Morgunblaðið - 08.04.1978, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 08.04.1978, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1978 15 búið, var oft og einatt óumflýjan- legt að hafa langan vinnudag, því að annaðhvort var að duga eða drepast. Sjálfsagt þótti að flýta klukk- unni. Ég hygg, að það hafi verið nokkuö af handahófi, hvað klukk- an var höfð langt á undan sólartíma. Munaði það ýmist 1—2 tímum. Þá var ekki sigurverk í hvers manns vasa, ef til vill ekki nema ein klukka á bæ. Eins og áður segir, var búið ekki stórt: 110—120 kindur, 3 kýr og 7—8 hross. Til heyskapar gengu venjulega tveir heimamenn, einn kaupamaður og tvær kaupakonur. — Algengt var, að karlmenn færu til sláttar í túnum seinni part nætur. Líklega hefur þótt betra að slá meðan jörðin var köld og náttfall á grasinu heldur en á daginn í þurrki og sólskini. Þá var líka sofið lengi um hádegið. Ég man aðeins eftir þessu. Þegar ég fór að fylgjast með til sláttar, fóru karlménn upp úr klukkan sex á fætur, konur litlu síðar. Var þá drukkið morgunkaffi, og litli-skattur borðaður upp úr klukkan átta. Þegar farið var á engjar, var borðað og drukkið áður en farið var að heiman. Morgun- verður var borðaður hálfellefu og hvílzt fram undir tvo tíma. Full- orðna fólkið svaf vært á annan tíma, en oft varð lítið um svefn hjá því yngra, sem þó helzt þurfti þess með. Miðdegisverður var borðaður klukkan 4, og þá hvílzt í einn kl.tíma. Vinnu var hætt kl. 10. — Þegar kom fram á engjaslátt, var slakað á fótaferðinni, en unnið jafnlengi á kvöldin. Reynt var að hafa fæðið um sláttinn svo gott sem tök voru á. Mjólkurmatur, meðan fært var frá, átti sinn þátt í því að fæðið var hollt og kjarngott. Annars var lítið um nýmeti nema í sláturtíð- inni á haustin. Af garðmat voru einungis ræktaðar gulrófur. Kjöt og slátur entist sjaldan lengur en fram undir sumarmál. Víða mun hafa verið þröngt í búi á fátækum og mannmörgum heim- ilum, þegar líða tók á veturinn og einna fábreyttast fæðið á þeim árstíma. Til Akraness var oft farin lestaferð fyrir slátt, og komið heim með herta þorskhausa, harð- fisk, saltaða grásleppu, gellur ofl. Ég held, að þetta hafi verið vöruskipti. A móti kom smjör og tólg, eða þá kind að haustinu. Kaffi var drukkið þrisvar á dag: á morgnana, um hádegið og miðaftanskaffi kl. 6. Aukakaffi var gefið þegar bundið var, og líka þegar staðið var við slátt í rigningu. Sjaldan var farið inn nema í ófæru veðri. í litla-skattinn var borðað skyr eða skyrhræringur. Til morgun- verðar þorskhausar eða harðfiskur og glóðarbakaðar rúgkökur með smjöri og skyrhræra. Miðdags- matur var saltsoðning, brauð eða rúgkökur og grjónagrautur, og tii kvöldverðar fjallagrasamjólk eða önnurvökvun, en aldrei átmatur. Þetta var nokkuð reglulegt með fæðið frá degi til dags, þó að vitanlega gæti út af því brugðið. Eftir kvöldmatinn flýttu sér allir í háttinn, og var illa séð, ef þá var verið með ærsl eða hávaða, enda var öllum þörf á hvíldinni. Það var föst venja, þegar búið var að þurrka heyið og koma því upp í sæti að ná því strax heim í hlöður eða tóftir, þó að ekki væri alltaf um stóra hirðingu að ræða. Baggarökin undan sátunum voru krakkar látnir tína upp í poka. Ekkert strá mátti fara til ónýtis. Ég minnist þess, þegar góðu dagsverki var lokið, hvort heldur það var við heyvinnu eða önnur störf, hversu létt var yfir mann- skapnum, jafn þótt vandalausir væru, enda var mörgum dyggum hjúum jafn annt um hag húsbænd- anna og sinn eiginn. Ekki var þó af því að allar vinnandi hendur bæru svo mikið úr býtum fyrir störf sín eða heimtu daglaun að kveldi. Það mætti ætla, að al- mennt hefði ekki dregið úr vinnu- gleðinni, eftir að hver vinnustund og jafnvel mínúta var reiknuð og goldin í krónum og aurum. Heyhlöður voru víðast fáar og smáar, jafnvel engar. Hey voru því mest undir torfi, og ótrúlega mikil vinna, sem fór í að ganga frá þeim. Sjaldan voru þau látin standa lengi ótyrfð. Varð því í hvert sinn, sem á þau var bætt, að