Morgunblaðið - 26.02.1978, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. FEBRUAR 1978
39
Honum lá lágt rómur, en röddin
djúp og viðfelldin.
Hinn 8. desember sl. sáumst við
hinzta sinni á fundi hjá Sements-
verksmiðjunni. Allir viðstaddir
vissu þá að hverju dró með veik-
indi Svavars. En hér voru við-
skipti eins og venjulega. Sjálfur
lék Svavar á als oddi og lét hvergi
deigan síga. Undraði mig æðru-
leysi hans, en sundlaði jafnframt
sjálfan frammi fyrir þeirri stað-
reynd, að enginn má sköpum
renna og öll verðum við, fyrr eða
síðar, að horfast í augu við stað-
reyndir lífsins. Fyrir Svavar var
þetta of snemma en því verður
ekki breytt. Eftir er minningin
um góðan mann.
Fjölskyldu hans vil ég votta
samúð mína.
Friður sé með honum.
Halldór Jónsson vcrkfr.
Kveðja frá Félagi löggiltra
endurskoðenda.
Miðvikudaginn 22. febrúar s.l.
var Svavar Pálsson framkvæmda-
stjóri jarðsunginn frá Dómkirkj-
unni í Reykjavik.
, Við fráfall Svavars Pálssonar.
löngu fyrir aldur fram. er. geng-
inn sá félagi okkar sem um árabil
hafði forustu meðal endurskoð-
enda hér á landi.
Svavar Pálsson hlaut löggild-
ingu sem endurskoðandi árið
1945 og var ætið mjög virkur i
Félagi löggiltra endurskoðenda.
Hann átti sæti i stjórn félagsins i
11 ár og var formaður þess í 6 ár!
Svavar var víðsýnn maður. laus
við alla smámunasemi og sá hlut-
ina alltaf i viðu samhengi. I for-
mannstið hans tók félagsstarfið
miklum stakkaskiptum til hins
betra. Hann vildi framfarir með
aukinni þekkingu meðal félags-
manna og mótuðust störf hans
fyrir félag okkar mjög af þessum
viðhorfum hans. Svavar lagði
áherslu á að félagsmenn fylgdust
sem best með þvi sem var efst á
baugi i faginu á hverjum tima.
bæði hérlendis og erlendis og
hann lagði grundvöll að ýmsu þvi
sem enn er byggt á í félagi okkar.
Þannig kom hann m.a. á föstu
ráðstefnuhaldi þar sem félags-
menn koma saman og ræða og
fræðast um sin faglegu málefni.
en þessar ráðstefnur hafa siðan
verið taldar ómissandi þáttur i
.fræðslu- og félagsstarfi löggiltra
endurskoðenda.
Áður en Svavar varð formaður
Félags löggiltra endurskoðenda
hafði litið samband verið haft við
hliðstæð félög erlendis. Þetta
breyttist fyrir tilstilli Svavars. en
hann kom á virku samstarfi við
félög löggiltra endurskoðenda á
hinum Norðurlöndunum innan
Norræna endurskoðendasam-
bandsins. Hann vann Sér traust
frænda okkar á Norðurlöndum og *
hann var fyrsti tslendingurinn.
sem kjörinn var til formennsku í
norræna sambandinu. en for-
mennsku gegndi hann þar árin
1968 og 1969
Þeim fjölmörgu málefnum. sem
Framhald á bls. 46.
Kveðja:
Svavar Pálsson
framkvœmdastjóri
Svavar Pálsson, framkvæmda-
stjóri Sementsverksmiðju ríkis-
ins, var fæddur í Hrísey, hinn 23.
september 1919, sonur hjónanna
Páls Bergssonar, útvegsbónda og
kaupmanns, og konu hans Svan-
hildar Jörundsdóttur.
Svavar lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanuin á Akureyri 1938
og prófi úr hinni ungu viðskipta-
deild Háskóla Islands 1941. Hann
fékk löggildingu í endurskoðun
árið 1945. Hann vann á endur-
skoðunarskrifstofu Björns E.
Árnasonar 1941—1953. Hann rak
endurskoðunarskrifstofu í
Reykjavík i eigin nafni um árabil,
sem enn starfar með hans nafni,
auk þess sem hann var dósent við
Háskóla Islands um árabil.
Hann var framarlega í röðum
sjálfstæðismanna og var formað-
ur Varðar um skeið.
Timamótamarkandi eru af-
skipti hans af málefnum lamaðra
og fatlaðra. Hann var helsti hvata-
maður að stofnun Styrktarfélags
lamaðra og fatlaðra 1952, og var
formaður þeirra samtaka frá
stofnun í 20 ár. Hafa þau samtök
unnið þjóðþekkt hjálparstarf,
sem aðrir munu þó þekkja betur
en ég. Hann átti sæti í stjórn
Öryrkjabandalags tslands. Enn-
fremur í kjaradómi og var í milli-
þinganefnd í skattamálum 1959.
