Morgunblaðið - 23.05.1978, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 1978
47
til Kolwesi löngu áður en innrásin
hófst.
„Við fórum í kvikmyndahús eitt
kvöldið og þá var allt með kyrrum
kjörum. Við sólarupprás næsta
dag dundu ósköpin yfir,“ sagði
einn flóttamannanna. Hann sagði
enn fremur að innrásarmennirnir
hefðu verið klæddir grænum kaki-
búningum með mynd af tígrisdýri
á ermum, berfættir og með Fidel
Castro höfuðföt.
„DIABLOS*
Að sögn byrjuðu þeir á því að
herja á Frakka en áður en langt
um leið áttu allir hvítir menn
fótum sínum fjör að launa. Flótta-
fólkið segist hafa heyrt suma
innrásarmennina nefna sjálfa sig
„diablos" sem þýðir djöflar á
portúgölsku en margir þeirra
mæltu á þá tungu. Gæti það gefið
vísbendingu um að þeir væru
komnir yfir landamærin frá Ang-
óla og Hklegast af þjóðerni Lúnda.
Ekki er fullsannað hvort Kúbu-
menn hafa verið í fylgd með
innrásarmönnum en ýmislegt
bendir til þess að svo sé, t.d. að
þeir skyldu heimta að vera titlaðir
„camarade" félagi og að þeir
köstuðu fram nokkrum setningum
um sósíalisma.
Margir flóttamannanna töldu
innrásarhermennina hafa notað
sovézkar vélbyssur. Aðrir sögðu þá
hafa verið með skotvopn, sem þeir
hefðu líklega stolið frá Zaire-her.
ROTNANDI LlK
Nú þegar hvítu mennirnir eru
sloppnir úr prísundinni er vel
hægt að ímynda sér ástandiö í
hinum evrópska hluta Kolwesi. Lík
á götum úti rotna í steikjandi hita
Afríkusólar. Auðugu koparnám-
urnar eru óstarfræktar og velta
margir flóttamannanna vöngum
yfir því hvort þeir snúi nokkurn
tíma aftur. Þeir vita að afrískir
verkamenn eru enn í námunum en
enginn þeirra kann að gera við
biluð tæki.
Flestir flóttamannanna höfðu á
orði að ekki væri mögulegt að snúa
aftur til Kolwesi nema í fylgd
evrópskra hersveita því Zaire-her
væri lítt treystandi eftir undan-
gengna atburði. Zaire-her hefði
ekkert gert til að vernda þá.
Eitt fyrsta fórnarlambið, sem
fréttamenn hittu, var ítali að
nafni Gianolla, sem fór til dyra
þegar innrásarmenn knúðu á og
var skotinn niður um leið. Frakki
að nafni Boni sagði að verst hefði
verið að vita ekkert um viðbrögð
umheimsins í þessu ástandi. „Allt
símasamband rofnaði og við viss-
um ekkert hvað tímanum leið.
Engum hvítum manni er óhætt að
snúa aftyr til Kolwesi," sagði Boni.
HUGRAKKIR
HERMENN
Flóttafólkið var samdóma um
hugrekki frönsku og belgísku
fallhlífahermannanna og að þeir
hafi bjargað lífi fjöldamargra. Að
sögn barðist einn fallhlífarher-
mannanna hraustlega í tvo sólar-
hringa handleggsbrotinn. Annar
barðist iila særður á auga.
Einn Belganna kvaðst hafa séð
innrásarmenn aka líki tvítugs
Evrópubúa í hjólbörum um götur
Kolwesi öðrum hvítum mönnum
til hrellingar og þeim til viðvörun-
ar.
Þá hjuggu þeir að sögn hönd af
Grikkja sem lagði handlegginn um
barn sitt því til verndar. Maður,
sem ekki vill láta nafns síns getið
í fjölmiðlum, sagði að öllum
hvítum konum hefði verið nauðgað
og þrír hefðu nauðgað eiginkonu
sinni.
Itali að nafni Maz Sidis, sagði:
„Ég sá ótal lík á götum úti.
