Morgunblaðið - 23.05.1978, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 1978
23
Þróttur skoraði 2 sjálfs-
möfk og Fram vann stórt
• Rúnar Sverrisson mark-
vörður Þróttar er aðeins á.
undan Pétri Ormslev í bolt-
ann. Sverrir Einarsson fylgist
með í baksýn.
FRAMARAR unnu Þrótt á Laugardalsvelli í gærkvöldi 4il í
afspyrnulélegum leik, þar sem mistökin voru svo mörg, að tölu varð
ekki á kastað. Að bera saman þennan leik og leik Vals og Víkings
kvöldið áður á sama ieikvelli er eins og að bera saman svart og hvítt,
gæðamunurinn var slíkur. Og það var dæmigert við leikinn að það
voru sjálfsmörk Þróttara, sem lögðu grunninn að þessum stóra sigri
Fram.
Það var aðeins fyrstu mínúturn-
ar sem líf var í leiknum. Þróttarar-
tóku forystuna á 10. mínútu þegar
Úlfar Hróarsson sendi knöttinn
inn í vítateig Fram, þar sem bezti
maður Þróttar, Þorvaldur Þor-
valdsson, var staðsettur og skoraði
með föstu marki af markteig eftir
nokkurn barning. En ekki var liðin
mínúta þegar Fram hafði kvittað
fyrir með stórglæsilegu marki
Þorvalds Hreinssonar bakvarðar.
Pétur Ormslev brauzt upp hægra
megin og sendi boltann fyrir
markið, þar sem Þróttarar voru
fyrir og skölluðu frá út fyrir
vítateig. Þar kom Þorvaldur á
fullri ferð og negldi knöttinn
viðstöðulaust upp í markhornið
fjær af 30 metra færi. Markvörð-
urinn hreyfði ekki legg né lið til
varnar.
Eftir þessa góðu byrjun datt
botninn alveg úr leiknum og það
sem eftir var hálfleiksins buðu
liðin upp á ömurlega knattspyrnu,
mest spyrnur út í loftið og í hæsta
lagi tókst leikmönnum að spyrna
boltanum til næsta mótherja.
í seinni hálfleik færðist fjör í
leikinn. Framlínumenn Fram
höfðu ekki verið fundvísir á leiðina
í mark Þróttar en nú komu
varnarmenn Þróttar þeim svo
sannarlega til hjálpar. Á 7. mínútu
seinni hálfleiks brauzt Kristinn
Jörundsson upp vinstri kantinn og
gaf fyrir. Þar var staddur fyrir
Árni Valgeirsson Þróttari. Gerði
hann sér lítið fyrir og henti sér
fram og skallaði boltann með
tilþrifum í eigið mark. Og 10
mínútum síðar sendi Knútur
Kristinsson boltann fyrir mark
Þróttar, þar sem Kristinn Jör-.
undsson var fyrir og ætlaði að
skalla að marki. Það mistókst
herfilega, boltinn féll á jörðina og
fyrir fætur Úlfars Hróarssonar
bakvarðar, sem kom á fullri ferð
til bjargar og það var ekki að
sökum að spyrja, Úlfar sendi
boltann með föstu skoti í eigið
mark 3:1 fyrir Fram.
Á 26. mínútu seinni hálfleiks var
bezta manni Fram, Pétri Ormslev
brugðið innan vítateigs af hinum
mjög svo seina miðverði Þróttar
Sverri Einarssyni. Pétur tók
spyrnuna sjálfur en skaut í
Fram - Þróttur 4:1
Textii
Sigtryggur Sigtryggsson.
Mynd:
Friðþjófur Helgason.
stöngina. Varnarmenn Þróttar
sátu alveg eftir og það var
Kristinn Jörundsson, sem náði
fyrstur til boltans og skaut að
markinu. Rúnar markvörður varði
en hélt ekki boltanum og Pétur
Ormslev renndi honum auðveld-
lega í netið.
