Morgunblaðið - 26.02.1978, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. FEBRUAR 1978
47
— Samkomulag
Framhald af bls. 1.
væri að ná samkomulagi, fá
þingið til að samþykkja að
stjórnin tæki við rekstri nám-
anna og skipa gerðardóm.
Samkomulagið byggir á
samningi sem náðist fyrr í vik-
unni milli óháðs kolafyrirtæk-
is í Pittsburgh og námumanna.
Samkvæmt þeim samningi
hækka laun námumanna um
2.40 dollara á klukkustund úr
7.80 dollurum. Viðræður deilu-
aðila rofnuðu fyrir viku og sið-
an hefur stjórnin ákaft reynt
að koma þeim aftur af stað.
Verkfallið hefur staðið í 81
dag, valdið miklum erfiðleik-
um í um 12 ríkjum og haft í för
með sér orkuskort og uppsagn-
ir þúsunda verkamanna.
— Mannsspor
Framhald af bls. 1.
væru 250.000 ára gömul. Dr. Mary
Leakey 'og samstarfsmenn hennar
sem komu auga á fimm fótspor í
ævagömlum steingervingi í
Laetolil í Tanzaníu, telja hins veg-
ar að þau séu eftir mann eða
einhvers konar frummann, sem
hafi verið á kreiki fyrir 3.5 til 3.75
milljón árum. ,,En ég kýs að vera
fullkomlega viss áður en ég kveð
upp nokkurn úrskurð," sagði dr.
Leakey, „og enn sem komið er
verð ég að segja að líkurnar eru
aðeins 75 af hundraði að ég hafi
rétt fyrir mér,“ bætti hún við.
Það torveldar lausn gátunnar
að árið 1976 fundust i grenndinni
sex fótspor af líkri gerð að því
undanskildu að sporum þessum
fylgja för eftir hnúa eða kjúkur
og bendir það til þess að á ferð-
inni hafi verið api svipaður
górillu eða sjimpansa. Að sögn dr.
Leakeys er hugsanlegt en þó ekki
sennilegt, að bæði förin séu eftir
sama dýrið en að hnúaförin vanti
einfaldlega með þeim síðast-
fundnu. En hvort sem satt kann
að vera er hér um mikinn hval-
reka á fjörur vísindamanna að
ræða, segja mannfræðingar.
— Kjaranefnd
Framhald af bls. 48
flokks hækkun :ð jatnaöi, en í
bréfi fjármálaráðherra til
Hjúkrunarfélagsins 28. marz s.l.
var gefið fyrirheit um, að við
næsta kjarasamning yrðu kjör
hjúkrunarfræðinga tekin til sér-
stakrar meðferðar og kannað
hvort kjör þeirra hefðu hækkað
til jafns við kjör annarra aðildar-
félaga innan BSRB. I úrskurði
varðandi Póstmannafélagið hafa
nokkur starfsheiti hækkað um
einn launaflokk, t.d. bréfberar,
hraðboðar, póstafgreiðslumenn
og bifreiðastjórar, þ.e. þeir sem
hafa lokið námi frá Póstskóla.
Fjármálaráðherra mun hafa
gefið Landssambandi lögreglu-
manna fyrirheit um hækkun um
einn launaflokk hinn 1. júlí 1977
nema fyrir lögreglumenn 3. stigs
og meðan málið var til meðferðar
hjá kjaranefnd ítrekaði varnar-
aðili þetta fyrirheit og tók
nefndin mið af því.
— Verðbóta-
hækkun
Framhald af bls. 48
sl., sem er 1590 krónur.
Hins vegar er í lögum um ráó-
stafanir í efnahagsmálum sem
samþykktar voru á Alþingi fyrir
skemmstu kveðið svo á um að 1.
marz, 1. júní, 1. september og 1.
desember í ár skuli verðbætur á
laun hverju sinni hækka sem
svarar helmingi þeirrar hækkun-
ar verðbótavísitölu og verðbóta-
auka, sem Kauplagsnefnd reiknar
samkvæmt ákvæðum kjarasamn-
inga að hafi átt sér stað frá næst-
liðnu 3ja mánaða tlmabili. Verð-
bótavisitala fyrir mánuðina
marz—maí í ár, reiknuð í_ sam-
ræmi við þessi lagaákvæði, er
120,09 stig að meðtöldum verð-
bótaauka.
