Morgunblaðið - 26.02.1978, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. FEBRUAR 1978
t
Eiginkona mín, móðir og tengdamóðir,
ÞURÍOUR DANÍELSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Akraneskirkju þriðjudaginn 28 febrúar kl
1330
Blóm vinsamlega afþökkuð Þeim sem vildu minnast hennar. er
vmsamlegast berít á Sjúkrahús Akraness
Þorleifur Sigurðsson,
böm og tengdabörn.
t
Eigtnmaður minn, faðir. tengdafaðir og afi,
JÓN ÁSGEIRSSON
stóðvarstjóri Elliðaárstöðinni.
Reykjavik
sem lézt að heimili sinu 20 febrúar verður jarðsunginn frá Dómkirkj-
unni 28 febrúar kl 13 30 Blóm vinsamlega afþökkuð. en þeim sem
vildu minnasf hans er bent é Kristniboðið i Konsó eða Byggingarsjóð
KFUM
Gunnþórunn Markúsdóttir
Ásgeir M. Jónsson Gerður Ólafsdóttir
Sigrtður Jónsdóttir Pétur Sigurðsson
Guðrún Jónsdóttir Guðmundur M. Guðmundsson
og bamabörn.
t
Eiginmaður minn og faðir okkar.
EGGERT ÓLAFSSON,
Furugerði 9,
verður jarðsettur mánudaginn 27 2 kl 1 30 frá Fossvogskírkju Blóm
og kransar vinsamlegast afþakkaðtr en þeir sem vildu niinnast hans er
bent á Hjartavernd
Guðbjörg Valdimarsdóttir og börn.
t
Utför mannsins mins
SIGURGÍSLA ÁRNASONAR.
húsasmíðameistara,
Hæðargarði 22.
fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 1 marz kl 3 síðdegis
Þeim, sem vildu minnast hins látna er vinsamlegast bent á Multiple
scleroses félag íslands hjá Sjálfsb|örgu
Fyrir hond vandamanna
Sigriður Marinósdóttir.
r-
Eggert Olafsson
Minningarorð
Fæddur27. ágúst 1923
Dáinn 16. febrúar 1978
I önnum dagsins hringir sím-
inn. Eitthvað hefur komið fyrir
hann Eggert, og örstuttu síðar er
ljóst að Eggert Ólafsson, vinur
minn og mágur, hefur fengið kall-
ið sem við öll fáum. En einhvern
veginn er það svo að við erum
ekki alltaf tilbúin að meðtaka
dauða vina okkar sem falla
skyndilega frá á bezta starfsaldri.
En maðurinn með ljáinn spyr
hvorki um stund eða stað. Eggert
var fæddur 27. ágúst 1923 að Dal-
bæ í Gaulverjabæjarhreppi, son-
ur hjónanna Sigríðar Jónsdóttur
frá Geldingaholti og Ólafs Gests-
sonar frá Húsatóftum á Skeiðum.
Hann fluttist á unga aldri með
foreldrum sínum að Efri-
Brúnavöllum á Skeiðum, en þar
bjuggu foreldrar hans myndarbúi
í rúmlega þrjátfu ár.
Að Efri-Brúnavöllum ólst
Eggert upp í hópi 6 systkina við
umhyggju og ástríki foreldranna.
Þó var hann um tíma í fóstri hjá
Ingveldi móðursystur sinni og
Jóhannesi manni hennar, fyrst að
Laugarbökkum í Ölfusi og síðar i
Reykjavík.
Avallt bar hann i brjósti virð-
ingu og þakklæti til þeirra Ing-
veldar og Jóhannesar.
Eftir nám í héraðsskólanum á
Laugarvatni flyst Eggert til
Reykjavikur og lýkur námi í húsa-
smíði hjá öðlingsmanninum Ingi-
bjarti Arnórssyni árið 1945.
Þann 8. júní 1946 var mikill
hamingjudagur í lífi Eggerts, en
þá gekk hann að eiga mikla mann-
kostakonu og tryggan lífsföru-
naut, Guðbjörgu Valdimarsdóttur
frá Bíldudal.
