Morgunblaðið - 01.07.1978, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 01.07.1978, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1978 Löndunarbanni af- létt í Fleetwood Dagný selur þar 6. júlí Löndunarvcrkamenn í Fleet- wood í Englandi samþykktu á fundi í gærmorííun að létta löndunarhanni af fslenzkum fiskiskipum, en löndunarhannið hefur verið í gildi, allt frá því að Íslendinjíar faerðu fiskveiðilög- söguna út í 200 sjómílur. Á þá aðcins eftir að aflétta löndunar banni í Grimsby. mesta fiskibæ EnRlands, en löndunarmenn í IIull höfðu áður aflétt hanninu. Fyrsta fslenzka skipað selur í Fleetwood þann 6. júlí n.k. en það er Dagný frá Siglufirði. Ágúst Einarsson fulltrúi hjá Landssambandi ísl. útvegsmanna sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að boðað hefði verið til fundarins í gærmorgun fyrir nokkrum dögum og þá hefði legið fyrir að samþykkt yrði að aflétta löndunarbanninu. Kvað hann að siglingar til Fleetwood yrðu örugglega einhverjar á næstunni og fyrsta skipið myndi selja þar 6. júlí. Sigling til Fleetwood væri mun styttri en til Hull og munaði tæpum sólarhring hvora leið eða um tveimur sólarhringum fram og til baka. Þá sagði Ágúst að opnun markaðarins í Fleetwood þýddi aukið svigrúm fyrir íslenzk skip, þar sem mjög þröngt væri á Nýtt BHM- félag stofnað SAMKVÆMT lögum BHM eiga háskólamenntaðir menn, sem ekki geta fengið aðild að einhverju aðildarfélaga BHM, rétt til að fá beina aðild að bandalaginu. Jafn- framt segir í lögunum að verði stofnað sameiginlegt hagsmunafé- lag fyrir slíka einstaklinga skuli þeir verða félagar þess. Mánudaginn 29. maí s.l. var stofnað félag þeirra 37 einstakl- inga, sem höfðu fengið beina aðild að bandalaginu. Félagið hlaut nafnið Útgarður — félag háskóla- manna. Formaður félagsins er Ragnheiður Haraldsdóttir BSc hjúkrunarfræðingur. Félagið var tekið inn í BHM á fulltrúaráðsfundi 1. júní s.l. og er það 20. aðildarfélag bandalagsins. Eftir stofnun þessa félags verð- ur aðeins um að ræða aðild félaga að BHM. BHM hafa borist fyrirspurnir um aðild frá Búnaðar- og garð- yrkjukennarafélagi íslands og Félagi tónlistarkennara og eru þær nú til athugunar hjá banda- laginu. markaðnum í Hull og löndunaraf- köst þar lítil. Þá væri aðeins þess að bíða að fiskimarkaðurinn í Grimsby opnaðist og vonuðust menn til að það yrði á næstunni. Margir aðilar hafa unnið að því að fá löndunarbanninu aflétt. Þar á meðal L.Í.Ú., Helgi H. Zöega o.fl. ASÍ styrkir BÚH-fólkið STARFSFÓLKI Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar sem vinnur við fiskiðjuverið og fór í verkfall vegna verkstjóranna tveggja á dögunum, hefur fengið styrki víða að. Samtals munu þessir styrkir verða tæplega 1.800 þúsund krónur og hefur Verkamannafélagið Framtíðin og Verkamannafélagið Hlíf staðið í því að deila þessum fjármunum milli starfsfólksins. Samkvæmt upplýsingum Guðríðar Elíasdóttur formanns Framtíðar- innar hefur þrisvar verið úthlutað fé til fólksins, í fyrsta sinn fékk fastráðna fólkið 20 þúsund krónur og unglingar 10 þúsund. í tvö síðari skiptin fengu fastráðnir 7 þúsund krónur en unglingar 2 þúsund krónur. Þegar þessum úthlutunum var lokið stóðu eftir um 98 þúsund krónur. Guðríður kvað svo eftirfarandi samþykkt hafa verið gerða á miðstjórnarfundi Alþýðusam- bands íslands í fyrradag; en hún var útgefin í gær: „Á fundi miðstjórnar Alþýðu- sambands íslands í gær var samþykkt að votta verkafólki fiskiðjuvers Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar þakkir og viður- kenningu vegna baráttu þess fyrir almennum rétti sínum gegn ofríki og þröngsýni ráðamanna. Telur miðstjórnin að þetta fordæmi verkafólksins sé mikilsvert fram- lag á baráttu verkalýðshreyfingar- innar fyrir almennum mann- réttindum á íslandi. Þá samþykkti miðstjórn ASÍ, að styðja verkafólk fiskiðjuversins með 500 þúsund króna framlagi og fela Verkakvennafélaginu Fram- tíðinni og Verkamannafélaginu Hlíf að koma fé þessu til skila. Með félagskveðju, f.h. Alþýðu- sambands Islands — Snorri Jóns- son, forseti ASÍ“ Þessu til viðbótar má geta þess að starfsfólkinu bárust einnig í gær 100 þúsund krónur frá Raf- virkjafélaginu. Áður hafði starfsfólkinu borizt fé frá ýmsum stéttarfélögum. Sverrir Runólfsson: „Hef ekki sagt mitt síðasta orð” SVERRIR Runólfsson boðaði blaðamenn á sinn fund í gær vegna vegaframkvæmda sinna undanfarin ár. Þar sagði Sverrir að