Morgunblaðið - 23.05.1978, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 1978
3
Dagskrá Listahátíðar fullmót-
uð og veigameiri en oft áður
Hljómleikar, leiksýningar og myndlistarsýn-
ingarhvemdag í hálfan mánuð frá 3. júní
FRAMKVÆMDASTJORN
Listahátíðar 1978 boðaði blaða-
menn á fund í gær, mánudag, og
greindi frá dagskrá hátíðarinn-
ar sem liggur nú fyrir í öllum
atriðum. Hátíðin hefst hinn 3.
júní og stendur til og með 16.
júní. Meðal þess sem á boðstól-
um verður má nefna sellóleik
Mstlislav Rostropovich með Sin-
fóníuhijómsveit íslands í Laug-
ardalshöll 6. júní; þremur dög-
um síðar verða Itzhak Perlman
og Lynn Harell einleikarar með
hljómsveitinni og í bæði skiptin
stjórnar Vladimir Ashkenazy
leik hennar.
Þá er vert að geta um þriðju
meiriháttar tónleika Sinfóníi-
hljómsveitarinnar sem verða
hinn 15. júní og syngur þá hin
fræga „hetjusópranakona og
valkyrja" eins og Kristinn
Hallsson orðaði það Birgit
Nilsson undir stjórn Gabriels
Chmura.
Formaður Listahátíðar Davíð
Oddsson sagði að reynt hefði
verið að gera hátíðina sem
fjölbreytilegasta úr garði þann-
ig að allir fengju eitthvað við
sitt hæfi. Fram kom að þarna
væru bæði stórstjörnur erlendar
og einnig boðið upp á það sem
bezt gerðist af því sem íslenzkir
listamenn hefðu fram að færa.
Davíð sagðist álíta að þessi
listahátíð væri einna viðamest
slíkra hátíða ef undanskilið
væri árið 1974, þjóðhátíðarárið.
Listahátíðarnefndarmenn töldu
að þáttur tónlistar væri allmik-
111 í hátíðinni, og kannski stærri
en áður, en hins bæri að geta að
ákaflega stórt svið væri spannað
í tónlistinni á þessari hátíð, þar
væri þjóðlagaflutningur hinna
frægu snillinga „Dubliners",
poptónleikar „Smokie", kamm-
ermúsík, norrænt barnakóra-
mót, auk þess sem áðúr var
minnzt á og er þó ekki allt talið.
Listahátíð fer fram á allmörg-
um stöðum. I norræna húsinu
verða listsýningar - frá 3. júní
eftir Helle Vibeke Erichsen og
Seppo Mattinen og eins og áður
hefur komið fram verður
Erro-sýning á Kjarvalsstöðum.
Þá verður sýning á verkum
Kristjáns Davíðssonar í
FIM-salnum á Laugarnesvegi
112 og í Listasafni íslands
verður sýningin Amerískar
teikningar 1927 — 1977. í
bogasalnum verður sýning á
frönskum myndvefnaði og lista-
verkum og í bókasafni Norræna
hússins mun Vigdís Kristjáns-
dóttir sýna „íslenzkar jurtir og
blóm“.
Opnun hátíðarinnar verður á
Kjarvalsstöðum hinn 3. júní og
mun þá borgarstjóri, Birgir ísl.
Gunnarsson, setja hátíðina,
Lúðrasveit Reykjavíkur leikur
og Jóhann G. Jóhannsson flytur
Ragtime á píanó. Þann sama
dag verður í Laugardalshöll
einn af meiriháttar tónlistarvið-
a Listahátíð í Reykjavík
3.-16. júní 1978
Auglýsingaveggspjald Listahátíðar 1978, unnið af
Friðriku og Leifi.
burðum hátíðarinnar, þ.e. Oscar
Petersen með tríó sitt en í því
eru Joe Pass og Niels Henning
Örsted.
Framlag Þjóðleikhússins til
Listahátíðar er sem kunnugt er
síðasta verk Jökuls Jakobssonar
„Sonur skóarans og dóttir bak-
arans" og verður forsýning þess
hinn 13. júní. Leikstjóri er Helgi
Skúlason og leikmynd gerir
Magnús Tómasson. Leikarar eru
milli tuttugu og þrjátíu talsins
og er verkið sagt viðamesta verk
sem Jökull samdi. Þá má geta
þess að í Þjóðleikhúsinu mun
Islenzki dansflokkurinn - og
hljóðfæraleikarar flytja ballett
tvisvar á listahátíð 4. og 5. júní.
Auk þess kemur flokkur Freies
Theater í Múnchen, tíu, tuttugu
manns og flytur væntanlega
útileiksýningu, sem leikin er á
stultum. Verða þær sýningar
auglýstar með tilliti til veður-
fars að sögn forsvarsmanna
Listahátíðar. Leikflokkur þessi
er mjög kunnur og hefur farið
víða um lö d, hann flytur
aðallega látragðsleik með tón-
list að undirspili.
Meðal þess sem enn er óupp-
talið er að í Háskólabíó verða
tónleikar 14. júní þar sem hin
fræga ljóðasöngkona Elizabeth
Söderström syngur við undirleik
Ashkenazys, og 16. júní eru þar
píanóhljómleikar France Clidat.
Ógetið er og um tónlistarflutn-
ing þeirra Halldórs Haraldsson-
ar og Gísla Magnússonar í
Þjóðleikhúsinu hinn 4. júní og í
Norræna húsinu koma fram
Strokkvartett Kaupmannahafn-
ar og Grieg duo með nokkra
hljómleika. Kammersveit
Reykjavíkur verður með hljóm-
leika í Iðnó 11. júní og daginn
eftir verða flaututónleikar
Manuelu Wiesler og Julian
Dawson-Lyell í Iðnó.
