Morgunblaðið - 08.06.1978, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JÚNI 1978
Slippstöðin end-
urbyggir Breka
Tryggingamiðstöðin hefur
ákveðið að taka tilboði
Slippstöðvarinnar á Akur-
eyri í endurbyggingu togar-
ans Breka sem stórskemmd-
ist í eldi á Akureyri fyrir
nokkrum vikum. Hljóðar
verksamningur upp á 300
milljónir króna og á viðgerð
að vera lokið eftir 4Ú2
mánuð.
Eins og áður hefur komið fram
í Mbl. bárust 6 tilboð í viðjíerð
togarans, fjögur erlend og tvö
innlend. Voru þau á bilinu 275 til
450 milljónir en tilboðin voru svo
misjafnlega sett upp að upphæð-
irnar eru ekki sambærilegar. Voru
hæstu tilboðin frá Svíþjóð og
Portúgal en þau íslenzku í hópi
þeirra lægri. Sagði Gunnar Felix-
son fulltrúi hjá Tryggingamiðstöð-
inni við Mbl. í gær að íslenzku
tilboðin hefðu reynzt fyllilega
samkeppnisfær við hin erlendu. Þá
sagði Gunnar að miklu hefði ráðið
um valið á Slippstöðinni sú ósk
eigenda togarans að viðgerðin færi
þar fram vegna þess að togarinn
var upphaflega smíðaður hjá
Slippstöðinni.
Kosningaskrifstofur
á Hellu og Selfossi
S.IÁLFSTÆÐISMENN á Scl-
fossi og IIcllu hafa nú opnað
kosningaskrifstofur vcgna
væntanlcgra alþingiskosninga.
Skrifstofan á Hellu er í
Verkalýðshúsinu við Suður-
landsveg og er hún opin daglega
milli kl. 17 og 22 og einnig um
helgar. Sími skrifstofunnar á
Hellu er 5030. Kosningaskrif-
stofa sjálfstæðismanna í Árnes-
sýslu er að Tryggvagötu 8,
Selfossi, og er opin miili klukk-
an 9 og 19. Sími skrifstofunner
er 1899. Á skrifstofunum eru
veittar upplýsingar um utan-
kjörstaðakosningu, kjörskrár og
annað er varðar væntanlegar
kosningar. Eru stuðningsmenn
D-listans í Suðurlandskjördæmi
beðnir um að hafa samband við
skrifstofurnar.
Launamálaráð BHM:
Lýsir sérstakri ánægju með
væntanlega ákvörðun nýja
borgarstjórnarmeirihlutans
Launamálaráð Bandalags
háskólamanna hefur samþykkt
ályktun. þar scm lýst cr sórstakri
ánægju með þá væntanlegu
ákvörðun hins nýja borgar
stjórnarmcirihluta að hann greiði
laun samkvæmt samningum og
lýsir um lcið sérstökum stuðningi
28 hvalir
veiddir
TUTTUGU og átta hvalir hafa nú
veiðzt. í gærmorgun kom Hvalur 8
með tvo hvali, langreyði og búrhveli,
og Hvalur 6 kom í gær með langreyði.
Slæmt veður var á hvalveiðimiðunum
í gær.
Er Morgunblaðið hafði samband við
Rainbow Warrior í gær vörðust
skipverjar allra frétta en samkvæmt
pví sem beir gáfu upp í fyrradag munu
beir ætla að taka lífinu með ró næstu
tvo daga og æfa sig á gúmbátum og
öðrum útbúnaði.
við aðgerðir Vcrkamannasam-
bandsins.
Ályktun launamálaráðs BHM er
svo hljóðandi:
Launamálaráð lýsir yfir sérstakri
ánægju með þá væntanlegu ákvörð-
un hins nýja borgarstjórnarmeiri-
hluta að hafa kaupránslögin, bæði
þau fyrri og síðari, að engu ,og
greiða öllum starfsmönnum borgar-
innar umsamið kaup. Launamála-
ráðið skorar á ríkisstjórnina að
fella kaupránslögin nú með öllu úr
gildi og fullvissar hana um,að
launafólk hefur skilið efni þeirra
prýðisvel — eins og dæmin sanna —
frekari útskýringar á þeim eru með
öllu óþarfar.
Jafnframt lýsir launamálaráðið
yfir sérstökum stuðningi við að-
gerðir Verkamannasambandsins.
Launamálaráð mun leita sam-
vinnu og samráðs við stjórn BSRB
um þátttöku ríkisstarfsmanna í
væntanlegum aðgerðum samtaka
launamanna, til þess að knýja fram
endanlegt afnám kaupránslaganna.
