Morgunblaðið - 08.04.1978, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. APRIL 1978
45
i l h 11! 5
f íi W ^ -------7V
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL. 10—11
FRÁ MANUDEGI
!\y UJATTSP^ÍlKl'U Lf
feröum um sinn, eða bíða með að
kaupa okkur nýjan bíl meðan að úr
þessum málum okkar rætist.
Eyðum ekki meiru en aflað er,
reynum að taka okkur taki og
standa saman um það að halda
reisn okkar, halda þjóðarskútunni
á floti, jafnvel þótt það kosti okkur
eitthvað. Verum samtaka í því að
drífa okkur upp, koma erlendum
skuldum niður í eðlilegt mark og
búa okkur undir áföllin betur. Við
verðum að gera ráð fyrir því að
lenda öðru hvoru í vissum erfið-
leikum með þjóðarbúskapinn, en
okkur gengur bara illa að viður-
kenna það, við viljum alltaf halda
fullum hraða og neitum að draga
nokkuð úr.
Svo vona ég að þetta þyki ekki
alltof mikil þvæla né of mikill
prédikunartónn til að því verði
hent.
íslendingur“.
Þessir hringdu . . .
• Bera þær
ávöxt?
Móðir.
„Mig langar til þess að
spyrja dagskrárstjóra sjónvarps
og útvarps hvort ekki sé kominn
tími til að þeir hætti sýningum á
glæpa- og ofbeldismyndum. Mig
langar líka til að spyrja dómsvöld
hvort ekki sé tími til kominn að
láta ofbeldismenn skilja það um-
búðalaust að þeir eigi að vera
undir lás og slá. Ef þeir láta ekki
aðra í friði. Það er hart að þurfa
að horfa uppá það dag eftir dag,
að fólki sé misþyrmt. Það segir sig
sjálft að þetta fólk bíður þess
aldrei bætur. Og þessir glæpa-
menn ganga á lagið. Ef foreldrar
skilja ekki að þeir bera líka ábyrgð
á þessu vegna uppeldisleysis þá
verða þeir líka að taka ábyrgðina
á sig. Nú sjá þeir sem halda því
fram að glæpir, klám og ofbeldis-
myndir sé list, þá sjá þeir ð þeirri
iðn hefur borið sinn viðbjóðslega
ávöxt. Öll þjóðin hlýtur að sjá
þetta.' Ég spyr, hvenær finnst
Islendingum mælirinn fullur?
Ætli fórnarlömbum þessara
manna finnist ekki nóg komið? Ég
spyr enn getur almenningur ekki
gert þá kröfu til dómsyfirvalda að
þeir láti til skarar skríða gegn
þessu taumleysi? Mér finnst það
fyrsta skilyrði að láta birta nöfn
þessara glæpamanna svo aðrir geti
varað sig á þessu. Við skulum sjá
hvort þeim fækkaði ekki til muna
þessum glæpum sem yfir okkur
dynja. Ég skora á fleiri að taka hér
til máls.
Undir það getur Velvakandi
tekið að fleiri láti frá sér fara
nokkur orð um þessi mál, sem eru
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á skákmóti í Sovétríkjunum í
fyrra kom þessi staða upp í skák
þeirra Fedorovs, sem hafði hvítt
og átti leik, og Ludolfs.
23. Be3!! (Þessi leikur virðist í
fyrstu vera grófur afleikur, en
hvítur hefur séð lengra) Dxc3
(Þvingað, því annars fellur riddar-
inn á b6 einfaldlega) 24. Bxg6! —
Dxcl+ 25. Ilxcl — hxgfi (Eða
25... fxg6, 26. Dxe6+) 26. Bg5 —
15, 27. Dh6 - Bd5, 28. B16 og
svartur gafst upp.
vissulega viðkvæm þeim sem eiga
hlut að máli en eigi að síður eru
þetta alvarleg mál, sem þarft er að
ræða urr..
En frá þessu máli hverfum við
að hreinlætismálum.
