Morgunblaðið - 23.05.1978, Side 1
48 SÍÐURMEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
104. tbl. 65. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Brzezinski vel
tekið í Peking
Peking, 22. maí. AP. Reuter.
RÁÐUNAUTUR Carters íorseta í þjóðaröryggismálum Zbigniew
Brzezinski sagði að loknum viðræðum við kínverska ieiðtoga í dag
að þær hefðu verið gagnlegar, mikilvægar og jákvæðar.
Hann sagði að þær hefðu verið gagnlegar vegna þess að báðir aðilar
hefðu gert hreinskilnislega grein fyrir afstöðu sinni í alþjóðamálum,
mikilvægar vegna þess að athugun hefði leitt í ljós að báðir aðilar
hefðu svipaða afstöðu í flestum helztu málum og jákvæðar vegna þess
að þær mundu auðvelda þá viðleitni að færa sambúð landanna í
eðlilegt horf í samræmi við Shanghai yfirlýsinguna.
Brzezinski kvaðst mundu tfi-
kynna Carter forseta að niður-
staða sín væri sú að fyrir Banda-
ríkjamönnum og Kínverjum ætti
eftir að liggja að nálgast hvor aðra
báðum þjóðunum til gagns og
mannkyninu til blessunar.
Kínverjar hafa sagt að viðræð-
urnar hafi verið báðum aðilum til
góðs. Síðan Brzezinski kom til
Peking í gær hefur hann rætt við
Hua Kuo-feng forsætisráðherra,
Teng Hsiao-ping varaforsætisráð-
herra og Huang Hua utanríkisráð-
herra.
Samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum var jákvæðara andrúmsloft
Framhald á bls. 30.
Sadat fékk 98%
í þjóðaratkvæði
Kaíró, 22. maí. Reuter.
FYRIRÆTLANIR Anwars Sad-
ats forseta um að kveða niður
gagnrýni hægri- og vinstrisinn-
aðra andstæðinga egypzku stjórn-
arinnar, banna þátttöku komm-
únista í opinbefu b'fi og auka
eftirlit með skrifum blaða voru
samþykktar með 98,29% atkvæða
í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Nabawi Ismail innanríkisráð-
herra sagði þegar hann tilkynnti
úrslitin að egypzk alþýða hefði
lýst yfir stuðningi við „ábyrgt
frelsi, heilbrigt lýðræði og heiðar-
lega stjórnarandstöðu“.
Ilann sagði að kjósendur hefðu
tryggt lýðræði gegn rógi og
efasemdum, hafnað stéttaátökum
og vísað á bug áskorunum um
„frávik arðrán og iénsskipulag“.
Sadat hefur jafnan fengið yfir-
gnæfandi meirihluta í þjóðarat-
kvæðagreiðslum. Stjórnarand-
stæðingar höfðu nánast engin
tækifæri til að koma skoðunum
sínum á framfæri.
Þjóðaratkvæðagreiðslan fylgir í
kjölfar harðrar gagnrýni í blöðum
stjórnarandstæðinga á stefnu
stjórnar Sadats sem hefur verið
sökuð um spillingu og harðar
deilur á þingi.
Samkvæmt tillögutn Sadats sem
fata nú fyrir þingið verður hert á
reglum um starfsemi stjórnmála-
flokka og skrif dagblaða og
óæskileg gagnrýni verður bönnuð,
Stefnt er að því að hreinsa
kommúnista í helzta flokki
vinstrimanna og gamla félaga í
nýja Wafd-flokknum sem voru í
þeim gamla fyrir byltinguna 1952.
Gagnrýnin á Sadat hefur aðallega
komið frá þessum flokkum.
Belgískir og franskir fallhlífahermenn eru nú á verði í Kolwezi
sem þeir hafa náð á sitt vald.
Sonur
Sáms
ærðist
New York, 22. maí. Reuter.
MORÐINGINN David Berkowitz,
„sonur Sáms“, gekk berserks-
gang í dómhúsi í Brooklyn í dag
svo að fresta varð að dæma hann
fyrir sex morð sem skelfingu ollu
í New York í heilt ár.
Bcrkowitz gekk um dómsalinn
og hrópaðii „Stacy var hóra Stacy
var hóra.“ Hann átti við Stacy
Moskowitz, síðasta fórnarlamb
sitt.
Síðan benti Berkowitz á frú
Neysa Moskowitz móður Stacys
og sagðii „betta er hún. þetta er
hún.“ Frú Moskowitz svaraðii
„Skepnan þín. skepnan þín."
Sex lögreglumenn leiddu þá
Berkowitz út úr dómsalnum og
hann hrópaði: „Ég drap þau öll, ég
drap þau öll.“ Robert Violante sem
var með Stacy Moskowitz kvöldið
þegar hún var myrt stóð á fætur
og hrópaði: „Það ætti að drepa þig
kvikindið þitt.“
Berkowitz reyndi að stökkva út
um glugga á sjöundu hæð þegar
hann var leiddur burt úr dómsaln-
um. Ákveðið var að dómur yrði
kveðinn upp í máli Berkowitz 12.
júní og dómarinn fyrirskipaði nýja
rannsókn á geðheilsu hans.
