Morgunblaðið - 26.02.1978, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. FEBRUAR 1978
13
margar erlendar þýðingar við að styðjast, bæði á
bundnu máli og lausu. og að sjálfsögðu einnig lausa-
máls-þýðingu dr. Jóns Gíslasonar. Þegar ég hins vegar
var að bjástra við Ödípús, hafði ég eingöngu not af
erlendum þýðingum, þvi þýðingu dr. Jóns Gislasonar á
þvi verki hef ég aldrei heyrt né séð nefnda fyrr en í
Morgunblaðs-grein hans sjálfs í gær, og hafði því ekki
hugmynd um að hún væri til.
Not þau, sem mér kunna að hafa orðið af þýðingum
dr. Jóns við hliðina á þýðingum útlendinga, getur hver
maður séð með þvi að bera saman þýðingar okkar dr.
Jóns á Antígónu, sem báðar hafa verið gefnar út. Að
vísu ber þá að hafa í huga, að vegna brags hlaut ég að
leitast við að fylgja línu- og atkvæða-fjölda frumtext-
ans gríska. Og að sjálfsögðu þarf sama orð í báðum
þýðingum ekki endilega að sýna, að þar hafi ég fiskað
i landhelgi dr. Jóns. Þegar þýðingar voru ósamhljóða
um efnisatriði, valdi ég venjulega þann kostinn, sem
flestum þeirra bar saman um.
Nú fæ ég ekki betur séð, en þýðingar á verkum
þessum séu dr. Jóni Gíslasyni snöggt um meira hjart-
ans mál en mér. Skal ég þá gleðja hann með þvi, að ég
mun ekki oftar láta til leiðast að þýða forngríska leiki,
hvorki á laust mál né bundið, á hverju sem gengur.
Barátta hans fyrir flutningi þýðinga sinna á leikritum
Efripídesar mun því ekki stranda á því, að til sé
þýðing á neinu þeirra eftir mig, eða að hennar sé von.
Sama máli skal gegna um alla griska leiki, aðra en
þessar tvær samstæður, sem ég nú þegar hef illu heilli
of nærri komið og ýmist birt eða samið um við aðra.
Auðvitað tek ég ekki þetta strik til þess að þóknast dr.
Jóni, heldur vegna þess. að mér hefur alltaf blöskrað
að þykjast vera að þýða úr máli, sem ég skil ekkert í.
Ég er dr. Jóni sammála um það, að lausamáls-
þýðingar þessara verka séu hæfar til flutnings. Þá er
flutningur að sjálfsögðu mjög af öðru tagi en ljóð-
flutningur, því þar er um annars konar verk að ræða,
raunar lítt sambærileg. Ég teldi vel fært, að grísku
leikirnir yrðu framvegis fluttir ýmist á bundnu máli
eða lausu, þótt byrjað hafi verið á ljóðflutningi. Og
ekki hef ég vit á öðru en þýðingar dr. Jóns séu hin
mætustu verk, vandlega unnin af ágætum fræði- >
manni.
Eg vænti þess, að „óvinur'* dr. Jóns Gíslasonar sé að
minnsta kosti orðinn nokkru sýnilegri' en var, svo
hægara sé að hafa hendur í hári hans. En ég lýk
þessum orðum á sama veg og fyrr nefndri athugasemd
vegna Antígónu, með þökk til dr. Jóns fyrir prýðileg-
an hlut hans að kynningu grískra gullaldar-
bókmennta hér á landi, ekki aðeins með eigin ritum,
heldur einnig með þýðingastarfi, sem að sínu leyti
hefur rutt brautina öllum þeim þýðingum, bæði á
Antígónu og Ödipúsi, í lausu máli og bundnu, sem
áreiðanlega eiga eftir að reka hver aðra, vonandi i
langri röð, þótt síðar verði.
16. febrúar 1978
Helgi Hálfdanarson.
19. ... Hd8? (Nauðsynlegt var
19. ... Re7 þó að eftir 30. Re5
hafi hvitur einhverja stöðuyfir-
burði) 20. Hxd5! — Hxd5 21.'
De8+ — Kh7 22. De4+ — g6 23.
Dxd5. Svo einfalt var það. Hvit-
ur hefur unnið peð án þess að
svartur hafi fengið hið minnsta
mótvægi og jafn vel þjálfuðum
skákmanni og Dorfman veittist
auðvelt að færa sér liðsyfir-
burðina í nyt.
Þar með var staðan jöfn, 2:2
og tvær skákir eftir.
Fimmta skákin einkenndist
af snarpri stöðubaráttu, en
samið var jafntefli er skákin
skyldi í bið. , *
I
* 15?
í sjöttu og siðustu skákinni
var andrúmsloftið þrungið
spennu og taflmennskan bar
töluverð einkenni þess. Dorf-
man fékk betri stöðu eftir
byrjunina, en varð á yfirsjón og
Guljko tókst að ná mótspili. Síð-
an var samið jafntefli eftir
aðeins 28 leiki og keppendur
því enn jafnir. Ef slíkt hefði átt
sér stað á Skákþingi íslands er
enginn vafi á að dregið hefði
verið um titilinn, því að hér
getur aðeins einn verið Skák-
meistari Islands i einu. Fræg
urðu t.d. einvígi Ingvars As-
mundssonar við Ölaf Magnús-
son 1973 og við Jón Kristinsson
árið eftir, en þeim tapaði Ing-
var báðum eftir hlutkesti._
Sovétmenn hafa hins vegar
ekkert að athuga við það að
keppendur geti verið jafnvel að
sigrinum komnir og skiptu þeir
Guljko og Dorfman því með sér
titlinum eins og jafningjum
sæmir. Slikt hefur reyndar
gerst áður á Sovétmeistaramóti.
Það var árið 1974 að þeir Tal og
Beljavsky urðu efstir og jafnir
og ekki var tími til þess'að tefla
einvígi.
rlands
23.-27.mars
I þessari einstöku fimm daga páskaferð er
enginn virkur dagur, því farið er á
skírdag og komið aftur 2. páskadag.
Flogið verður beint til Dublin og dvalist
þar á tveimur eftirsóttum hótelum:
Hótel South County
Hótel Jurys
TSamvinnu-
ferðir
Austurstræti 12 simi 2-70-77
Dublin er dœmigerð írsk stórborg og þar
eru þjónustustöðvar almennings opnar
meira og minna alla páskahelgina.
Fararstjóri okkar aðstoðar og skipuleggur
skoðanaferðir.
Leitið nánari upplýsinga tímanlega og
látið skrá yður í þessa eftirsóttu ferð.
® LANDSYN
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 16 SÍMI28899