Morgunblaðið - 08.04.1978, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 08.04.1978, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LÁUGARDAGUR 8. APRÍL 1978 Lögreglan fær ný tæki til hraðamælinga: LÖGREGLAN í Reykjavík hefur að undanförnu fylgzt náið með umferðarhraðanum í höfuðborginni og lagt áherzlu á að hafa hendur í hári þeirra ökumanna, sem gerzt hafa gróflega brotlegir við lög um umferðarhraða. Þessu aðhalds- og eftirlitsstarfi verður haldið áfram og lögreglan er nú betur í stakk búin til þess að vinna að þessu verkefni en áður, þar sem hún hefur tekið í notkun nýja og mjög fullkomna radara til hraðamæl- inga. — Það sem af er þessum mánuði hafa lögreglumenn mælt hraða 3—4 þúsund ökutækja víðs vegar um borgina. Af þessum fjölda hafa 170 ökumenn verið kærðir fyrir of hraðan akstur en hinir hafa allir verið á eðlilegum hraða, sagði Óskar Ólason yfirlögegluþjónn umferðarmála í samtali við Morgunblaðið. Ákveðinn hópur, sem skapar slysahættu — Af þessu má ráða, sagði Oskar, að ökuhraði í borginni er eðlilegur en það er alltaf ákveð- inn hópur ökumanna, sem ekur hraðar og skapar við það mikla slysahættu með hraðanum og sífelldum og ótímabærum fram- úrakstri. í fyrra slösuðust 117 ökumenn og farþegar í árekstr- um og þrír létu lífið og í mörgum tilfellum mátti kenna ökuhraðanum um. Með radar- mælingunum erum við að reyna að hafa hendur í hári þeirra ökumanna, sem brjóta lögin um ökuhraðann og skapa með því slysahættuna. Það er skylda okkar gagnvart þeim ökumönn- um, sem virða lögin og aka á eðlilegum hraða. Svo sem fram hefur komið var almennur ökuhraði nýlega hækkaður úr 45 km í 50 km miðað við klukkustund. Óskar Ólason sagði að ökuhraðinn hefði ekki aukizt við þessa breytingu heldur hefði hámarkshraðinn færzt nær þeim hraðamörkum, sem hinn almenni ökumaður taldi eðlilegt við beztu skilyrði. Vegna hinna nýju hraðatakmarka og hins nýja útbúnaðar, sem lögreglan í Reykjavík hefur fengið til hraðamælinga, var haldið nám- skeið í Reykjavík í marz s.l. þar sm iögreglumönnum var kennd meðferð tækjanna og einnig var þeim kennt að mæla hraða með skeiðklukku. Tókst þetta nám- skeið mjög vel að sögn Óskars en námskeiðið sóttu auk reyk- vískra lögreglumanna starfs- bræður þeirra frá nágranna- byggðarlögunum og Akureyri, Árnessýslu og Keflavík. Auk yfirmanna lögreglunnar kenndu á námskeiðinu Haraldur Sigurðsson verkfræðingur hjá Pósti og síma, Ásgeir Halldórs- son hjá Landhelgisgæzlunni, en báðir þessir menn eru miklir radarsérfræðingar, og Guttorm- ur Þormar yfirverkfræðingur hjá Reykjavíkurborg, sem kenndi skeiðklukkumælingar. Sektargreiðslur á bilinu 8-15 þúsund krónur Nýju radararnir, sem lögregl- an í Reykjavík- hefur fengið, eru mjög handhægir og áreiðanlegir að sögn Óskars og taka fram gömlu tækjunum, sem þó hafa reynzt afskaplega vel. Morgun- blaðsmenn slógust í för með Páli Garðarssyni lögreglumanni og aðstoðarmönnum hans í radar- mælingar í fyrradag til þess að kynnast af eigin raun hvernig hin nýju tæki starfa. Við fylgdumst með þeim í tæpan hálftíma við mælingar á Kleppsvegi og þennan tíma voru stöðvaðir 15 bílar og ökumenn þeirra skrifaðir upp, en þeir höfðu ekið á 65— 84 km hraða. Þetta var rétt fyrir hádegismat- inn og greinilegt að margir voru að flýta sér í mat. Þeir hefðu betur flýtt sér hægt því þeirra bíður sektargreiðsla á bilinu 8—15 þúsund krónur, þetta eru miklir peningar sem vafalaust hefur verið