Hann kvæntist árið árið 1942
Sigríði Stefánsdóttur, vatnsveitu-
stjóra Ölafssonar frá Akureyri.
Þau hjón eignuðust 6 börn, sem
öll eru á lífi. Attu þau hjón fagurt
heimili að Selvogsgrunni 16, sem
gott var að heimsækja.
Svavar lézt í Reykjavík hinn 14.
febrúar 1978 af þungbærum sjúk-
dómi.
Kynni okkar Svavars hófust
þegar hann kom að Sementsverk-
smiðjunni, nokkuð skyndilega,
vegna erfiðra mála, sem þar komu
upp. Var Svavar settur forstjóri
þar fyrirvaralítið haustið 1968.
Hafði hann þá verið endurskoð-
andi fyrirtækisins um alllangt
skeið.
Það hefur án efa vérið erfitt
fyrir ótæknilærðan mann að
koma svo fyrirvaralaust inn í jafn
margbrotinn rekstur og Sements-
verksmiðjan er og þurfa að fara
að stjórna þar öllum hlutum, við-
skiptalegum sem tæknilegum.
Stærstu viðskiptavinirnir, steypu-
stöðvarnar í Reykjavík, sóttu fast
á um bætt viðskiptakjör, deilt var
á ráðningu Svavars af Verkfræð-
ingafélaginu, sem vitnaði í lög um
Sementsverksmiðju, sem sögðu að
forstjóri skyldi vera verkfræðing-
ur og gæði sementsins voru væg-
ast sagt umdeild. Haustið 1971
var málefnum verksmiðjunnar
svo ráðið, að skipaðir voru 2 fram-
kvæmdastjórar, Svavar sem við-
skiptalegur og dr. Guðmundur
Guðmundsson sem tæknilegur
framkvæmdastjóri. Verður ekki
annað séð en að samstarf þeirra
hafi tekist með ágætum.
En Svavar var sem sagt einn á
báti við stjórn verksmiðjunnar
framan af og þurfti að glíma sjálf-
ur við vandamálin, stór og smá,
um þriggja ára skeið. En hann
greip fljótlega farsællega á. flest-
um málum. Hann sótti innlenda
og erlenda sérfræðinga til ráðu-
neytis og gæði sementsins fóru
fljótlega bátnandi, og hefur í
raun verið svo síðan þó enn vanti
ýmislegt á, að óskir okkar notend-
anna séu uppfylltar. Enda eru ís-
lenzkar náttúruaðstæður fremur
erfiðar til sementsgerðar og stöð-
ugrar viðleitni því þörf, til þess að
þróa hina réttu tækni.
Svavar var vaxandi maður í
starfi sínu hjá Sementsverksmiðj-
unni, réttsýnn og lipur í viðskipt-
um og drengur góður. Mér finnst
að hann hafi að miklu leyti þurrk-
að einokunarsvipinn af þessu
rikisfyrirtæki og að viðhorf okkar
hjá steypustöðvunum í Reykjavik
hafi breytzt smám saman úr tor-
tryggni i venjuiegt viðskipta-
andrúmsloft. Hann var djarfur að
framkvæma þá hluti, sem hann sá
að verksmiðjunni voru nauðsyn-
Sveinn Egilsson hf.
FORD HÚSINU SKEIFUNNI 17 SÍMI 85100
legir og hirti þá kannski ekki allt-
af um réttar boðleiðir í kerfinu.
Hjálpsemi i greiðsluerfiðleikum
sýndi Svavar viðskiptavinum oft-
lega sem hann mátti. En hann var
líka fastur fyrir, og þegar hann
sagði hingað og ekki lengra,
þurfti ekki að ræða málið meira.
Og loforð brutu menn yfirleitt
ekki nema einu sinni á honum.
Við tókum oftlega tal saman þá
er við hittumst og viðskiptamál-
um var lokið, sem stundum fóru
ekki fram á neinu rósamáli.
Fannst mér jafnan bæði gagnlegt
og skemmtilegt að ræða við Svav-
ar, enda maðurinn skarpgreind-
ur, ofar því skynsamur, raunsær
og skopskynið næmt. Auk þess
kom til staðgóð þekking á mönn-
um og málefnum.
Svavar var hár maður og
myndarlegur að vallarsýn, svip-
stór, brúnamikill og dökkur á hár.
Ford Fiesta er rúmgóður 4 manna bíll
með 3 dyrum og sameinar því alla
kosti fólks- og stationbíla.
Ford Fiesta er hannaður með hagkvæmni og ódýran rekstur í huga.
Árangur þess kemur best í Ijós í lítilli bensíneyðslu og sérstaklega góðri
nýtingu á rými. Ford Fiesta: Heimilisbíllinn með framhjóladrifinu
KR. 2.190.000
60 BÍLAR A SÉRSTÖKU KYNNINGARVERÐI: FIESTA 1100L CA M/RYÐVÖRN