Morgunblaðið - 26.02.1978, Síða 48
targitii'ÞXiifrfö
SUNNUDAGUR 26. FEBRUAR 1978
Seðlabankinn veitir
/
Utvegsbankanum sér-
staka fyrirgreiðslu
„1 SAMBANDI við samninga
viðskiptabankanna og Scðlabank-
ans um útlánaþak á þcssu ári
veitti Seðlabankinn tJtvegs-
bankanum ákveðna fyrirgreiðslu
í sambandi við skuld, sem
myndast hafði hjá 'Seðlabankan-
um á síðasta ári,“ sagði Bjarni
Guðbjörnsson, bankasjtóri (Jt-
vegsbankans í samtali við Mbl. í
gær. „En ég vil benda á að (Jtvegs-
hankinn á alltaf á móti bundið fé
í Scðlabankanum vegna bindi-
skyldunnar."
Bjarni Guðbjörnsson sagði það
enga launung að lausafjárstaða
(Jtvegsbankans væri mjög erfið.
„Útvegsbankinn hefur farið
meira fram úr útlánaþakinu en
aðrir bankar, þar sem erfiðleikar
sjávarútvegsins hér á suðvestur-
horninu og í Vestmannaeyjum
hafa bitnað illa á bankanum.
Af heildarútlánum Útvegs-
bankans hafa á undanförnum ár-
um verið þetta 61—65% í
sjávarútveginum og auk þess
erum við svo með þessi
hefðbundnu viðbótarlán, sem
hækka nú í 32,7%. Það gefur
auga leið að svo einhæf útlána-
starfsemi kemur illa niður á
bankanum, ekki sízt þegar um
erfiðleika er að ræða í
viðkomandi atvinnuvegi."
Mbl. spurði Bjarna Guðbjörns-
son um viðræður á sl. ári milli
Útvegsbankans og Landsbankans
undir forystu Seðlabankans um
það, að viss skipting færi fram
milli útibúa Útvegsbankans og
Landsbankans i Keflavík. Sagði
Bjarni að þær viðræður hefðu
legið niðri undanfarna mánuði.
Borgin ogbygginga-
meistarar semja
um Mjóumýrina
GENGIÐ hefur vcrið frá sam-
komulagi milli borgaryfirvalda í
Reykjavik og Meistarasambands
byggingarmanna um tilhögun
úthlutunar byggingasvæðis í
Mjóumýri, rétt hjá Seljahverfi f
Breiðholti.
Þarna er um að ræða bygginga-
svæði með lágri blokkabyggð og
raðhúsum á 2—3 hæðum, alls um
200 til 230 fbúðir. Borgin mun
eftir sem áður annast verkfræði-
lega hönnun og skipulags-
teikningar svæðiðsins en sú
nýbreytni er hins vegar tekin upp
að byggingaaðilar annast sjálfir
allar framkvæmdir frá fyrsta stigi
til loka, svo sem lagningu skolp-
og vatnslagna, gatnagerð og
fleira, sem borgin hefur hingað til
annast sjálf.
Að sögn Gunnars Björnssonar,
formanns Meistarasambandsins,
er gert ráð fyrir því að gerður
verði verksamningur milli borgar
og byggingaaðila um þessa undir-
búningsframkvæmdir samkvæmt
ákveðnum skilmálum, sem samið
hefur verið um en hann bjóst
síðan yið að byggingaaðilar
myndu í flestum tilfellum bjóða
út undirbúningsframkvæmdirnar
til undirverktaka, þar sem þarna
væri um að ræða jarðvegsvinnu
sem byggingaaðilar hefðu í fæst-
um tilfellum tækjakost til að
annast.
Gunnar kvaðst mjög forvitinn
að sjá hvernig til tækist með
þessa nýbreytni, því að ef hún
heppnaðist mætti búast við
frekari samvinnu borgaryfirvalda
og byggingameistara varðandi
skipulag nýrra hverfa.
Á hrafnaþingi.
Ljósm. Mbl.: Ol. K M
Verðbótahækkun launa 1. marz n.k.:
150 þúsund kr. mánaðarlaun
hækka um 8-9 þúsund krónur
MANAÐARLAUN launþega inn-
an Alþýðusambands tslands
munu hækka á bilinu 5,2—5,8%
hinn 1. marz n.k. vegna gildandi
verðbótaákvæða og hjá opinber-
Úrskurður kjaranefndar:
Ekki miklar breyt-
ingar hjá aðildar-
félögum BSRB
KJARANEFND hefur úrskurðað
í málum 16 félaga innan BSRB
gegn fjármálaráðherra fyrir hönd
ríkisst jórnar og borgarstjóra
fyrir hönd Reykjavíkurborgar og
féll úrskurður hennar nú fyrir
helgina. Blaðinu hafa borizt
þessir úrskurðir og skv. þeim er
ekki um að ræða mjög miklar
breytingar á kjörum flestra fé-
laga og starfshópa, sem hér eiga
hlut að máli.
