Morgunblaðið - 08.04.1978, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 08.04.1978, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. APRIL 1978 Kveðja: Þorvaldur Jónasson Sjaldan hefur mér brugðið meira en þegar rannsóknarlög- reglan hringdi mig upp hér á dögunum, nánar tiltekið þriðjudaginn 14. mars. Tilefni upphringingarinnar var að til- kynna mér, að beiðni Landspítal- ans, andlát Þorvalds bróður míns. En hann hafði andast þar deginum áður, eða 13. mars, sólarhring fyrr en andlátsfregnin barst okkur ættingjum hans. Að vísu vissi ég að bróðir minn lá á Landspítalanum, hann hafði fengið hjartakast í góðra vina hópi, klúbbfélaga gömlu dansanna, á laugardagskvöldið, og hafnað síðan upp á Landspítala eftir viðkomu í Slysadeild. Þessa frétt bar mér hjúkrunarkona á spítal- anum á sunnudeginum eftir beiðni Þorvalds, og jafnframt þau skila- boð frá honum að hann væri farinn að jafna sig og ennfremur að gera ætti á honum smá aðgerð. Þetta var ekki í fyrsta skipti að hann hafði haft samband við mig frá einhverju sjúkrahúsi eftir svipað hjartakast. A mánudegin- um átti að gera aðgerðina og á þriðjudag hafði ég hugsað mér að heimsækja hann, en einmitt þann dag, er ég kom heim úr vinnunni var mér tilkynnt um andlát hans eins og fyrr sagði. Eg hafði þegar samband við lækni hans á sjúkra- húsinu og tjáði hann mér að Þorvaldur hefði hnigið útaf örend- ur rétt í þann mund sem gera átti fyrrnefnda aðgerð. Færi ég hér öllum þeim þakkir er léttu honum síðustu stundir hans, bæði klúbbfélögum hans og starfsfólki sjúkrahúsanna tveggja er veittu honum aðstoð og hjálp. Þorvaldur var jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 28. mars að viðstöddum fjölda vina + JÓHANN JÓNSSON kaupmaöur, Kirkjuteigi 19, andaöist aö Hrafnistu 7. apríl. Vandamenn. Í Eiginkona mín og móöir okkar, ERNA VALDÍS VIGGÓSDÓTTIR, Álfhólevegi 19, andaöist í Borgarspítalanum 6. apríl. Steinar Hallgrímsson og börn. Móöir okkar MAGNÍNA SALOMONSDÓTTIR, Þvergötu 3, ísafirði. veröur jarösungin frá ísafjaröarkirkju mánudaginn 10. apríl. Fyrir hönd vandamanna Sigurður B. Jónsaon, Ágúst N. Jónsson, Haraldur Jónason. Innilegar þakkir til allra er auösýndu okkur samúö og vinarhug viö andlát og jaröarför mannsins míns, JÓHANNESAR ÍVARS GUDMUNDSSONAR, Flateyri. Sigríður Magnúsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. + Þökkum innilega samúö og vinarhug viö andlát og jaröarför bróöur mins og frænda, JÓNASAR ÓLAFSSONAR, frá Hundastapa. Sígurbjörg Ólafsdóttir og aðrir vandamenn. + Þökkum af alhug auösýnda samúð og hlýhug viö andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdafööur og afa, HARALDAR HALLDÓRSSONAR, fyrrum bónda, Efrí-Rauðalæk, Ólafía Sigurpórsdóttir, Sigrún Haraldsdóttir, Eiríkur Sigurjónsson, Runólfur Haraldsson, Elsie Júníusdóttir, Valur Haraldsson, Sigrún Bjarnadóttir, Halldór Haraldsson, Aðalheiður Sigurgrfmsdóttir, Helgi Haraldsson, Unnur Hróbjartsdóttir og barnabörn. Armann Dalmanns- son — Kveðjuorð hans, bæði héðan úr Reykjavík og frá bernsku og æsku-heimkynnum hans austur á Fljótsdalshéraði. Mátti af því sjá hversu vinsæll og átthagarækinn Þorvaldur bróðir minn var. Þessi fáu og ófullkomnu orð mín áttu fyrst og fremst að vera þakkarorð til hans fyrir bróður- lega ástúð, og til allra þeirra er lögðu leið sína suður í Fossvog til að kveðja hann hinstu kveðju. Fyrir þá er ekki þekkja til, má geta þess