Morgunblaðið - 26.02.1978, Blaðsíða 14
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGÍJR 26. FEBRUAR 1978
Myndir eftir gest sýningarinnar, Jón Kaldal
,Jjjósmynd er það eðl-
iskegt að gerast í um-
hverfí hvers og eins”
0 Ljósmyndasýningin LJÓS stendur um þessar mundir yfir á Kjarvals-
stöðum og lýkur n.k. þriðjudag. Á sýningunni eru myndir eftir þá
Gunnar S. Guðmundsson, Kjartan B. Kristjánsson og Pjetur P. Maack
ásamt myndum eftir gest sýningarinnar. Jón Kaldal. I sýningarskrá
segir meðal annars um verk Jóns Kaldals, að við kynni af myndum Jóns
verði maður þess fullviss. að hann er mikill mannþekkjari. Hann virðist
ekki hafa þurft nema stuttan tima atvinnuljósmyndarans i erli starfsins
til að komast inn að persónunni. litast um og skrifa kynni sin með hjálp
Ijóssins i silfur Ijósnæmu þynnunnar okkur hinum til skoðunar. Eftir
stendur myndin, persónan Ijóslifandi og sönn, persónuleikinn allsnak-
inn.
Þá segja hinir höfundar sýningarinnar m.a. um sinar myndir. Gunnar:
..Myndir minar nú eru af sama toga spunnar og áður, nema hvað
manneskjan hefu' látið undan siga. Form jarðar smá og stór eru
allsráðandi og mætti flokka myndefnið i landslagsform. smámótif og
smá glimu við strá ' — Kjartan: „Ljósmyndinni er það eðlislægt að
gerast i umhverfi hvers og eins. Hún er sannleikurinn um ástand þess
sem gerist i raun og veru. Hlutverk Ijósmyndarans er að ferðast um
með rammann og gripa Ijósmyndina þegar og þar sem hún gerist." —
Pjetur: „Bundið verkefni mitt i þetta sinn er vatnið. Af hverju veit ég
ekki, en þegar maður fer að hugsa út i það, þá er vatnið ákafleya
f jölþætt myndefni, drullupollurinn getur verið fallegur eftir þvi hvernig
maður litur á hann og fallega tær fjallalækur getur snögglega breyzt i
andstæðu sina. Nú fyrir utan þá staðreynd hve vatn er snar og um leið
nauðsynlegur þáttur i lifi hvers okkar."
1 „Vatn" Pjeturs Þ. Maack
2 Höfundur Gunnar S. Guðmundsson
3 Höfundur Gunnar S. Guðmundsson
4 „Sól og auðn" Kjartans B. Kristjánssonar