Uppreisnarmennirnir skutu allt
kvikt og hvítt. Þeir réðust inn á
heimili mitt og við> sluppum með
því að afhenda allt fémætt og
héldum til innan dyra, þar til
belgísku fallhlífahermennirnir
komu okkur til hjálpar."
„HRYLLILEG
ILLMENNI
Augusta Werx, 52 ára belgísk
kona, sagði að uppreisnarmennina
hafa ruðst inn á heimili sitt,
heimtað allt fémætt, sparkað
tennurnar úr eiginmanni sínum og
barið hana. Hún sagði að þeir
hefðu allir verið drukknir. „Hrylli-
leg, viðbjóðsleg illmenni," bætti
hún við grátandi.
„Við hefðum öll verið stráfelld
Framhald á bls. 30.
Fyrirhugað
fjöldamorð
París, 22. maí. AP.
ÞRÍR hryðjuverkamenn úr sam-
tökum, sem nefna sig „Synir
Suður-Líbanons“ réðust á laugar
dag á farþegaþotu frá ísraelska
flugfélaginu E1 A1 á Orly-flug-
velli við París, og virðast hafa
ætlað sér að myrða þá, sem tækju
sér lar með þotunni. Lögregla
flugvallarins skarst í leikinn og
felldi alla árásarmennina, en einn
lögreglumaður var skotinn til
bana í átökunum.
Christian Bonnet innanríkisráð-
herra Frakklands segir að ekkert
bendi til þess að fleiri hafi átt
aðild að árásinni.
Atökin við hryðjuverkamennina
stóðu í hálfa klukkustund, og
særðust sex væntanlegir farþegar
skotsárum.
Einn árásarmannanna var frá
Líbanon, en hinir tveir frá Túnis.
Þeir komu allir til Parísar 10. maí.
Innrásar-
herinn heim
Jerúsalem, 22. maí. AP
TALSMAÐUR ísraelsstjórnar
hefur skýrt frá því að allur
innrásarher fsraels í Suð-
ur-Líbanon verði farinn þaðan
fyrir 13. júnf.
Israelsmenn réðust inn í Líban-
on 15. marz s.l., og hafa haldið 10
kilómetra breiðu belti meðfram
landamærunum. Á sunnudag til-
kynnti Arieh Naor, ráðherra í
stjórn ísraels, að landsvæði þessu
yrði skilað aftur án nokkurra
skilyrða, en ísrael ætlaði þó að
gera ráðstafanir til að tryggja
öryggi íbúanna á þessu svæði.
Naor sagði ennfremur að þessi
ákvörðun ísraelsku stjórnarinnar
fæli í sér viðurkenningu á starfi
gæzluliðs Sameinuðu þjóðanna. I
Líbanon er um 4.000 manna lið SÞ
undir stjórn finnska hershöfðingj-
ans Ensio Siilasvuo.
Rannsókn á að-
búnaði Bhuttos
Þrír Rússar hjá SÞ
uppvísir að njósnum
Rawalpindi, 22. maí. Reuter.
AÐ BOÐI hæstaréttar í Rawal-
pindi verður rannsakað hvort
kvartanir Ali Bhuttos, fyrrum
forseta Pakistans, um lélegan
aðbúnað í fangelsi eigi við rök að
styðjast, en dómarinn í áfrýjunar-
máli Bhuttos vegna dauðadóms
kveðst ætla að fylgja rannsókn-
inni eftir þannig að hún verði
ekki til þess að tefja framgang
réttvísinnar.
Bhutto hóf hungurverkfall fyrir
viku í mótmælaskyni við lélegt
mataræði í fangeisinu og það að
hann fái hvorki tækifæri til að
hreyfa sig utan dyra né ganga til
salernis nema i viðurvist fanga-
varða.
Hitabylgja
Nýju Delhi, Indlandi, 22.
maí. AP.
AÐ MINNSTA kosti 70
manns hafa farizt í mikilli
hitabylgju, sem gekk yfir
Indland um helgina. Komst
hitinn víða upp í 47 stig, og
segir veðurstofan í Nýju
Delhi að allar líkur bendi til
að hitinn haldist enn um
skeið.
Flestir fórust í ríkinu Bihar,
eða 36 en þar og í ríkinu Andra
Pradesh mældist mesti hitinn.
