Morgunblaðið - 23.05.1978, Page 22

Morgunblaðið - 23.05.1978, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. MAI 1978 • Fyrsta mark Matthíasar á móti Blikunum. Matthías bætti síðan tveimur við, skoraði þrennu í leiknum. Það eru þeir Kristinn Björnsson og Jón Alfreðsson sem fagna Matthíasi. en Blikarnir eru hálf sneyptir. Þrenna SKAGAMENN kafsigldu Blikana úr Kópavogi í leik liðanna, sem fram fór á Akranesi á laugardag, með því að skora 4 mörk án þess að Biikunum tækist að svara fyrir sig. Eftir gangi leiksins gat sigur þeirra orðið stærri og í síðari hálfleik var engu líkara en eitt lið væri á vellinum. Matthías, sem ekki hefur átt góða leiki í vor, gerði sér lítið fyrir og skoraði 3 mörk án mikillar fyrirhafnar. Matthíasi Þjálfari Blikanna hefur greini- lega ekki verið ánægður með lið sitt í leiknum við KA á dögunum, því hann gerði á því einar 5 breytingar og setti a.m.k. 4 nýliða, sem allir léku sinn fyrsta leik í 1. deild. Það voru þeir unglinga- landsliðsmennirnir Hákon Gunnarsson, Benedikt Guðmunds- son og Sigurður V. Halldórsson. Þá var nýr markvörður, Ægir Guðmundsson, sem að sögn lagði skóna á hilluna er hann lék með yngri flokkunum fyrir einum 5—6 árum, en hefur mætt á 3 æfingar að undanförnu og fer beint inn í liðið. Hann sýndi enga snilldartakta en ekki verður hann með réttu sakaður um mörkin. Skagamenn tefldu fram svo til sama liði og í undanförnum leikjum og þeir byrjuðu leikinn ekki sannfærandi. Fyrri hálfleikur var lengst af fremur þófkenndur og leiðinlegur á að horfa. Hvorugu liðinu tókst að skápa sér umtalsverð marktæki- færi, heldur gekk knötturinn vítateiganna á millí, án þess að nokkuð gerðist. Undantekning frá þessu var þó á 13. mín. er Matthías skoraði fyrsta mark leiksins. Skagamenn höfðu náð nokkurri sóknarlotu og fengu dæmdar einar þrjár horn- spyrnur með stuttu millibili. Eftir þá síðustu hrökk knöttur- inn út í vítateiginn til Jóns Gunnlaugssonar, sem skaut í þverslá og þaðan fór knötturinn til Matthíasar, sem renndi honum af öryggi í markið. EINSTEFNA Kirby þjálfari Skagamamma hefur sennilega lesið sínum mönn- um pistilinn í hálfleik, því það var engu líkara en nýtt lið kæmi þá inn á. Hver sóknarlotan af annarri dundi á Blikuríum og á 52. mín. bætti Matthías öðru markinu við, eftir skemmtilegan samleik Krist- ins og Karls Þórðarsonar, sem síðan gaf knöttinn vel fyrir markið til Péturs sem skallaði að markinu til Matthíasar, sem eins og í fyrra markinu renndi knettinum af öryggi í netið. Afram sóttu Skagamenn og 4 mín. síðar, eða á 56. mín., skoraði Kristinn Björnsson gott mark með skalla, eftir að vörn Blikanna hafði verið leikin grátt. Blikunum tókst lítið að komast áleiðis í síðari hálfleik, nema hvað þeir náðu stöku sinnum skyndi- sókn, sem enduðu flestar án þess að nokkur hætta skapaðist við mark Skagamanna. Síðasta orðið í leiknum hafði Matthías er hann skoraði á 89. mín. Kristinn Björnsson var með knöttinn hægra megin og gaf lausa sendingu inn í vítateiginn þar sem Matthías var alveg frír og skoraði hann örugglega með skalla. isiandsmöllO 2. delld Þunnur þrettándi á Kaplakrikavelli ÞAÐ var ekki rismilil knattspyrna sem FH ög KA sýndu á Kaplakrikavellinum á laugardaginn. Ekkert mark var skorað og lítið um marktækifæri og það verður að segjast eins og er að fátt af því sem leikmenn beggja liða gerðu úti á vellinum yljaði áhorfendum í nepjunni. Virtist rikja almenn ánægja meðal leikmanna og áhorfenda þegar dómarinn fiautaði leikinn af. Um fyrri hálfleikinn er það að segja að FH-ingar sóttu þá mun meira og þau tækifæri, sem sköpuðust í fyrri hálfleik, urðu við mark Akureyringanna. Á 7. mín- útu komst