Morgunblaðið - 01.07.1978, Page 15
15
Framkvæmdir hraðfrystihúsa ’ 77-78
Hér fyrir neðan birtast tvær töflur úr nýútkominni skýrslu Framkvæmdastofnunar
ríkisins en þær sýna framkvæmdir og framkvæmdaáform hraðfrystihúsa 1977—1978 og
er augljóst af þeim að framkvæmdaþörfin er mikil í þessari atvinnugrein um þessar
mundir.
Framkvœmdir og framkvœmdaáform hraðfrystihúsa 1977
Skipting eftir tegundum framkvœmda.
Verðlag hvers árs í m.kr.
1978.
Framkvœmt 1977
Framkvæmdaáform 1978
Landið allt Byggingar og umhverfi l.548.8 Vélar og tæki 1.154,0 Alls 2.702,8 Byggingar og umhverfi 2.393,9 Vélar og tæki 1.787,4 Alls 4.181,3
Suðurland 89,6 155,5 245,1 203,0 78,0 281,0
Reykjanes 141,8 188,8 330,6 285,8 382,2 668,0
Reykjavík 325,2 149,9 475,1 272,3 222,7 495,0
Vesturland 84,7 90,5 175,2 170,2 173,7 343,9
Vestfirðir 455,8 296,5 752,3 700,7 450,7 1.151,4
Norðurland vestra .. 113,8 52,8 166,6 198,0 220,5 418,5
(Norðurlar.d eystra . 154,8 117,6 272,4 195,5 66,0 261,5
Ai’sturland 183,1 102,4 285,5 368,4 193,6 562,0
Framkvœmdir og framkvæmdaáform hraðfrystihúsa 1977 - 1978.
Skipting eftir verkunaraðferðum.
Verðlag hvers árs í m.kr.
Framkvæmt 1977
Framkvœmdaáform 1978
Söltun Skreiðarv. Alls Frvsting Söltun Skreiðarv. Alls
í.andið allt 2.702,8 274,3 44,1 3.021,2 4.181,3 351,0 51,9 4.584,2
Suðurland 245,1 40,9 286,0 281,0 30,0 - 311,0
Reykjanes 330,6 13,5 7,5 351,6 668,0 17,8 1,7 687,5
Reykjavík 475.1 25.3 500,4 495,0 26,0 - - 521,0
Vesturland 175,2 7,0 - 182,2 343,9 17,5 - 361,4
Vestfirðir 752,3 15,2 3,1 770,6 1.151,4 38,7 35,0 1.225,1
Norðurland vestra 166,6 22,7 10,9 200,2 418,5 4,5 0,2 423,2
Norðurland eystra 272,4 126,9 13,5 412,8 261,5 109,0 15,0 385,5
Austurland 285,5 22,8 9,1 ■ 317,4 562,0 107,5 - 669,5
Ágúst Sigurðsson forstjóri,
Stykkishólmi.
Aukin
fjölbreytni
eykur at-
vinnu öryggið
SIGURÐUR Ágústsson h.f. í
Stykkishólmi hefur um alllangt
skeið framleitt skelfisk sem nær
eingöngu fer til útflutnings og
þykir þar lostæti á við humar og
rækju. Ágúst Sigurðsson forstjóri
fyrirtækisins sagði í viðtali við
Viðskiptasíðuna að framleiðslan
hefði aukist verulega undanfarin
ár og væri nú svo komið að 6 bátar
lönduðu daglega um 40 tonnum til
vinnslu hjá fyrirtækinu. Helztu
sölumarkaðarnir eru Bandaríkin
og Evrópa, aðallega Frakkland.
Siguröur Ágústsson h.f. hefur
einnig með höndum saltfiskverkun
í Rifi og frystingu bolfiskafla í
Stykkishólmi og sagði Ágúst að
einn helzti kosturinn við skelfisk-
vinnsluna væri hversu stöðug hún
væri og yki þar með atvinnuörygg-
ið en hjá fyrirtækinu starfa um
100 manns.