Þróttarar settu nú markakóng
sinn Pál Ólafsson inn á völlinn og
breyttist þá framlína liðsins mjög
til batnaðar. Sótti Þróttur mun
meira í lokin og þrívegis var Páll
nálægt því að skora en Guðmundi
markverði og varnarmönnum
Fram tókst ætíð að bægja hætt-
unni frá.
Um liðin þarf ekki að hafa mörg
orð. Þróttararnir voru óþekkjan-
legir frá leiknum við Akranes og
aðeins Þorvaldur Þorvaldsson
sýndi eðlilega getu og Páll sýndi
góða takta þann stutta tíma, sem
hann var inná. Hjá Fram var
Pétur Ormslev beztur eri þeir
Guðmundur Baldursson mark-
vörður og Kristinn Atlason mið-
vörður voru einnig góðir. Aðrir
voru heldur slakir.
STAÐAN
Staðan er þessi í 1. deild eftir
•s
Lið vlkunnar
'~N
Arnór Guðjohnsen Víking
Pétur Ormslev Fram
Atli Eðvaldsson Val
Dýri Guðmundsson Val
Árni Sveinsson ÍA
Diðrik Ólafsson Víking
Matthías Hallgrímss. ÍA
Guðmundur Þorbjörnss. Val
Hörður Hilmarsson Val
Gísli Torfason ÍBK
Jón Hinriksson FH.
leiki 2. umferðar.
FH - KA 0.0
ÍBK - ÍBV 2.3
ÍA — Breiðablik 4.0
Valur — Víkingur 5,2
Fram — Þróttur 4,1
Valur 2 2 0 0 8,2 4
Akranes 2 1 1 0 6,2 3
Fram 2 1 0 1 4,4 2
FH 2 0 2 0 2,2 2
KA 2 0 2 0 2,2 2
Víkingur 2 I 0 1 4,5 2
ÍBV 2 1 0 1 2,3 2
ÍBK 2 0 1 1 4,5 1
Þróttur 2 0 1 1 3,6 1
Breiðablik 2 0 1 1 2,6 1
í STUTTU MÁLL
Laugardalsvöllur 22. maí, ís-
landsmótið 1. deild, Fram —
Þróttur 4il (lil).
Mörk Frami Þorvaldur Hreins-
son á 11. mínútu, Árni Valgeirs-
son (sjálfsmark) á 52. mínútu,
Úlfar Hróarsson (sjálfsmark) á
62. mínútu og Pétur Ormslev á
71. mínútu.
Mark Þróttan Þorvaldur Þor-
valdsson á 10. mínútu.
Áminningari Sigurbergi Sig-
steinssyni og Kristni Atlasyni
Fram sýnd gulu spjöldin í s.h.
Áhorfenduri 601.
Markhæstu menni
Matthías Hallgrímsson ÍA
Arnór Guðjohnsen Víking
Albert Guðmundsson Val
Atli Eðvaldsson Val
Ásgeir með
á mánudag?
KSÍ vinnur nú að því að fá leyfi
hjá Standard Liege fyrir Ásgeir
Sigurvinsson til þess að leika
með úrvalsliði KSI gegn
stjörnuliði Bobby Charlton á
mánudaginn. Ásgeir vill ólmur
spila leikinn en forráðamenn
Standard munu ekki vera yfir
sig hrifnir af hugmyndinni.
Vonandi verður þessu kippt í
lag.
FH.
Þorvaldur Þórðarson 2
Jón Ilinrisksson 3
Benedikt Guðbjartsson 2
Jóhann Ríkharðsson 1
Gunnar Bjarnason 2
Pálmi Sveinbjörnsson 2
Viðar Ilalldórsson 2
Logi ólafsson 2
Janus Guðlaugsson 3
Pálmi Jónsson 2
Ásgeir Arnbjörnsson 1
Ólafur Danivalsson (varam.) 2
Jón Halldórsson (varam.) 1
KA.
