Morgunblaðið - 08.04.1978, Page 21

Morgunblaðið - 08.04.1978, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1978 21 Miklar verð- hækkanir í Portúgal Lissabon, 7. apríl AP. BASILIO Horta, viðskiptaráð- herra Portúgais greindi frá því í dag að Portúgalar myndu neyð- ast til að skammta matvæli á næsta ári, ef ekki tækist að auka framleiðsluna. Hann sagði þetta samtímis því sem hann greindi frá gríðarlegum verðhækkunum á matvælum og ýmsum nauð- synjavörum. Sagði Horta að ríkisstjórnin myndi nú vinna að því að takmarka innflutning eins og stæði og birgðir myndu því fljótlega ganga til þurrðar ef ekki tækist að efla framleiðsluna. Verð á ýmsum nauðsynjavörum hækkuðu um 10—38 prósent, og eru þar í einnig vörur sem framleiddar eru í landinu. Þá mun innflutt kjöt hækka, þar sem niðurgreiðslum verður algerlega hætt. Ginnig hækkaði verð á grasi og rafmagni um allt að helming og leigubflafargjöld um þriðjung. Öflug mótmæli geta hjálpað Agapovu Stokkhólmi, 7. apríl, AP, Reuter SOVÉZKI flóttamaðurinn Valentin Agapov sagði í dag, að einungis öflugur alþjóðlegur stuðningur við málstað eiginkonu hans gæti forðað henni frá því að lenda í klónum á sovézku leynilög- reglunni, KGB. I Moskvu tjáði eiginkona Valen- tins, Lyudmila Agapova, vestræn- um fréttamönnum að hún mundi halda áfram tilraunum sínum til að komast frá Rússlandi. Agapova sagði, að hún, dóttir hennar og tengdamóðir hefðu komið l‘/i klukkustundu of seint á staðinn þar sem sænski flugmaðurinn átti að hitta þær. Eastem kaupir breiðþotu Miami, 7. apríl, AP. BANDARÍSKA flugfélagið East- ern Airlines tilkynnti í dag að það hefði samið um kaup á 23 breiðþotum af A-3008 gerð af evrópska-Þýzka fyrirtækinu Air- bus Industrie. Með kaupunum ætlar félagið að endurnýja flota sinn af Boeing 727 þotum sem það segir óhagkvæmari en nýju vélarnar. Samningur Eastern Airlines er fyrsti meiri háttar samningur um flugválakaup bandarísks flug- félags utan Bandaríkjanna. Alls hljóðar samningurinn upp á 778 milljónir Bandaríkjadála, eða um 200 milljarða íslenzkra króna. Fyrr í vikunni gerði bandaríska Framhald á bls. 28 . Elísabet drottning f ékk 9% launa- hækkun London, 7. apríl. Reuter. BREZKA konungsfjölskyldan fékk í dag níu prósent launa- hækkun og einn pingmanna Verkamannaflokksins William Hamilton sem heldur uppi mjög kröftugri gagnrýni á konungs- fjöldkylduna sagöi aö paö væri hneyksli ef eitthvað pessara fjármuna rynni til Margrétar prinsessu. Samtals nam hækkunin til fjölskyldunnar 240 þúsund sterl- ingspund (eða um 117 millj. króna) og hefur hún þá sér til framfærslu um 2.9 millj. sterl- ingspunda. Megniö af þessari upphæð rennur til drottningar sjálfrar og er ætlaö til að greiða launakostnað hins fjölmenna þjónustuliðs og fl. Sú upphæð sem ætluö er fyrir eina einstöku meðlimi fjölskyldu drottningar og helztu skyldmenni veröur ekki ákveðin fyrr en eftir nokkrar vikur og verður það gert á fundi forsætisráðherrans, fjármála- ráðherrans og fjársýslumanns drottningar. Auk þessa hefur drottningin miklar tekjur af verðbréfum og lendum sínum. Sú uþþhæð hefur ekki verið gefin upp, en drotfningin er