Morgunblaðið - 08.04.1978, Síða 44

Morgunblaðið - 08.04.1978, Síða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1978 MORötllv- V MFf/NO 11 (0 <5>_ w Q| H III W I n m tn 2.1 1 III m n II Réttu mér nokkur lök! í dag er ekki skrifað upp á víxla! Þetta er nýjasta gerðin, frú mín! Nóg af gjaldeyri? BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Kvikmyndaleikarinn Oraar Sharif er áhugasamur bridgespil- ari. Og þegar hann tekur þátt í mótum fjölgar ávallt áhorfendum af veikara kyninu, sem þykir eðlilega ánægjulegt. En vegna anna við starf sitt er hann ekki jafn virkur þátttakandi í stórmót- um og hann gjarna vildi. En þó tók hann þátt í Philip Morris Evrópubikartvímenningn- um. sem haldinn var í Crans- sur-Sierre í Sviss í síðasta mán- uði. En eftir góða byrjun í keppninni endaði hann í 10. sæti ásamt félaga sinum. Frakkanum Mari. I spili dagsins, se'm er frá keppni þessari, valdi Omar rétta leið af tveimur, sem til greina komu. Norður gaf og allir voru á hættu. Norður S. K643 H. ÁKD76 T. G4 L. G6 Vestur Austur S. D102 S. 87 H. 954 H. G83 T. 92 T. KD873 L. Á9432 L. K107 Suður S. ÁG93 H. 102 T. Á1065 L. D85 Á flestum borðanna varð suður sagnhafi í fjórum spöðum og var Omar einn þeirra. Og varnar- spilararnir eiga ekki örugga leið til að taka sína fjóra líklegu slagi. Vestur spilaði út tígulníu, fjarki, drottning og ás. Leikarinn tók síðan ás og kóng í trompi og sneri sér að hjartanu. í drottninguna lét hann lauf af hendinni og þegarí ljós kom, að þau lágu 3—3 spilaði hann fjórða hjartanu og í það fór annar gjafaslagurinn í laufinu. Og þar með gat vörnin aðeins fengið þrjá slagi. Reyndar spiluðu margir spilið á sama hátt eftir sama útspil. En aðrir reyndu spaðasvíninguna, sem var nokkuð lakari leið. Og töpuðu þeir því spilinu. Prósentu- lega séð var vinningsleiðin betri. Eitt smáspil með drottningunni dugði og ef ekki þá var nóg, að hjörtun skiptust 3—3, sem þau og gerðu. 7670 COSPER Á að ganga í augun á einhverri núna — með að lita hárið? Þessa spurningu bar upp maður nokkur í bréfi er barst fyrir stuttu og fer það hér á eftir: „Ég hef um nokkuð langa hríð verið að furða mig á því hversu mikinn gjaldeyri við Islendingar hljótum að eiga úr því innflutning- ur er svo mikill sem raun ber vitni. Það er ekki að sjá að nokkurn hlut skorti, allt er flutt inn hversu merkilegt eða ómerkilegt sem það er og svo mikið jafnvel að helzt er svo að sjá sem allar vörugeymslur og port séu yfirfull. Mikið er nú rætt um efnahags- málin og kjaramálin og í því sambandi er alltaf talað um að við ættum ekki að safna frekari skuldum erlendis, heldur reyna að grynnka eitthvað á þeim og hefja sparnað. Allir vilja reyna þetta a.m.k. í orði, en sjálfsagt færri á borði. Hver vill í rauninni leggja eitthvað á sig, hver vill herða sultarólina og hver vill í raun og veru bera minna úr býtum en hann hefur gert undanfarin ár eða misseri? Að sjálfsögðu vill það enginn, en hitt er svo samþykkt af , öllum að eitthvað verður að gera. | Ekki má flytja minna inn, því þá missa innflytjendur spón úr aski sínum og ekki má draga úr ferðalögum, því þá minnka umsvif ferðaskrifstofanna og svo mætti lengi telja. Þetta allt væri svo talið koma niður á hinum almenna borgara, sem hefði minni þjónustu á allan hátt og gæti ekki hreyft sig vegna sparnaðar og fátæktar. Þetta er e.t.v. sú grýla sem menn sjá þegar talað er um að spara á einhverju sviði. Ég held að við íslendingar verðum að fara að taka okkur sjálf og stjórnmálamenn okkar alvar- lega, það þýðir ekki