Morgunblaðið - 08.04.1978, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 08.04.1978, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1978 Frá Fóstrufélagi íslands Stofnfundur stéttarfélagsins „Athöfn“ var haldinn í febrúar 1950. Stofnendur voru 22, sem höfðu Þá útskrifast úr U.S.S. og var fyrsti formaður félagsins Elínborg Stefánsdóttir. Á aðalfundi félagsins áriö 1951 var nafni félagsins breytt í Stéttarfélagið Fóstra og var bað aðili aö Albýöusam- bandi íslands til ársins 1964; en síðan hafa fóstrur verið í Bandalagi starfs- manna ríkis og bæja og breyttist Þá heiti félagsins í Fóstrufélag íslands. Fjöldi starfandi fóstra í dag mun vera um 200. Eins og segir í lögum félagsins er aðaltilgangur Þess aö efla stétt fóstra, glæða áhuga Þeirra á öllu Því er að starfi Þeirra lýtur og stuðla að framhaldsmenntun Þeirra, gæta fjár- hagslegra hagsmuna, vernda réttindi, efla samheldni og stéttartilfínningu. Fóstrur starfa m.a. á leikskólum, dagheimilum, sjúkrahúsum, sérskólum, við 6 ára deildir grunnskóla o.fl. í vetur eins og tvö undanfarin ár hafa starfað hópar, sem fjallaö hafa um ákveðin verkefni tengd starfi fóstra. Markmiðið er að glæða áhuga Þeirra og örva Þær til aö miðla hverri annarri af Þekkingu sinni og reynslu. Hópar pessir hafa á almennum félagsfundum greint frá verkenum og niðurstöðum sínum og haft umræðu um Þau. í vetur hafa starfshóparnir fjallaö um eftirfarandi efni: 1. Stefnan í dagvistarmálum. 2. Fóstruskóli 3. Heimur barnsins 4. Skapandi starf 5. Fræðslustarfið á dagvistarheimil- um Fóstruféíag íslands hefur ákveðið að efna til kynningar á starfi og menntun fóstra og hefur fengið aöstoð dagblaö- anna til Þess að koma Þessari kynningu á framfæri. Félagið gengst fyrir barnaskemmtun í Laugarásbíói laugard. 8. og sunnudag- inn 9. apríl kl. 13.30. Aðgöngumiðar á Þessar skemmtanir verða seldir á dagvistarheimilum og í bíóinu. Sunnudagínn 9. apríl hefur Fóstru- félagið farið Þess á leit viö rekstraraðila og fóstrur aö dagvistarheimilin á öllu landinu verðí opin til sýnis almenningi frá kl. 14—17. Fóstrufélagið vill eíndregið hvetja foreldra og annað áhugafólk til Þess að koma og kynna sér starfsemi Þessara heimila. Hér er einnig kjörið tækifæri fyrir Þá foreldra, sem eru með börn sín á biðlístum að koma. Er Þess vænst, að börn komi aöeins í fylgd meö fullorðn- um. Það er von Fóstrufélags íslands, að kynning Þessi komi umræðum um dagvistarmál af stað. STARF FOSTRUNNAR 1. GREIN Stefnan í dagvistarmálum Þjóðfélag okkar er í örri þróun og miklar breytingar hafa átt sér stað síðustu áratugina. Þessar bresting- ar hafa snert flesta, ef ekki alla þætti í lífi okkar. Dag- vistarheimili eru þar ekki undanskilin. Starfsemin sem þar fer fram hefur tekið breytingum og einnig hafa viðhorf manna til dagvistar- heimilanna breyst. Þegar fyrstu dagheimilin og leikskólarnir tóku til starfa hérlendis mættu þessi heimiii mikilli andúö og tortryggni. Þau þóttu aöallega til þess fallin aö grafa undan einni helstu stoð samfélagsins — þ.e. fjölskyldunni. í dag er þó viöhorfið annað hjá meginþorra fólks og stórátak þarf að gera í uppbyggingu dagvistar- heimila ef koma á til móts við hin nýju viðhorf. En hvers vegna er þörfin svona mikil? í hinu islenska bænda- samfélagi var hlutverk fjöl- skyldunnar frábrugðið því er nú gerist í hinu iðnvædda þéttbýlisþjóðfélagi nútím- ans. Nær öll vinna fór fram á heimilinu og hver hafði sínu hlutverki að gegna í framleiðslunni. Oft var margt í heimili, bæði börn og fullorðnir. Börnin lifðu í nánum tengslum við náttúr- una og hina lífrænu atvinnu- vegi þjóðarinnar, landbúnaö og sjávarútveg. í nútímaþjóðfélagi er þessu öðruvísi farið. Hin sígilda kjarnafjöiskylda er algengasta sambýlisformið. Hin félagslega reynsla barnsins verður því oft mjög takmörkuð. Engin teljandi framleiðsla fer nú lengur fram á heimil- inu sjálfu. Neysluþjóðfélag nútímans sér til þess að báðir foreldrar vinna gjarn- an úti til aö afla þess sem áður var framleitt á heimil- inu. Einnig helst í hendur annars vegar sú ósk kvenna, sem tilheyrir