Morgunblaðið - 23.05.1978, Side 12

Morgunblaðið - 23.05.1978, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 1978 Hann Sigurjón á heima í þessu húsi, sagði telpan, sem ég spurði til vegar á Engjaselinu á fimmtudagskvöld. Og sem ég horfi eftir fingri hennar til hússins, leit hún á mig og sagði: „Þú ert ekki í sjónvarpinu." Svo bætti hún við. „En það er ekkert sjónvarp í kvöld svo kannski er Sigurjón heima." „Því er ekki að leyna, að fljótlega eftir að ég fór að lesa fréttirnar í sjónvarpinu, varð ég var við það á götu að andlitið sagði til sín. Það voru ef til vill mest krakkar, sem stöldruðu við og sögðu: Þarna er fréttakarlinn. En einnig varð ég þess greinilega var, að fólk, sem ég var viss um að þekkti mig ekki, heilsaði mér. Þetta hefur aldrei farið í taugarnar á mér. Ég kinka bara kolli á móti og held svo mínu striki," segir Sigurjón Á. Fjeldsted, þegar starf hans hjá sjónvarpinu ber á góma í samtali okkar. Og hann verð’ir ekkert uppnæmur yfir spurningu minni um það, hvaða þátt þetta starf eigi í því að hann skipar nú 9. sætið á borgarstjórnarlista Sjálfstæðisflokksins. „Þetta framboð mitt til prófkjörsins kom nú nokkuð snöggt," segir hann. „Það var nákvæmlega hálfum mánuði fyrir prófkjör- ið, að ég var að vinna hér upp undir þakinu á húsinu mínu, þegar konan kallaði á mig í símann. Þar var þá Gunnar Helgason og sagðist hafa verið á fundi í kjörnefnd Sjálfstæðisflokksins og erindið væri að óska eftir því að ég gæfi kost á mér í prófkjör flokksins til borgarstjórnarkosninga. Og hann bað einfaldlega um já eða nei. Ég var nú satt að segja þá ekkert búinn að hugsa mér til hreyfings með svo virka •þátttöku í stjórnmálum svo ég hummaði það fram af mér að svara þarna á stundinni. Ég ræddi svo málið við konu mína og þegar Gunnar hringdi aftur síðar um daginn sagði ég já. Auðvitað vaknaði með mér sú spurning, hvers vegna hringt væri í mig öðrum fremur. Og ég fer ekki í neinar grafgötur með það, að sjónvarpið hefur átt einhvern þátt í því. Það er ótvíræður kostur fyrir fóik, sem tekur þátt í prófkjöri að það sé þekkt á einhverjum vettvangi, nafnið, andlitið, nú eða röddin. En hins vegar hef ég ekki trú á því að þetta geri útslagið. Þessi atriði hjálpa alltaf en það er einstaklingur- inn sjálfur, verk hans og vilji, sem skera úr um það, hvort menn ná árangri á einhverju sviði. Og þá jafnt í stjórnmálum sem öðru.“ — Hefur sú gagnrýni á prófkjörin, að þau fæli frá hæfa menn og skili, ja, hvað eigum við að segja, öðrum lakari til starfa í stjórnmálum, haft áhrif á þig? „Mér vinnst ekki að nokkur maður geti ætlað sér einhvern sérstakan rétt til áhrifa, hvorki í stjórnmálum né öðru. Slíkur réttur fæst ekki öðru vísi en með vinnu. Sumir vinna sér þennan rétt á stjórnmálasviðinu með löngu og farsælu starfi innan flokka. Aðrir ávinna sér traust á einhverjum öðrum vettvangi og njóta þess, þegar þeir gefa kost á sér til þátttöku í stjórnmálum. Og prófkjör finnst mér mun lýðræðislegri leið en val fámennrar nefndar. Ég held, að svo framarlega sem kjósandinn hafi úr nógu að velja, þá sé prófkjörið í sjálfu sér engin hætta fyrir stjórnmálin, heldur þvert á móti. Hitt er svo aftur annað mál, hvort undirbúningurinn fyrir prófkjörið sjálft getur farið út á hættulegar brautir. Það er ef til vili mál, sem við þrufum að velta fyrir okkur." — En hvers vegna sagðir þú já? „Hugur minn hefur alltaf staðið til þess að hafa áhrif á gang mála umhverfis mig. Allir höfðum við okkar skoðanir á hlutunum og mér finnst bara eðlilegt að menn sitji ekki af sér tækifæri sem bjóðast til að koma þeim á framfæri, að ég nú ekki tala um í framkvæmd." — Hvernig