Félögin eru þessi: Starfsmanna-
félag Sjúkrasamlags Reykjavikur,
Félag starfsmanna stjórnarráðs-
ins, Félag forstjóra Pósts og síma,
Póstmannafélag íslands,
Tollvarðafélag íslands,
Hjúkrunarfélag Islands, Ljós-
mæðrafélag tslands, Félag flug-
málastarfsmanna ríkisins, Félag
ísl. símamanna, Starfsmannafélag
ríkisstofnana, Samband ísl.
barnakennara, Landssamband
framhaldsskólakennara og starfs-
mannafélög ríkisútvarpsins og
sjónvarpsins. Samningarnir gilda
frá 1. júli 1977.
Sem fyrr segir hafa ekki orðið
verulegar breytingar á kjörum
flestra félaganna sem hér um
ræðir, en Hjúkrunarfélag Islands
hefur til dæmis hlotið eins launa-
Framhald á bls. 47.
um starfsmönnum um 5,32%
samkvæmt ákvæðum um verðbæt-
ur f kjarasamningi BSRB og
BHM við fjármálaráðherra. Þetta
hefur ( för með sér að 150 þúsund
króna laun hækka um næstu mán-
aðamót um milli 8 og 9 þúsund
krónur.
Verðbótavísitalan er reiknuð
eftir framfærsluvísitölu hinn 1.
febrúar sl. en hækkun hennar á
síðasta tímabili eða frá nóvember-
byrjun til febrúarbyrjunar var
95,56 stig eða 11,38% samkvæmt
útreikningi kauplagsnefndar. A
þessum grundvelli hafa einnig
verið reiknaðar út tryggingabæt-
ur, sem hækka munu um 5,5% og
einnig tekjutrygging sem sam-
kvæmt lögum er ákveðin 2%
hærri eða 7,5% og að sögn Páls
Sigurðssonar, ráðuneytisstjóra i
heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytinu, munu þessar bætur
koma til útborgunar nú þegar
10.—15. marznk.
í tilkynningu Kauplagsnefndar
um verðbætur frá 1. marz nk. til
launþega innan Alþýðusambands
Islands kemur fram að verðbóta-
vísitalan reiknuð eftir fram-
færsluvísitölu 1. febrúar sl. sam-
kvæmt ákvæðum i kjarasamningi
ASÍ og vinnuveitenda frá því í
sumar er nú 123,24 stig miðað við
grunntöluna 100 1. maí 1977.
Verðbótaauki samkvæmt fyrr-
greindum ákvæðum er sem svarar
2,91 stigi í verðbótavísitölu og
verðbótavísitalan að viðbættum
verðbótaauka er þannig 126,15
stig, sem er 12,13 stiga hækkun á
þeirri visitölu, sem verðbætur eru
greiddar eftir á yfirstandandi 3ja
mánaða greiðslutimabili. Hækk-
un þessi er 10,64% en vegna
breytts launagrunns 1. desember
1977 felst í þessu að viðkomandi
kjaraákvæðum óröskuðum
12,33% hækkun á núgildandi
mánaðarlaunum eftirað þau hafa
verið færð niður sem svarar fjár-
hæð verðbótaauka 1. desember
Framhald á bls. 47.
Erfiðleikar við
borun 1 Eyjafirði
TVEIR borar Orkustofnunar,
Dofri og Narfi, eru þessa dagana
við borun eftir heitu vatni f Eyja-
firði fyrir Hitaveitu Akureyrar.
Narfi er kominn á um 400 metra
dýpi í fyrstu holunni á Ytri-
Tjörnum, norðan Laugalands, en
Narfi er hins vegar á Syðra-
Laugalandi. t byrjun vikunnar
brotnuðu álagsstengur Narfa á
rúmlega 1600 metra dýpi, um 100
metra frá botni. Þegar verið var
að taka borinn upp festist hann
sfðan á 600 metra dýpi og þar við
situr. t vikunni verður borað með-
fram bornum til að reyna að losa
hann og síðan að ná upp neðsta
hluta borsins, sem eftir er á botni
holunnar.
I siðustu holunni, sem Narfi
boraði á Syðra-Laugalandi fékkst
nokkurt vatn, en nú er unnið að
dæluprófunum á holunni, þannig
að ekki er ljóst hve mikið vatn
hún gefur.
Boraðar hafa verið 7
holur á Laugalandi, 1 á Grisará og
verið er að bora eina á Ytri-
Tjörnum fyrir Hitaveitu Akureyr-
ar. 2 holanna á Laugalandi eru
mjög góðar, tvær þeirra eru rétt
sæmilegar, en hinar þrjár hafa
ekki gefið mikið vatn. Holan á
Grisará gefur sæmilegt vatns, en
vegna þess hve fjarri hún er
Laugalandi hefur hún ekki verið
tengd kerfi Hitaveitunnar hvað
sem verður.