Morgunblaðið - 08.04.1978, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1978
11
aetlaöir eru sérstaklega til viðarfram-
leiðslu. En það gildir um þetta
hvo'rutveggja og þá ekki síst jólatrés-
reitina að nauðsynlegt er að bera á
hæfilegan áburð öðru hvoru, bæði
með tilliti til litarins og vaxtar.
Þá er þess að geta að til þess að
hægt sé að nýta jólatré og hnaus-
plöntur sem við grisjum út, verður að
leggja traktorsbrautir um landið og
það er töluverö vinna við það“.
Ágúst dregur fram stórt kort af
skógræktarsvæöinu í Skorradal. Því
er öllu skipt í reiti, misjafna að stærð
en merkt inn á þá tölur og númer.
Þessu tilheyrir síðan mikil spjaldskrá
en á hvert spjald er rakin ef svo
mætti segja ævisaga hvers reits með
upplýsingum um tegundir vöxt og
viðgang, áburðargjöf, grisjun,
skógarhögg o.fl.
Og Ágúst heldur áfram:
„Þetta er held ég það helzta sem
telja mætti varðandi skógræktar-
starfið. Á sumrin er starfandi hjá
okkur vinnuflokkur frá 6—8 og upp
í tíu manns en á veturna erum viö
venjulega 3 við skógarhögg og
flutninga.
Loks mætti líka geta þess að
plöntunin sjálf er ekki ýkjastór liöur
í starfseminni. Þar kemur sem sagt
annað til, grisjunin og girðingarvinna
og smalamennska."
„Smalamennska?"
„Já, samkvæmt landslögum á hver
jaröeigandi aö smala sitt 1and og
Skógrækt ríkisins á mikið land utan
giröingar í Skorradal. Þaö kemur því
í hennar hlut að smala, því gengiö er
út frá sauöfjárbúskap á öllum
jörðum. Þarna er því allstór
kostnaöarliöur og var hann t.d. á
síöasta ári 166 þúsund krónur.
Kostnaður við girðingar tengist líka
fjárbúskap bænda að vissu leyti.“
Og Ágúst heldur áfram:
„Eiginlega mætti skipta skógrækt í
þrjá liði: í fyrsta lagi skógrækt til
viöarframleiöslu — í öðru lagi til
jólatrjáræktar og í þriöja lagi til aö
rækta upp útivistarsvæði fyrir al-
menning með skógarstígum og
tjaldstæðum eins og tíökast erlendis.
Uppgræðsla hlýtur líka aö vera
verulegur þáttur í Skorradal því illa
fariö land er mikiö hjá okkur. Innan
giröingar eru 925 ha lands og af því
er kjarrlendi minna en helmingur. Þar
eru víða gróðurlitlir melar og í þá er
þýðingarlítið að gróðursetja barr-
plöntur strax. Við græðum því landið
fyrst upp með lúpínu. Stundum er þó
gróðursett gisið fyrst, aöallega stafa-
furu og lúpínu síðan sáð á eftir."
„Hvaða trjátegundir hafa reynzt
bezt í Skorradal?"
„Þar hafa þrjár tegundir skarað
fram úr. Það er stafafura frá
Skagway. Hún hefur víða staðið sig
vel hérlendis en sérstakiega í Skorra-
dal. Þá er rauögreni ákaflega áfalla-
laust frá 1952. En þaö þarf góöan
jarðveg. Það gefur fyrst og fremst
jólatré í aðra hönd. Og loks er það
sitkagrenið. Það varð fyrir alvarlegu
áfalli í hretinu 1963. En á seinni árum
hefur það náð sér vel og vex enn
betur en rauðgrenið. Alls eru gróður-
settar 24 tegundir í Skorradal
fengnar frá 62 stöðum víðs vegar um
heimsins lönd.“
„Hvað um þinn feril á skógræktar-
brautinni, Ágúst? Hvenær fékkst þú
áhupann?"
