Morgunblaðið - 23.05.1978, Page 10

Morgunblaðið - 23.05.1978, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 1978 Prýðisgóð ferð með ilegu fðlki — sögðu aldraðir Reykvíkingar um sólarlanda- ferð sína Farþegar stíí?a frá borði eftir sólarlandaferð. Fremst er sr. Jón Þorvarðarson og frú. Beðið eftir töskunum. hótel fyrir okkur og veðrið var að mestu ágætt, örlítið vinda- samt, en um það er ekki við aðra að sakast en forsjónina. — Mér finnst ágætt að geta verið um kyrrt á sama stað, sagði Elías, ég er nú orðinn gamall maður og þykir ágætt að liggja í sól og sumri í rólegheit- um á sama stað. Geirþrúður Hildur Bernhöft, ellimálafulltrúi, var einn af fararstjórum og sagði hún að farnar hefðu verið svona ferðir áður, ein s.l. haust og önnur nú fyrr á þessu ári. Væru þær sem fyrr segir einkum ætlaðar elli- lífeyrisþegum, þ.e. fólki 67 ára og eldra og nægði að annað hjóna hefði náð þeim aldri. Næsta ferð hefði verið ákveðin og yrði hún farin einhvern tíma í haust. Sagði hún að samið hefði verið við ferðaskrifstofuna Úrval og hefði verið hægt að bjóða uppá mjög ódýra ferð fyrir gamla fólkið. Aðrir farar- stjórar voru Anna Þrúður Þorkelsdóttir, Lára Sigur- björnsdóttir og Björg Helga- dóttir og væri séð fyrir öllu fyrir fólkið, fararstjórn, hjúkrunar- aðstoð ef með þyrfti o.þ.h. Að lokum var spjallað við þau Georg Vilhjálmsson og Guð- björgu Meyvantsdóttur: — Þetta var alveg dásamlegt, og ekki hægt að hafa það betra, sögðu þau, við nutum veðurs, sólar og sjávar á ströndinni og höfðum það svo gott að við erum ákveðin í að fara svona ferð einhvern tíma aftur. Við höfðum aldrei farið til sólarlanda fyrr og var þetta því skemmtilegt að reyna. Við viljum fá að koma á framfæri þakklæti til þeirra sem skipulögðu ferðina og sáu um framkvæmd hennar, það var í ROKI OG rigningu á fimmtudagskvöldið komu hingað til lands allmargir ferðalangar frá Mallorka. Var þetta 82 manna hópur eldri borgarbúa í Reykjavík, sem hefur dvalið ytra í nokkrar vikur sér til hvfldar og hressingar. Mbl. tók nokkra farþeganna tali meðan beðið var teftir farangrinum og spurði þá hvernig þeim hefði þótt ferðin« — Mér líkaði mjög yel í ferðinni, sagði Arnbjörg Árna- dóttir, við erum búin að vera í þrjár vikur á Mallorka núna og var ferðin í heild alveg ágæt. En hvernig er þá að koma heim í rokið og rigninguan? — Það er alltaf gott að koma í hreina loftið hér heima og mér finnst ekkert of kalt eða of mikið rok. Þetta eru nokkur viðbrigði en það er allt í lagi samt sem áður. Hefurðu verið áður í ferð sem þessari? Já, ég fór út síðasta haust og þá vorum við einnig í nokkrar vikur í mjóg góðri ferð. Elísabet Helgadóttir varð næst fyrir svörum: — Þetta var eins dásamleg ferð og hugsazt getur, farar- stjórar og hjúkrunarkonan prýði-sgott fóik. Við fórum margar ferðir til ýmissa staða þarna í.kring og var þetta því mjög skemmtileg ferð í alla staði. Dýrfinna Tómasdóttir var einnig afskaplega ánægð: — Við förum áreiðanlega aft- ur í svona ferð. Þessar ferðir hafa verið farnar nokkrum sinnum áður, þær eru ætlaðar ellilífeyrisþegum og reynt er að gera þær eins ódýrar og hægt er fyrir okkur. Þær stöllur voru einnig spurð- ar hvort þær hefðu viljað vera lengur ytra. — Það er alltaf gott að koma heim, því þótt ferðin hafi í alla staði verið hin bezta er þó alltaf bezt heima. Var einhver sérstök dagskrá annað en skoðunarferðir? — Það var ýmislegt gert á kvöldin, sögðu Dýrfinna og Elísabet, haldnar voru kvöld- vökur og skemmtanir og messað var á hvítasunnu en með í ferðinni var sr. Jón Þorvarðar- son. Yfirleitt var allt gert fyrir okkur sem hægt var að gera til að dvölin yrði sem ánægjuleg- ust. Elías Halldórsson var einn hinna ánægðu farþega, hann Arnbjörg Árnadóttir Elías Halldórsson. Georg Vilhjálmsson og Guðbjörg Meyvantsdóttir. —* Elísabct Halldórsdóttir (t.v.) og Dýrfinna Tómasdóttir. sagðist reyndar vera með hellu fyrir eyrum eftir flugið, en hún færi sjálfsagt fljótlega: — Allt fólkið hér er hvert öðru ánægðara, fararstjórn öll og umhyggja fyrir okkur farþeg- um var með ágætum og tel ég að vel hafi tekizt til með að velja fyrir öllu séð, allt greitt hér heima, fæði, gisting og allt, þanníg að við þurftum engar áhyggjur að hafa af neinu slíku.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.