókn, en í þeim hópi hafði hún aldrei verið áður. Og nú varð aft- ur ánægja i herbúðum MGM. „Kötturinn á heitu blikkþaki" var tilbúinn til sýningar, einmitt um þær mundir þegar sögurnar gengu sem hæst um Debbie og Eddie, og þeir voru fegnir að hafa haft myndina í lit. „Kötturinn" varð mesta gróðafyrirtæk- ið í kvikmyndaheiminum það árið og tfunda mesta í sögu Metro- Goldwyn-Mayers. Aðeins 10 árum áður hafði Ingrid Bergman eyði- lagt feril sinn með því að stinga af með Roberto Rossellini. En hún varð að liða fyrir það, að hneykslið spillti að eilífu imynd henníir sem Hinn norræni hreinleiki. „Köttur á heitu blikkþaki og ránið á Eddie Fisher undirstrikuðu að- eins orðróminn um, að hér væri um hættulega fegurð- ardis að ræða — og frama hennar var borgið. Og nú var hún tilbúin að græða peninga. Það kom ekki til mála að undirrita nýjan samning við MGM. A þessum tima höfðu greiðsl- ur til kvikm.vndastjarna hækkað mjög, og kvik- myndaverin stóru voru i æ ríkara mæli leigð út óháð- um framleiðendum, svo að það að vinna samkvæmt samningi hjá stóru kvik- myndafélagi gegn árlegum launum var eins og að láta arðræna sig og þræla sér út samkvæmt kenningum Karls Marx. Elizabeth Taylor ákvað því að vinna sjálfstætt og fékk sér nýj- an umboðsmann. Kurt Frings var þekktur fyrir þær miklu fjárhæðir, sem hann hafði aflað skjólstæð- ingum sínum — Lucilie Ball, Audrey Hepburn og Brigitte Bardot voru allar á lista hans. Og hver var það fremur en Elizabeth Taylor, sem væri líklegri til að verða fyrsta stjarnan til að fá milljón dollara fyr- ir eina mynd? Eða að leika aðalhlutverkið i dýrustu mynd, sem nokkurn tima hefur verið gerð? I fyrstu leizt Spyros Skouras, forstjóra Twentieth Century Fox, ekki á þá hugmynd, að Elizabeth Taylor léki Cleo- pötru, en kvikmyndastjór- anum, Walter Wangel, tókst að vinna hann á sitt band. Hún varð „min Cleo- patra“. blómi kvenlegrar æsku, kveneðlis og máttar, svo fögur og vitur, að hún gæti einnig stjórnað heim- inum.“ Og þegar Skouras hafði einu sinni snúizt til þessarar trúar, þá var þar enginn hálfkæringur. Þeir fengu þetta báðir á heil- ann: verði engin Liz, verður engin Cleo. 1 samninginn hafði Eliza- beth Taylor sett ákvæði, sem átti eftir að verða Fox dýrt — að „Cleopatra" yrði tekin upp erlendis. Það hefði verið auðvelt að taka myndina upp i Kaliforníu, en sem óháð kvikm.vnda- stjarna vildi Elizabeth heldur starfa utan Banda- ríkjanna af skattaástæð- um. Kvikmyndun erlendis hentaði Skouras ágætlega. Ekki vegna þess að hann ætlaði að strá peningum í kringum sig. Langt frá þvi. Þrátt fyrir það sem hann ætlaði að borga stjörnu sinni, hafði hann ekki hugsað sér algert hámark útgjalda. Myndin skyldi ekki kosta meira en 6 millj- ónir dollara. Það var af sparnaðarástæðum, sem hann ákvað að upptakan skyldi fara fram i Pine- wood Studios i Englandi. Það var siðla óvenju sól- arlauss sumars i Englandi 1960, sem Eddie Fisher og föruneyti flutti inn i eftir- lætis hótel Elizabethar Ta.vlor i London, Park Lane. Elizabeth hélt sig svo við rúmið, og brátt fóru blaðamenn að furða sig á því, af hverju hún færi varla út úr hótelinu. En hvað sem gekk að henni, þá fór hún ekki út í Pinewood til að leika Cleo- pötru. I lok október krafð- ist Lloyd I London. sem hafði tryggt hana fyrir 3 milljónir dollara, að önnur yrði tekin I hennar stað. Lloyds-menn, sem ekki voru neinir sérfræðingar i hlutverkaskipan, . lögðu fram sinar eigin tillögur: Marilyn Monroe, Shirley McLaine eða Kim Novak. Skouras neitaði. Kvikmyndastjórinn dró sig i hlé, og Joseph Mankiewicz, pipumaður og áhugamaður um sálgrein- ingu, tók við. Það var búizt við, að hann myndi „skilja" Elizabeth Taylor. Hann átti jafnframt að vera aðalhöfundurinn og þurfti tíma til að átta sig á sambandi Cleopötru og Ceasars og Antóníusar, svo að upptakan gat ekki hafizt alveg strax. Meðan hann hugsaði málið. fékk Fisher botnlanlangabólgu, en Elizabeth Tavlor Asiuin- flúensu. 6. marz 1961 var Elizabeth sett i sjúkrabör- ur og flutt í skyndi í sjúkrahús. Hún hafði feng- ið sjaldgæfa tegund af lungnabólgu og ekki talið. að hún ætti nema klukku- stund eftir ólifaða. Læknar björguðu lifi hennar með skurðaðgerð á barkanum. Foreldrar hennar voru við sjúkrabeð- ið, og Eddie Fisher grét. I anddyrinu gengu helztu menn Fox um gólf ásamt blaðamönnum og ræddu áhyggjufullir um það. hvernig færi með mynd- ina, ef hún dæi. og hvað væri hægt að gera við örið á hálsinum. ef hún lifði þetta af. Tíu dögum síðar var Elizabeth ekið út úr sjúkrahúsinu og flogið beint með hana í sólskinið í Kaliforniu. Það að hún skyldi raunverulega hafa verið að deyja, jók enn við goðsögnina um Elizabeth Taylor. Nú bættist upprisa við gyðjuna. Sylvia Plath. sem tekið var i guðatölu eftir sjálfsmorðið 1963, hafði nærri drepið sig einu sinni áður. og í kvæði kall- aði hún sig siðar „Lafði Lazarus". En Elizabetn á betur nafnið skilið. —svá— úr Obser ver Review.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.