Morgunblaðið - 23.05.1978, Page 11
MQRGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 1978
11
Páll V. Daníelsson
skrifar:
81
metri
áári
I síðustu grein lýsti ég nokkuð
fjárhagslegum viðskilnaði meiri-
hluta Alþýðuflokks og Alþýðu-
bandalags árið 1962. E.t.v. finnst
fólki ekki ástæða til þess að rifja
þessi mál upp nú 16 árum síðar.
En það er einfaldlega gert bæði
vegna okkar, sem til þekkjum svo
og þeirra, sem ekki þekkja til af
eigin raun en verða eigi að síður
að þekkja söguna til þess að koma
í veg fyrir að byggðarlagið brenni
sig á sama soðinu á meðan vítin
sem varast þarf eru enn í fersku
minni núlifandi fólks.
Ég bendi í fyrstu á að síðasta
kjörtímabil Alþýðuflokks og Al-
þýðubandalags var aðeins úthlut-
að lóðum undir 218 íbúðir, en þrátt
fyrir það að ekkert svæði var
tilbúið til lóðaúthlutunar 1962
tókst að úthluta lóðum undir 451
íbúð árin 1962—1966 og 36 iðnað-
arlóðum á móti 11 kjörtímabilið
1958-62.
Ef við tökum gatnagerðarmálin,
þá stóðu þau þannig að í byrjun
kjörtímabils 1962 hafði varanlegt
slitlag verið sett á 1620 metra alls.
Allar aðrar götur voru óundir-
byggðar malargötur. Byrjað var að
setja varanlegt slitlag á götur 1942
svo að þessir 1620 metrar voru 20
ára afrek Alþýðuflokks og Alþýðu-
bandalags eða 81 metri að meðal-
tali á ári. En á kjörtímabilinu
1962—1966 tókst þrátt fyrir fjár-
hagsstöðuna að setja varanlegt
slitlag á 2.2 km. Auk þess var
ráðist í að kaupa upp húseignir við
Reykjavíkurveginn og Lækjargöt-
una til þess að opna þær sam-
gönguæðar og Fjarðargatan var
lögð. í skólamálum var ástandið
þannig að á árunum 1950 til loka
kjörtímabils 1962 eða á 12 árum
höfðu verið byggðar 4 kennslustof-
ur eða sem svara ein á hverjum
þremur árum en á kjörtímabilinú
1962—1966 voru byggðar 12
kennslustofur. Jafnframt þessu
var miklu meira gert í íþrótta-,
félags- og menningarmálum en
áður.
Þá var samið um byggingu
Álversins í Straumsvík og tekjur
af því fyrirtæki og svo'það sem er
e.t.v. mest um vert að höfnin í
Straumsvík verður eign bæjarins á
25 árum án þess að hann leggi
nokkurt fé til byggingar hennar og
að þeim tíma liðnum þarf Álverið
að fara að greiða fyrir afnot
hafnarinnar samkvæmt samningi,
sem gerður var miðað við gengi
dollars.
Hér er aðeins fátt eitt talið en
það sýnir svo að ekki verður um
villst að forysta sjálfstæðismanna
í bæjarmálum hefur orðið til þess
að brjóta blað í framfarasögu
bæjarins. En svo skulum við gera
okkur ljóst að tímabil stöðnunar
og hnignunar getur aftur haldið
innreið sína í Hafnarfjörð nái
vinstri öflin tökum á málefnum
bæjarins á ný. Þetta þurfum við
hvert og eitt að hafa í huga, læra
af reynslu liðinna áratuga og haga
okkur samkvæmt því, sem sannast
hefur reynst og þá tekst okkur að
tryggja áfram trausta forystu
sjálfstæðismanna í málefnum
kaupstaðarins. Þannig mun okkur
bezt vegna. X-D.
Páll V. Daníelsson
Fáir vilja læra bakara-
iðn vegna lélegra launa
NORRÆNT hakaraþing var hald-
ið að Hótel Sögu dagana 26.-27.
apríl s.1. Þingið sóttu fulltrúar
frá landssamtökum hakarameist-
ara í Noregi. Finnlandi. Dan-
mörku. Svíjóð og íslandi. segir í
frétt frá Landssamhandi bakara-
meistara.
Formaður Landssamhands bak-
arameistara á íslandi. Kristinn
Albertsson. setti þingið. en til
umræðu voru ýmis sameiginleg
hagsmunamál bakarameistara á
Norðurlöndum. Var m.a. fjallað
um mikilvægi þess að upplýsa
almenning um hollustu brauða og
einnig hversu ódýr fæða þau
væru. segir cnnfremur.
Þá kom það fram hjá fulltrúa
Svía að þeir hafa fengið heilbrigð-
isyfirvöld þar í landi til liðs við sig
í þessu skyni. Einnig var rætt um
hvernig mætti laða ungt fólk að
bakaraiðninni en fram kom að
aðalástæðan fyrir því hversu fáir
læra bakaraiðn, væri hversu
óheppilegur vinnutíminn væri og
launin lág miðað viö það sem
gerðist í öðrum iðngreinum.
Á þinginu var ákveðið að stofna
samnorræna nefnd, sem hafi það
verkefni að koma með tillögur um
sameiginlega auglýsingastarfsemi
bakarameistara á Norðurlöndum.
í tengslum við þingið kom
hingað til lands um 120 manna
hópur bakarameistara og makar
þeirra til að kynnast landi og þjóð.
Voru skipulagðar í því sambandi
hópferðir um nágrenni Reykjavík-
ur og til Vestmannaeyja.