varð þér við úrslit prófkjörs- ins? „Hvað sjálfan mig varðar komu þau mér svo sannarlega á óvart. En auðvitað hafði ég vonað að mér gengi vel fyrst ég á annað borð tók þátt í prófkjörinu. Við höfðum svona rætt um það hjónin að 15. sætið væri ekki ýkja fjarlægur draumur, en satt að segja fékk ég augastað á því tólfta, þegar ég fann viðbrögðin við framboði mínu. Ég hafði að vísu ekki mikínn tíma til að sinna framboðinu. En ég hafði það af að láta gera kynningarspjald á því og dreifa því og mér telst til að ég haft eytt urn 10.000 krónum vegna framboðsins. Hitt er svo aftur að sjálfur setti ég meira traust á starfsferil minn að kennslumálum og jafnvel einnig á lítifjörleg afskipti mín af stjórnmálum til að afla mér fylgis heldur en framkomu mína í sjónvarpinu." — Og þá erum við komnir að Sigurjóni Á. Fjeldsted skólastjóra. „Þú hefur nú svo sem verið að tala við þann mann!“ — Úrslit prófkjörsins hafa engu breytt þar um? „Ég held ekki. Ég hef ekki orðið þess var að fólk liti mig öðrum augum eftir en áður. Alls ekki í skólanum að minnsta kosti. Eina breytingin sem ég merki er að það er óneitanlega anzi mikið að gera þessa dagana. Satt að segja hefur það komið mér á óvart í hversu mörg horn frambjóðendur þurfa að líta.“ — Fannst þér sjálfum gaman í skóla? „Já. Það var gaman í skóla. Það er ekki þar með sagt að námið sjálft hafi verið'svo skemmtilegt. Mér er ofar í huga núna félagsskapurinn og samheldnin sem ríkti í mínum bekk. Mér er næst að haida að annar eins bekkur og 12 ára E hafi hvorki fyrr né síðar verið í Melaskólanum. Við vorum kölluð Ægissíðuklíkan." — Sem gerði hvað sér til ágætis? „Við stofnuðum íþróttafélag og leikfélag, og höfðum leiksýningar á heimilunum. Ég man meira að segja, að einu sinni sýndum við leikgerð að Gullna hliðinu, sem Þorsteinn Gylfason gerði. Og svo vorum við með tombólur og bíó, allt til ágóða fyrir kanttspyrnufélagið okkar, Völsung. Við stofnuðum líka menningarsamtök íslenzrar æsku, sém hafði að aðalbaráttumáli „Hand- ritin heim“. Við söfnuðum undirskriftum í bók og afhentum danska sendiherranum. Síðan lá leiðin í gagnfræðaskólann við Hringbraut, sem var í Jóns Loftssonarhús- inu. Og alltaf stóð Ægissíðuklíkan saman. Við fórum flest í landspróf og þaðan lá leiðin í M.R. En svo uppgötvaði ég allt í einu Rætt við Sigurjón Á. Fjeldsted sem skipar 9. sætið á lista Sjálfstæðis- flokksins við borgar- stjórnar- kosningarnar aiiri líður" að mig langaði ekkert til að vera i menntaskóla. Og jafnskyndilega uppgötvaði ég að mig langaði til að verða kennari. Ég get ekki nefnt neitt sérstakt sem ástæðu fyrir þessum sinnaskiptum. Þetta bara var svona og eftir jólaprófin í MR hætti ég og fór í kennaraskólann. Eftir því hef ég aldrei séð og þegar Freysteinn Gunnarsson, skólastjóri, lét mig velja milli skólans og trommanna, þá var ekkert hik á mér við að sjá mína framtíð í kennslu fremur en trommuslætti." — Segðu mér eitthvað af hljómsveitar- ferli þínum? „ Þetta byrjaði allt saman á því að ég var í sveit hjá frændum minum á Snæfellsnesi, þeim Sigvalda og Lárusi Fjeldsted að Haukatungu í Kolbeinsstaðahreppi. Annar spilaði á hamóniku og hinn á trommur og þeir voru aðalbandiö í sveitinni. Ég fékk svo að taka í hljóðfærin hjá þeim og svo hélt þetta fikt áfram í gagnfræðaskólanum við Hringbraut, þar til að við vorum allt í einu orðnir að hljómsveit og lékum á skólaböll- um. Og þá var Berti Möller með. Svo varð hljómsveitin Falcon og þegar Berti Möller kom aftur, þá hétum við hljómsveit Berta Möller og vorum stærsti sextett á landinu, því við vorum sjö talsins. Það var heilmikið að gera i spilamennskunni og einn góðan