í Andra Pradesh er vitað um
á annan tug manna, sem hafa
farizt, margir á sömu slóðum
við ströndina og fellibylur
varð 13.500 manns að bana í
nóvember í fyrra.
Dómstoll í Lahore dæmdi
Bhutto fyrir morð fyrir tveimur
mánuðum, og verður hann hengd-
ur nema hæstiréttur landsins
hnekki dómnum.
VEÐUR
víöa um heim
Amsterdam 17 skýjaó
Apena 29 skýjaó
Berlín 23 skýjaó
BrUasal 10 bjart
Chicago 12 bjart
Frankfurt 19 skýjaó
Qanf 18 skýjaó
Halsínki 19 sólskin
Jóhannesarborg 21 sólskin
Kaupmannahöfn 21 sólskin
Lissabon 19 bjart
London 14 skýjaó
Los Angelea 23 skýjaó
Madrid 16 rigning
Manila 21 lóttakýjaó
Miami 28 skýjaó
Moskva 18 bjart
Naw York 27 bjart
Ósló 22 skýjaó
Palma 22 lóttskýjaó
París 15 skýjað
Róm 24 skýjaó
Stokkhólmur 20 skýjaó
Tel Aviv 25 bjart
Tókýó 25 bjart
Vancouver 16 skýjaó
Vínarborg > , 21 skýjaó
New York, 22. maí. Reuter.
TVEIR sovózkir starfsmenn
Sameinuðu pjóðanna, sem hand-
teknir voru tyrir meintar njósnir í
págu Sovótríkjanna í New York á
laugardaginn var, koma fyrir rátt á
priðjudaginn í næstu viku, aó pví er
talsmaður bandarísku alríkislög-
reglunnar skýrði frá í dag.
Sovétmennirnir, Rudolf Petrovits
Chernjajev, 43 ára, og Jaldik
Alexandrovits Enger, sem er 39 ára,
eiga yfir höfði sér lífstíðardóm veröi
þeir sekir fundnir, en Vladimir
Petrovíts Zinjakin, 39 ára, sem talinn
er vitorðsmaður þeirra, hefur ekki
veriö handtekinn þar sem hann er
sendiráösstarfsmaöur og nýtur því
þeirra forréttinda aö ekki er hægt aö
stefna honum fyrir rétt.
Alríkislögreglan telur sig hafa
áreiöanlegar sannanir fyrir því aö
Sovétmennirnir þrír hafi í ágústmán-
uöi í fyrra haft sig mjög í frammi á
ýmsum stööum í New Jersey til aö
afla sér leynilegra upplýsinga um
smíöi vopna, sem ætluð eru til
kafbátahernaðar, og aö þeir hafi
greitt samtals 16 þúsundir dala í
mútur vegna þessara upplýsinga.
Chernjajev er fulltrúi í starfs-
mannadeild aöalstööva SÞ en Enger
er ráögjafi í þeirri deild stofnunarinn-
ar, sem fjallar um stjórnmál og
málefni Öryggisráös SÞ. Zinjakin er
hins vegar þriöji sendiráösritari hjá
sovézku fastanefndinni hjá Samein-
uöu þjóöunum.
Af hálfu alríkislögreglunnar var frá
þvi skýrt í dag, aö mennirnir heföu
verið handteknir aö lokinni tíu
mánaöa rannsókn, og hafi einn þeirra
Bandaríkjamanna, sem Rússarnir
leituðu upplýsinga hjá, aöstoöaö viö
þá rannsókn. Bandaríska utanríkis-
ráöuneytiö hefur komiö mótmælum
vegna þessa framferöis á framfæri
við sovézk yfirvöld, en einnig hefur
Kurt Waldheim framkvæmdastjóra
Sameinuöu þjóöanna verið tilkynnt
um málið. Þegar fulltrúi sovézku
sendinefndarinnar hjá SÞ var stefnt
í bandaríska utanríkisráöuneytiö
vegna þessa máls var honum meðal
annars tjáö aö Bandaríkjastjórn
vænti þess aö Zinjakin hyrfi úr landi
þar eð hann heföi misnotaö dipló-
matísk forréttindi sín.