Morgunblaðið - 02.06.1978, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 02.06.1978, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 1978 Hafnarfjörður Krókahraun Til sölu glæsileg 4ra herb. íbúö á efri hæö í raöhúsi viö Krókahraun. Bílskúrsréttindi. Árni Gunnlaugsson hrl. Austurgötu 10 Hafnarfirði sími 50764. Fyrirtæki — innflytjendur Tökum aö okkur aö útbúa tollskýrslur og verðútreikninga. Sækjum og sendum ef óskaö er. Hringið í síma 41195 kl. 9 og 18. Geymið auglýsinguna. Sogavegur Einbýlishús, sem er kjallari hæö og ris um 65 fm aö grunnfleti. Steinhús. Skiptist í: 3 svefnherb., 2 stofur ofl. Falleg lóö. Stór bílskúr. Verö um 29 millj. Eigrjc mark aðurinn Austurstræti 6 sími 26933 Jón Magnússon hdl. K * 2 rí Látið okkur smyrja bílinn reglulega Audi 80 Audi 100 Opið frá kl. 8—6. HEKLAhf. SMURSTÖÐ Laugavegi 172 — Simar 21 240 — 21 246. EF ÞAÐ ER FRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU Nýtt skip til Grifidavíkur NÝTT skip, Grindvíkingur GK 606, bættist í flota Grindvík- inga í fyrrakvöld. Nýi Grind- víkingur er tæplega 600 tonna skip, smíðað í Gautaborg í Svíþjóð og yfirbyggt í Fredrikshavn í Danmörku. Það mun geta borið rúmlega 1000 tonn af loðnu. Kaupverð skips- ins voru rúmar 1000 milljónir króna. Grindvíkingur er búinn til nóta- og togveiða. Reyndist skipið mjög vel í reynslu- siglingu. Skipið er með 2700 hestafla Wichmann aðalvél og það er búið öllum nýjustu siglinga- og fiskileitartækjum. Grindvíkingur er í eigu Fiskaness hf í Grindavík. Skip- stjórar eru Björgvin Gunnars- son og Willard Olason. Skipið mun innan skamms halda til loðnuveiða við Nýfundnaland. Illt llllfI 11 ■ t J I m f' J Byggingu nýs sjúkrahúss á ísafirði miðar nokkurn veginn eftir áætlun. Verður langt komið með að steypa húsið upp á þessu ári. Fremst á myndinni sést hvar framkvæmdir eru hafnar við grunn að íbúðum fyrir aldraða. Hvíta húsið á milli er rækjuverksmiðja, sem flutt verður á næstunni. Nýtt sjúkrahús tekið í notkun á ísafirði 1980 — í ÞESSARI nýju byggingu verður sjúkrahús, heilsugæzlu- stöð og rannsóknarstofa, en sjúkrarúmin verða 57 og á það að þjóna norðanverðum Vestfjörðum eða um 7000 manna byggð. Við ráðgerum að það verði að nokkru tekið í notkun á árinu 1980 en sennilega verður það fyrst heilsu- gæzlustöðin. sagði Bolli Kjartans- son bæjarstjóri á ísafirði í stuttu spjalli við Mbl. nýlega. — í sumar verður haldið áfram að steypa upp húsið og skv. samningi á verktakinn að ljúka við að steypa á árinu og gera húsið fokhelt. Ekki er þó víst að^ fjármagnið sem ráðgert var tjf byggingarinnar á þessu ári dúgi alveg þar sem verðbólgan^ hefur rýrt það nokkuð. Ertöll starfsemin úr gamla sjýkráhúsinu á að fl.vtjast hingað yfir og ég geri ráð fyrir að fyrst fari inn heilsugæzlu- stöðin og rannsóknaraðstaðan. Gamla sjúkrahúsið verður síðan e.t.v. notað sem ráðhús og safnhús. Á Torfnessvæðinu, skammt frá byggingu hins nýja sjúkrahúss, er verið að ljúka við að gera grupn undir íbúðir fyrir aldraða og sagðist Bolli gera ráð fyrir að nú á næstunni yrðu tilboð áthuguð, en í þessu húsi verðuf 31 íbúð á þremur ha'ðum’ Rækjuverksmiðj- an sem er -milli þessara tveggja bygginga verður flutt á næstu árum og sagði bæjarstjórinn að “^samningar um það mál stæðu nú yfir. Nú er verið að byggja upp nýtt hverfi á ísafirði, Holtahverfi, sem er innarlega í firðin ■ — Á þessu svæði er skipulögð 600 manna byggð, sagði Bolli, og er úthlutun þess nú lokið að mestu leyti. Þarna eru raðhús, einbýlis- hús og fjöjbýlishús og eru þegar um það bil 15 fjölskyldur fluttar eða nálægt 10% væntanlegra íbúa. Næsta svæði sem við þurfum að fá til úthlutunar í janúar næstkom- andi verður í landi Seljalands. Bolli sagði að s.l. 5 ár hefði tekizt að anna eftirspurn eftir lóðum bæði til einstaklinga og byggingarfyrirtækja. Um önnur verkefni á dagskrá um þessar mundir sagði Bolli að unnið væri að gerð aðstöðu fyrir dráttarbraut í Suðurtanga og viðgerðarkanti þar og unnið væri að stækkun viðlegukants í aðalhafskipahöfn- inni auk ýmissa verkefna á sviði gatnagerðar og lagna í nýrri hverfum. Iloltahverfið innst í Skutulsfirði. Þar verður 600 manna byggð í einbýlishúsum, raðhúsum og fiölbýlishúsum og er um þessar mundir verið að flytja í mörg húsanna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.