Hækkun launa ASÍ-fólks frá og
með 1. marz nk. sem af þessu
leiðir er mismunandi en oftast á
bilinu 5,2 til 5,8%. Launahækkun-
ina má reikna þannig að við mán-
aðarlaun á yfirstandandi greiðslu-
tímabili bætast við 6,93% en sið-
an dragast frá 1700 k'rónur eóa þá
með þeim hætti að færa fyrst
febrúarlaun niður um 1590 krón-
ur en hækka siðan niðurfærð laun
um 6,93%.
í tilkynningu Kauplagsnefndar
er tekrð fram að framangreint
varði eingöngu launahækkun 1.
marz nk. vegna hækkunar verð-
bótavisitölu en framkvæmd á
ákvæðum um lágmarksverðbætur
séu ekki i verkahring nefndarinn-
ar.
, í tilkynningu nefndarinnar um
verðbætur frá 1. marz nk. til laun-
þega innan BSRB og Bandalags
háskólamanna kemur hins vegar
fram að verðbótavisitala sam-
kvæmt kjarasamningum þessara
aðila við ríkið er samsvarandi og
hjá ASÍ eða 123,24 stig, og að öðru
leyti i öllum aðalatriðum hliðstæð
því sem greint er frá hér á undan
varðandi verðbætur ASI, þannig
að frá 1. marz nk. greiðast samtals
20,09% verðbætur á laun BSRB-
fólks og á laun BHM-fólks og seg-
ir í tilkynningu Kauplagsnefndar
að samkvæmt þessu sé hækkun
launa hlutaðeigandi launþega
5,32% frá þeim launum er gilda
til næstu mánaðamóta.
Miðað við þessar verðbætur má
taka sem dæmi, að 150 þús. króna
laun samkvæmt BSRB-samningi
munu 1. marz hækka um 7.980
krónur en samkvæmt ASÍ-
samningum munu sömu laun
hækka um 8.694 krónur.
— Útlánaþakið
Framhald af bls. 2
ið í lánsfjáráætlun ríkisstjórnar-
innar, að lánveitingar viðskipta-
bankanna til Framkvæmdasjóðs
skyldu lækka úr 10% í 5% af
heildarinnstæðuaukningu. Var
fyrirhugað að nota það svigrúm,
sem þessi lækkun á lánum bank-
anna til Framkvæmdasjóðs skap-
ar til þess að auka viðbótarlán
viðskiptabankanna, jafnframt því
sem hlutdeild Seðlabankans í af-
urðalánum yrði hlutfallslega
lækkuð. Verður fyrsti áfangi
þessarar breytingar i þvi fólginn,
að hlutfall endurkaupanlegra
lána af afurðaverðmæti mun
lækka um tvö prósentustig, en
viðbótarlán viðskiptabankanna
hækka að sama skapi. Heildaraf-
urðalán munu því haldast
óbreytt. Til dæmis má nefna, að
lán út á útflutningsvörur eru nú
samtals 75% af áætluðu afurða-
verömæti, þar af er endurkaupan-
legt lán Seðlabankans 58,5%, en
viðbótarlán viðskiptabankanna
16,5%. Eftir breytinguna verður
endurkaupanlegt lán Seðlabank-
ans 56,5%, en viðbótarlán við-
skiptabankanna 18,5%, svo að
heildarlánin eru eftir sem áður
75%.
Ofangreindar breytingar munu
þó ekki koma til framkvæmda
nema um leið og upphæð afurða-
lána er endurskoðuð með tilliti til
breytinga á verðlagi og gengi að
undanförnu. Þannig verða af-
urðalán út á helztu flokka sjávar-
afurða endurskoðuð allra næstu
daga, og munu þau yfirleitt
hækka um 20% eða rúmlega það.
Framleiðslulán iðnaðarins eru
sömuleiðis i endurskoðun, og
munu væntanlega hækka í svip-
Uðum mæli. Minni breytingar eru
framundan á afurðalánum land-
búnaðar, enda helzti framleiðslu-
timi landbúnaðarafurða um garð
genginn fyrir nokkrum mánuð-
um.“
— Atvinnu-
greinar...
