Morgunblaðið - 23.05.1978, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 23.05.1978, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, ÞMÐJUDAtfUR 23. MAÍ 1978 Ný stefna í atvinnumálum Reykjavíkur: í þeim köflum, sem hér fara á eftir úr atvinnu- málasamþykkt Reykjavík- urborgar er fjallað um lóðamál, iðngarða, inn- kaup o.fl.t Lóðamál, gatnagerðargjöld Revkjavíkurborg mun kapp- kosta að hafa á boðstólum lóðir fyrir atvinnufyrirtæki í sem flestum greinum. A þessu ári verða lagðar fram í borgar- stjórn tillögur um lækkun gatnagerðargjalda af atvinnu- rekstri, en jafnframt verður lóðarleiga endurskoðuð til hækkunar. I þessu sambandi verður einnig athugað, hvort unnt sé að veita frekari gjald- frest á gatnagerðargjaldi en nú er gert. Varðandi lóðarmál eru að öðru leyti sett fram eftirfar- andi fimm markmið: a. Lóðir undir léttan þrifaleg- an iðnað verði í tengslum við íbúðarhverfin, en jafn- framt verði séð fyrir svæð- um undir þungaiðnað, sem ekki á heima í nálægð við íbúðarhverfin. b. Settar verði strangari regl- ur um, að iðnaðarhúsnæði verði ekki breytt til ann- arra nota. c. Verzlunarlóðir verði skipu- lagðar í tengslum við íbúð^ arhverfi eins og verið hefur, en jafnframt lögð áherzla á uppbyggingu í miðbænum og gamla austurbænum til að skapa frekari aðstöðu til verzlunar og viðskipta sam- hliða fjölgun íbúða. d. Úthlutun íbúðarlóða verði sem jöfnust milli ára, svo að komið verði í veg fyrir of miklar sveiflur í byggingariðnaði. Tek- in verði upp úthlutun á stærri byggingarsvæðum til bygging- araðila og að samtök b.vggingar- meistara fái skipulag slíkra svæða til umsagnar. Miðist úthlutun þessi við, að b.vgging- araðilar fái samfelld verkefni til lengri tíma. Með þessum hætti er bæði stefnt að lækkun bygg- ingarkostnaðar, aukinni hag- ræðingu og auknu rekstrar- öryggi byggingaraðila í Reykja- vík. e. Gerð verði könnun á eftir- spurn eftir lóðum undir framleiðsluiðnað með þarf- ir viðkomandi fyrirtækja í huga næstu árin. Iðngarðar Reykjavíkurborg taki nú þeg- ar upp samstarf við samtök iðnaðarins um byggingu Iðn- garða, þar sem iðnfyrirtækjum gefist kostur á að taka húsnæði á leigu eða þeim boðinn leigu- kaupsamningur. Verði á þessu ári gerð greinargerð um eignar- aðild, staðarval, skipulagningu, leigukjör og annað rekstrarfyr- irkomulag. Til greina kemur, að fyrsta framkvæmd á þessu sviði verði á iðnaðarlóðum í Breið- holti III. Innkaup, útboð Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkir, að stofnanir og fyrirtæki borgarinnar beini við- skiptum sínum eins og unnt er til íslenzkra fyrirtækja, bæði um kaup á rekstrar- og fjárfest- ingarvörum. Um öll meiri háttar innkaup og útboð á vegum borgarinnar er eftirfarandi stefna mörkuð: a. Innkaupastofnun Reykja- víkur er heimilt að taka tilboði innlends framleið- anda fram yfir erlenda vöru, þótt verð hinnar innlendu vöru sé allt að 15% hærra, enda sé um sambærilega vöru og þjón- ustu að ræða. b. Við ákvörðun um af- greiðslufresti og stærð ein- inga ber jafnan að hafa í huga, að unnt verði að Gatnagerðargjöld lækkuð—lóðar- hækkuð leiga kaupa vörur og þjónustu af innlendum aðilum. c. I útboðslýsingum bygging- arframkvæmda verði þess jafnan gætt að setja nafn íslenzkrar iðnaðarvöru sem viðmiðun, enda standist hún kröfur, sem gerðar eru. d. Teknar v.erði upp viðræður milli Reykjavíkurborgar og samtaka iðnaðarins um framangreind atriði og komið á gagnkvæmri upp- lýsingamiðlun. Jöfn aðstaða fyrirtækja Borgarstjórn Reykjavíkur leggur áherzlu á, að fyrirtæki í Reýkjavík og á höfuðborgar- svæðinu sitji jafnan við sama borð og fyrirtæki annars staðar á landinu, að því er fjármagns- f.vrirgreiðslur varðar. Stöðva ber það misrétti, sem átt hefur sér stað í þessum efnum hjá ýmsum sjóðum ríkisvaldsins, sem úthluta fé til uppbyggingar atvinnulífsins. Framkvæmda- sjóður Reykja- víkurborgar Tillögum þessum fylgir upp- kast að samþykktum um Fram- kvæmdasjóð Reykjavíkurborg- ar, sem á að gegna því hlutverki að efla alhliða atvinnulíf í Reykjavík. Meðal verkefna sjóðsins verði: a. að taka tímabundinn þátt í stofnun og rekstri fyrir- tækja í borginni. b. að ábyrgjast lán til fyrir- tækja, sem hafa sérstaka þýðingu fyrir atvinnulíf í borginni. c. að veita styrki til rann- sókna á nýjum atvinnu- tækifærum í Reykjavík. d. að veita Bæjarútgerð Reykjavíkur nauðsynlega fj ármagnsfy rirgreiðslu. Borgarstjórn Reykjavíkur mun stuðla að eflingu sjóðsins á næstu árum, þannig að hann geti sem bezt sinnt því hlut- verki, sem honum' er ætlað samkvæmt reglum sjóðsins. Leit að nýjum atvinnu- og framleiðslu- tækifærum Framkvæmd atvinnumála- stefnu Reykjavíkurborgar mun m.a. beinast að virkri leit að nýjum atvinnu- og framleiðslu- tækifærum. Skrá þarf allar hugmyndir um slík ný tækifæri og vinna á kerfisbundinn hátt að athugun einstakra mögu- leika. Meðal verkefna, sem rétt væri að taka til athugunar á næstunni, má nefna: 1. Sérstök könnun fari fram á því, hvort unnt sé og hagkvæmt að framleiða innanlands ýmsar rekstr- ar- og fjárfestingarvörur, sem nú eru fluttar inn í þágu borgarstófnana. Leita skal samstarfs við reykvísk iðnfyrirtæki í þessu skyni. 2. Hefja skal viðræður um sam starf við rannsóknir og þróunarstofnanir um nýj- ungar og eflingu fram- leiðslustarfsemi í borginni. Vitað er, að sumar þessara stofnana vinna markvisst að þróun nýjunga. 3. Lokið verði á árinu athug- unum á endurvinnslu úr- gangs á vegum borgarvehk- fræðings. 4. Rannsókn fari fram á því, hvort grundvöllur sé fyrir stofnsetningu fiskkassa- verksmiðju í Reykjavík. Þegar verkefnum samkv. framansögðu er lokið er tima- bært að taka ákvörðun um einstök framhaldsverkefni, enda er eðlilegt, að verkefnaval eigi sér stað á grundvelli forkönnun- ar. Sumarvinna skólafólks Borgarstjórn leggur áherzlu á að reynt verði að sjá því skólafólki, sem kemur til sumar- vinnu, fyrir verkefni við hæfi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.