Morgunblaðið - 23.05.1978, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 1978
Sjálfstæðisflokkurinn:
Bláa bókin
komin út
REYKJAVÍK - borgin okkar
nefnist rit er Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur gefið út vegna
borgarstjórnarkosninganna á
sunnudag og verður henni
dreift á öll heimili í borginni.
Bókinni er ætlað að kynna
Reykvíkingum í máli og mynd-
um ýmsa þætti í störfum
borgarstjórnar, og jafnframt
er í henni skýrt frá stefnu
Sjálfstæðisflokksins í borgar-
málum í ýmsum mikilvægum
málaflokkum.
Þá fylgir bókinni einnig
kynning á frambjóðendum
Sjálfstæðisflokksins við borg-
arstjórnarkosningarnar í
Reykjavík 28. maí n.k.
Fyrirlestur
um varnarmál
JACK Mendelsohn, sem er starfsmaður
sendinefndar Bandaríkjanna við aðal-
stöðvar NATO í Brussel mun halda
f.vrirlestur á miðvikudag í Menningar-
stofnun Bandaríkjanna um „Nato,
varnir Vesturlanda og SALT“.
Mendelsohn hefur tekið þátt í
samningaviðrseðum í Vín um gagn-
kvæma fækkun herja í Evrópu.
Kolmunnaveiðar
við Færeyjar:
„ÞETTA hefur gengið þokkalega
vel og áfallalítið," sagði Viðar
Karlsson skipstjóri á Víkingi
AK 100 er Mbl. ræddi við hann
á Akranesi í gær um kolmunna-
veiðar íslenzkra skipa við Fær-
eyjar, en Víkingar kom þó með
um 1300 tonn til Akraness.
Þetta er önnur löndun Víkings,
en í fyrra skiptið kom hann með
800 tonn. Sagði Viðar, að Börkur
og Bjarni Ólafsson væru komnir
með svipaðan afla og Víkingur,
en nýkomnir á miðin við Fær-
eyjar eru Jón Kjartansson og
Sigurður, sem kom úr vélarvið-
gerð í Svíþjóð. Víkingur heldur
aftur á Færeyjarmið í dag og er
;;.v\ * v.j
Viðar Karlsson skipstjóri á Akranesi og í baksýn löndun úr
Víkingi. Ljósm.i Mbl. Júlíus.
Haf a gengið þokka-
lega vel og áfallalítið
- segir Vidar Karlsson skipstjóri á Víkingi AK ÍOO
Guðjón Bergþórsson skipstjóri í
þeirri ferð.
Viðar sagði að mikið væri af
kolmunna á Færeyjamiðum, en
veiðarnar væru að því leytinu
frábrugðnar kolmunnaveiðum
við ísland „að fiskurinn er
tekinn á miklu meira dýpi og því
þarf mikla aðgæzlu til að ná
honum upp án þess að
sprengja". Viöar sagði að þeir
hefðu fengið þessi 1300 tonn í 10
hölum. „í fyrstu ferðinni gáðum
við ekki alveg að okkur og
fengum tvisvar sinnum of mikið,
þannig að við misstum pokann
frá okkur. Við náðum honum þó
aftur, en þá rifnum.“ Sagði
Viðar, að Börkur hefði alveg
sloppið við veiðarfæratjón og
Bjarni Ólafsson mikið til líka.
Aðalkolmunnamiðin eru um
60 mílur suður af Færeyjum, en
fiskurinn gengur norður með
eyjunum Islandsmegin og þá
veiddur allt að 20 mílum frá
landi. Miklir erfiðleikar hafa
verið á löndun kolmunnans og
sagði Viðar þá stafa af því að
fiskurinn væri svo horaður, að
hann héngi saman á beinum í
bakuggunum. Tilraunir með að
Framhald á bls. 30.
Borgarmála-
umræður í
útvarpi
Stjórnmálaumræður um borgar-
málefni Reykjavíkur verða í út-
varpinu í kvöld og hefjast klukkan
20.30.
Ræðutími hvers framboðslista
er 32 mínútur, sem skiptist í þrjár
umferðir. 15,10 og 7 mínútur fyrir
hvern lista. Fiokkarnir eru: Al-
þýðubandalag, Alþýðuflokkur,
Framsóknarflokkur og Sjálfstæð-
isflokkur. Umræðum stýrir Hjört-
ur Pálsson dagskrárstjóri.
Hvalveiðar
hefjast 28. maí
„HVALVEIÐARNAR byrja 28.
maí, ef allt stendur stikk,“ sagði
Kristján Loftsson hjá Hval hf. í
samtali við Mbl. í gær.
Þegar Mbl. spurði Kristján um
viðbrögð Hvals hf. við fyrirhuguð-
um aðgerðum Greenpeace-samtak-
anna gegn hvalveiðum íslenzku
hvalveiðibátanna, sagði hann: „Við
leyfum þeim að birtast hér fyrst.
Við bíðum bara átekta og sjáum
til.“
Engar viðræður hafa farið fram
miili Hvals hf. og yfirstjórnar
Landhelgisgæzlunnar vegna hval-
veiðanna í sumar að sögn Krist-
jáns.
