Morgunblaðið - 23.05.1978, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 1978
ÞAÐ voru frískir og velleikandi Valsmenn sem sigruðu
Víkinga með 5 mörkum gegn 2 í 1. deild á Laugardalsvellin-
um síðastliðið sunnudagskvöld. Að vísu er sigurinn of stór
eftir gangi leiksins og tvö af mörkum Vals voru hrein
gjafamörk af hálfu Víkinga, en sigur Valsmanna var
verðskuldaður. Þeir léku betur og oft á tíðum sýndu þeir
stórgóða knattspyrnu.
—Viö erum lagðir af stað í átt
að meistaratitlinum og höldum
ótrauðir áfram, sagði Ingi Björn
Albertsson fyrirliði Vals eftir
leikinn. — Þetta var sigur sam-
heldni og baráttu bætti hann svo
við. Víst er að ekki verður auðvelt
að stoppa Val sýni þeir jafn góða
takta og í leiknum á móti Víkingi.
— Þessi leikur var jaínteflis-
leikur. Við skoruðum tvö mörk
fyrir Val, sagði fyrirliði Víkinga,
Róbert Agnarsson. Dómararnir
eru almennt alltof góðir við
Valsmenn, í þessum leik fá þeir
t.d. 80% af öllum aukaspyrnum í
leiknum og oft á tíðum finnst mér
eins og búið sé að dæma Víkings-
liðið áður en það kemur inn á
völlinn bætti Róbert við. — Ég er
bjartsýnn á mótið þrátt fyrir tapið
í leiknum, við leikum síst verri
knattspyrnu en Valur eða Akranes
sagði Róbert.
Gróf mistök Ragnars
Valsmenn hófu leikinn af mikl-
um krafti og sóttu stíft strax í
upphafi leiksins og fyrsta markið
lét ekki standa á sér. Eftir
talsverða þvögu inni í teig
Víkinga fékk Ragnar Gíslason
bakvörður knöttinn við markteigs-
Víkings renna í hálu grasinu og
missa Atla framhjá sér, og
pilturinn var ekki lengi að notfæra
sér það heldur skoraði af mark-
teigshorni framhjá Diðrik. Eftir
þetta mark tókst liðunum ekki að
skapa sér umtalsverð tækifæri það
sem eftir var hálfleiksins og
staðan í leikhléi var 2—1.
Fjörugur síðari
hálfleikur
Ahorfendur voru tæpast búnir
að koma sér fyrir á pöllunum og
í stúkunni eftir leikhléið er fyrsta
mark hálfleiksins kom. Á 47. mín.
Ingi Björn lék upp kantinn alveg
að endamörkum og sendi knöttinn
vel fyrir markið og inn í markteig
Víkinga, þar sem Guðmundur
Þorbjörnsson var óvaldaður og
skoraði hann laglega. Mikil rang-
stöðulykt var af markinu og virtist
undirrituðum Guðmundur vera vel
einn og hálfan metra fyrir innan
öftustu varnarmenn Víkings er
fyrirgjöfin kom. En hvorki línu-
vörður eða dómari gerðu neina
athugasemd við markið. Eftir
leikinn sagði Ingi Björn að sér
hefði fundist vera rangstöðulykt
að markinu en þó var hann ekki
alveg viss. Víkingarnir voru þó
hornið og í stað þess að spyrna í
horn freistaði hann þess að
hreinsa frá markinu en ekki tókst
betur til en svo að hann skaut
beint í fætur Alberts Guðmunds-
sonar og af honum hrökk knöttur-
inn beint í markið og gat Diðrik
engum vörnum komið við. Var
þetta á 5. mínútu leiksins. Þetta
mark var hreint heppnismark hjá
Val, og má skrifa á reikning
Ragnars, sem tók þarna gróft
tækifæri til að hreinsa frá marki.
Á 7. mínútu á Ingi Björn
hörkuskalla yfir markið, og áfram
dynja sóknirnar á Víkingi. Það er
ekki fyrr en á 12. mínútu fyrri
hálfleiks að Víkingar fara að ná
betri tökum á leiknum og snúa
vörn í sókn.
Víkingar jafna
Er Víkingar höfðu náð betri
tökum á leiknum og spilinu var
dreift meira út á kantana lét
árangurinn ekki á sér standa.