• Hreinsun
í Vesturbæ
Kona í Vesturbænum kvart-
aði yfir því að of lítið væri gert af
því að hreinsa götur í Vesturbæn-
um í Reykjavík. Fannst henni sem
frekar væri séð um að hreinsa
götur og gangstíga í austurhluta
borgarinnar, að þegar hún væri
þar á ferð væri allt sópað og prýtt
og menn á ferli frá hreinsunar-
deild borgarinnar. Vildi konan fá
að koma því á framfæri að betur
væri hugsað að gatnahreinsun í
Vesturbænum.
• Erfðagripur
Ung kona varð fyrir því óláni
að týna gömlu vasaúri. Sagðist
hún sennilega hafa týnt því í
Miðbænum s.l. þriðjudag og enn
hefðu auglýsingar ekki borið
árangur. Var keðja fest við úrið,
hægt að opna það fram og aftur og
mynd væri grafin á það. Bað hún
finnanda vinsamlegast að hringja
í 41830.
HOGNI HREKKVISI
W4
Hann kvakar ekki framar!
Höfum kaupendur aö eftirtöldum veröbréfum:
Verðtryggð spariskírteini ríkissjóðs:
Kaupgengi pr. kr. 100.- Yfirgengi miðað við innlausnarverð Seðlabankans
1960 1. flokkur 2330.02 45.0%
1967 2. flokkur 2314.43 25.3%
1968 1. flokkur 2016.17 10.9%
1968 2. flokkur 1896.01 10.2%
1969 1. flokkur 1413.79 10.3%
1970 1. flokkur 1299.69 44.5%
1970 2. flokkur 948.82 10.4%
1971 1. flokkur 893.73 43.4%
1972 1. flokkur 778.89 10.5%
1972 2. flokkur 666.70 43.4%
1973 1. flokkur A 512.50
1973 2. flokkur 473.69
1974 1. flokkur 329.01
1975 . 1. flokkur 268.99
1975 2. flokkur 205.28
1976 1. flokkur 194.32
1976 2. flokkur 157.80
1977 '1. flokkur 146.55
1977 2. flokkur 122.76
1978 1. flokkur Nýtt útboð 100.00+ 1
VEÐSKULDABRÉFX: 1 ár Nafnvextir: 26% dagvextir Kaupgengi pr. kr. 100- 79,—
2 ár Nafnvextir: 26% 70 —
3 ár Nafnvextir: 26% 64,—
*) Miðað er við auðseljanlega fasteign.
Höfum seljendur aö eftirtöldum veröbréfum:
HAPPDRÆTTISSKULDABRÉF RÍKISSJÓÐS
Sölugengi
pr kr. 100-
246.31 (10% afföll)
171.57 (10% afföll)
166.16 (10% afföll)
1974 — E
1975 — G
1976 — H
HLUTABRÉF:
Flugleiðir hf.
HLUTABRÉF:
Kauptilboð óskast
Kauptilboð óskast
Flugleiðir hf
FJÁRPCrrinCARFClAC Ijiardj hp.
VERÐBRÉFAMARKAÐUR
Lækjargötu 12 — R. (Iðnaðarbankahúsinu)
Simi 20580. Opið frá kl. 1 3.00 til 1 6.00 alla virka daga
Tilboð óskast
JSffi
í nokkrar fólksbifreiðar, jeppabifreið og nokkrar ógangfærar
bifreiðar er verða sýndar að Grensásvegi 9, þriðjudaginn 10.
apríl kl. 2—3. '
Tilboöin verða opnuð í skrifstofu vorru kl. 5. jÆ*
Sala varnaliöseigna. Íplc
* r
k'rwÉ HASK0LA-
TÓNLEIKAR
Vortónleikar Háskólakórsins verða í Félagsstofnun stúdenta laugardaginn 8. apríl kl. 17. Á efnisskrá eru norræn þjóðlög og lög við enskar barnavísur eftir Svíann Eskil Hemberg. Stjórnandi er Rut Magnússon. Aðgöngumiðar fást við innganginn og kosta 600.- kr.
Tónleikanefnd Háskólans
Kaupmenn
Kaupfélög
Velúr
gluggatjaldaefni
nýkomin.
100% baðmull.
Verð mjög hagstætt.
É Garrí h.ff.
Langhohsvegi 82 -Reykjaink -Sími 83018