Morgunblaðið - 26.02.1978, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. FEBRUAR 1978
í hádeginu alla daga
”Shawarma„
ísraelskur grillréttur
Borinn fram í brauóhleif,
með sinnepssósu
og salati
VeriÓ velkomin
LOFTLEIÐIR
Veitingabúð
HOTEL
— Að loknu
Reykjavíkur-
skákmóti
Framhald af bls. 20
bara ekki nógu greinilegar og
mjög erfitt fyrir annars mjög
lipra drengi að fylgjast stöðugt
með réttum tíma keppenda.
Ahorfendum finnst að sjálf-
sögðu spennandi að geta fylgst
með hvað líður umhugsunar-
tíma keppendanna og væri það
verðugt verkefni að finna
þarna leið til úrbóta.
Aðstaðan á
Hótel Loftleiðum
Aðstaðan í Ráðstefnusalnum
er vissulega skemmtileg og oft-
ast voru einhverjir af okkar
fremstu skákmönnum að út-
skýra skákir en óneitanlega
komu stundum eyður og bið
eftir skýranda og var það
óneitanlega löstur á annars
mjög góðri framkvæmd þessa
móts. En þess verður að gæta að
mjög erfitt er að fá góða skák-
menn til þess að taka slikt að
sér. Fremstir i flokki skákskýr-
enda sem höfðu ofan af fyrir
áhorfendum voru þeir Ölafur
Magnússon sem orðinn er einn
okkar bezti skákskýrandi á slík-
um kappmótum, Sævar Bjarna-
son, Ingvar Asmundsson, Leif-
ur Jósteinsson, Jón Þorsteins-
son og fl. Hinn ungi skákmaður
Jóhann Hjartarson sem einung-
is er 15 ára tók að sér skákskýr-
ingar í anddyri Ráðstefnusalar-
ins og var það hans frumraun á
þvi sviði. Mun honum eflaust
farnast það mun betur þegar
honum vex þroski og áræði þvi
ekki skorti hann þekkinguna.
Sjónvarpstæknin
Nýtizkulegri sjónvarpstækni
var beitt á sama hátt og í ein-
víginu Spassky—Hort og gátu
áhorfendur fylgst með einni
vissri aðal skák allt kvöldið fyr-
ir utan annan skerm sem sýndi
allar skákirnar jöfnum höndum
og var það á valdi drengjanna
sem þar voru við stjórnvöl
hverju þeir vildu beina til
áhorfenda. Var það gjarnan
einhver skák sem tekin var til
skýringa á öðrum hvorum þess-
ara fyrrnefndu staða og gafst
þetta mjög vel. Er ekki hægt
annað en dást að þessari miklu
tækni sem þarna var fyrirkom-
ið og var í einu orði sagt til
fyrirmyndar.
Skákstjórar
Skákstjórar i þessu mikla
móti voru ráðnir 4 en það voru
úr stjórn. S.t. þeir Guðbjartur
Guðmundsson og Þorsteinn
Þorsteinsson. Ennfremur
undirritaður, en aðalskákdóm-
ari mótsins var Guðmundur
Arnlaugsson og var samvinna
þessara stjórnenda og kepp-
enda mótsins algjörlega
snurðulaus og kom aldrei upp
neitt vandamál sem ekki var
auðleysanlegt á svipstundu.
Mótsblaðið
Skákblaðið annaðist útkomu
mótsblaðs og rituðu i það tveir
ungir skákmenn. Er slíkt alls
ekkert áhlaupaverk og má telja
það til afreka að koma út slíku
blaði eftir hverja umferð. Var
það sennilega ekki hvað sízt að
þakka ágætum starfsmanni
Skákprents, Birgi Sigurðssyni,
hversu vel til tókst.
Þetta mótsblað er til sölu hjá
Skákprenti en fyrirhugað er að
gefa út bók um mótið á ensku
með skýringum hinna ýmsu
stórmeistara keppninnar. Er
það skemmtilegt nýmæli hjá
forstöðumönnum Skákprents
og er ætlunin að selja bókina
erlendis.
Skákskýringar
í sjónvarpi -
Sigurður Sigurðsson annaðist
Er hann gööur? — Þœgilegur?
FÍAT EINKAUMBOÐ A ÍSLANDI
DAVÍÐ SIGURÐSSON hf.
SiOUMULA 35. SÍMI 85855
u
Hvaö er
DOLSK/ _
C--FW 9
— Kraftmikill?
— Sparneytinn?
Hann er allt þetta og mikið meira.