Þorbergur Atlason 2
Steinþór Þórarinsson 2
Gunnar Gíslason 2
Guðjón Harðarson 2
Haraldur Haraldsson 2
Gunnar Gunnarsson 1
Sigbjörn Gunnarsson 2
Eyjólfur Ágústsson 3
Gunnar Blöndal 3
Jóhann Jakobsson 2
Ármann Sverrisson 1
Elmar Geirsson (varam.) 2
Guðmundur Blöndal
(varam.) 1
Dómarii
Róbert Jónsson 3
ÍBK.
Þorsteinn Bjarnason 2
Óskar Færset 2
Kári Gunnlaugsson 2
Einkunnagjðfln
Gísli Grétarsson
Gísli Torfason
Sigurður Björgvinsson
Einar Ólafsson
Hilmar Hjálmarsson
Steinar Jóhannsson
Rúnar Georgsson
Þórður Karlsson
Þórir Sigfússon (vm)
ómar Ingvarsson (vm)
ÍBV,
Páll Pálmason
örn Óskarsson
Einar Friðþjófsson
Þórður Hallgrímsson
Friðfinnur Finnbogason
Sveinn Sveinsson
Valþór Sigurþórsson
Óskar Valtýsson
Sigurlás Þorleifsson
Tómas Pálsson
Karl Sveinsson
óskar Axelsson (vm)
Dómarii
Guðmundur Haraldsson
ÍA.
Jón Þorbjörnsson
Guðjcn Þórðarson 2
Árni Sveinsson 3
Sigurður Halldórss. 2
Jón Gunnlaugsson 2
Jón Áskelsson 2
Jón Alfreðsson 2
Karl Þórðarson 3
Pétur Pétursson 2
Kristinn Björnsson 2
Matthías Hallgrímsson 3
Jóhannes Guðjónsson (vm) 2
UBK,
Ægir Guðmundsson 1
Gunnlaugur Helgason 1
Ingvar Teitsson 2
Helgi Helgason 1
Benedikt Guðmundsson 3
Einar Þórhallsson 2
Sigurður V. Halldórsson 2
Þór Hreiðarsson 2
Hinrik Þórhallsson 1
Gísli Sigurðsson 1
Hákon Gunnarsson 1
Valdimar Valdimarsson (vm)l
Dómarii
óli Ólsen 4
VÍKINGUR.
Diðrik ólafsson
Ragnar Gíslason
Magnús Þorvaldsson
Gunnar Kristjánsson
Róbert Agnarsson
Heimir Karlsson
Helgi Helgason
Viðar Elíasson
Jóhann Torfason
Arnór Guðjohnsen
Óskar Tómasson
Hannes Lárusson (vm)
VALUR.
Sigurður Haraldsson
Vilhjálmur Kjartansson
Grímur Sæmundsen
Ilörður Hilmarsson
Dýri Guðmundsson
Sævar Jónsson
Ingi Björn Albertsson
Atli Eðvaldsson
Albert Guðmundsson
Guðmundur Þorbjörnsson
Jón Einarsson
Magni Pétursson (vm)
Guðmundur Kjartansson
Dómarii
Arnþór Óskarsson
FRAM.
Guðmundur Baldursson
Gústaf Björnsson
Þorvaldur Hreinss.
Gunnar Guðmundsson
Kristinn Atlason
Sigurbergur Sigsteinss.
Rafn Rafnsson
Kristinn Jörundsson
Pétur Ormslev
Eggert Steingrímss.
Knútur Kristinss.
Hreinn Elliðas. (varam.)
Atli Jósafatss. (varam.)
ÞRÓTTUR.
Rúnar Sverrisson
Aðalsteinn örnólfss.
Úlfar Hróarsson
Jóhann Hreiðarsson
Sverrir Einarsson
Daði Harðarson
Árni Valgeirsson
Halldór Arason
Þorgeir Þorgeirsson
Sverrir Brynjólfss.
Þorvaldur Þorvaldss.
Ágúst Haukss. (varam.)
Páll Olafsson (varam.)
DÓMARI.
Kjartan ólafsson