Jónína Guðmundsdóttir látin
Kosningahappdrættið:
Vélhjóla-
sendla vantar
NÚ ERU aðeins 4 dagar þar til
dregið verður í kosningahapp-
drætti Sjálfstæðisflokksins. Happ-
drættið hefur gengið mjög vel, en
nú er svo komið, að sendlar þess
anna ekki lengur innheimtustarf-
inu. Það eru því tilmæli frá
skrifstofu happdrættisins, að
sendlar á vélhjólum, sem unnið
gætu hluta úr degi eða að kvöldi,
og vildu taka þátt í lokaátakinu,
hefðu samband við skrifstofuna —
sími 82900.
hennar frá 1957. Hún var meðal
stofnenda Húsmæðrafélags
Reykjavíkur og ávallt í stjórn þess
og formaður í 30 ár. í stjórn
Bandalags kvenna, Kvenfélaga-
sambands Islands, í sjálfstæðis-
kvennafélaginu Hvöt og í ýmsum
nefndum á vegum þeirra félaga og
gegndi trúnaðarstörfum í ýmsum
fleiri stofnunum og félögum.
JÓNÍNA Guðmundsdóttir lést í
fyrrinótt á heimili srnu, Sólvalla-
götu 45, 75( ára að aldri.
Jónína vann áratugum saman af
mikilli atorku að félagsstörfum
hér í borg, eða allt frá 1925. Hún
sat í bæjarstjórn Reykjavíkur eitt
kjörtímabil og var þá í fram-
færslunefnd. Og í barnaverndar-
nefnd samfleytt í 20 ár. í Mæðra-
styrksnefnd Reykjavíkur var
Jónína frá 1938 og formaður
Kosningapési
Framsóknar-
ekki Bláa
bókin
UM helgina var dreift um hluta
Reykjavíkur bæklingi, sem bar
heitið Borgin okkar og var
forsíða ritsins prýdd yfirlits-
mynd af Reykjavík og sló
bláum lit á forsíðuna. Margir
tóku að glugga í efni bæklings-
ins og héldu við fyrstu sýn að
hér væri á ferðinni Bláa bók
Sjálfstæðisflokksins. Við nán-
ari athugun kom hins vegar í
ljós, að hér var um kosninga-
pésa B-listans að ræða.
Skoðanakannanir síðdegisblaða:
Rúmlega 12% mun-
ur á niðurstöðum
VERULEGUR munur er á nið-
urstöðum skoðanakannana sem
Vísir og Dagblaðið birtu í gær
um úrslit borgarstjórnarkosn-
inga í Reykjavík. Vísir spurði
401 kjósanda, valinn af handa-
hófi en þess er þó gætt að
skipting þeirra sé í samræmi í
kynjaskiptingu og aldurs í
Reykjavík og Dagblaðið spurði
300 kjósendur valda úr símaskrá
af handahófi. Samkvæmt upp-
iýsingum sem Mbl. hefur aflað
sér þarf að spyrja nokkuð á
annað þúsund kjósendur sem
sérstaklega eru valdir til þess að
niðurstöður skoðanakönnunar
geti talizt marktæk við okkar
aðstæður.
I skoðanakönnunum Vísis og
Dagblaðsins munar allt að
12—13% á niðurstöðum. Af
þeini sem svöruðu Dagbiaðinu
ætiuðu tii dæmis 23% að kjósa
Alþýðubandalagið, en 10,6%
samkvæmt skoðanakönnun Vís-
is. Hjá Vísi hlaut Alþýðuflokkur
9,2% en 15% hjá Dagblaðinu.
Framsóknarflokkurinn fékk hjá
Vísi 4,3% en 10% hjá Dagblað-
inu. Samkvæmt skoðanakönnun
Dagblaðsins fékk Sjálfstæðis-
flokkurinn 52% en hjá Vísi
47,5%.
Undir fyrirsögninni: Takið
niðurstöðuna ekki bókstaflega
varar ritstjóri Dagblaðsins við
því að of mikið mark sé tekið á
skoðanakönnun Dagblaðsins. Og
í Vísi er bent á að „allar
kannanir séu eðli sínu sam-
kvæmt ónákvæmar" og enn-
fremur: „... Niðurstöður könn-
unarinnar eru ekki tæmandi og
litlar líkur eru á því að úrslit
kosninganna verði í fullu sam-
ræmi við þessar niðurstöður."
Innritun í heilsugæzlu-
stöðinni í Breiðholti
INNRITUN sjúklinga í heilsu-
gæzlustöðinni í Breiðholti hófst í
gær, en læknar stöðvarinnar munu
taka til starfa 1. júní n.k. Stöðin
á að þjóna Fella- og Hólahverfi í
Breiðholti III, en hún er til húsa
að Asparfelli 12. Fyrstu þrjá
dagana verða eingöngu skráðir
þeir íbúar hverfisins sem ekki
hafa heimilislækni. Kristján tók
þessa mynd i gær af innritun í
nýju heilsugæzlustöðinni.
Fóthrotn-
aði á báð-
um fótum
TUTTUGU og sex ára Stokkseyr-
ingur, Baldur Birgisson, Eyjaseli
7, fótbrotnaði á báðum fótum og
skaddaðist á hrygg og hálsi er
hann varð fyrir bíl á móts við
húsið Tjarnarlund á Stokkseyri
um sexleytið á sunnudagsmoreun.
Baldur var fluttur í
Borgarspítalans og
upplýsingum, sem Mbl.
gærkvöldi á legudeild slysadeilda
var líðan Baldurs sögð „þolanle
en ekkert meir“.
Að sögn lögreglunnar á Selfoss
var í gærkvöldi ekki fullljóst me
hverjum hætti slysið varð, ei
grunur leikur á að um ölvun’haí
verið að ræða.