að Þorvaldur var fæddur 7. des. 1901, sonur hjónanna á Þorgerðarstöðum í Fljótsdal, þeirra Kristínar Guðmundsdóttur og Jónasar Eiríkssonar. Hann var alinn upp á næsta bæ við Þorgerð- arstaði, Arnaldsstöðum, hjá Guð- ríði móðursystur sinni og manni hennar Þorvaldi Stefánssyni sem hann var heitinn eftir. Gengu þau hjón Þorvaldi bróður mínum í foreldrastað. Þorvaldur var hús- gagnasmíðameistari að iðnmennt og dvaldi lengst af í Reykjavík, þótt segja megi að hugurinn væri jafnan eundinn við æskuslóðirnar austur í Fljótsdal og þangaö fór hann flest sumur á mean heilsa hans leyfði og rétti vinum sínum þar sína högu hönd, ef þeir þurftu á að halda. Hann unni sér sjaldnast hvíldar jafnvel þótt dauðinn væri ítrekað búinn að aðvara hann um að fara hægar. Atvikin höguðu því svo til að við systkinin tvö höfðum mest saman að sælda hin síðari ár, er við bjuggum tvö ein í sitt hvorri íbúðinni, en gátum þó daglega fylgst hvort með öðru, li kt og er við sem börn lékum okkur á túninu á Arnaldsstöðum, en þar dvaldi ég oft langdvölum hjá frænku minni, fósturmóður hans. Fyrir öll þessi kynni, gömul og ný, færi ég honum innilegar þakkir og bið góðan guð að blessa mér minninguna um góðan og tryggan bróður. Lára Jónasdóttir. Fæddur 12. sept. 1894 Dáinn 22. marz 1978 Starfsdagur Ármanns Dal- mannssonar varð lengri og fjöl- breyttari en flestra annarra manna, sem ég hef kynnzt. Þó áttu hin margbreytilegu störf hans sér samnefnara: ræktun lands og lýðs. Hann lagði gjörva hönd á búskap, skógrækt, íþróttamál, mál Ungmennafélagshreyfingarinnar, bindindismál og félagsmál sam- vinnuhreyfingarinnar og bænda- stéttarinnar. Aðrir eru kunnugri en ég til að bera vitni um þessi störf hans, en hugsjónir, fórnfýsi og starfsgleði þarf sá að eiga í ríkum mæli, sem á sér slikan feril. í hartnær 30 ár var Ármann prófdómari við Bændaskólann á Hólum. Þar lágu leiðir okkar saman, áður ókunnugra. Þá var Ármann 77 ára, á þeim aldri, þegar flestir menn hafa lokið æfistarfi sínu. Kvikur á fæti og skýr í hugsun gekk hann að verki og hefði margur yngri maður mátt öfunda hann af vinnuþreki hans og aðdáunarvert var, hve auðvelt honum veittist að setja sig inn í nýjungar í námsgreinunum. Það var ekki einungis, að hann gæti unnið frá því snemma á morgnana og fram á rauða nótt, heldur var það honum lífsfylling að vera sístarfandi. Ef stundarfriður gafst frá prófdómarastörfunum, þá gleypti hann í sig bækur, svo að með eindæmum var, jafnt á Norðurlandamálum og íslenzku. Fljótlega laérði ég að færa mér þetta í nyt og fól Ármanni að lesa fyrir mig bækur og gefa mér dóm sinn á þeim. Með því sparaði ég mér að lesa ýmsar bækur, sem höfðuðu ekki til mín. Útilíf og líkamsþjálfun voru Ármanni hjartans mál. Það lá því beint við eftir yfirlegur yfir prófúrlausnum að fara í hressandi gönguferðir. Þá bar margt á góma. Ármann var gangandi sagna- brunnur. Kynni hans af mönnum og málefnum voru mikil og marg- þætt, bæði sem þátttakanda og áhorfanda að atburðum. Frásögn- ina kryddaði hann gjarnan vísum, enda skipuðu kveðskapur og ljóð mikið rúm í lífi hans. Honum varð flest að yrkisefni og sá þá hlutina gjarnan í græskulausu ljósi góð- látlegrar kímni. Um hressingar- gönguferðir okkar orti hann: Athyidi manna ég að því vil leiða, hve ójafnt skiptir vor blessaði heimur. brem skrefum verður Ármann að eyða ( það, sem Matthías stikar í tveimur. Áberandi þáttur í fari Ármanns