Heimilislíf þeirra mótaðist af
ást og umhyggju fyrir hvort öðru,
og kærleika til barnanna sinna og
siðar tengdabarna og barnabarna.
Eggert og Guðbjörg eignuðust 6
börn og bera þau öll þess vott að
þau hafa hlotið umhyggjusamt
SVAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM
Ég heyrði prestinn okkar segja, að enginn gæti verið
sífellt andlegur. Presturinn hefur alltaf uppörvað mig.
En vegna þessara orða hef ég misst trú á honum.
Ef til vill misskilduð þér prestinn yðar. Hann
hefur áreiðanlega átt við, að stundum þurfum við að
breyta um verkefni og umhugsunarefni. Það er til
dæmis gott og dásamlegt að lesa Biblíuna — en þess
er ekki að vænta, að við séum sífelit að lesa Biblíuna.
Bæn ber að iðka, og þó ætlast Guð ekki til þess, að við
séum að biðja hverja stund dagsins. Það er hollt að
ræða um trú og andleg efni. Samt tölum við stundum
um önnur mál.
Kristur á að skipa öndvegið í lífi okkar, en við það
hlaupum viö ekki frá skyldum okkar við lífið, t.d.
heimili, skóla, samneyti við annað fólk o.s.frv.
Hugsanlegt er, aó presturinn hafi séð votta fyrir
jafnvægisleysi í lífi ykkar og hafi einungis viljað
hjálpa ykkur. Talið við hann aftur um þetta,- og ég er
viss um, að hann leiðbeinir yður.
+ Móðir okkar. tengdamóðir og amma.
ÁSTÞRÚÐUR SVEINSDOTTIR,
er lést að Reykjalundi 20 febrúar s 1 verð jr jarðsungin frá Akureyrar-
kirkju þriðjudaginn 28 febrúar kl 1 3 30 Blóm og kransar vinsam-
legast afþökkuð en þeim sem vildu mínnast h'ennar. er bent á
heilsuhælið að Revkialundi
Bergþóra K ristinsdóttir
Sveinn Kristinsson Edda Guðlaugsdóttir
Sigurður Kristinsson Þórey Guðmundsdóttir
Arnheiður Kristinsdóttir Örn Ragnarsson
Bryndis Kristinsdóttir Þórður Óskarsson
Unnur Kristinsdóttir Orri Vigfússon
Jón Kristinsson Unnur Steingrímsdóttir
Kristján Kristinsson Oddný Dóra Halldórsdóttir
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem vottuðu
DEGI SIGURJÓNSSYNI,
Litlulaugum, Reykjadal
áður skólastjóra,
virðingu sína og samhug við andlát hans og jarðarför Sérstakar þakkir
færum við læknum hjúkrunarfólki og öðru starfsliði Sjúkrahúss
Húsavíkur fyrir umhyggju og aðhlynningu að honum síðustu dvalar- og
legumánuði hans þar
Systkini hins látna
og aðrir vandamenn.
t
Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför
eiginmanns mins og bróður okkar
EGILS SÍMONARSONAR,
lögg, endurskoðanda.
Sigriður Krístjánsdóttir,
Björg Símonardóttir, Sigurður Simonarson
Lokað
vegna jarðarfarar
Verzlun vor og skrifstofa verða lokaðar
þriðjudaginn 28 febrúar
frá kl 2 til 5 vegna jarðarfarar
frú Marie Ellingsen.
Verzlun O. Ellingsen h.f.
uppeldi og eru dugmiklir þjóðfé-
lagsþegnar í dag.
Þau eru: Ólafur bifvélavirki
giftur Önnu Maríu Snorradóttur,
Svalbarðseyri. Sjöfn gift Guð-
mundi Davíðssyni vélvirkja, Mos-
fellssveit. Inga Sonja gift Rúnari
Valssyni lögreglumanni, Vopna-
firöi. Þröstur múrari giftur Önnu
Jónsdóttur, Reykjavík. Ragnar
málarí heitbundinn Kristbjörgu
Friðriksdóttur, Reykjavik. Bjarni
bifreiðastjóri giftur Ósvör Jakob-
sen, Færeyjum.
