Morgunblaðið - 08.06.1978, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JÚNI 1978
33
íslendingar taka þátt í að setja
alþjóðlega matvælastaðla
NÚ HAFA öðru sinni hafist
nefndarstörf á íslandi. sem munu
stuðla að því. að Islendingar taki
þátt í að skrá alþjóðlega matvæla-
staðla. eða Codex Alimentarius.
Codex Alimentarius er staðla-
skrárráð. sem 114 þjóðir eru nú
aðilar að. Ráð þetta var stofnað
af Matvæla- og landbúnaðarstofn-
un Sameinuðu þjóðanna og Al-
þjóðaheilbrigðisstofnuninni árið
1962 til að sjá um matvæiastöðl-
un. Tilgangurinn var að vernda
heilsu neytenda og tryggja sóma-
samlega verzlunarhætti með mat-
væli. Stofnaðar voru nefndir fyrir
hvern tiltekinn flokk matvæla og
fyrir hvern þeirra altæku efnis-
þátta. scm taka til ailra flokk-
anna. Af vörustaðlanefndum má
nefna nefndir, sem fjalla um fisk
og fiskafurðir, kjöt. hraðfryst
matvæli og matvæli í sérþarfir.
Sérþáttanefndir sjá um máiefni
eins og merkingu matvæla og
heilbrigði matvæla. Nú starfar 21
staðlaskrárnefnd. en hver nefnd
kemur saman einu sinni á ári í
landi formanns hennar.
Árið 1967 var íslenzk staðla-
skrárnefnd skipuð og starfaði hún
undir yfirstjórn og á kostnað
sjávarútvegsráðuneytisins.
Sigurður Pétursson, gerlafræðing-
ur, var formaður en auk hans voru
Bergsteinn Á. Bergsteinsson, fisk-
matsstjóri, og Einar Jóhannsson,
eftirlitsmaður, í nefndinni. Páll A.
Pálsson, yfirdýralæknir, var skip-
aður í nefndina 1971.
Norðurlondin hafa haft með sér
samvinnu og skipað nefndir em-
bættismanna eða staðlaskrárráð,
og undirnefndir ríkisstofnana og
samtaka einkaaðila. Haldnir eru
áriegir fundir og sótti Sigurður
Pétursson fund í Stokkhólmi árið
1971 fyrir hönd íslands. Sigurður
sat fundi staðlaskrárnefndar fyrir
fisk og fiskafurðir frá upphafi,
1964—1976. Einnig voru nokkrir
nefndarfundir sóttir hjá staðla-
skrárnefndum, sem fjalla um
heilbrigði kjöts og merkingu
matvæla.
Islenzka nefndin var leyst frá
störfum 1972, en Sigurður Péturs-
son sá um störf hennar upp frá
því. Nú hefur utanríkisráðuneytið
komið á fót nýrri staðlaskrárnefnd
hér á landi. í nefndinni eiga nú
sæti aöiiar sem gagn hafa af
störfum Codex Alimentarius. Þeir
eru:
Rannsóknastofnun landbúnað-
arins, Rannsóknastofnun fiskiön-
aðarins, Rannsóknastofnun iðnað-
arins, Framleiðsiueftirlit sjávar-
afurða, Heilbrigðiseftirlit ríkisins,
Matvælarannsóknir ríkisins,
. Raunvísindastofnun háskólans,
Yfirdýralæknirinn á Islandi,
Eiturefnanefndin á ísiandi og
FAO-nefndin á íslandi.
Staðlaskrárnefndin hélt sinn
fyrsta fund 9. maí 1977 og kaus sér
þá formann, Björn Sigurbjörns-
son, forstjóra Rannsóknastofnun-
ar landbúnaðarins, en hann er
einnig formaður íslenzku
FAO-nefndarinnar. Aðild að
nefndinni er að öðru leyti ekki
persónubundin. Nefndin fer með
yfirstjórn þeirra mála hériendis,
sem varða Codex Alimentarius, og
er gert ráð fyrir að hún komi
saman að minnsta kosti tvisvar á
ári.
Á árinu 1977 tók ísland þátt i
tveimur fundum staðlaskrár-
nefnda erlendis. Annar var um
viðbótarefni í matvælum, en hinn
MYNDAMÓTHF.
PRENTMYNDAGERÐ
AÐALSTR/ETI l -SÍMAR: 17152-17355
í
um fisk og fiskafurðir, sem um staðlaskrárgerð fyrir fisk og
fjögurra manna nefnd sótti. Þarna fiskafurðir með aðild bæði ríkis-
skapaðist sjálfkrafa undirnefnd stofnana og sölusamtaka.
Aðalfundur
Sjóvátryggingafélags
íslands h/f.,
verður haldinn í húsakynnum félagsins á 8. hæð
Suðurlandsbrautar 4, Reykjavík, föstudaginn 9.
júní 1978 og hefst kl. 3 síödegis.
Dagskrá samkvæmt samþykktum félagsins.
Stjórnin
Þýski
borðbúnaðurinn
kominn
6. geröir fyrirliggjandi.
Litlö við í verzlun okkar. Gjafaúrvalið hefur aldrei verið fallegra.
RAflflAGERÐIN
Hafnarstræti 19
Station Sunbeam
1600 árgerð 1974.
til sölu. í góöu lagi en þarfnast málningar
neöan tii. Upplýsingar í síma 21195.
Eftirprentanir
heimsfrægra málara,
mjög gott úrval. Þeir sem hafa pantað gjöri svo vel að
vitja pantana strax, þar sem upplag sumra tegunda er
mjög li'tið. Kauphöfn s.f. '
Vesturgötu 3,
sími 19520.
Radsófasett
Áklaeöi: rifflaö flauel 3 litir
Hagstaett verö
Hjónarúm
Margar geröir
Verö vid allra haefi
Einstaklingsrúm
Hagstætt verö
irumarkaðurinn hf.
núla 1A. Simi 86112.