Luke Kelly, Jim McCann, John Sheahan og Barney McKenna létu veðrið ekki á sig fá og voru hinir
hressustu þrátt fyrir að illa viðraði á Keflavíkurflugvelli í gær.
írski þjóðlagaflokkurinn Dubliners:
„Hefur alltaf langað
að koma til íslands”
ÞAÐ VAR hvasst en úrkomu-
laust þegar írski þjóðlaga-
flokkurinn Dubliners kom til
Keflavíkurflugvallar í gær frá
Glasgow. írarnir létu hvass-
viðrið þó ekki á sig fá og stilltu
sér þolinmóðir upp fyrir Ijós-
myndara en því næst örkuðu
þeir inn í flugstöðvarbygging-
una. í kvöld klukkan 21.00
heldur þjóðlagaflokkurinn tón-
leika í Laugardalshöll á vegum
Listahátíðar og er ekki að efa
að marga fýsir til að sjá
kappana því tónlist þeirra er
fjörleg og höfðar til allra
aldurshópa;
Mbl. náði tali af einum úr
þjóðlagaflokknum, Jim McCann,
og innti hann fyrst eftir því
hvaðan þeir kæmu nú. „Við
komum frá Dublin," svaraði
MeCann. Sagði hann að þeir
hefðu nýlokið hljómleikaferða-
lagi um Vestur-Þýzkaland og
Holland og verið vel tekið enda
væru þetta þau lönd sem þeir
væru vinsælastir í. „í Dublin
héldum við síðast hljómleika í
febrúar en við erum nú að
undirbúa okkur undir plötuupp-
töku sem við förum að öllum
líkindum í í sumar. Hljómplata
þessi ætti síðan að koma út
seinna á árinu en við vitum ekki
hvenær. Nei, þetta verður ekki
hljómleikaplata en það hefur
ekki endanlega vérið ákveðið
hvaða lög verða á plötunni.
„Þetta er í fyrsta sinn, sem ég
kem til íslands, en hinir þrír
hafa komið hingað einu sinni
áður. Að vísu sáu þeir ekki
mikið af landinu, því þeir
millilentu hér á leiðinni yfir
Atlantshafið fyrir nokkrum
árum. En mig og reyndar okkur
alla hefur alltaf langað til að
koma hingað og ferðast um
landið. Eiginlega má segja að
þetta sé eina landið í heiminum
fyrir utan Suður-Ameríku sem
við höfum ekki haldið hljóm-
leika í. Jú, við höfum heldur
ekki haldið hljómleika í Sovét-
ríkjunum eða öðrum löndum
Austur-Evrópu. Við höfum kom-
ið til austantjaldslandanna, og í
eitt skipti er við vorum í
Finnlandi stóð til að skreppa til
Sovétríkjanna og halda þar eina
hljómleika en ekkert varð úr.
„Við þekkjum dálítið til Is-
lands, vitum að fólki er raðað í
símaskrána eftir fornafni og að
konur halda eftirnafni sínu þótt
þær gifti sig. Ég hef einnig lesið
talsvert af íslenzkum bókmennt-
um og tel mig þekkja ísland
nokkuð vel af bókum. „Nei, ég
hef ekki lesið fornsögurnar en
mér skilst að það sé talsvert
talað um Ira og Irland í þeim.
Það eru til írskar fornsögur og
þær hef ég lesið 'en það gæti
verið gaman að lesa þær
íslenzku líka. Islenzku veit ég að
fáir tala utan Islands og finnst
mér dálítið sérstakt að svona
lítil þjóð skuli hafa sína eigin
tungu.
„Við verðum hér fram á
laugardag og ætlum að reyna að
skoða okkur aðeins um áður en
við förum. Það væri t.d. gaman
að fara austur að Geysi og sjá
hinn eina sanna hver. Annars
reynum við aðeins að nota
tímann vel og sjá okkur sem
mest um.
„Er það satt að það sé hægt
að leigja þyrlu og fljúga hring-
inn í kringum ísland?“ skýtur
Luke Kelly einn meðlima
Dubliners, inn í og fullyrðir að
hann hafi heyrt að svo væri. Það
tók nokkra stund að sannfæra
hann um að svo væri ekki en
eitthvað þótti honum það miður
að ekki skyldi vera hægt að
skreppa í útsýnisflug yfir eyj-
una.
Dubliners eru nú komnir að
bankanum í flugstöðvarbygg-
ingunni og flýta sér að skipta
pundum sínum yfir í krónur.