brúk fyrir í annað. — Það er alltof algengt að menn aki langt fyrir ofan leyfileg mörk en obbinn af bílstjórunum ekur á eðlilegum hraða, sagði Páll. — Nýlega vorum við t.d. við mælingar á Hringbrautinni gegnt Þjóð- „Ökuhraðinn er eðlilegur í borginni en ákveðinn hópur manna brýtur reglurnar og skapar þar með slysahættu - segír Óskar Ólason yfirlögregluþjónn umferdarmála minjasafninu en þarna hjá er merkt gangbraut. Þann tíma, sem við vorum við mælingar, var þarna mikil umferð. Sam- kvæmt teljara radarsins fóru þarna um 407 bílar og af þeim fjölda þurftum við að hafa afskipti af 22 bílum. Þeir óku á þetta 5—90 km hraða sem er að sjálfsögðu alltof mikill hraði miðað við aðstæður. Það segir sig sjálft að þegar flestir bílanna aka á um 50 km hraða og bíll kemur síðan á 90 km hraða þarf hann að áka framúr sitt á hvað og sífellt að vera að skipta um akreinar og þess háttar ökulagi fylgir stórhætta í umferðinni. I þessa ökumenn þurfum við að ná. Ný og fullkomin radartæki til hraðamælinga Páll sýnir okkur hvernig hin nýju amerísku radarmælinga- tæki starfa. Eins og gömlu tækin sendir tækið frá sér geisla, sem endurkastast af Páll Garðarsson les hraða bifreiðar af nýja mælinum. Eins og sjá má er þarna löghlýðinn ökumaður á ferð. Ljósm. Mbl. RAX. bílunum og hraði þeirra kemur fram á sérstökum skermi, sem gefur hraðann upp í tölum. Áður var hraðinn lesinn af sérstökum vísi. Hið nýja tæki má stilla þannig að það gefur upp mesta hraða ökutækisins og þegar annað ökutæki kemur sleppir það fyrra ökutækinu og mælir hraða þess síðara. Þá kemur fram á sérstökum teljara hve margir bílar eru mældir og má þannig fá hlutfall brotlegra bíla miðað við heildarfjöldann. Þetta er nýjung frá fyrri tækjum og ýmislegt fleira mætti telja til en það verður ekki gert hér. Páll sagði að þessi nýju tæki væru miklu nákvæmari en gömlu tækin og mun betra vinna með þau. að Ökuleyfissvipting ef um vítaverðan akstur er að ræða Sem fyrr segir er slysahættan það alvarlegasta sem hraðakst- urinn hefur í för með sér. En það er fleira en líf og limir, sem ökumenn hætta með því að brjóta reglurnar um hraðann. Þeir eiga það á hættu að verða sektaðir um stórfé. Lægstu sektargreiðslur eru 8 þúsund krónur en fara hæst í 15 þúsund krónur, allt eftir hraða og eðli brots. Ef um vítaverðan akstur er að ræða, t.d. yfir 100 km akstur, er tekið harðar á málun- um. Þá er hald lagt á ökuskír- teini viðkomandi ökumanns og mál hans sent sakadómi til meðferðar. Venjulega fylgir ökuleyfissviptind í kjölfarið og viðkomandi er sektaður stór- lega. Það eru aðeins nokkrir dagar síðan lögreglan stöðvaði mann einn á 140 km hraða á Keflavíkurveginum. Hann hafði þá „afsökun" fram að færa, að hann væri að flýta sér í jarðarför. Lögreglumennirnir tóku þessa afsökun ekki góða né gilda og bentu manninum vin- samlegast á það að með slíku aksturslagi væri líklegt að brátt kæmi að annarri jarðarför sem hann missti örugglega ekki af, þ.e. hans eign. Þessi hafði gerzt brotlegur og honum er skipað að stöðva og síðan er nafn ökumanns og nUmer bifreiðar skráð niður. Strangt eítirlit með ökuhraðanum Óskar Ólason lagði áherzlu á það að lokum, að lögreglan myndi fylgjast náið með um- ferðinni í Reykjavík nú á næstunni sem endranær til þess að veita það aðhald sem nauð- synlegt væri til þess að halda ökuhraðanum niðri og draga þar með _úr slysum. — gS.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.