að vera með sífellda tortryggni og tala um að þessi eða hinn beri meira úr býtum en annar. Það verður e.t.v. aldrei hægt að koma í veg fyrir að misbrestur sé í okkar þjóðfélagi á einhverjum sviðum, það er víða pottur brotinn í einhverjum efn- um, en við verðum að hætta að leika okkur og reka þjóðarbúskap- inn af alvöru, hætta lántökum, minnka við okkur og bara bíta í það súra epli að við getum bara ekki gert alla hluti strax, það verða einhver verkefni að sitja á hakanum og við verðum e.t.v. að fresta einni eða tveim utanlands- MAÐURINN A BEKKNUM Framhaldssaga eftir Georges Simenon Jóhanna Kristjónsdóttir islenzkaði 17 — K«na? Það var miskunnarlaust að segja þetta eftir að hafa skynj- að tilfinningar hennar, en hann komst ekki hjá því. — Kannski það. — Sagði hann yður nokkuð? — Nei. — Heíur hann aldrei reynt til við yður? Hún mótmælti ákaft. — Nei. nei, aldrei! Ég sver það. Ég er viss um að það hefur honum aldrei dottið ( hug. Hann vissi ekki hvort sér væri óhætt að taka upp pípu- stertinn og kveikja í. — Ég get ímyndað mér það hafi verið sár vonbrigði fyrir ykkur öll þegar Kapian skýrði ykkur frá því að hann ætlaði að leggja fyrirtækið niður. — Já, það getið þér bókað. — Kannski sérstaklega fyrir Louis Thouret? — Hann var sá sem virtist hafa hvað sterkust tengsl við fyrirtækið. Hann. hafði verið þar alla sína tíð. Þér verðið að muna að hann hafði byrjað þar við sendlastörf þegar hann var aðeins fjórtán ára gamall! — Hvaðan er hann ættaður? — Frá BelleviIIe. Eftir því sem hann sagði mér var móðir hans ekkja og það var hún sem fór einn góðan veðurdag á fund gamia Kaplans með hann, Þá varð hann að hætta í skóla. — Er móðir hans dáin? — Já, fyrir löngu. Hvers vegna læddist sú hugs- un að Maigret að hún dyldi hann einhve'rs? nún hljómaði fjarska einlæg, horfði beint í augu honum og þó skynjaði hann ákveðna varfa>rni, eins og þegar hún hafði komið hljóð- laust fram á filtskónum sínum. — Mér hefur skilizt það hafi reynzt honum nokkrum erfið- leikum bundið að finna nýja vinnu? — Hver hefur sagt það? — Ég dró þá ályktun af því sem húsvörðurinn sagði mér. — Það er auðvitað ailtaf erfitt þegar fólk er komið yfir fertugt, ég tala nú ekki um þegar fólkið hefur enga sér staka menntun. Sjálf var ég... — Þér voruð líka í erfiðleikum.. ? — Tja, ég leitaði fyrir mér í nokkrar vikur. • — Og hr. Louis? — Miklu lengur. — Er það hugboð yðar eða vitið þér það? — Eg veit það. — Heimsótti hann yður þann tíma? - Já. — Ifjálpuðuð þér honum? Hann var rcyndar öidungis hárviss um að hún hafði gert það. — Hvers vegna spyrjið þér um það? — Vcgna þess að mcðan ég hef ckki ítarlega mynd af manninum sem hann var sið- ustu árin sem hann lifði, hef ég enga möguleika á því að hafa upp á morðingjanum. — Það er rétt, viðurkenndi' hún eftir nokkra umhugsun. — Ég hjálpaði honum. Ég skal scgja yður allt af létta, en helzt kysi ég það yrði milli okkar. Umfram allt má kona hans ekki íá að vita um það. Hún er svo stolt. — Þekkið þér hana? — Nei, hann sagði mér frá málavöxtum. Svilar hans eru í góðum stöðum og þeir hafa allir byggt sér sín eigin hún. — Það gerði hann líka. — Hann var tilneyddurr, vegna þess kona hans linnti ekki látunum. Það var hún sem krafðist þess þau byggju í Juvisy eins og systur hennar. Hún talaði ekki alveg eins rólega og áður. hann fann niðurbælda ólgu sem haíði búið > um sig lengi innra með henni. ~ Var hann hræddur við konu sina? — Hann vildi engum gera mein. Þegar við misstum störf

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.