al- mennum mannréttindum, að geta starfað og verið fjárhagslega sjálfstæöir, og hins vegar síaukin þörf atvinnuveganna fyrir vinnu- afl. En til þess að fullnægja þörfum barnsins fyrir fé- Hlutverk dagvistar- heimila lagsskap og fjölbreyttara umhverfi, og vegna ótví- ræðs réttar foreldra til að stunda vinnu utan heimilis, þurfa aö vera til staðar góö dagvistarheimili. En hvað eru góð dagvist- arheimili — hvert er hlut- verk þeirra? Qóö dagvistarheimili eiga að efla vitsmunalegan, persónulegan og félags- legan Þroska barnsins. Hlutverk þeirra er m.a. að skapa jafnræöi með börn- unum innbyrðis, stuöla að því að börnin standi jafnt að vígi þegar að skólagöngu kemur, að styðja foreldra og heimili við uppeldi barn- anna og vera til hjálpar hvað snertir börn með hegðunar- og aðlögunar- vandamál. Því teljum við það sjálf- sögð réttindi allra barna að fá aö dveljast á góöu dagvistunarheimili. FÓSTURSKÓLINN Fósturskóli íslands hefur mjög oft gleymst í þeirri umræðu er fram hefur farið um dagvistarmál. Á dagvistarheimilum er lagður grundvöllurinn að framtíðarþroska barnsins. Það er því mjög nauðsyn- legt að það starfsfólk, sem vinnur á dagvistarheimilum, sé fært um að framfylgja uppeldislegum markmiöum heimilanna. Alger undirstaöa þess að hægt sé að mennta starfs- fólk, eins og best verður á kosið, er að vel sé búiö aö Fósturskóla íslands. Þrýstingur er mikill frá stjórnvöldum í þá átt að fjölga nemendum í skólan- um. Húsnæði skólans er allt of lítið, þannig að engan veginn er hægt að taka inn þann nemendafjölda er æskilegt væri. Vinnuað- staöa bæði nemenda og kennara er alls óviöunandi, þannig aö brýnna úrbóta er þörf. Fjárveitingar til skól- ans hafa hingaö til verið af fremur skornum skammti. Við krefjumst því þess að stórátak verði gert til efling- ar Fósturskóla íslands svo að hann verði fær um að gegna hlutverki sínu þ.e. að mennta hægt og nógu margt starfsfólk á heimilin. Skilningsleysi stjórnvalda á málefnum Fósturskólans má ekki leiða til þess að þeirri reynslu, er áunnist hefur í skólanum, verði varpað fyrir róða. BYGGINGAR DAGVISTAR- HEIMILA Fram að þessu hafa þeir sem teiknað hafa dagvistar- heimili alls ekki veriö nógu vel að sér um þá starfsemi sem þar fer fram, svo að ekki sé meira sagt. Eitthvað væri nú sagt ef sá sem teiknaði fjós hefði flórinn fyrir framan jötuna. Það þótti ekki tiltökumál þó fara þyrfti með börnin allt húsið á enda til að komast á salerni. Yfirleitt var hljóðeinangrun nánast engin og loftræsting léleg. Þó greinilegir gallar kæmu fram eftir að starfsemi hófst á heimilunum voru samt byggð fleiri heimili eftir nákvæmlega sömu teikn- ingunni. Síðan lög um dagvistar- heimili komu til fram- kvæmda hefur ástandið þó batnað. Ekki er hægt að fá ríkisstyrk til byggingar dag- vistarheimila nema teikning- ar séu áður samþykktar af menntamálaráöuneytinu. Þetta er mjög mikil framför, sérstaklega fyrir lands- byggöina. Vonandi dettur nú engum í hug aö byggja nema eftir samþykktri teikn- ingu. Sjálfsagt má lengi deila um hvernig byggingar eiga að vera. A að byggja lítil eða stór heimili?- En byggingarnar verða að vera sem vandaöastar frá upphafi og allur framgangur þannig að húsin þoli þá meðferð sem vænta má þar sem mörg börn dveljast daglega. Viðhaldskostnaður þarf aö vera í lágmarki, bæði vegna þess að það raskar starfsemi heimilisins að þurfa oft að láta mála og gera við og hætta er á að viöhaldskostnaöur sé tekinn af rekstrarfé heimilanna, sem ella færi til leikfanga- og tækjakaupa. Á íslandi erum við inni meiri hluta ársins og er því mikil nauðsyn að fyrirkomu- lag allt sé gott og öllum líði vel. Á mörgum dagvistar- heimilum er húsnæöið ein til tvær stórar stofur, en við teljum mun æskilegra að herbergin séu minni og fleiri, þannig að hægt sé aö skipta börnunum í fleiri og minni hópa. Þannig eiga börnin þess fremur kost að loka aö sér ef þau vilja og vera í einrúmi. Húsnæöið verður að uppfylla jafnt kröfur barna sem fullorö- inna er þar dveljast. FORGANGSHÓPAR í dag er ástandiö þannig aö einungis komast á dag- heimili börn frá