Morgunblaðið - 23.05.1978, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 23.05.1978, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 1978 25 IBV fær sín fyrstu stig á útivelli Vestmanneyingar hlutu sín fyrstu stig f islandsmótinu er Þeir sóttu Keflvíkinga heim síðast liðinn laugardag. Ekki verður annað sagt en að Þeir hafi verið vel að sigri sínum komnir. Þeir sýndu allan tímann meiri baráttu og kraft í leiknum. Fyrri hálfleikur var bráðvel leikinn af báðum liðum og fjörugur en er leið á leikinn dofnaði mjög yfir honum og hann varð Þófkenndur. Lokatölurnar urðu 3:2 Vestmannaeyingar fyrri til að skora ÍBV lék í fyrri hálfleik undan sterkum sunnanvindi og náöu þeir strax nokkrum vel útfærðum sóknarlotum. sem þó enduöu ekki meö marki, enda vörn Keflvíkinga vel á veröi og Þorsteinn var öruggur í markinu. Fyrsta markiö kom á 15. mínútu leiksins. Dæmd var hornspyrna á ÍBK, úr hornspyrnunni kom góð fyrirgjöf og barst knötturinn út úr vítateignum. Einar Friðþjófsson var ekkert aö tvínóna viö hlutina, kom aövífandi á fullri ferö og skaut föstum jarðarbolta af um 30 metra færi í bláhorn marksins. Var þetta vel gert hjá Einari og jafnframt var þetta laglegasta mark leiksins. Ekki létu Keflvíkingar þó neinn bilbug á sér finna og náöu nú sinum besta leikkafla, og léku oft Ijómandi vel saman, dreiföu spili sínu vel út á kantana og síöan sköpuöu góöar fyrirgjafir hættu viö mark ÍBV. Þaö var Gísli Torfason sem byggöi upp svo til allt spil liðs síns og voru sendingar hans margar hverjar hárnákvæmar og fallegar. Á 22. mínútu leiksins kom sókn sem gaf ÍBK hornspyrnu og upp úr henni myndaðist þvaga við mark ÍBV, var skallaö að markinu og Sveinn Sveinsson átti þann kost einan aö IBK - ÍBV bjarga á línu meö hendinni. Góöur ðomari leiksins, Guömundur Har- aldsson, dæmdi umsvifalaust víta- spyrnu, sem Gísli Torfason fram- kvæmdi af öryggi, negldi hann knöttinn í netmöskvana, óverjandi fyrir Pál Pálmason, markvörö ÍBV. Keflvíkingar meira með knöttinn Eftir aö hafa jafnaö metin, þó leikiö væri á móti sterkum vindi, hresstust Keflvíkingar enn, og voru þeir mun meira meö knöttinn, hins vegar var vörn Eyjamanna hörö í horn að taka og gaf ekkert eftir, Friöfinnur átti alla skallabolta og yfir höfuö var góður leikur hjá þeim Erni Óskarssyni og Einari Friðþjófssyni í varnarleiknum, völduöu þeir vel og gáfu sóknar- mönnum IBK aldrei frið, þá var Óskar Valtýsson sívinnandi. Alveg í lok fyrri hálfleiksins fengu Keflvíkingar dæmda á sig óbeina aukaspyrnu út viö hliöarlínu, eftir óþarfa brot á Sigurlási. Knötturinn var sendur fyrir markiö og þar var Tómas Pálsson óvaldaður á markteig og afgreiddi hann knöttinn í markið af stuttu færi. Var þetta snaggaralega gert, skotið snöggt og fast og staöan því í leikhléi 2-I fyrir IBV. Þófkenndur síðari hálfleíkur í síöari hálfleik átti maöur von á aö Keflvíkingar myndu sækja stíft undan vindinum og taka leikinn í sínar hendur en svo varö ekki. Liöið reyndi um of aö sækja upp miöjuna og auöveldaöi það ÍBV vörnina. ÍBV náði annaö slagiö hættulegum sóknarlot- um og strax á 6. mínútu leiksins tókst Tómasi Pálssyni fyrirliöa IBV aö brjótast í gegn og var hann í opnu færi til aö skora en Þorsteinn Bjarnason, markvöröur bjargaöi vel meö úthlaupi og náöi aö spyrna knettinum frá, en ekki þó betur en svo aö Karl Sveinsson náði til knattarins og átti ekki í erfiðleikum meö aö skora þriöja mark IBV af stuttu færi. Mark þetta er hægt aö skrifa á varnarmenn ÍBK sem þarna uröu á gróf mistök og voru sofandi á verðinum. Eftir mark þetta dofnaöi verulega yfir leiknum og virtist sem áhugaleys- is gætti hjá Keflvíkingum. Leikurinn fór aö mestu fram á vallarmiöjunni, þar sem knötturinn gekk mótherja á milli og mikið var um háspyrnur sem sköpuðu