Að lokum var ákveðið að halda
næsta þing bakarameistara á
Norðurlöndum í Finnlandi vorið
1980.
FASTEIGN ER FRAMTÍO
2-88-88
Til sölu m.a.
Við Grettisgötu 4ra herb.
íbúðir
Viö Æsufell 4ra herb. íbúð.
Við Ýrabakka 4ra herb. íbúð.
Viö Ljósheima 4ra herb. íbúö.
Við Bragagötu 3ja herb. íbúö.
Við Skipasund 2ja herb. íbúö.
Við Ægissíðu hæö og ris.
Við Skipholt skrifstofu og
iönaöarhúsnæöi.
Á Álftanesi
Fokhelt einbýlishús.
í Hafnarfirði
Einbýlishús í gamla bænum.
í Mosfellssveit
Einbýlishús.
Góö fjárjörð
á Austurlandi.
Sumarbústaðir
í Miöfellslandi og Haganesvík.
Erum með fasteignir víða um
land á söluskrá.
Vantar fasteignir af ýmsum
stærðum og gerðum til sölu-
meðferðar.
AOALFASTEIGNASALAN
Vesturgötu 17, 3. hæð,
Birgir Ásgeirsson. lögm.
Karaldur Gislason,
heimas. 51119.
Hverfisskrif-
stofa sjálf-
stæðismanna
í Háaleiti
heimsótt
„YFIRLEITT er mjög mikið
um að vera hér á skrifstofunni
og starf á svona kosningaskrif-
stofu er bæði fjörugt og mikil
tilbreyting í þvr sagði María
Arnar starfsmaður á hverfis-
skrifstofu sjáffstæðismanna
fyrir Háaleitishverfi í Valhöli,
er Mbl. ræddi við hana fyrir
stuttu.
„Við erum mætt hér á daginn
klukkan tvö og höfum opið til
klukkan 10 á kvöldin alla daga
vikunnar og á þeim tíma er fólki
frjálst að koma og leita upplýs-
inga hjá okkur um hin mörgu
málefni kosninganna. Aðalstarf
okkar er annars að hafa sam-
María Arnar
Hins vegar væri almenningur
ekki enn farinn að nýta sér
upplýsingaþjónustuna varðandi
kosningarnar. Það kæmi hins
vegar þegar nær drægi kjördegi,
það hefði verið venjan í undan-
förnum kosningum. Væri jafnan
mikið um að fólk kæmi í
upplýsingaleit síðustu dagana
fyrir kosningar og þá ekki sízt
á kjördaginn sjálfan.
Sá háttur sem hafður hefur
verið á, að borgarfulltrúar hafi
viðtalstíma fyrir íbúa hverfis-
ins, hefur gefist mjög vel að
sögn Maríu.
Þá ræddi Mbl. stuttlega við
Guðna Jónsson, formann
hverfisfélags sjálfstæðismanna
í Háaleitishverfi, um starf
skrifstofunnar og félagið al-
mennt. — Guðni sagði eins og
María að aðalverkefni skrifstof-
unnar væri að virkja félaga og
stuðningsmenn fyrir kosning-
arnar. — „Betri undirbúningur
og skipulag, gerir allt auðveld-
ara á kjördag."
Um félagið sjálft sagði Guðni
að starfsemi þess hefði verið
„Mikil tilbreyting
og fjörugt starf”
band við hina svokölluðu um-
dæmisfulltrúa félagsins. Félag-
inu er skipt niður í mörg
umdæmi með umdæmisstjórum
sem síðan hafa samband við
einstaka félags- og stuðnings-
menn til að reyna að fá þá til
starfa við kosningarnar. Einnig
er lögð áherzla á að minna fólk,
sem ekki verður í bænum á
kjördag, á að kjósa í utankjör-
staðaratkvæðagreiðslunni.
María kvað starfsemi skrif-
stofunnar ganga nokkuð vel og
þakkaði það m.a. því hversu
hverfið væri löngu byggt, þann-
ig að fremur lítið væri um
flutninga fólks til og frá, eins og
í hinum nýju hverfum borgar-
innar.
Ennfremur kom fram hjá
Maríu að algengt væri að
félagsmenn kæmu á skrifstof-
una til að sýna sig og sjá aðra.
með ágætum í vetur, stjórn
félagsins væri mjög samhent og
hefði verið nær sama fólkið í
henni frá stofnun félagsins fyrir
fimm árum.
Að síðustu sagði Guðni Jóns-
son það skoðun sína, að starf-
semi hverfafélaganna hefði átt
ríkari þátt í hinum mikla og
góða sigri sjálfstæðismanna við
síðustu borgarstjórnarkosning-
ar 1974.
RAFRITVÉLIN MONICA
Þetta er nýja rafdrifna ritvélin frá Olympia sem sökum nýrrar
tækni er nú fáanleg ótrúlega fyrirferðalítil, ódýr og í þremur
mismunandi litum.
Hálft stafabil, 44 lyklar, 3 blek-
bandsstillingar o.fl.
sem áðeins er á stærri
gerðum ritvéla.
Fullkomin viógerða-
og varahlutaþjónusta.
o
Ofympia
Intemationai
m&immjm KJARAIM HF
skrifstofuvélar & verkstæöi — Tryggvagötu 8, sími 24140
Starfsmannafélög—einkaaöilar
Þetta sumarhús er til sölu
3 svefnherbergi, salerni, eldhús og stofa. Húsgögn, dínur, eldavél,
vatnshitari o.fl. fylgir. 220 v. raflögn er í húsinu.
Nánari upplýsingar í síma 52257 eftir kl. 7 á kvöldin.