Morgunblaðið - 23.05.1978, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 1978
15
Borgarstjórí svarar...
Tekid er á móti
fyrirspurnum
til borgarst jóra
í síma 10100
kl. 10-12
mánudaga til
föstudags
Seinfarin leið
Jóhanna Björnsdóttir,
Alfhólsvegi 155:
Væri ekki mögulegt að fá
opnaða aftur gömglu Breiðholts-
brautina þar sem hún liggur
framhjá Meltungu? Þegar ekið
er úr Kópavogi niður í Bústaða-
hverfi, þarf að aka út.á Breið-
holtsbrautina núverandi og er
það mjög seinfarið, því bíða þarf
lengi eftir að komast inná hana
út frá Smiðjuvegi og af henni
aftur inn á Bústaðaveg.
SVAR.
Gamla Breiðholtsbrautin er
ekki lögð varanlegu slitlagi og
var henni m.a. lokað vegna
kvartana frá íbúum nærliggj-
andi húsa út af ryki.
Varanlegar
götur í
Blesugróf
Rut Magnúsdóttir, Blesugróf
16:
Hvers vegna er ekkert um
varanlega gatnagerð í Blesu-
verzlun í því húsi, sem hún
hefur áður verið starfrækt í.
Hvað kostar
klippingin?
Benedikt Guðjónsson,
Hofteigi 44:
Hversu mikill er ' kostnaður
orðinn við kjarrið á lóð Laugar-
nesskóla móts við Hofteig síðan
um áramót? Það er langt síðan
því var plantað, og það var orðið
á hæð við girðinguna, en nú er
búið að klippa það og klippa og
duglegt fólk hefur á undanförn-
um vikum unnið við að hreinsa
grasið við kjarrið.
SVAR.
Kostnaður við klippingu og
hreinsun á kjarrinu nam kr. 285
þús. Verkið var framkvæmt að
beiðni forráðamanna Laugar-
nesskóla, en kjarrið er á lóð
skólans.
Ófrágengin lóð
Gunnlaugur Sigmundsson,
Barónsstíg 65:
1) Hvenær verður gengið frá
Stjórnarráðshús
á Torfunni?
Þorkell Hjaltason,
Hverfisgötu 70:
1) Hvenær má vænta þess að
borgaryfirvöld og menntamála-
ráðuneyti taki ákvarðanir varð-
andi Bernhöftstorfuna?
2) Má ef til vill gera ráð fyrir
að þar rísi nýtt stjórnarráðshús
í næstu framtíð?
3) I prófkjöri sjálfstæðis-
manna til alþingiskosninga s.l.
haust var jafnframt leitað eftir
svörum í 5 atriðum er ekki
snerta þingmenn beint. Fimmta
atriðið var svohljóðandi: Eruð
þér hlynntur aðsetri ráðuneyta
í gamla miðbænum?
Jákvæð svör um þetta atriði
urðu nálega sex þúsund. Hver er
afstaða borgarstjóra og borgar-
stjórnar til þessa máls?
SVAR.
1—2) Viðræður hafa farið
fram milli fulltrúa tilnefndum
annars vegar af Reykjavíkur-
borg en hins vegar af forsætis-
ráðuneyti og fjármálaráðuneyti
um framtíð Bernhöftstorfunnar,
grófinni og verður ekki gert ráð
fyrir neinu verzlunarhúsnæði í
eða við það hverfi? Við hljótum
að hafa sama rétt og aðrir
borgarbúar til að lifa í mann-
sæmandi umhverfi.
SVAR.
Á undanförnum árum hafa
verið fjarlægð allmörg hús, sem
stóðu í götustæðum, og nú mun
aðeins þurfa að fjarlægja eitt
hús, sem enn stendur í götu-
stæði. Varanleg gatnagerð getur
því hafizt mjög fljótlega, en er
þó ekki á framkvæmdaáætlun
þessa árs.
í Blesugróf munu búa innan
við 300 manns, sem er verulega
langt undir lágmarki viðskipta-
vina, sem talið er að matvöru-
verzlun þurfi að hafa til að geta
þrifizt. Skipulag gerir ekki ráð
fyrir verzlunarmiðstöð í hverf-
inu, en eflaust yrði leyfð áfram
lóð á horni Barónsstígs og
Eiríksgötu á svæðinu frá Templ-
arahöllinni niður undir Vörðu-
skóla?
2) Hvenær verður lóð við
Hryggjarsel í Breiðholti tilbúin
til byggingar, en henni var
úthlutað á þessu vori?
SVAR.
1) I sumar á að ganga frá
göngubrautum frá Barónsstíg
að Hallgrímskirkju og frá
Eiríksgötu við gatnamót Mímis-
vegar að Iðnskóla svo og ræktun
meðfram þessum stígum eftir
því sem tími vinnst til. Á
sumrinu 1979 er síðan ætlunin
að fullganga frá ræktunarsvæð-
um með trjágróðri og blómum.
2) Lóðir við Hryggjarsel
verða tilbúnar til byggingar í
nóvembermánuði n.k.
en eins og kunnugt er á ríkis-
sjóður torfuna, hús og lóðir.
í þessu sambandi er rétt að
vekja athygli á, að endurskoðað
aðalskipulag lækkar nýtingar-
hlutfall svæðisins úr 1.0 í 0.5 og
gerir ráð fyrir að torfan verði
verndunarsvæði. E.t.v. væri
lausn að byggja í stað húsanna
sem brunnu nýtt hús í gömlum
stíl, sem félli að útliti að
bakaríinu og landlæknishúsinu,
sem stæðu áfram ásamt Gimli.
Niðurstaða í máli þessu liggur
þó ekki enn fyrir.
3) Endurskoðað aðalskipulag
gerir ráð fyrir að Alþingi verði
áfram við Austurvöll með
stækkunarmöguleikum milli
Vonarstrætis og Kirkjustrætis.
í endurskoðuðu aðalskipulagi er
ennfremur mörkuð sú stefna, að
stjórnarráðið og skyldar stofn-
anir verði staðsettar milli Lind-
argötu og Skúlagötu. Afstaða
mín og borgarstjórnar liggur
því fyrir í máli þessu.
Christian Dior
Snyrtivörukynning
Sérfræöingur kynnir og ráöleggur val á
Christian Dior snyrtivörum í eftirtöldum
verslunum.
Snyrtivörudeildin Glæsibæ,
Þriðjud. 23. maí kl. 2—6.
Versl. Andrea Laugavegi 82,
ffimmtud. 25. maí kl. 2—6.
HÚSBYGG JENDUR- Einangrunarpiast
Afgreiöum einangrunarplast á
Stór-Reykjavíkursvæðiö frá
mánudegi - föstudags.
Afhendum vöruna á byggingar-
staö, viöskiptamönnum
aff kostnaöarlausu.
Hagkvæmt verö
og greiðsluskilmálar
við flestra ftæfi
kvlfM «fl helflarsfaU »3-7355
PRJONAGARN
3361
Margar
tegundir
Angorina
Saba
Fleur
Fallegt
lita-
úrval
Mikiö
úrval
uppskrifta.
^amtgrðattrrzltutm
Snorrabraut 44.
EF ÞAÐ ER FRETT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐENU
AIGLÝSINGA-
SÍMINN ER:
22480