Morgunblaðið - 01.07.1978, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1978
| atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Stýrimann vantar
á 180 tonna bát sem er, á togveiöum, en
fer síöar á síldveiðar meö nót. Uppl. í síma
99-3256.
Fiskmatsmaöur
Óskum aö ráöa fiskmatsmann nú þegar.
Upplýsingar í síma: 93-8206.
Rækjunes h/f
Stykkishólmi.
Starfskraftur
óskast í skartgripaverslun, vinnutími 1—6.
Umsóknum um aldur og fyrri störf sendist
Mbl. fyrir 5. júlí merkt: „Framtíö — 7647“.
Tónlistarkennarar
Tónlistarkennara vantar aö tónlistarskóla
Dalasýslu, Búðardal.
Kennslugreinar: Píanó og orgel (harmon-
ium). Laun samkvæmt launakerfi starfs-
manna ríkisins, Lífeyrissjóösréttindi. Upp-
lýsingar í síma: 91-23713.
Bílakaup
óskar eftir liprum og duglegum sölumanni
til aö leysa af vegna sumarleyfa í júlí og
ágúst.
Bílakaup,
Skeifan 5.
Afgreiðslustarf
Stúlka óskast til afgreiöslustarfa á lager.
Nánari upplýsingar gefur Siguröur Óskars-
son í síma: 84000
Johan Rönning h/f
Sundaborg.
Laus staða
Kennarastaöa í stæröfræöi og efnafræöl viö Menntaskólann á
Akureyri er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt ýtarlegum upplýsingum um námsferil og störf,
skulu hafa borist menntamálaráöuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavík,
fyrir 17. júlí n.k. — Sérstök umsóknareyöublöö fást í ráöuneytinu.
MenntamálaráöuneytiO,
27. júni 1978.
Mötuneyti
Karl eöa kona óskast í starf skólabryta viö
Laugaskóla Dalasýslu frá 1. sept. n.k.
Upplýsingar gefur: Valur Óskarsson sími
um Ásgarö.
Laugaskóli
Dalasýslu.
Stokkseyri
Umboösmaöur óskast til aö annast dreif-
ingu og innheimtu fyrir Morgunblaöiö á
Stokkseyri.
Uppl. hjá umboösmanni Jónasi Larson,
Stokkseyri og hjá afgreiöslunni í Reykjavík
sími 10100.
fltotgmililftfrifr
Bifvélavikjar
Óskum eftir aö ráöa bifvélavirkja.
Upplýsingar gefur verkstjóri. Ekki í síma.
P. Stefánsson h/f
Hverfisgötu 103
Reykjavík.
Kennarastöður
Kennara vantar aö grunnskólanum á
Stokkseyri. Gott húsnæöi er fyrir hendi.
Kennsla bæöi í yngri og eldri bekkjum.
Upplýsingar gefa skólastjóri, Theódór
Guöjónsson, sími 99-3161, formaöur skóla-
nefndar Höröur Sigurgrímsson, sími
99-3211 og Rut Gunnarsdóttir, sími
99-3219.
EFÞAÐERFRETT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Danskur kór og hljómsveit
í tónleikaferd um ísland
Aarhus studiekor og hljóð-
færaleikarar í AArhus
privatorkestra fara í hljóm-
leikaferð um ísland dagana
2.-7. júlí n.k. Fyrst verða
haldnir tónleikar í Reykjavík.
Sunnudaginn 2. júlí heldur
kórinn fyrstu tónleika sína í
Fríkirkjunni kl. 8.30, eru það
kirkjulegir tónleikar og eru með
bæði nýrri og gamalli kórtón-
list. Á tónleikunum eru aðallega
Ekki Evita
„Söguskoðunin“ brást í gær, í
dálkunum „Fólk í fréttum." Sagt
var að Evita Peron hefði orðið
forseti Argentínu að Peron látn-
um. Peron lifði Evítu konu sína, og
var það síðari kona hans, Estella,
sem varð forseti að Juan Peron
látnum. — Er beðist afsökunar á
þessum söguruglingi.
verk eftir tónskáld frá Norður-
löndum, meðal annarra Mogens
Pedersön, Niels W. Gade, Carl
Nielsen og Knut Nystedt. Þeir
elstu eru frá 16. öld en þeir
yngstu frá þessari öld. Eitt af
aðalverkum kvöldsins er
„Magnificat" eftir Buxtehude,
sem með björtum hljómum
sínum og hinum opna stíl
undirstrikar hinn glaða hljóm í
lofsöng Maríu úr Lúkasarguð-
spjalllinu. Þetta verk og „Lobe
den Herren meine Seele“ eftir
Heinrich Schútz flytur kórinn
ásamt strengjahljómsveit og 4
einsöngvurum úr kórnum. Auk
þess leikur Erik Haumann á
orgel verk eftir Niels W. Gaade
og N.O. Raasted.