Gerð verður grein fyrir dag-
skrá hátíðarinnar frá degi til
dags mjög bráðlega til að gefa
fólki heildarmynd af hátíðinni.
Brýnt að hraða uppbyggingu
þjónustustofnana í Breiðholtí
— segir Magnús L. Sveinsson
Á vegum Reykjavíkurborgar
hefur verið unnið að margvís-
legum framkvæmdum í Breið-
holtshverfum og framundan
eru ýmis verkefni á sviði
þjónustu við borgarbúa. Mbl.
ræddi við Magnús L. Sveinsson,
horgarfulltrúa, sem er búsettur
í Breiðholtshverfi og hefur
látið málefni hverfa mjög til
sín taka, og bað hann að greina
frá því helzta sem væri á
döfinni í Breiðholtshverfunumt
— Brýnustu verkefnin eru að
mínu áliti uppbygging skólahús-
næðis, dagvistunarstofnana,
heilsugæzlustöðvar í Mjóddinni,
menningarmiðstöðvar, einnig i
Mjóddinni er hýsa skal m.a.
bókasafn og uppbygging íþrótta-
svæða og ekki sízt bættar
samgöngur við hverfin m.a. með
byggingu brúar yfir Elliðaárdal-
inn.
Magnús lýsti nánar hverjum
þætti fyrir sig og sagði að unnið
hefði verið að sumum þessara
þátta að undanförnu, hluti af
þjónustustofnunum væri kom-
inn nú þegar, en margt væri enn
ógert og brýnt að sinna.
— Mikið átak hefur verið gert
í skólamálum, sagði Magnús, en
nú er knýjandi að flýta bygg-
ingu annars áfanga Hóla-
brekkuskóla og skóla í Selja-
hverfi þar sem nú þegar búa
nokkur þúsund manns. Þá þarf
að hraða byggingu dagvistunar-
stofnana en það er sérlega brýnt
þar sem svo barnmargt er í
Magnús L. Sveinsson.
Breiðholtshverfum, en að því
hefur verið unnið og eru í
sjónmáli á þessu ári lok barna-
heimilis við Suðurhóla. Þá var
verið að samþykkja tilboð í
byggingu skóladagheimilis við
Völvufell.
Um heilsugæzlustöðina sagði
Magnús, að í Mjóddinni væri
ráðgert að reisa hana og lögð
hefði verið áherzla á að fá hana
inná fjárlög og var veitt til
hennar þremur milljónum á
þessu ári. — Það er ekki heimilt
að hefja byggingu heilsugæzlu-
stöðvar fyrr en samþykkt hefur
verið fjárveiting á fjárlögum, en
nú hefur verið gefið grænt ljós
og hönnun er hafin. Þessi
heilsugæzlustöð í Mjóddinni á
að þjóna þeim 12 þúsund íbúum
sem nú eru í Breiðholti I og II,
en með þennan íbúafjölda er
nauðsynlegt að stutt sé að ná til
lækna. Um þessar mundir er að
taka til starfa heilsugæzlustöð í
Breiðholti III, en þar var tekið
á leigu húsnæði til að flýta því
að hún tæki til starfa.
— Nú er unnið að skipulagi
íþróttasvæðis í syðri Mjóddinni
þar sem vera á stórt og mikið
íþróttasvæði. Gert er ráð fyrir
að ÍR njóti þar aðstöðu og hefur
félagið verið með í ráðum
varðandi skipulagningu.
íþróttafélagið Leiknir hefur
nokkra aðstöðu á íþróttavellin-
um á skólasvæðinu í Breiðholti
III, en þar vantar þó búningsað-
stöðu og væri æskilegast að fá
hana um leið og útisundlaug
sem þar er í byggingu kemst í
gagnið.
— Eg geri mér vonir um að
bygging brúar yfir Elliðaárdal-
inn geti hafist á næsta ári, sagði
Magnús L. Sveinsson, nú er ekki
nema ein leið inní hverfið og
með þessari tengingu kemst á
betra samband við slökkvibíla
sem nú eru staðsettir í Árbæjar-
hverfi.
Menningarmiðstöðina sem
minnst var á sagði Magnús
tilkomna vegna þess, að Fram-
kvæmdanefnd byggingaáætlun-
ar hefði átt nokkurt fé afgangs
að loknum síðustu framkvæmd-
um sínum og hefði nefndin
ákveðið að verja þvi til bygging-
ar menningarmiðstöðvar er
Reykjavíkurborg myndi ljúka og
reka síðan. I henni er ráðgert að
hafa bókasafn, sýningarsal,
samkomusal or bíósal og hægt
yrði að veita öldruðum þar ýmsa
þjónustu,
— Að öllum þessum fram-
kvændum er nú unnið, þær
misjafnlega langt á veg komnar,
en fullur vilji borgarstjórnar er
til að hraða þeim eftir megni.
Breiðholtshverfin hafa byggst
upp af undraverðum hraða og er
það ekki sízt að þakka dugnaði
þeirra sem þar búa. Því er ekki
að neita að þótt brýnt sé að
koma til móts við fólk með
byggingu þjónustustofnana, þá
gerir verðbólgan erfitt fyrir um
framkvæmdahraða eins og fólk-
ið veit sjálft sem stendur í
byggingum, en ég minni á að
borgarstjórn gerir það sem hún
getur mögulega gert til að flýta
fyrir um hvaðeina er verða má
til bættrar þjónustu íbúa Breið-
holtshverfa, sagði Magnús L.
Sveinsson að lokum.
Úr Breiðholti IIL Séð norður eftir Vesturbergi.