Höfum kaupendur að eftirtöldum verðbréfum:
VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI
RÍKISSJÓÐS:
Kaupgengi Yfirgengi
pr. kr. 100.- miðað við
innlausnar-
verö Seðla-
bankans
1967 2. flokkur. 2660.06 43.4%
1968 1. flokkur 2316.67 27.4%
1968 2. flokkur 2178.81 26.7%
1969 1. flokkur 1623.35 26.7%
1970 1. flokkur 1490.97 65.7%
1970 2. flokkur 1086.59 26.5%
1971 1. flokkur 1022.02 64.0%
1972 1. flokkur 891.01 26.4%
1972 2. flokkur 762.39 64.0%
1973 1. flokkur A 583.17
1973 2. flokkur 539.13
1974 1. flokkur 374.46
1975 1. flokkur 306.15
1975 2. flokkur 233.64
1976 1. flokkur 221.27
1976 2. flokkur 179.68
1977 1. flokkur 166.87
1977 2. flokkur 139.78
1978 1. flokkur 113.91
VEÐSKULDABRÉFX:
Kaupgengi
pr. kr. 100.-
1 ár Nafnvextir: 26% 79-
2 ár Nafnvextir: 26% 70-
3 ár Nafnvextir: 26% 64-
x) Miðað er við auðseljanlega fasteígn.
Höfum seljendur að eftirtöldum verðbréfum:
HAPPDRÆTTISSKULDABRÉF
RÍKISSJÓÐS: Sölugengi
pr. kr. 100.-
1974 — D 388.22 (10% afföll)
1974 — E 274.73 (10% afföll)
1974 — F 274.73 (10% afföll)
1975 — G 171.57 (19.3% afföll)
PMRPCninCARPClAG ÍllAADf HP.
VERÐBRÉFAMARKAÐUR
Lækjargötu 12 — R (iðnaðarbankahúsinu)
Sími 2 05 80.
Opið frá kl. 13.00 til 16.00 alla virka daga.
Horft hátt og
kafað djúpt
Menntaskólanemendur láta öðru
hverju til sín heyra í menningar-
lífinu. Ég minni á bók þeirra, Nýr
Grettir, sem kom út fyrir all-
nokkrum árum og flutti skáldskap
í léttum dúr. Mér er ekki grunlaust
um að sú bók hafi haft nokkur
áhrif og er slíkt vel af sér vikið af
svo ungu fólki. Nú hefur mér
borist í hendur lítið rit sem heitir
De rerum natura — um náttúrlega
hluti, eða bara um náttúruna,
skulum við segja. Rit þetta er ekki
í strangasta skilningi á sviði
undirritaðs. En hvort tveggja er að
ég hafði gaman af að lesa það og
svo er alltaf skylt að vekja
athygli á því sem ung't fólk leggur
af mörkum þegar það vandar sig.
Nógu margt er þögn og gleymsku
undirorpið þó frumgróðri mennta-
lífsins sé ekki umsvifalaust varpað
í þá glatkistu.
Heimspekingnum Kant þótti
mest til um siðgæðisvitundina í
brjósti sínu og alstirndan stjörnu-
himin. Ef dæma skal af De rerum
natura beina menntaskólanem-
endur fyrst og fremst sjónum
sínum að hinu síðarnefnda. Þeir
hugsa hátt í bókstaflegasta skiln-
ingi orðanna. Útþensla alheimsins
eftir Ágúst Lúðvíksson, Er líf
utan sólkerfisins? eftir Steinþór
Skúlason, Frumefnin eftir
Sæmund Þorsteinsson,
Bakgeislun í geimnum eftir
Kristin Andersen og Dulstirni
eftir Skúla Sigurðsson eru allt
ritgerðir um uppruna og eðli
alheimsins. Ekki eru þessi fræði
aiþýðlega fram sett og fyrir koma
orð eins og »rauðvik« og »blávik«
sem lítt tjóir að fletta upp í
orðabókum. Þetta verður því ekki
Bðkmenntlr
eftir ERLEND
JÓNSSON
lesið með neinum þotuhraða, þvert
á móti verður sá, sem lítt er inni
í þessum vísindum, að feta sig
áfram eftir síðunum. Bendir líka
hvort tveggja til — nafn rits og
útgefanda — að hér sé ekki á
ferðinni nein alþýðufræðsla i
gömlum skilningi heldur sé hér
verið að þjóna nútímavísindum á
nútímahátt. Eigi að síður hygg ég
að réttur og sléttur áhugamaður
geti verið læs á þessar ritgerðir —
undirritaður er í þeim hópi (það er
að segja áhugamannahópnum) og
þykist því geta trútt um talað. Hér
er engin mælgi, ekkert þvarg,
ekkert fjas, heldur haldið sér við
efnið en þannig lít ég svo til að
skrifa skuli um vísindaleg efni.