Mánudaginn 3. júlí verða tón-
leikar í Norræna húsinu kl. 8.30
með veraldlegri tónlist, sem
spannar tímabilið frá 16. öld til
vorra daga. Á efnisskrá eru
madrigalar, þjóðvísur og fleira.
Hér er einnig lögð áhersla á
norrænu tónskáldin. Wilhelm
Stenhammar, Hugo Alfvén og
Anders Öhrwall frá Svíþjóð,
Knut Nystedt frá Noregi og
Otto Mortensen meðal annarra
frá Danmörku. í nokkrum verk-
um leika hljómlistarmenn með
kórnum, og nokkur verk eru
eingöngu leikin á hljóðfæri.
Þá verða hljómleikar utan
Reykjavíkur:
Þriðjudag 4. júli syngur kórinn
í Valhöll á Þingvöllum kl. 12.00
á hádegi.
Miðvikudag 5. júlí verða tón-
leikar í Vík í Mýrdal kl. 8.30.
Fimmtudag 6. júlí syngur
kórinn á Hlíðardalsskóla í
Ölfusi. Þessi för „Aarhus
Studiekor" til íslands er liður í
25 ára afmælishátíðahöldum
kórsins. í kórnum eru 75
söngvarar en í ferðinni eru 45
manns. Kórinn hefur haldið
tónleika, aðallega með kirkju-
legri tónlist og hefur meðal
annars flutt Messías eftir
Hándel, Sköpunina eftir Haydn,
Jóhannesar-Passíuna eftir J.S.
Bach.
Kórinn hefur áður farið í
tónleikaferðir til ísrael og
Noregs.
Hljóðfæraleikarar í „Aarhus
Privatorkester" eru með kórn-
um í ferðinni. Þessi hljómsveit
er ein af fremstu áhugamanna-
sinfóníuhljómsveitum í Dan-
mörku, og hefur kórinn lengi
haft samstarf við hana um
flutning stórra kór- og hljóm-
sveitarverka.
Stjórnandi kórsins, Hans
Chr. Magaard er organisti og
kantor við Herningkirkju. Auk
þess kennir hann kórstjórn við
Vesturjóska Tónlistarháskól-
ann í Esbjerg.
Ferðin er farin sem liður í
norrænni tónlistarsamvinnu,
sem hefur aukist verulega hin
síðari ár og ekki minnst að því
er kóra varðar vegna hinna
norrænu kóramóta „NORD-
KLANG“ sem eru haldin til
skiptis á Norðurlöndum þriðja
hvert ár. Garðar Cortes, for-
maður Landssambands bland-
aðra kóra hefur aðstoðað kórinn
við undirbúning ferðarinnar, og
er það von þátttakenda að
ferðin til íslands geti gefið
tilefni til að senda íslenskan kór
til Danmerkur þar sem „Aarhus
Studiekor" gæti undirbúið tón-
leikaferð um Danmörku.
Danskir kórar hafa mikinn
áhuga á aukinni norrænni
samvinnu í kóramálum, með
íslenska kóra sem þátttakendur.
— Horft hátt og
kafað djúpt
Framhald af bls. 15
í því tungumáli vantar gersamlega
hérnamegin get ég hvorki sagt um
hana á né b.
Hafi þetta gagnorða rit eitt-
hvert forsagnargildi varðandi
framtíðina má ætla að náttúruvís-
indin eigi eftir að skipa æðra sess
en þau hafa skipað um sinn.
Höfundarnir hafa örugglega vand-
að sig. Eigi að síður sanna
ritsmíðar þeirra að íslenskan er
ekki orðin þjál í þeim greinum sem
þeir rita um. Við erum því miður
aftur úr í tækni og vísindum.
Kannski eiga þessir ungu menn
með fleiri slíkum eftir að kippa því
í lag með áranna rás.
Erlendur Jónsson