Eftir laglegt samspil upp vinstri
kantinn á 15. mínútu átti Helgi
Helgason hörkufast skot fyrir
utan vítateig, sem Sigurður mark-
vörður heldur ekki, og hin stór-
efnilegi Arnór Guðjohnsen fylgdi
fast á eftir og skoraði örugglega af
stuttu færi. Sjálfstraust Víkinga
og ákveðni varð nú meiri, en hins
vegar gætti nokkurrar ónákvæmni
í sendingum þeirra. Leikurinn
varð nokkuð jafn en þó var öllu
meiri broddur í sóknarleik Vals.
Guðmundur Þorbjörnsson átti
hörkugott skot af kantinum á 31.
mínútu sem Diðrik rétt náði að slá
yfir þverslá. Aðeins fjórum mínút-
um síðar er Atli Eðvaldsson á
ferðinni og einleikur inn í teig
Víkinga, virtust varnarmenn
Skoraði Gunnar Örn Kristjánsson
örugglega úr spyrnunni.
Áfram hélt spennan, nú áttu
margir von á því að Víkingar
myndu jafna leikinn, en svo var
ekki. Strax tveim mínútum síðar
er Guðmundur Þorbjörnsson
felldur inni í vítateig Víkings og
dæmd vítaspyrna. Ingi Björn
framkvæmdi spyrnuna en Diðrik
gerði sér lítið fyrir og varði skot
hans sem virtist vera frekar laust
þó svo að það væri alveg úti við
stöngina.
Eftir leikinn sagði Ingi Björn
ekki fráleitt, að Diðrik hefði verið
kominn af stað er hann skaut. En
þetta var skammgóður vermir
fyrir Víking. Fimm mínútum
síðar, á 81. mínútu leiksins, verða
Róbert á afdrifarík mistök er hann
missir frá sér knöttinn fyrir fætur
hins eldsnögga Jón Einarssonar
rétt utan yítateigshornsins. Jón
brunaði upp og í gegn og skoraði
yfir Diðrik sem reyndi að bjarga
með úthlaupi. Síðasta markið kom
svo rétt fyrir leikslok er Valsmenn
tóku aukaspyrnu utan við vítateig.
Albert lyfti knettinum yfir varn-
arvegg Víkinga og Diðrik var
lagður af stað í hornið fjær er
knötturinn hrökk í Ragnar og í
gagnstætt horn, sjálfsmark.
Við þetta var allur vindur úr
Víkingunum og endaði leikurinn
eins og áður segir 5—2.
Góður leikur
Í heildina tekið var þetta góður
leikur, sérstaklega af hálfu Vals-
• Guðmundur Þorbjörnsson skorar þriðja mark Vals án þess að Diðrik Ólafsson markvörður Vfkings kom
Birni en dómari og línuvörður gerðu enga athugasemd og dæmdu markið gilt.
• Gunnar Örn Kristjánsson sést hér skora annað mark Víkings af öryggi úr vítaspyrnu. Sigurður
Ilaraldsson átti enga möguleika á því að verja skotið.
ekki á að gefast upp heldur
börðust vel og gerði hinn ungi
sókndjarfi leikmaður Arnór Guð-
johnsen hvað eftir annað mikinn
usla v vörn Vals. A 60. mínútu
munaði minnstu að honum tækist
að skora er hann brunaði upp
vinstri kantinn og komst inn að
Valur-Vík.5:2
e
I Textii
I Þórarinn Ragnarsson
I Myndir.
Friðþjófur Ilelgason og
^ Ragnar Axelsson____'
markteig en skaut í hliðarnetið.
Jóhann Torfason fær gott tæki-
færi á 66. mínútu en laust skot
hans var auðveldlega varið. Um
miðjan síðari hálfleikinn kom eitt
besta marktækifæri leiksins og
enn var það Arnór sem var á
ferðinni. Hann einlék upp allan
kantinn og var farinn í gegn um
þrjá varnarleikmenn Vals er hann
renndi knettinum á Óskar Tómas-
son sem var í dauðafæri, en hann
skaut í stöngina utanverða og
framhjá. Ekki er gott að segja
hvað hefði gerzt ef Víkingar hefðu
uppskorið mark úr þessu upp-
hlaupi. Aðeins tveim mínútum
síðar er dæmd vítaspyrna á Val og
á Arnór allan heiðurinn af því.
Var hann búinn að einleika inn í
vítateiginn og kominn í gott færi
er Dýri slæddi hendinni í knöttinn,-
og réttilega var dæmd vítaspyrna.
(sianasmftlifl 1. flelid
„Við erum lagðir af si
átt að meistaratitlini