Ennfremur geta höfundar um
heimildir og hygg ég að ritgerðirn-
ar séu heppileg æfing í vísindaleg-
um vinnubrögðum. »Ef lögmálið er
rangt, verðum við að byrja aftur
á byrjuninni,« segir Ágúst Lúð-
víksson. Það er víst mikið rétt.
Undirstaða raunvísinda er hin
sama og hugvísinda, leit að
sannleikanum sem er þá jafnframt
fólginn í að viðurkenna mistök og
yfirsjónir.
Já, þeir horfa hátt, ungu lærðu
mennirnir, en þeir kafa líka djúpt.
Leifturfiskar heitir t.d. forystu-
ritgerð bókarinnar, höfundur
Olafur Guðmundsson. Ekki mun
tjóa að slá upp á því orði í
orðabókum fremur en rauðviki og
bláviki, enda segir Ólafur að
»orðið leifturfiskur er nýyrði, sem
var smíðað sérstaklega fyrir þessa
grein. Orðið verður notað um þá
fiska, sem á ensku nefnast
Flashlight fishes, en svo eru þeir
fiskar nefndir, sem hafa ljósfæri
undir augunum.«
Guðrún E. Baldvinsdóttir skrif-
ar ritgerð sem hún nefnir
Vöðvaorku. Guðrún skýrir vöðva-
orkuna út frá efnafræðilegu sjón-
armiði, upplýsir meðal annars
hvaða efnasambönd koma fram
við þjálfun og þreytu og svo
framvegis. Jón Atli Benediktsson
skrifar um fjarkönnun sem hann
telur að nota megi »við að stjórna
nýtingu auðlinda jarðarinnar«.
Að lokum nefni ég svo ritgerð
Jóns Atla Árnasonar, Ágrip af
sögu íslenzkrar flóru. Jón Atli
kemst næst því að skrifa aiþýðlega
um viðfangsefni sitt, enda má
segja að efnið sjálft gefi tilefni til
þess. »Við landnám er sagt,« segir
Jón Atli, »að landið hafi verið viði
vaxið milli fjalls og fjöru. Könnun
jurtaleifa bendir til þess að svo
hafi verið, því að skógarleifar hafa
fundizt yzt úti á annnesjum og allt
upp í 600 m hæð.« Jón Atli segir
að þetta hafi verið birkiskógur
sem þegar um landnám hafi verið
tekið að hnigna vegna kólnandi
loftslags og hafi landnámið síðan
hert enn meir á þeirri hnignun.
Staðhæfing Jóns Atla er fróðleg
með hliðsjón af skoðunum manna
fyrr og síðar varðandi þennan
fræga skóg »milli fjalls og fjöru«.
Á nítjándu öld var þessu trúað
bókstaflega eins og öðru sem í
fornritunum stendur. Á fyrri
hluta þessarar aldar komst í tísku
að trúa helst engu sem í þeim
stendur og fór skógurinn þá sömu
leið og feðranna frægð. Menn
bentu meðal annars á að Ari fróði
hefði verið uppi aðeins tveim
öldum eftir landnám og mætti
ótrúlegt heita að skógur, sem
klætt hefði landið gervallt við
upphaf landnáms, hefði verið svo
eyddur í tíð hans sjálfs sem álykta
má af orðum hans. En nú eru
ungir vísindamenn sem sagt
komnir á þá skoðun að Ari fróði
hafi farið furðunærri sannleikan-
um — haft það heldur er sannara
reynist!
Ein grein er í ritinu hugvísinda-
legs eðlis, þýdd, en þar eð mikið er
um grísku í henni og kunnáttuna
Framhald á bls. 22.
Tónleikar
Danskur útvarpskór AARHUS STUDIEKOR
ÁSAMT HLJÓMSVEIT, HELDUR TVENNA TÓN-
LEIKA í Reykjavík:
1. í Fríkirkjunni sunnud. 2. júlí kl. 20.30.
2. í Norræna húsinu mánud. 3. júlí kl. 20.30.
Stjórnandi: Hans Chr. Magaard.