Pólski Fíatinn hefur nú verið seldur
á íslandi í nokkur ár með góðum
árangri Sem dæmi um það sem
fylgir með í kaupunum þegar þú
kaupir Pólska Fiatinn má nefna:
kraftbremsur með diskum á öllum
hjólum, radial dekk, tvöföld fram-
Ijós með stillingu, læst bensinlok,
bakkljós, teppi horn i horn, örygg-
isgler, 2ja hraða miðstöð, 2ja
hraða rúðuþurrkur, rafmagns-
rúðusprauta, kveikjari, Ijós í far-
angursgeymslu, 2ja hólfa
karprator, synkromeseraður gir-
kassi. hituð afturrúða, hallanleg
sætisbök, höfuðpúðar o.fl. Það er
óhætt að segja að þú færð mikið
fyrir peninginn þegar þú kaupir
Pólskan Fíat Að innan og utan er
billinn laglega unninn og þægileg-
ur.
/---------------------------------------------
Otrúlega lögt verö
Fólksbill kr 1.670.000. — Til öryrkja kr 1 270.000. —
Station kr 1 820.000. - Til öryrkja kr 1.400 000. -
fréttir frá skákmótinu i Rikis-
útvarpi — Hljóðvarpi og sjón-
varpið sýndi þætti frá mótinu
þar sem þeir Ingvar Ásmunds-
son og Jón Þorsteinsson önnuð-
ust ágætar skýringar. Eina
atriðið sem ég tel ámælisvert
hjá Ingvari var þegar hann tók
að lýsa hegðun sigurvegarans í
keppninni og notaði óþarflega
gróf orð og dómhörku. Þó fram-
koma Brownes hafi verið óeðli-
leg, kvörtuðu keppendur aldrei
við stjórnendur mótsins yfir
framkomu hans enda ekki
ástæða til þó hann sýndi órólegt
látbragð i tímahraki sem gætti
fyrst og fremst i fyrstu umferð-
unum eins og fyrr segir.
Kvennakeppni
Ein fremsta skákkona Breta,
Jana Hartston, kom hingað í
fylgd með skákmeistaranum
Miles og var af þvi tilefni efnt
til skákkeppni meðal kvenna og
var tefít um meistaratitil
Reykjavíkur en Jana var
heiðursgestur keppninnar.
Fóru leikar svo að Jana var
hlutskörpust, gerði einungis
eitt jafntefli við Islandsmeist-
arann Olöfu Þráinsdóttur, en
Guðlaug Þorsteinsdóttir var
efst islenzku keppendanna og
hlaut því titilinn Reykjavíkur-
meistari kvenna 1978.
Verðlaun voru hin myndar-
legustu eða alls 125 þús. króna.
Með gifurlegum dugnaði
stjórnarmanna Skáksambands-
ins undir forystu Einars S.
Einarssonar tókst þeim að láta
enda ná saman fjárhagslega
varðandi þetta mót. Má þakka
það að hluta hinni gifurlegu
aðsókn að mótinu en áhorfend-
ur voru þegar bezt lét allt að
700. Verðlaun voru óvenjuhá
eða i 1. verðlaun $2.200, 2. verð-
laun $1.500 o.s.frv. fyrir utan
bónusgreiðslur til keppenda.
Freistandi er að viðra þá hug-
nynd að slík mót verði haldin
hér árlega en þá þyrfti að koma
til bein aðild t.d. Flugleiða og
hótelsins sem tækju að sér
ásamt Skáksambandinu og
Taflfélagi Reykjavíkur sam-
eiginlega fjárhagslega ábyrgð.
Eftir vel heppnað mót á öll-
um sviðum er það hvatning til
frekari sóknar og áframhalds á
slíkri skemmtun fyrir lands-
menn á „dimmum og löngum
vetrarkvöldum".
— Fréttabréf
Framhald af bls. 4
lag Reykdæla er að sýna leikritið
„Klukkustrengi" eftir Jökul Jak-
obsson um þessar mundir. Með
helztu hlutverk fara Ingibjörg
Helgadóttir, Gréta Ingvarsdóttir,
Kristófer Kristinsson, Páll
Guðnason, Hugrún Hauksdóttir,
Þorsteinn Pétursson, Sigurður
Jónsson og Brandur Högnason.
Gleðir ýmsar eru nú sem óðast
haldnar. Þorrablót, það siðasta á
þorraþræl og taka þá við Góugleð-
ir.
— Kveðja
Svavar
Framhald af bls. 39
Svavar vann að fyrir löggilta end-
urskoðendur, verða ekki gerð
tæmandi skil hér, en óhætt er að
fullyrða að hann skilaði þar þýð-
ingarmiklu starfi, eins og á öðrum
sviðum félagsmála, sem hann
lagði hug og hönd að. Hann var
allt til dauðadags tryggur félag-
inu og þrátt fyrir störf á öðrum
vettvangi siðustu árin slitnuðu
böndin aldrei.
Löggiltir endurskoðendur
þakka störf Svavars og minnast
has með virðingu. Sigriði eftirlif-
andi eiginkonu Svavars sem tók
virkan þátt í félagslifi endurskoð-
enda með manni sinum, svo og
börnum þeirra hjóna og fjölskyld-
um, sendum við hugheilar
samúðarkveðjur.
Félag löggiltra
endurskoðenda.
AUGLÝSINGASÍMINN ER: ■
2248D
JWovounbtnbií)