afmörkuð- um hópum þjóðfélagsins. Nær 100% af öllu rými dagheimila í stærstu bæjum landsins er notað til aö vista börn einstæöra foreldra og námsmanna. Það eru ann- ars vegar börn sem hafa e.t.v. aðrar hugmyndir um fjölskylduna en flest börn og hins vegar börn náms- manna, sem hljóta aö hafa aðrar hugmyndir um lífið og tilveruna en t.d. börn verka- manna. Sameiginlegt báð- um þessum hópum er að foreldrar þeirra búa í flest- um tilfellum við krappari kjör en gengur og gerist. Þessi börn sem eru lítill hluti barna í Reykjavík, dveljast síðan saman á dagheimilum mestallan daginn, og því er hætt við að þau fái mjög skerta mynd af veruleikan- um. Á síðustu árum hefur það færst í vöxt að vinnustaðir reki eigin dagheimili, sem vista börn starfsmanna. Má þar nefna barnaheimili sjúkrahúsa. Þarna dveljast saman börn foreldra úr mjög sérhæfðum starfshóp- um. Hætt er við því að þessi börn telji það líf sem for- eldrar þeirra lifa einkenn- andi fyrir þjóðfélagið. Varla má á milli sjá hvort er óæskilegra þetta fyrir- Hvers vegna er þeirra þörf komulag eða það sem nefnt var hér að framan. Það hlýtur að vera krafa allra sem bera hag barn- anna fyrir brjósti að þetta fyrirkomulag víki. Dagheimili eiga að vera opin öllum hópum Þjóðfé- lagsins en ekki aöeins minnihlutahópum. Á þann hátt einan er hægt að koma í veg fyrir þann einhæfa skilning sem börn dagheim- ila dagsins i dag hafa á stööu sinni og þjóöféiaginu í heild. BLÖNDUN ALDURSHÓPA Víðast hvar er börnum skipt niöur í deildir eftir aldri. Ef barn byrjar á vöggustofu kemur þaö til með að flytjast þrisvar til fjórum sinnum á milli deilda. Vegna þess hve vinnukraft- ur er óstöðugur eru þaö því margir sem annast barnið á þessum árum. Síbreytilegt umhverfi og óstööugleiki getur leitt til þess aö barniö verði öryggislaust og getur það haft mikil áhrif á tilfinn- ingalíf þess. Öðru máli gegnir ef barn- ið dvelur í blönduðum ald- urshópi (systkinahópi). Hóp- urinn er þá mun stööugri og börnin geta dvalið nokkur ár á sömu deildinni og verið samvistum viö jafnaldra sína um leið og þau njóta systkinasambands við eldri og yngri börn. Þetta myndi einnig auövelda þaö aö systkini gætu verið saman. Yngri börnin læra að líkja eftir þeim eldri, t.d. hvað varðar málþroska og dag- legar venjur og eldri börnin fá betra tækifæri til að bera ábyrgö á þeim yngri. Einnig teljum við að starf fóstrunn- ar sé mun fjölbreyttara ef hún vinnur með blandaðan aldurshóp. Viö teljum þessa blöndun mun mikilvægari á dagheimilum en leikskólum. UTBUNAÐUR HEIMILA Á dagvistarheimilum skulu vera fyrir hendi tæki og leikföng sem valin eru með tilliti til breytilegra þarfa barnanna. Umhverfi allt á að vera hvetjandi og örva alhliða þroska barn- anna. Á þessu er því miður oft misbrestur. Starfsfólk heimilanna hefur oft ekki nægilegt fé til kaupa á þeim efniviði er til þarf. Þyrfti aö ætla mun hærri upphæö til rekstrar, ef fullnægjandi á að vera. FJÖLDI BARNA Á DEILD í reglugerð um dagvistar- fieimili er kveðið á um fjölda barna á deild og er þá miðað við að tveir starfs- menn séu á deild. Dagheimili: í deild fyrir 3ja—12 mán. 6 börn. í deild fyrir 1—2ja ára 10 börn. í deild fyrir 2ja—3ja ára 14 börn. í deild fyrir 3ja—4ra ára 17 börn. í deild fyrir 4ra—6 ára 20 börn. Leikskóli: í 2ja ára deild 14 börn. í 3ja ára deild 20 börn. í 4—6 ára deild 22 börn. . Viö teljum aö þetta sé algjör hámarksfjöldi. Fækka þarf börnum eða bæta við starfsfólki ef sá árangur á að nást sem ætlast verður til af góðu dgvistarheimili. SKORTUR Á SÉRHÆFDU STARFSFÓLKI Yfir 500 fóstrur hafa .útskrifast úr Fósturskóla íslands, samt er stöóugur skortur á fóstrum til starfa. Ein ástæöan er sú, eins og fyrr er nefnt, að ekki er hægt að taka við nógu mörgum nemendum í Fóst- urskólann vegna húsnæðis- leysis. En starfsaldur fóstra er einnig mjög stuttur og ástæöurnar teljum við m.a. vera ófullnægjandi vinnuað- staða, of mörg börn á hvern starfsmann, lág laun (10. launaflokkur), takmarkaður skilningur yfirvalda og al- Framhald á bls. 39.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.