Ekki höfðu þeir minnstu hug-
mynd um verðlagið á íslandi og
þegar blaðamaður sagði
McCann að flaska af góðu viskíi
kostaði jafnvirði 14 sterlings-
punda kallaði hann upp: „Drott-
inn minn dýri,“ og bætti svo við,
„en ég kom með mitt með mér“
og benti á farangur sinn.
Grieg Duo
Tónleikarnir hófust á
sónötu í B-dúr, K-378 eftir
Mozart. Styrkleiki og ýmsar
skreytingar voru með öðrum
hætti í leik þeirra félaga en í
frumtextanum og verkið í
heild gjörsneytt öllum
„sjarma“ og blæbrigðum.
Annað verkið á efnisskránni
er eftir Busoni. Hann var
sérkennilegt sambland af
píanósnillingi og tónskáldi og
voru verk hans ýmist tækni-
legar útfærslur eða alvarlegar
tónsmíðar, sem þykja merki-
legar fyrir ýmis heilabrot og
tilraunir, þó frekar sem fyrir-
bæri en tónlist. Sónötu nr. 2
í e-moll semur Busoni 32 ára
og má þar heyra undanfara
þeirra breytinga sem ein-
Tónllst
Á LISTAHÁTÍÐ
V______________-S
eftir JÓN
ÁSGEIRSSON
kenndu tónskáldskap hans
síðar meir. Ole Bohn lék
verkið víða mjög vel en leikur
hans var þó furðumisjafn.
Síðasta verkið var eftir Schu-
bert, Fantasían í C-dúr, mjög
fallegt verk. Það var eins með
Fantasíuna og fyrri verkin að
fiðluleikarinn gat gert margt
mjög fallega. Tónmyndunin
hjá honum er oft svo sérkenni-
lega líflaus og „hás“, sérstak-
lega í veikm leik. I hraðum
leik krómantískum skölum og
hljómagripum var leikur fiðl-
arans við „ekki hægt“-mörkin.
Ljósi púnkturinn á þessum
tónleikum var píanistinn
Einar Steen-Nökleberg og
væri gaman að heyra hann
leika einan við tækifæri. Það
hefur sjaldan verið venja hjá
undirrituðum að fjalla um
flutning á aukalögum en eftir
þessa tónleika léku þeir félag-
ar þátt úr sónötu eftir
Brahms. I þetta sinn lék
fiðlarinn án nótna og var
leikur hans allur með öðrum
hætti en fyrr um kvöldið og
bendir það tii þess að Ole
Böhn geti gert betur en
áheyrendur hafa orðið vitni að
á tvennum tónleikum. Hvað
svo sem því veldur.
Jón Ásgeirsson.
— Árásarmálið
í Hrafnistu
Framhald af bls. 44.
pilturinn hélt áfram að veita
manninum högg og félagi hans
veitti honum einnig hjálp við
verkið. Um síðir yfirgáfu piltarnir
húsið sömu leið og þeir höfðu
komið. Næturvörðinn skildu þeir
eftir liggjandi í blóði sínu. Gat
— Sáttatillaga
Framhald af bls. 2
ið á leit við starfsfólkið að það
hefji vinnu aftur ekki síðar en
næstkomandi mánudag. Jafnframt
því sem bæjarstjórn ítrekar þær
forsendur sem fram komu í fyrri
sáttatillögu hennar leggur hún
áherzlu á að vinna byrji aftur í
trausti þess, að sambúðarmál
verkstjóranna og starfsfólksins
þróist á næstu tveimur mánuðum
í það jákvæða átt að viðunandi
andrúmsloft skapist á vinnustaðn-
hann kallað á hjálp. Reyndist
hann bæði brotinn og marinn og
var hann lagður inn á sjúkradeild
Hrafnistu.
Við yfirheyrslur hjá rannsókn-
arlögreglunni í gærkvöldi gat
pilturinn engar skýringar gefið á
því hvers vegna þetta æði rann á
hann.
Vegna rannsóknar málsins upp-
lýstust nokkur innbrot og tengjast
allmörg ungmenni þeim afbrotum.
um. Þá verði tryggt að eftirlits-
störfum verði skipt á vissum
tímabilum. Að liðnum tveimur
mánuðum verði öll þessi mál
endurskoðuð í ljósi fenginnar
reynslu.“
Þessi tillaga var samþykkt með
7 atkvæðum bæjarfulltrúa sjálf-
stæðismanna, Félags óháðra
borgara og Framsóknarflokksins,
en bæjarfuiltrúar Alþýðuflokksins
og Alþýðubandalagsins sátu hjá.
Þá var samþykkt tillaga um að
óska eftir því við verkalýðsfélögin
að þau leggi þessa tillögu fyrir
starfsfólkið.