Barnabörnin eru orðin 13 og
voru sannkölluð augasteinar afa
síns. Þaö er ljóst að til að sjá
stórri fjölskyldu farborða þarf
mikinn dugnað og víst er að
Eggert hlifði sér hvergi.
Ef til vill ekki hugsaö nógu vel
um sína eigin heilsu í baráttu
sinni fyrir velferð fjölskyldunn-
ar.
Eggert vann við almennar tré-
smiðar allt til ársins 1971, en
þann 1. júlí það ár hóf hann störf
hjá Rafmagnsveitu Reykjavikur^
og vann þar allt til hinstu stund-
ar.
Ég hygg að störf sín hjá Raf-
magnsveitunni hafi hann unnið
af sömu trúmennsku og skyldu-
rækni og hann hafði þegar tamið
sér á unga aldri, og víst er að
hann bar hlýjan hug til starfs-
manna sinna þar.
Eggert hafði sérstaklega létta
lund. Það var nærri sama á
hverju gekk, alltaf sá hann þaö
spaugilega út úr hlutunum, fljót-
ur að svara, en særði aldrei
nokkurn mann. A seinni árum
eftir að börnin stofnuðu sín eigin
heimili og fjárhagurinn léttist var
farið í ferðalög og mikil var
ánægja hans að heimsækja börnin
sín síðast liðið sumar og vera
viðstaddur brúðkaup yngsta
sonar sins i Færeyjum í desember
síðast liðnum.
En nú hefur Eggert lagt upp í
sína hinstu ferð, og ég veit að
hann þarf ekki að kvíða heimkom-
unni.
Nú að leiðarlokum þökkum við
hjónin Eggert samfylgdina og
biðjum honum blessunar Guðs.
Guðbjörgu, börnum þeirra og
tengdabörnum og öllum öðrum
ættingjum og vinum votta ég
mína innilegustu samúð.
Þar sem góðir menn fara eru
Guðs vegir.
Jón Þórarinsson.
— Maðurinn
sem á metið
Framhald af bls. 22.
part ólæs og óskrifandi, tekur ör-
lögum sínum þegjandi og þakkar
fyrir aö halda lífi. Það lítur sem
sé ekki út fyrir það, að lands-
lýðurinn rísi gegn Maciasi fyrst
um sinn; bæðj vantar forystuna
og búið að hræða almenning til
algerrar undirgefni.
Eini vestræni sendiherrann,
sem eftir er í Miðbaugsgíneu er
sendiherra Frakka, Jacques
Forunier. Varð hann eftir í
landinu til þess að gæta viðskipta-
hagsmuna Frakka þar ef mögu-
legt væri. Fyrrverandi undir-
maður Fourniers hefur lýst
ástandinu í landinu svo, að það
væri „eins og í fangabúðum“.
„Kringum stjórnarbyggingarnar í
Malabo er hár múr og liggur þvert
yfir aðaltorg borgarinnar. Er
engum hieypt inn fyrir hann
nema stjórnarherrunum og trygg-
ustu handbendum þeirra ...
Flestar verzlanir í borginni eru
tómar orðnar. Byggingum hefur
ekki verið haldið við iengi og eru
þær margar orðnar hrörlegar.
Eitt sinn fór rafmagnið af I einu
borgarhvertijiu, ög komst það
ekki á aftur fyrr en að þremur
vikum liðnum. ...
Allmargir útlendingar eru í
landinu og Kúbanir flestir þeirra.
Kúbanir eru einir 500 talsins, og
þar af lífvörður Maciasar. Ég veit
ekki til þess, að útlendingarnir,
(þ.e. Sovétmenn, Kúbanir og Kín-
verjar) hafi tekið þátt í morðun-
um. En það er víst, að stjórnin
styðst mjög við þá“...
— MICHAEL COLDSMITH.