var það, hve hann rækti hlutverk sitt sem fjölskyldufaðir af mikilli alúð. Ljóðabréf og ferðasögur í ljóðum sendi hann sínum í, sem hann upplifði, og hann hafði ríkan metnað á, að þeir væru nýtir og gegnir þegnar þessa lands. Að heiman nutu einnig aðrir um- hyggju hans. Á heimili mínu var það árleg tilhlökkun, að Ármaður á Akureyri; eins og yngsta kyn- slóðin kallaði hann á tímabili, kæmi bráðum. Þorsteinn á Vatnsleysu, formað- ur Búnaðarfélags Islands, sagði stundum frá því, að kynslóð hans hefði lifað í þúsund ár. Með því átti hann við, að í uppvexti hans var búið í landinu á margan hátt eins og fyrir þúsund árum. Ég held, að þessi kynslóð, aldamóta- kynslóðin, sé lánsamasta kynslóð, sem á Islandi hefur lifað. Hún breytti landi og þjóð úr frumstæðu og fátæku þjóðfélagi i velmegandi þjóðfélag, sem getur talið sig til jafningja annarra, hvað sem er á byggðu bóli, í afkomu menntun og menningu. Þetta gerðist ekki af sjálfu sér. Þetta gerðist fyrir elju og ósérplægni manna, samfara hugsjónum þeirra og trú á landi og þjóð. Dæmigerður fulltrúi þessar- ar kynslpðar var Ármann Dal- mannsson. Fjölskylda mín og ég sendum aðstandendum hans samúðar- kveðjur okkar. Matthías Eggertsson Júlía Sigurðardóttir Akranesi — Minning Fædd 30. júlí 1906 Dáin 3. apríl 1978 Júlía var fædd á Sýruparti á Akranesi. Foreldrar hennar voru hjónin Guðrún . Þórðardóttir og Sigurður Jóhannesson, sem þar hjuggu. Ung giftist Júlía Þorvaldi Sigurðssyni frá Sjávarborg og eignuðust þau eina dóttur, Ragn- hildi. Mann sinn missti Júlía 1939, og eftir það bjó hún í nokkur ár í sambýli við Agnar bróður sinn, en þegar dóttir hennar giftist, þá fluttist hún til hennar og manns hennar, Baldurs Guðjónssonar, verzlunarstjóra, að Bakkatúni 6, og átti þar heimili alltaf síðan. Hún varð þeirrar gæfu aðnjót- andi .að lifa þar í ellinni í skjóli þeirra og njóta þar samvista við börn þeirra og barnabörn, við mikla ástúð á báða bóga. Er ég nú að leiðarlokum minnist Júlíu, þá koma margar minningar í hugann, eftir næstum hálfrar aldar vináttu. Júlía var á yngri árum stórglæsileg kona, kát og skemmtileg, orðheppin, en þó held ég að mannkostir hennar og tryggð lifi lengst í minningunni, því þessir eðliskostir voru svo afmarkaðir, aldrei talað illa um nokkurn mann, en allt fært til betri vegar. Blessuð sé minning hennar. Öllum aðstandendum sendi ég samúðarkveðjur. Vinkona Þegar við nú kveðjum okkar kæru ömmu, er okkur efst í huga þakklæti fyrir þau ár, sem við máttum njóta þess kærleika og umhyggju, sem hún umvafði okkur alla tíð. Amma Júlla, eins og við kölluð- um hana, var oft líkamlega veik, en sálin var fersk og hugurinn hreinn. Hún vissi ætíð, hvað kom okkur börnunum best. Hún átti alltaf tíma fyrir okkur, kunni að hlusta og gefa góð ráð. Við þurftum ekki að leita hennar, hún var ætíð heima á sínum stað og svo óralangt frá allri heimsins streitu. Hún var okkar traustasti vinur, þerraði votar brár, er harmur steðjaði að, og tók af sama innileika þátt í okkar barnslegu og einföldu gleði með sínum einlæga hlátri. Hún kenndi okkur að hlaupa ekki með fleipur og ljótar sögur um náungann. Allt slíkt var henni fjarri skapi. í hjarta bar hún höfðinglega lund og kunni betur að veita en þiggja. Að leiðarlokum þökkum við elsku ömmu fyrir það ljós, er hún tendraði i okkar barnslegu sálum. Barnabörn og harnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.