veðurdag kom Freysteinn Gunnarsson skólastjóri að máli við mig og sagði að nú gengi þetta ekki lengur, ég yrði að velja í milli skólans og hljómsveitarinn- ar. Þetta urðu engin átök. Freysteinn kom fram af sinni elsku og rólegheitum í þessu máli sem öðru og eins og alltaf kom hann vitinu fyrir aðra. Ég hafði aldrei orðið þess var að hann fylgdist nokkuð með þessari spilamennsku minni, en sennilega hefur hann fundið að ég var í daufara lagi í tímum morgnana eftir böllin“. — Hvað gerðir þú á sumrin með kennsl- unni? „Það var nú ýmislegt. Eitt sumar var ég þjónn og annaö hótelstjóri og það á ekki ómerkari stað en Valhöll." — Hvenær var það? „Það voru sumurin 1964 og 65. Kunningja minum bauðst þjónsstarfið fyrra sumarið, en gat ekki sinnt því og benti mér á möguleikann. Ég dreif mig í viðtal og fékk starfið. Ég man ennþá eftir fyrstu veizlunni. Ég hafði þá aldrei borið mig til við framreiðslu, en fékk skynditilsögn í faginu og var svo ýtt inn í sal með bakkann og sagt að skammta bara hóflega á diskana. Mikið ósköp fannst mér borðið langt og diskarnir margir. En þetta gekk slysalaust og ég kunni vel við mig sem þjónn og sem hótelstjóri síðara sumarið. Ég kynntist vel fólki í gegnum þessi störf, ekki persónulega heldur ýmsum viðbrögðum þess. Það var góður lærdómur. Og svo kom Filipus prins þarna einn morguninn og drakk te hjá okkur!" — Þú minntist áðan á „lítilfjörleg afskipti þín af stjórnmálum". Varðstu snemma pólitískur? „Það var heilmikil pólitík í gagnfræða- skólanum við Hringbraut. Líka í Kennara- skólanum. Og ég var í Heimdalli í gamla daga. En að skólapólitíkinni slepptri kom langt hlé hjá mér, þar til á Egilsstöðum. — Þar átti ég minn þátt í að endurlífga Sjálf- stæðisfélag Fljótsdalshéraðs. Þráinn Jóns- son hafði forystuna, en okkur fannst einfaldlega vera svo mikið af framsóknar- mönnum þarna að það yrði að hleypa fjöri í stjórnmálalífið!" — Hvað dreif ykkur hjónin suður aftur? „Þegar við vorum búin að vera á Egilsstöðum í 5 ár var ekki um annað að ræða en fara. Að öðrum kosti hefðum við sennilega setzt þarna að fyrir fullt og allt, en það var aldrei ætlunin. Ég varð svo yfirkennari Fellaskóla haustið 1972. Skólastjórinn, Arngrímur Jónsson, féll frá í ársbyrjun 1973. Sumarið eftir var gosið í Heimaey, en þá var Fellahellir miðstöð fyrir Vestmannaeyinga og í mörgu að snúast. Ég sótti svo um skólastjórastöðuna en fékk ekki, en þegar Hólabrekkuskóli var auglýstur reyndist ekki vera við neinn annan að glíma svo ég fékk skólastjórastöðuna þar! Við byrjuðum 1974, fengum stofur í Fellaskóla fyrir yngri börnin og í Réttar- holtsskóla fyrir eldri börnin. Það var geysimikil reynsla að vera skólalaus skólastjóri. Og það er ekki síður heillandi verkefni að byggja upp nýjan skóla frá grunni." Það er orðið áliðið kvölds, þegar Sigurjón fylgir mér að útidyrunum. Ég tek eftir því að hann gáir vísindalega til veðurs og spyr, hvort hann sé að meta einhverja pólitíska vinda. „Nei, nei. Við höfum það fyrir fastan sið nokkrir kunningjar að fara á skak einu sinni á ári, og nú á að fara, þegar gefur á góðan tíma. Því á skak fer ég, hvað sem allri pólitík líður." - fj- „Við kynntumst á Samvinnuskólaballi, þegar ég var I Kennaraskólanum og hún í Verzló“, sagði Sigurjón Á. Fjeldsted um fyrsta fund hans og konu hans, Ragnheiðar ó. Fjeldsted. Hún er fæddur ísfirðingur, en fiutti 7 ára til Reykjávíkur. Eftir Verzlunarskólann fór hún í Kennaraskólann og kennir nú í Hólabrekkuskóla hjá manni sínum. Þau eiga työ börni Ragnhildi, sem er 10 ára og Júlíus þriggja ára. Ljósm.: Þórir h. óskarsson /

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.