Belgísku hermennimir
fara heim frá Kolwezi
Sjá sjónarvottalýsingar á bls. 46 og 47.
Kinshasa, 22. maí. Ruter.
BELGÍSKIR fallhlífahermenn voru í dag fluttir flugleiðis frá Kolwezi
þar sem hermenn úr frönsku tltlendingahersveitinni eiga enn í höggi
við uppreisnarmenn í úthverfum bæjarins þar sem tugir hvftra manna
voru myrtir.
Forsætisráðherra Belgíu, Leo Tindemans, sagði í Briissel að
fallhlífahermennirnir hefðu lokið því hlutverki sfnu að bjarga
rúmlega 2.000 hvítum mönnum sem komust lífs af þegar
uppreisnarmenn réðust inn í Shaba-hérað. En hann sagði að um 600
fallhlífahermenn yrðu um kyrt f Kamina flugstöðinni fyrir norðan
Kolwezi þar til núverandi „óvissuástandi“ lyki.
Eftir brottflutning um 1700
belgískra hermanna frá Kolwezi
verða eftir í bænum um 1.000
hermenn úr Utlendingahersveit-
inni og 600 Zaire-hermenn og þeir
munu reyna að verja bæinn gegn
Var Savimbi
tekinn til fanga?
Brússel. 22. maí. Reuter. ^ *
BELGÍSKUR flóttamaður hélt því fram í dag að uppreisnarmenn
sem réðust inn í Zaire fyrir viku hefðu tekið til fanga leiðtoga
Unitahreyfingarinnar í Angola, Jonas Savimbi, en talsmaður
hreyfingarinnar í Lissabon vfsaði fréttinni á bug.
Flóttamaðurinn sem vill halda nafni sfnu leyndu kveðst hafa
upplýsingar sfnar samkvæmt áreiðanlegum heimildum f Zaire og
segir að Savimbi hafi verið tekinn til fanga skömmu eftir
innrásina.
Unita-menn í Brússel telja að
verið geti að Savimbi hafi verið
á svæðinu sem uppreisnarmenn-
irnir réðust á þegar árásin var
gerð. Þeir segja að Savimbi hafi
beðið Mobutu forseta í desember
að fá að setjast að í Zaire og
koma upp bækistöðvum þar
fyrir hreyfingu sína.
En talsmaður Unita í Lissa-
bon sagði að staðhæfing belg-
íska flóttamannsins væri tilbún-
ingur. „Leiðtogi okkar er heill á
húfi. Eg get ekki sagt ykkur
hvar hann er en hann er ekki á
valdi uppreisnarmanna,"
Jonas Savimbi
uppreisnarmönnum ef þeir skyldu
gera nýjar árásir.
Landvarnaráðuneytið í París
segir að franskir hermenn mæti
mótspyrnu uppreisnarmanna um
10 km frá Kolwezi. Uppreisnar-
menn eru taldir hafa 12-15 hvíta
menn í gíslingu á undanhaldinu.
Samkvæmt vestrænum heimildum
má vera að hermenn Útlendinga-
hersveitarinnar verði á bardaga-
svæðinu í eina til fjórar vikur í
viðbót.
Fréttaritarar sem hafa komið til
Kolwezi hafa fundið fleiri um-
merki grimmilegra morða upp-
reisnarmanna þá átta daga sem
þeir höfðu bæinn á sínu valdi. Tólf
lík lágu á vegi sem liggur út úr
bænum. Lík lágu enn á víð og dreif
á yfirgefnum götum í sjálfum
bænum.
Phillipe Erulin ofursti, yfirmað-
ur hermanna Útlendingahersveit-
arinnar, sem stukku úr fallhlífum
niður í bæinn til þess að hrekja
uppreisnarmenn burt á föstudag-
inn, sagði að staðfest hefði verið
að uppreisnarmenn hefðu drepið
70 hvíta menn. Áður höfðu vest-
rænir fréttaritarar og heimildar-
menn þeirra áætlað að milli 100 og
130 hefðu týnt lífi. Erulin ofursti
sagði að 300 uppreisnarmenn
hefðu verið felldir í aðgerðunum á
föstudaginn en tveir hefðu fallið
og níu særzt úr liði Frakka.
Jafnframt sætti belgíska stjórn-
in harðri gagnrýni Mobutu Sese
Seko forseta í dag. Hann sakaði
Henri Simonet utanríkisráðherra
um að hafa dregið að svara beiðni
Zaire um aðstoð vegna innrásar-
innar í Shaba-héraði og skipaði
Framhald á bls. 30.
Glistrup-
úrskurði
hnekkt
Kaupmannahöfn, 22. maí.
Rcuter.
HÆSTIRÉTTUR hnekkti í dag
úrskurði undirréttar um eigna-
upptöku fimm húsa Mogens Glistr-
ups leiðtoga Framfaraflokksins.
Glistrup var einnig dæmdur í
sekt að upphæð 1,5 milljónir
danskra króna og hæstiréttur stað-
festi þann dóm.
Hæstiréttur taldi of veikar for-
sendur fyrir eignaupptöku.