Morgunblaðið - 23.04.1978, Page 12
44
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. APRÍL 1978
l^ndar-
dómnr
hamíngj-
unnar
Einu sinni var konungs-
sonur, sem fékk allt, sem
hann gat óskað sér. Fær-
ustu kennarar voru fengnir
til þess að kenna honum,
svo að hann yrði lærður og
vitur konungur.
En ungi prinsinn var ekki
hamingjusamur. Hann hélt
áfram að óska sér einhvers,
sem hann átti ekki.
Dag nokkurn kom vitur
maður til hallarinnar og
sagði við konunginn:
„Ég skal gjöra son yðar
hamingj usaman."
Síðan fór hann með
prinsinn inn í herbergi, þar
sem þeir gátu verið einir
nokkra stund. Hann skrif-
aði eitthvað á hvíta papp-
írsörk með ósýnilegu bleki.
Að því búnu fékk hann
prinsinum örkina ásamt
logandi kerti og sagði hon-
um að halda loganum á
kertinu uppundir pappírs-
örkina. Ef hann gerði það,
gæti hann lesið það, sem á
henni stæði.
Því næst fór vitri maður-
inn leiðar sinnar, án þess að
krefjast nokkurrar greiðslu
fyrir læknisráð sitt.
Prinsinn gerði eins og
vitri maðurinn hafði sagt
honum. Kom þá í ljós, að
greinilegir skrifstafir voru
á örkinni. Á henni stóð:
Vertu alltaf vingjarnleg-
ur við einhvern á hverjum
degi.
Hjálpaðu alltaf einhverj-
um á hverjum degi.
Þetta var leyndardómur
hamingjunnar, og þegar
ungi prinsinn fór að lifa
eftir þessari reglu leið ekki
á löngu, uns hann varð
hamingjusamasti maðurinn
í öllu konungsríkinu.
Sumarmynd eftir Margréti Maríu Leifsdóttur,5 ára, Bergstaðastr. 71 og Sigríði Björnsdóttur, 5 ára, Háuhlíð 14,
Reykjavík.
Margt ej- hægrt að gera sér til dundus og
gamans. Hér ætlum við aðeins að minnast á
eina hugmynd, sem þið getið svo útíært
nánar eftir því, hvað hugmyndaflug ykkar er
mikið.
Þið getið byrjað á því að finna gömu)
dagblöð og klippt út úr þeim myndir
(andlitsmyndir t.d.) af þekktum persónum.
Að við tölum ekki um, ef þið eigið myndir
af systkinum ykkar, foreldrum eða frænd-
systkinum og vinum!!
Því næst getið þið fengið ykkur teiknipappfr og byrjað af fullum krafti að
æfa ykkur á að teikna fólk, en þá án höfuðs! Þið getið teiknað gamalt fólk
við staf og hækjur, ungbörn í vöggu eða vagni, fólk í sólbaði o.s.frv.
Það hlýtur að geta orðið skemmtilegt að sjá „pabha“ allt í einu verða lítið
barn í vöggu! og „mömmu“ verða eins og strák, sem getur dottið allt mögulegt
f hug!!
Myndir og
teikningar
Eg bið
að heilsa
Jónas Hallgrímsson
Nú andar suöriö sæla vindum þýöum.
Á sjónum allar bárur smáar rísa
og flykkjast heim aö fögru landi ísa,
aö fósturjaröar minnar strönd og hlíöum.
Ó, heilsiö öllum heima rómi blíöum
um hæö og sund í drottins ást og friði.
Kyssiö þiö, bárur, bát á fiskimiöi.
Blásiö þið, vindar, hlýtt á kinnum fríðum.
Vorboöinn Ijúfi, fuglinn trúr, sem fer
meö fjaðrabliki háa vegaleysu
í sumardal aö kveöa kvæöin þín,
heilsaöu einkum, ef aö fyrir ber
engil meö húfu og rauðan skúf, — í peysu.
Þröstur minn góöur, það er stúlkan mín.