litla hættu. Þaö var ekki fyrr en rétt fyrir lok leiksins sem Keflvík- ingar náöu smá spili og tókst aö ógna í fáein skipti. Á lokamínútunum tókst svo Rúnari Georgssyni, lagnum leikmanni ÍBK aö skora annaö mark liösins, og þrátt fyrir örvæntingarfull- ar tilraunir í lokin tókst ÍBK ekki aö jafna. Liðin Þaö verður aö segjast eins og er að lið Keflavíkur virkaöi nokkuö óöruggt í þessum leik, það vantaði aö ná meira út úr leik sínum, liöiö lék ágætlega framan af en svo var eins og botninn dytti úr leik þess. Er þetta umhugsunarefni fyrir leikmennina, þaö sama geröist á móti FH í fyrsta leiknum og nú endurtekur sagan sig. En það er skoöun undirritaös að liöiö, þurfi ekki aö kvíöa neinu takist því aö ná upp meiri krafti og baráttu, leikmenn veröa aö skila meiri vinnu á vellinum. Besti maður ÍBK var tvímælalaust Gísli Torfason, sem þó virkaöi þungur á köflum. Liö ÍBV sýndi aö þaö veröur ekki auðsigrað á þessu keppnistímabili, leikmenn liösins eru mjög ákveðnir og gefa ekkert eftir, og það frekar en annaö færöi þeim bæöi stigin í Keflavík. Varnarleikur liösins var góöur með Friðfinn sem besta mann. Framlínumennirnir mættu gjarnan vinna betur og hreyfa sig meira boltalausir. Tómas og Sigurlás eru báöir tveir sókndjarfir og skapa ávallt hættu þegar þeir eru með knöttinn. Karl Sveinsson sem sýndi svo stórgóöa leiki í fyrra með liðinu viröist vera frekar æfingalítill, eöa máske var hann bara í daufara lagi. í stuttu máli: íslandsmótið I. deild, grasvöllurinn í Keflavík, 20. maí ÍBK—ÍBV 2—3 (1-2) Mörk ÍBK: Gísli Torfason úr víta- spyrnu á 22. mín. og Rúnar Georgs- son á 90 mín. Mörk ÍBV: Einar FriðÞjófsson á 15. mín., Tómas Pálsson á 45. mín. og Karl Sveinsson á 57. mín. Áminningar: Gísli Grétarsson ÍBK og Friðfinnur Finnbogason ÍBV bókaðir. Áhorfendur: 791. vörnum við. Ýmsir héldu því íram að Guðmundur hefði verið rangstæður þegar hann fékk boltann frá Inga taðí Lim manna sem léku vel. Mikil barátta var í liðinu og var samvinna leikmanna mjög góð. Erfitt er að gera upp á milli leikmanna liðsins, þeir stóðu allir vel fyrir sínu. Hjá Víkingi bar Arnór Guðjohnsen nokkuð sf og sýndi og sannaði að þar er mikið efni á ferðinni, ef hann hefði fengið meiri stuðning í leiknum af samherjum hefði geng- ið betur. Um of reyndu Víkingar langar spyrnur fram á Arnór sem oftast var einn fyrir og mátti gott teljast hverju hann fékk áorkað. Varnarleikur Víkinga var ekki nægilega ákveðinn og varnar- mennirnir of svifaseinir. Fyrir áhorfendur sem voru fjölmargir var leikurinn hin besta skemmtun. Dómari í leiknum var Arnþór Oskarsson og orkuðu sumir dómar hans vissulega tvímælis. Tvívegis dæmdi hann andstætt línuverðin- um sem þó var í mun betri aðstöðu en hann sjálfur til að sjá á hvorn brotið var. • Fyrsta mark Vals í uppsiglingu. Ragnar Gíslason gerir þá reginskyssu að reyna að spyrna boltanum frá markinu í stað þess að setja hann út fyrir endamörk. Boltinn fór beint í fætur Alberts eins og myndin sýnir og rakleitt í markið. • Og hér sjáum við Atla Eðvaldsson skora annað mark Vals. Hann nýtti sér til hins ýtrasta mistök í Víkingsvörninni og skorar framhjá Diðrik. í stuttu málii íslandsmótið 1. deild Laugar- dalsvöllur 21. maí Valur — Víkingur 5—2 (2—1) MÖRK VALSi Albert Guðmundsson á 5. mínútu, Atli Eðvaldsson á 35. mínútu, Guðmundur Þorbjörnsson á 47. mínútu, Jón Einarsson á 81. mínútu. Ragnar Gíslason á 86. mínútu, sjálfsmark. MÖRK VÍKINGS. Arnór Guð- johnsen á 15. mínútu, Gunnar Örn Kristjánsson úr vítaspyrnu á 74. mínútu. ÁMINNINGAR. Hörður Hilmarsson Val fékk að sjá gula spjaldið. ÁHORFENDUR. 2363. • Albert Guðmundsson og Jón Einarsson fagna fjórða marki sem Jón skoraði eftir enn ein mistökin í vörn Víkings. Vals,

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.