Logi Olafsson í dauða- færi eftir hornspyrnu en skot hans fór rétt framhjá. Og á 16. mínútu fékk sami leikmaður bezta tæki- færi leiksins. Viðar Halldórsson tók hornspyrnu frá vinstri. Bolt- inn barst fyrir fætur Loga, sem stóð fyrir miðju marki, aðeins metra frá marklínunni, en á einhvern óskiljanlegan hátt tókst honum að klúðra þessu tækifæri og skjóta framhjá. Það sem eftir var hálfleiksins fengu FH-ingar tvö færi, fyrst Janus Guðlaugsson og síðan Benedikt Guðbjartsson en skot þeirra fóru framhjá markinu. í seinni hálfleik snerist dæmið við og nú voru það Akureyringarn- ir, sem sóttu meira, en þeim tókst ekki að skapa sér verulega hættu- leg tækifæri ef undan er skilið gott skot Eyjólfs Ágústssonar, sem fór rétt 'framhjá. FH-ingar sóttu af krafti síðustu mínútur leiksins og FH - KA 0:0 Texti. Sigtryggur Sigtryggsson Myndr Ragnar Axelsson munaði litlu að þeim Loga og Janusi tækist að skora en Þorberg- ur var vel á verði. Einu sinni tóks FH-ingum að koma boltanum í markið en það var dæmt af vegna þess að Þorbergi markverði var hrint. Sem fyrr segir bauð leikurinn ekki upp á mikla knattspyrnu en þess meiri baráttu. FH-ingarnir voru beittari uppi við mark andstæðingsins en KA var jafn mikið með boltann úti á vellinum. Telja verður að miðað við gang leiksins hafi úrslitin verið sann- gjörn. Ekki er gott að dæma liðin eftir þessum slaka leik. Þau hljóta bæði að geta miklu betur. Margir hafa spáð þessum tveimur liðum falli niður í 2. deild en þau hafa bæði byrjað vel, hlotið tvö stig úr fyrstu tveimur leikjunum. Sérstaklega hafa Akureyringarnir komið á óvart, en þeir hafa leikið þessa tvo leiki á útivöllum. Beztu menn FH í þessum leik voru þeir Janus Guðlaugsson, sem virðist stöðugt vera í framför, og Jón Hinriksson bakbörður, en hann var mjög fastur fyrir og öruggur í leiknum. Hjá KA báru þeir af Eyjólfur Ágústsson í vörninni og Gunnar Blöndal í framlínunni. KA-liðið er blanda ungra og „gamalla" leik- manna, sem fróðlegt verður að fylgjast með í sumar. Elmar Geirsson kom inn á sem varamað- ur í s.h. og mun hann vafalaust styrkja liðið þegar hann verður búinn að ná sér fullkomlega eftir meiðslin. í STUTTU MÁLI. Kaplakrikavöllur 20. maí, ís- landsmótið 1. deild, FH — KÁ 0.0 Áminning. Engin. Áhoríendur. 291. LIÐIN Aðstaða til knattspyrnu á Akra- nesi er ekki góð þessa dagana, því eins og fram hefur komið í blöðum er grasvöllurinn þar nær ónýtur. Af þeim sökum er vart hægt að ætlast til þess, að leikmenn sýni þar stórleik. Blikarnir léku svipað og þeir hafa gert. Þeir gera margt laglegt úti á vellinum, en það vantar allan brodd í sóknarleikinn og vörnin er heldur ekki sterk. Ég hef áður minnst á markvörðinn, en besti maðurinn að þessu sinni var hinn kornungi Benedikt Guðmundsson. Þar er mikið efni á ferðinni. Þá komst Þór Hreiðarsson ágætlega frá leiknum og sömuleiðis Einar Þórhallsson. Matthías Hallgrímsson virðist vera að finna sig á ný eftir slaka leiki í vor. Annars var Árni Sveinsson besti maður liðsins ásamt Karli Þórðarsyni. Það fór lítið fyrir Pétri að þessu sinni og Kristinn Björnsson er alltof eigin- gjarn á knöttinn og seinn að koma honum frá sér. Óli Ólsen dæmdi leikinn og gerði það mjög vel. í STIITTU MÁLI 1. deild 20. maí Akrancsvöllur ÍA - UBK 4.0 (1.0) Mörkin. Matthías Ilallgrimsson ÍA á 13., 52., 89. mín. Kristinn Björnsson ÍA á 56. mín. Gult spjald. Pétur Pétursson ÍA Áhorfendur. 653. m ■4r*n SfSSSSirv*,: ’■ -i- m. w #■ lypfL' &*$■* m v. B • Bezta tækifærið í leiknum. Logi Olafsson fékk boltann dauðafrír fyrir miðju marki en honum tókst að koma boltanum framhjá eins og sjá má.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.