Framhald af bls. 23
um búnir að borða drógu þeir upp
skambyssurnar sínar, fóru að
bera þær saman og ræða kosti
þeirra og galla, rét\ eins og menn
annars staðar bera saman
kveikjarana sína, armbandsúr,
penna eða annað þviumlikt.
Yfirvöld i Kólumbíu virðast
ráðalitil við mannránunum. Kem-
ur það fram í ýmsum ráðstöfun-
um þeirra að undanförnu; þær
eru nefnilega flestar á þá lund að
fela óbreyttum borgurum sjálfum
löggæzluna. Til dæmis að nefna
verða menn nú ekki lengur sóttir
til saka er þeir drepa mannræn-
ingja eða árásarmenn yfirleitt, al-
menningi leyfist að kaupa og bera
vopn „eftir þörfum“ o.s.frv. Það
er sem sé fangaráð yfirvaldanna,
að menn gæti sin sjálfir.
— TIMOTHY ROSS.
Við kynnum hér 4 frábærar plötur Disco
Fever, Dynamite, Feelings og Classic Rock
Allt saman plötur sem eiga erindi til allra.
Láttu ekki dragast að tryggja þér eintak.
Bullsjóðandi stuðplata inniheldur m.a. So
You Win Again/ Hot Chocolate — Ang-
elo/ Brotherhood of Man — Red Light
Spells Danger/ Billie Ocean — You've
Got what it Takes/ Showaddywaddy og
16 önnur.
Dynamite
Hættulega kraftmikíl stuSplata. Inniheldur
m.a. Yes sir I Can Boogie/ Baccara —
Rockollection/ Laurent Vaulsy — Oh Me.
Oh My. Goodby/ Champagne — Year of
the Cat/ Al Stewart og 16 önnur.
• WStnnrl
Feelings
Einstaklega falleg og rómantisk lög m.a.
Feelings/ Johnny Mathis — Mandy/
Barry Manilow — You don’t have to Stay
You Love Me — Guys in Dolls Raindrops
Keep Falling on My Head/ B.J. Thomas,
og 16 önnur.
Karnabær
11 n ui i n i
Fyrir 2 plötur ókeypis burðargjald
Fyrir 4 plötur10% afsláttur og
ókeypis burðargjald.
GbdysKiu^tStnvFlps
AIIByMvsv*
AnvmrviiM'
Kiki IYv
Sollfairp
rVtdvWlkirn- ‘
Ikm't (mvUpOtilK
Classic Rock:
Sinfóniuhljómsveit Lundúnaborgar tekur
nokkur þekktustu popplög síðari tima til
flutnings. Óvenjuleg og frábær plata.
P0P/R0CK
I 1 Linda Ronstadt — Simple Dreems.
n Fleetwood Mac — Rumours.
O Herman Hermits — Greatest Hits.
I I Dave Clark Five — 25 Greatest Hits.
n ABBA — Allar Plöturnar.
I i Bellamy Brothers— Let Your Love Flow.
[1 Jackson- Browne — Running on the
Empty.
I | Sweet — Ný plata.
'v Ó Manhattan Transfer —- Phastics.
f v O EricClapton — Slow Hand.
' O Randy Newman—Little Criminals.
N Q] Harpo — Hollywood Tapes.
t. \
I I BillBruford — FeelsGood to Me
|~1 Arlo Guthrie — Best of.
n Jean Luc Ponty.— Enigmatic Ocean.
n Foreigner — Foreigner.
Spilverk Þjóðanna — Sturla
Gamlar Góðar Lummur.
David Bowie — Heroes.
Disco/ Soul.
I 1 Bee Gees o.fl. — Saturday Night Fever.
I | ÝmsirGóðir—SaulCity.
n Chic — Chic. (Inniheldur m.a. lagið Dance
Uance Dance).
Manhattan Transfer— Phastice.
Glady's Knight & the Pips — Greatest
Hits.
Earth Wind & Fire — AII’nAII
Odyssey — Odyssey.
□
□
□
□
Krossið við þær plötur er hugurinn girnist.
Komið siðan skilaboðunum til okkar og við
sendum svo samdægurs í póstkröfu.
Kamabær, Hljómplötudeild
\ Laugavegi 66
\ S.28155
\
Austurstræti 22
S.28155