Morgunblaðið - 16.06.1978, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1978
43
„Oftveit fólk
ekki hvor er
hvorogstund-
umerégsjálf-
ur ekki viss”
— Segir Telly „Kojak” Savalas
Nýlega keypti íslenska sjón-
varpið sýningarrétt á þrettán
sjónvarpsþáttum um lögreglu-
garpinn Kojak og eru nú
hafnar sýningar á þeim. Þætt-
irnir um Kojak hafa notið
fádæma vinsælda undanfarin
ár í Bandarikjunum, þar sem
þeir eru framleiddir og víða
um heim og má segja að
hálfgert Kojak-æði hafi gripið
um sig þar sem þeir hafa verið
sýndir og hafa menn unnvörp-
um reynt að temja sér siði og
háttu aðalhetjunnar, sem hinn
svipmikli. sköllótti Telly Saval-
as leikur, rakað af sér hárið og
hafið sleikipinnaneyslu í stjór
um stíl. Þættir þessir hafa
verið sýndir á hinum Norður-
löndunum við góðar undirtekt-
ir og sagt er að Bretadrottning
láti þátt um þessa vinsælu
hetju ógjarnan framhjá sér
fara.
Að sögn Björns Baldurssonar
hjá sjónvarpinu hafði það lengi
verið á döfinni hjá sjónvarpinu
að fá þætti um Kojak til
sýningar, en sakir þess hve þeir
hafa verið dýrir hefur það ekki
verið unnt fyrr en nú. Björn
sagði ennfremur að ef þættirnir
hlytu góðar viðtökur hérlendis
yrðu að öllum líkindum keyptir
fleiri til viðbótar.
Þegar þættirnir um Kojak
hófu göngu sína í Bandaríkjun-
úm árið 1973 hlutu þeir mikið
lof áhorfenda sem og gagnrýn-
enda. Voru þættirnir útnefndir
til sex Emmy-verðlauna og
Telly Savalas hlaut titilinn
besti leikari í aðalhlutverki í
sjónvarpsþáttum.
Framleiðandi þáttanna Jam-
I es McAdams segir: „Raunsæi,
Lögregluhetjan Theo Kojak.
Undir hattinum er einhver
verðmætasti skalli f heimi.
hvað Varðar bæði persónusköp-
un og söguþráð, lögðu að miklu
leyti grundvöllinn að vinsæld-
um Kojaks. Þess vegna reynum
við að auka sífellt kvikmynda-
tökur „á staðnum" í New York.“
Þættirnir sem íslenska sjón-
varpið sýnir eru úr annarri
þáttaröðinni, sem fylgdi strax á
eftir þeirri fyrstu. Um þessa röð
segir McAdams: „Við ætlum að
leggja aukna áherslu á persónu
Kojaks í þessum þáttum, án
þess þó að upplýsa of mikið um
fortíð hans. Við ætlum áhorf-
endum sjálfum að geta sér til
um hana.“
í komandi Kojak-þáttum
munu íslenskir sjónvarpsáhorf-
endur m.a. fá að sjá kappann
kljást við spillingu innan lög-
reglunnar og réttarkerfisins
eins og fyrirrennari hans,
Serpico, gerði við heldur slæleg-
ar undirtektir. Til að efla
raunsæislegt yfirbragð þátt-
anna hafa framleiðendur þeirra
notið sérstakrar tæknilegrar
ráðgjafar Brutons nokkurs
Armus, sem er starfandi leyni-
lögreglumaður í New York.
En hvað sem öllu raunsæi
H*glClgraf»h}: \th(' íi:n)[1.'1, |[í'Ntr rdoRt, tra H*ftíri>i Mn[11, tO>>, íUiij I’[}ii-1„1 .ir-
Hluti af Kojak-æðinu. Almanök, leikföng og teiknimyndir.
Telly Savalas með hið nauðrak-
aða höfuð sitt. „Ég hætti ekki
á það að láta hárið á mér vaxa“.
líður þá er það engu að síður
ljóst að það er fyrst og fremst
túlkun Telly Savalas á hlutverki
sínu sem hefur gert þessa þætti
vinsæla um allan heim. Hann
segir sjálfur að hann og Kojak
verði ekki skildir að: „Ef ég
væri lögga, þá væri ég svona.“
Raunar er það svo að fólk
hrópar oft á eftir honum
„Kojak“. „Oft veit fólk ekki hvor
er hvor og stundum er ég
sjálfur ekki viss.“
Það er sem sagt spurning
hvar Telly endar og Kojak
byrjar. Það er þó allavega ljóst
hvar Telly byrjaði.
„Telly" er stytting úr
Aristotle, en það heitir Savalas
að skírnarnafni. Hann fæddist í
New York fyrir rúmum fimmtíu
árum (hann heldur ártalinu
leyndu), sonur grískra hjóna,
Nicholas og Christina Savalas,
og hefur Telly lýst föður sínum
sem „alveg sérstökum" manni
og móðir hans er þekkt lista-
kona í Bandaríkjunum.
Foreldrar hans hvöttu hann
til náms og lauk hann B.S. prófi
frá Columbia-háskóla og hóf
skömmu síðar vinnu við Upplýs-
ingaþjónustu ríkisins og hlaut
þar skjótan frama. Eftir nokkur
ár hóf Telly síðan störf sem
yfirmaður fréttadeildar hjá
ABC.
Hann hóf leikferil sinn á
i fertugsaldri þegar honum mis-
tókst að finna leikara til að fara
með smáhlutverk í leikriti.
Framhald á bls. 62.
Kórfélagar ásamt stjórnanda sínum.
Bandarískur kór
í Bústaðakirkju
Bandarískur háskólakór frá
Edgewood College í Wisconsin
kemur hingað nú um helgina.
Kórinn er á heimleið úr þriggja
vikna tónleikaferð um Frakkland,
sem farin var í tilefni 50 ára
afmælis skólans.
Sunnudaginn 18. júní heldur
kórinn tónleika í Bústaðakirkju
sem hefjast kl. 20.30. A efnisskrá
eru meðal annars lög úr Jesus
Christ Superstar, negrasálmar.
Missa Brevis (Lauda Sion) eftir
Richard Zgodova verður flutt.
í kórnum eru 20 söngvarar en
stjórnandi er Vernon Sell. Undir-
leikari er Louise Straub.
Brúðkaupsgjöf
- er matar- og
kaffisett frá Glit.
GLIT
I^OFÐABAKKA 9
SIMI$?41 J.
f m \ 1ijj Wæ í
IP*™ nF i Ws '' tohm wm *
m Iv U jj
-;£'ík