talin eiga aö minnsta kosti jafnvirði um 100 milljón sterlingspunda. Hald lagt á 5 hús Glistrups Kaupmannahöfn, 7 apríl. Reuter. BORGARDÓMSTÓLLINN í Kaupmannahöfn hefur gefið út skipun um að fimm hús í eigu Mogens Glistrups, leið- toga Framfaraflokksins og skattaandstæðinga, skuli teknar eignarnámi til að mæta kostnaði við málaferl- in gegn Glistrup út af skattamálum hans. Málaferlin gegn Glistrup hófust |HH Mogens Glistrup. fyrir tveimur árum og hann var dæmdur í sekt að upphæð 1.5 milljónir danskra króna í febrúar. Málskostnaður hefur numið um fjórum milljónum danskra króna. Bæði Glistrup og sækjandinn í málinu hafa áfrýjað úrskuðinum til hæstaréttar. Glistrup kallar eignarupptöku- úrskurðinn enn eina sönnun um að valdi og ofbeldi sé óspart beitt gegn erfiðum stjórnarandstæð- ingi. „Þetta er liður í tilraun til að láta mig fá magasár og gera mig gjaldþrota," sagði hann. Dómar í Pretoriu Pretoriu, 7. apríl. AP. DÓMARI í Pretoriu dæmdi í dag sex blökkumenn í sjö til 25 ára fangelsi fyrir hryðju- verkastarfsemi og vísaði á bug kröfu sækjanda um dauðarefsingu. Veður víða um heim Amsterdam 8 bjart Apona 20 skýjað Berlín 12 bjart Brússel 12 sói Chicago 18 bjart Kaupmannah. 5 skýjaó Frankfurt 8 bjart Genf 14 skýjaó Helsinki 5 bjart Jóhannesarb. 20 sól Lissabon 17 sól London 12 sól Los Angeles 18 rigning Madrid 14 sól Miami 25 bjart Moskva 2 bjart New York 15 rigning Osló 5 bjart París 12 hólfskýjað Rómaborg 14 skúrir San Francisco 13 skýjað Stokkhólmur 8 skýjaó Tel Aviv 24 bjart Tókíó 15 bjart Vancouver 11 sól Vtnarborg 5 sól Brezhnev harðorður í garð Bandarikjanna Moskvu, 7. apríl, AP Reuter LEONID Brezhnev forseti Sovétríkjanna sagði i dag að það væri ásetningur Banda- ríkjamanna að draga á langinn nýtt samkomulag þjóðanna um takmörkun kjarnorkuvopna. í ræðu sem Brezhnev hélt í herskóla í Vladivostok sagði hann, að áætlanir Bandaríkjamanna um fram- leiðslu nifteindasprengjunn- ar ykju hættuna á kjarn- orkustyrjöld, stofnuðu í Brezhnev. Carter frestar smíði á nifteindasprengju hættu viðræðunum um tak- mörkun vígbúnaðar (SALT), og jafnvel slökunarstefn- unni milli Rússlands og vestrænna þjóða. Brezhnev sagði, að búið væri að jafna að mestu leyti þann ágreining Sovétríkjanna og Bandaríkjanna sem tafið hefði nýtt SALT-samkomulag í þrjú ár, en samt virtist enn sem samningar væru ekki í augsýn. „Ef samkomulag dregst úr hömlu er augljóst að það er af pólitískum ástæðum. Það er Bandaríkjanna að stíga þau skref sem eftir eru til að samkomulag geti tekizt," sagði Brezhnev. Cyrus Vance utanríkisráðherra Bandaríkjanna og Andrei Gromyko utanríkisráðherra Sovétríkjanna hittast í Moskvu 19. Framhald á bls. 28 Washington, 7. apríl. Reuter. CARTER forseti sagði í dag að hann hefði ákveðið að fresta smíði nifteinda- sprenjgunnar. Hann sagði í yfirlýsingu að hvort ákveðið yrði síðar að hefja fram- leiðslu á sprengjunni færi eftir því hve Rússar sýndu mikla stillingu í vígbúnaðar- kapphlaupinu og hernaðar- umsveiflur í Evrópu. Forsetinn kvaðst jafnframt hafa gefið fyrirmæli um að endurbætur yrðu gerðar á Lance-kjarnaoddum og átta þumlunga stórskotavopn- um þannig að hægt yrði að nota þær undir nifteindasprengju ef svo færi að síðar yrði ákveðið að hefja framleiðslu á sprengjunni, sem drepur allt kvikt en veldur ekki tjóni á mannvirkjum. Carter forseti sagði að samráð hefði verið haft við bandalags- þjóðirnar í NATO um ákvörðunina og að haldið yrði áfram viðræðum við þær um ráðstafanir til að hafa eftirlit með vígbúnaði sem reynt Þetta gerðist 1977 Vestur-Þjóðverjar leyfa sðlu kjarnaofna til Brazilíu. 