taka torfið af og láta á aftur, þar til þau voru full fráfengin. Velja varð það land til torfristu, sem seigast var í, oftast flói eða mýri. Venjulega voru tveir við að rista, annar þeirra velti úr flaginu. Næst var að flytja það blautt á þurran stað og breiða úr því. Eftir nokkra daga var það hringað, hver torfa reist upp á rönd, en endar þess náðu saman. Þannig þornaði það fljót- lega. Og að lokum var það bunkað. Þegar svo til átti að taka, var það flutt heim. Eftir að búið var að raða hæfilega miklu á hvern hest af því þurru, var reipi brugðið yfir og bundið undir kvið. Öðru vísi tolldi það ekki á, ef um vondan veg var farið. Eiríkur Smith listmálari. Ljósm. RAX. Eiríkur Smith sýnir á Akureyri Græn tún undan fönninni Ba*. 7. apríl. MIKIL hláka hefur verið að undanförnu og aðeins nokkrir skafiar eftir á láglendi. þó er í Fljótum ennþá töluverð fönn. Ar eru að rífa af sér vetrar- klaka og sums staðar sést grænn litur á túnum sem kemur undan fönninni. Þessa viku stendur yfir sælu- vika Skagfirðinga, auk þess sem samfelld skemmtidagskrá er á Sauðárkróki hvern dag eru Karlakórinn Heimir og Söngfé- lagið Harpa með sameiginlega söngdagskrá undir stjórn Ingi- mars Pálssonar og undirleikara Árna Ingimundarsonar frá Akureyri, ejnnig eru þar fleiri skemmtiatriði. Þarna eru 70 manns í söngdagskrá, sem flutt var á Hofsósi í gær, fimmtudag, fyrir troðfullu húsi áheyrenda og flest lög þurfti að endurtaka. Söngfélagið Harpa hélt kórfólki veglegt kaffihóf að samsöng loknum. Á laugardag, 8. apríl, verður þessi skemmtun endurtekin í Miðgarði og er ekki vafi á, að þar verður fullskipað áheyrendum. Grásleppuveiði er nýlega haf- in og gengur heldur illa svona í byrjun, en netabátar hafa veitt hér á Skagafirði að undanförnu. Togarar eru að byrja að koma inn nú eftir páskastoppið. — Björn. EIRIKUR Smith listmálari opnar í dag, laugardag. sýningu í Gallerí Háhól á Akureyri. Verður sýningin opnuð kl. 15 í dag og stendur yfir til sunnudags 16. apríl. Hún verður opin daglega kl. 15—22 og um helgar kl. LAGÐUR hefur verið fram fram- boðslisti Alþýðubandalagsins til bæjarstjórnarkosninga á Akur- eyri, og skipa listann eftirtaldir. 1. Soffía Guðmundsdóttir bæjarfull- trúi, 2. Helgi Guðmundsson tré- smiður, 3. Kristín Á. Oláfsdóttir leikari, 4. Hilmir Helgason, vinnu- vélastjóri, 5. Guðjón Jónsson kennari, 6. Saga Jónsdóttir leikari, 7. Höskuldur Stefánsson iðnverka- maður, 8. Ragnar Pálsson vinnu- vélastjóri, 9. Ragnheiður Garðars- dóttir verzlunarmaður, 10. Steinar Þorsteinsson tannlæknir, 11. Bragi 20-22. Verkin sem Eiríkur Smith sýnir að þessu sinni eru 10 vatnslita- myndir og 30 olíumálverk og eru myndirnar málaðar á síðustu þremur árum, allar sérstaklega fyrir þessa sýningu. Skarphéðinsson járnsmiður, 12. Helgi Haraldsson verkamaður, 13. Jóhannes Hermundarson trésmið- ur, 14. Magnús Ásmundsson lækn- ir, 15. Ragnheiður Pálsdóttir verkakona, 16. Haddur Júlíusson vinnuvélastjóri, 17. Guðrún Aðal- steinsdóttir húsmóðir, 18. Gunnar Óskarsson múrarameistari, 19. Jóhannes Jósefsson skrifstofu- maður, 2Ö. Loftur Meldal verka- maður, 21. Haraldur Bogason afgreiðslumaður, 22. Jón Ingi- marsson, formaður Iðju, félags verksmiðjufólks á Akureyri. Listi Alþýðubanda- lagsins á Akureyri SMÐMÐIR GLUGÖR Meö notkun staðlaöra glugga sparast tími, fé og fyrirhöfn. Biöjiö arkitekt yöar um aö nota þessar gluggastæröir aö svo miklu leyti sem hægt er í hús yðar. Ef þér notiö staðlaða glugga frá okkur, þá getið þér fengiö gluggana meö mjög stuttum fyrirvara. Eigum á lager 9 stæröir af gluggum. II F1-V 140 ZHj F1-H 140 Einnig er hægt aö fá gluggana án pósts og merkjast þeir þá t.d. D1-0. Ath. gluggarnir séðir að utan. FURUVELLIR 5 AKUREYRI . ICELAND P. O. BOX 209 StMAR (96)21332 og 22333 LGEIMIDAR H GGINGAVERKTAKAR E1-V 140 E2-V 100 J Vinsamlegast sendið mér upplýsingabækling: j Nafn ______________________ I | Heimili ______________________________________

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.