„Eg er nú alinn upp á skóglausu
landi í Rangárvallasýslu, að Holts-
múla í Landmannahreppi. Ég var þó
harla smávaxinn þegar ég minnist
þess að „farið var í skóg" eins og
kallað var. Þá var tínt töluvert sprek
í eldiviö og grisjað í skóginum í árefti
á útihús. Við bræðurnir fengum fljótt
áhuga á að safna fræjum af þessum
hríslum og við dunduðum við aö sá
þeim í smágarö við bæinn. Síðan fór
ég í Skógaskóla og kynntist þar Jóni
Jósep Jóhannssyni, sem var kennari
og mikill áhugamaður um skógrækt.
Arið 1951 fór ég til Svíþjóðar og var
við nám í Terna-folkskolan en síöan
í skógræktarnám við Malma-plant-
skolan við VesterÁs. Þegar heim kom
settist ég í skóla Skógræktar ríkisins
sem þá var rekinn og lauk þar námi.
Síðan hef ég starfað á vegum
skógræktarinnar. Árin 1957 — 58
fékk ég Rotary-styrk og fór til
Bandaríkjanna. Var við nám í Hum-
bolt State College í Kaliforníu og
vann næsta sumar hjá U.S. Forest
Service á tilraunarstöð. Um haustið
fór ég á vegum bandarísks fræ-firma
til Alaska í fræsöfnun. Það var
lærdómsríkt á margan hátt. Fræsöfn-
un á þessum slóðum er m.a. fólgin
í því að stela vetrarforða frá íkornum
og hann gat veriö mikill hjá þeim sem
fyrirhyggjusamir voru. Ég komst upp
í að ná fjórum 50 kg kartöflupokum
fullum á einum staö. íkornarnir sátu
hinir rólegustu hjá og horföu á mig
á meöan ég var aö næla í þetta frá
þeim. Þeir eru spakir þarna enda
óvanir mannaferðum. Þarna var ég í
3 mánuði við fræsöfnun. Síðan námi
lauk hef ég starfað á Tumastöðum og
á Hallormsstaö og loks í Skorradal
síöan árið 1959.“
„Og að lokum: Nokkur orð um álit
þitt á framtíð skógræktar hér á
landi."
„Framtíð skógræktar hér á landi er
háö afstööu fólksins til skógræktar.
Ekki veröa gerð stórátök í upp-
græöslu eða skógrækt nema fólkið í
landinu vilji það. Það er því áríðandi
að landsmenn fái vitneskju um þann
árangur sem náöst hefur í skógrækt
hér á landi. Reikna verður með því
að skógræktarskilyröi eru víða mjög
erfið hér aö landi en byggja verður
á þeirri dýrmætu reynslu sem tengin
er á undanförnum árum.
Flestir ser.. skoðað hafa skógrækt-
ina á Stálpastööum hafa orðið hrifnir
af vexti barrtrjánna þar og margir
spurt: Eru þetta góöur vöxtur ef
miðað er við svipaöa staði í Noregi?
Því er til að svara að Jarl Bergan
tilraunastjóri í Norður-Noregi hefur
rannsakað vöxt rauðgrenis nærri
skógarmörkum í Norður- Mið- og
Suður-Noregi. Hann telur að árlegur
æðarvöxtur rauðgrenis viö miðlungs
vaxtarskilyröi séu um 5,6 cm fyrstu
23 árin. Samkvæmt mælingum til-
raunastöðvar Skógræktar ríkisins var
samsvarandi ársvöxtur í Borgarfiröi á
rauögreni 6,5 cm, sitkapreni 6,6 cm
og starafuru 11,0 cm. Eg tel að viö
þennan samanburö megum við vel
una.
Við megum muna það að okkar
fyrstu hvíla var vagga úr viði og okkar
síðasta hvíla verður úr sama efni.
Skógurinn er fasttengdur menning-
unni í fortíð og framtíð. Ef við
vanrækjun skoginn og eyðum honum
þá vinnum við að eyðingu okkar eigin
lífríkis,-
H.V.