1973 — Picasso deyr, 91 árs gamall. Indverjar taka vió stjórn Sikkim. 1970 — 30 skólabörn’ bíða bana og 70 óbreytt- ir borgarar særast í loftárás ísraelsmanna á Bahr El-Bakr í Egypta- landi. 1961 — Samningur um frið í Alsír samþykktur við þjóðaratkvæði í Frakklaudi. 1953 — Jomo Kenyatta og fimm aðrir leiðtogar Mau Mau dæmdir í Kenya. 1939— Zog Albaníukon- ungur flýr úr landi eftir innrás ítaia. 1913 — Fyrsta þing kínverska lýöveldisins sett. 1906 — Samningurinn í Algeciras undirritaður: F’rakkar og Spánverjar fá raunveruleg yfirráð í Marokkó. 1898 — Liðsafli Kitcheners fer með sig- ur af hólmi við ána Atbara i Súdan. 1886 — Gladstone legg- ur fram frumvarp um írska heimastjórn. 1759 — Brezkur liðsafli tekur Masulpitam, Madras, Indlandi. 1513 — Spánverjinn Ponce de Leon stígur á land í Florida. Afmæli dagsins: Phineas Fletcher enskt skáld (1582-1650). Ian Smith, forsætisráðherra Rhodesíu (1919--). Franco Corelli, ítalskur tenórsóngvari (1923-). Orð dagsins. Heiðvirður maður er göfugasta sköpunarverk guðs. — Alexander Pope, enskt skáld (1688-1744). yrði að fá Rússa til að samþykkja. Hann sagði að með endurbótum á Lance-flaugum og stórskotafall- byssum væri þeirra leið haldið opinni að nota nifteindasprengju síðar. „Við munum halda áfram í samvinju við bandamenn okkar að endurbæta og efla hernaðargetu okkar bæði á sviði venjulegra vopna og kjarnorkuvopna," sagði Carter. „Við erum staðráðnir í að tryggja sameiginlegt'öryggi okkar og framvarnir Evrópu," sagði hann. I Brússel sagði Josef Luns, framkvæmdastjóri NATO, að bandalagsríkin skildu ákvörðun Carters forseta. Hann sagði þetta við blaðamenn að loknum tveggja tíma fundi með sendiherrum NATO-ianda þar sem bandaríski sendiherrann, W. Tapley Bennet, skýrði þeim opinberlega frá ákvörðun .Bandaríkjaforseta. Luns sagði að sendiherrarnir hefðu ítrekað ugg sinn vegna áframhaldandi aukningar víg- búnaðar Rússa og lagt áherzlu á nauðsyn nútímaendurbóta á hernaðargetu NATO. Hann kvað þá hafa veitt því eftirtekt að Bandaríkin ætluðu að endurbæta Lance-eldflaugar og átta þumlunga fallbyssuna. Herforingjar NATO vilja nift- eindasprengju til að vega upp á móti hinum öfluga her Varsjár- bandalagsins í Mið-Evrópu. Ford fer fram 1980 Washington, 7. apríl. AP. GERALD Ford, fyrrum Bandaríkjaforseti, sagði í Washington í garkvöldi, að hann yrði líklega í framboði við forsetakosningarnar 1980. Ford lét þessi orð falla í ræðu þar sem hann gagn- rýndi embættisstörf Carters forseta. Jafnframt sagði Ford að meðal repúblikana væru fjölmargir stjórnmálamenn sem væru óumdeilanlega hæfari forsetar en Carter.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.