Umf. Hvöt minn-
ist 70 ára afmælis
Umí. Hvöt Grímsnesi er 70 ára
um þessar mundir. Það var
stofnað 22. des. 1907 og er því
elsta ungmennafélag austan heið-
ar.
Pélagið hefur starfað í anda
ungmennafélagshreyfingarinnar
gegnum árin með því að halda
uppi hvers kyns starfsemi íbúum
á félagssvæðinu til fræðslu og
skemmtunar.
Pélagið hyggst minnast þessara
tímamóta á ýmsan hátt m.a. með
útgáfu afmælisrits, þar sem
minnst verður á það helsta úr sögu
félagsins.
Þá verður afmælishóf 29. apríl
nk. sem hefst kl. 21.00 í Félags-
heimilinu Borg, og eru þar allir
núverandi og fyrrverandi félagar
velkomnir.
Núverandi stjórn skipa: Guð-
mundur Guömundsson Ljósafoss-
skóla formaður, Guðný E.
Gunnarsdóttir, Klausturhólum og
Björn Sigurjónsson, Stóru-Borg.
(Fréttatilkynning)
Nýr hæstarétt-
arlögmaður
BRYNJÓLFUR Kjartansson hdl.
lauk nýlega flutningi síðasta
prófmáls síns fyrir Hæstarétti og
hefur honum verið veitt leyfi til
málflutnings fyrir Hæstarétti.
Verðlagsmálafrumvarpið:
Stórkaupmenn eiga eftir að
fjalla betur um frumvarpið
MORGUNBLAÐIÐ sneri sér
til Jóns Magnússonar, íor-
manns Félags ísl. stórkaup-
manna, og leitaði álits hans á
íram komnu frumvarpi til
laga um verðlag, samkeppnis-
hömlur og óréttmæta við-
skiptahætti.
Jón sagði, að Félag ísl.
stórkaupmanna hefði ekki
fjallað endanlega um ofan-
greint frumvarp, en greinilegt
væri að lítið tillit hefði verið
tekið til umsagnar Félags ísl.
stórkaupmanna er unnið var
að gerð frumvarpsins. Félagið
fagnaði því að frumvarpið væri
fram komið og að fjallað væri
um þessi mál á Alþingi. Hér
væri um mjög brýnt hags-
munamál verzlunarinnar að
ræða, og mundi félagið senda
frá sér athugasemdir um
frumvarpið í samráði við önn-
Sauðárkróki, 6. apríl.
HANNES Pétursson skáld flytur
erindi í dag, laugardag, í Safnahúsi
Skagfirðinga, en erindið nefnir
hann „Af Pétri Eyjólfssyni og
herskipum“, og segir par frá
skagfirzkum manni, sem uppi var á
síöustu öld og lenti í ýmsum
sérstökum atburðum. Erindið flytur
Hannes ■ tilefni Sæluviku Skagfirö-
inga.
ur samtök verzlunarinnar.
Kvaðst Jón vonast til að tekið
yrði tillit til þessara sjónar-
miða við endanlega gerð frum-
varpsins.
Sæluvikan hefur gengiö mjög vel
að þessu sinni. Ávallt hefur verið fullt
hús á leiksýningum og sömu sögu er
að segja af dansleikjum. Kirkjan á
Sauöárkróki hefur verið full út úr
dyrum þau tvö kvöld, sem sérstakt
kirkjukvöld hefur verið.
Hingað hefur drifið fjölda fólks úr
öllum sveitum Skagafjarðar, veður
og færð hafa verið með ágætum.
Kári.
Hannes Pétursson með
erindi á Sauðárkróki
Yður
er boðið
að skoða nýtt DAS hús að Breiðvangi 62
Hafnarfirði. Húsið verður til sýnis
virka daga frá 6—10, laugardaga,
sunnudaga og helgidaga frá 2—10.
Húsið er sýnt með öllum húsbúnaði.
Happdiættil
HB