hugmyndin með þessum fundi hafi verið sú, að hann yrði kveðjusamsæti Sverris Runólfs- sonar hvað viðvíkur vegamálum á íslandi. Hafði Sverrir af þessu tilefni hoðið til fundarins auk hlaðamanna, vegamálastjóra og fulltrúum Rannsóknarstofnunar byggingariðnaðarins. Sverrir sagði m.a., „Þó svo ég hafi boðið Vegamálastjóra og fulltrúum Rannsóknarstofnunar byggingariðnaðarins hingað til að ræða málin sáu þeir sér fært að sniðganga mig eins og þeir gerðu reyndar einnig 1970. Þá var ég ekki boðaður á blaðamannafund sem þeir héldu vegna fyrstu rannsókna á aðferð minni, hvort hún dygði við íslenzkar aðstæður. — Þess vegna hef ég ákveðið að þetta séu ekki mín síðustu orð eins og ég hafði ákveðið. Ég mun láta þá standa við það loforð, að ég fái að velja mér kafla sjálfur þar sem ég get gert mínar tilraunir. í sambandi við þær rannsóknir sem hafa farið fram þá vil ég segja að rangt hefur verið staðið að þeim öllum, enda hefur í þessu máli ekkért verið unnið nema skemmdarverk frá upphafi, sagði Sverrir að síðustu. H-listinn kom manni í hreppsnefnd á hlutkesti I>orlákshöfn 30. júni VIÐ hreppsnefndarkosningu í Ölfushreppi hinn 25. júní s.l. komu fram fjórir listar. D-listi sjálfstæðisfélagsins Ægis, H-listi óháðra kjósenda, K-listi óháðra og frjálslyndra og Þ-listi vinstri- manna. Við talningu kom í ljós að tveir listar voru jafnir að atkvæðatölu, þannig að tveir menn komust af hvorum lista. Einnig kom í ljós, að í kassanum var einum kjörseðli of mikið. Um þetta mál hefur staðið í nokkru þófi en fallizt var á að láta hlutkesti ráða úrslitum milli 2. manns á H-listanum, Hrafnkels Karlssonar og 2. manns á Þ-listan- um, Ásgeirs Benediktssonar. Hlut- ur Hrafnkels Karlssonar kom upp og lýsti yfirkjörstjórn hrepps- nefndina löglega kjörna. Hina nýju hreppsnefnd skipa þessir menn: Jón Sigurmundsson, Selvogsbraut 13, Þorlákshöfn, Guðjón Sigurðsson, Kirkjuferju- hjáleigu, Ölfusi, Hrafnkell Karls- son, Hrauni, Ölfusi, Þórður Ólafs- son, Setbergi 19, Þorlákshöfn og Þorvarður Vilhjálmsson Setbergi 21, Þorlákshöfn. Til sýslunefndar var kjörinn Benedikt Þórarinsson, Háaleiti, Þorlákshöfn. -Ragnheiður. 150 þúsund- um stolið í gjaldeyri BROTIZT var inn í íbúðarhúsið Túngötu 41 í Reykjavík í fyrra- kvöld. Þaðan var stolið gjaldeyri að verðmæti um 150 þúsund íslenzkar krónur, sjónvarpstæki og silfurborðbúnaði. Málið er í rann- sókn. ______. . .____ — Danir senda Framhald af bls. 36. verið búnir að breytá yfir í hassolíu en lögreglan fann enga hassolíu í fórum þeirra. Piltarnir voru sendir til íslands, þar sem starfsmenn fíkniefna- deildar lögreglunnar tóku á móti þeim. Við leit á piltunum fundust 30 grömm af hassolíu, sem þeir höfðu vandlega falið. Viðurkenndu piltarnir við yfirheyrslur að hafa keypt hálft kíló af hassi í Amster- dam, sem þeir hefðu að miklu leyti verið búnir að vinna hassolíu úr. Ennfremur viðurkenndu þeir að hafa flutt fíkniefni til landsins í þremur ferðum á undanförnum árum en í smáum stíl. Þess má geta að hassolía er í geypiháu verði og mun hvert gramm vera selt á hátt á annan tug þúsunda, enda miklu sterkara efni en venjulegt hass. — Kartöflur Framhald af bls. 36. henni. — Ég sé ekki að það verði neitt sem kalla má sumarmarkað á kartöflum og ég á ekki von á því að við förum að taka upp fyrr en upp úr 10. september. Það þarf þá að verða sérstaklega góð tíð úr þessu ef það ætti að breytast, sagði Bergvin. Verulegar skemmdir urðu af völdum frosta hjá kartöflu- bændum innar í Eyjafirði og í hlíðinni utan við Akureyri, í Glæsibæjarhreppi, fyrir skemmstu og er ljóst að kartöflur frá þeim verða ekki á ferðinni fyrr en kemur fram í september. — Sprenging i New York Framhald af bls. 1 eftir sprenginguna. „Allt lék á reiðiskjálfi. Þetta hljómaði eins og sprenging og fólk tók til fótanna, hrópaði og lét öllum illum látum" sagði sjónarvottur. Sjónarvottar. segja að gert hafi verið að sárum sumra í lögreglu- bílum sem var breytt í bráða- birgðasjúkrahús. Aðrir voru flutt- ir í sjúkrahús í lögreglubifreiðum þar sem sjúkrabílar komust ekki leiðar sinnar. Um 30 slösuðust í nálægu veitingahúsi aðallega af glerbrotum. Lögreglan segir að sjónarvottur segist hafa séð einhvern kasta pakka undir mjólkurbílinn skömmu fyrir sprenginguna. í ágúst í fyrra varö mikið uppnám í New York þegar öfgasinnaðir Puerto-Ricanar komu fyrir sprengjum í tveimur skýjaklúfum. Einn beið bana og fjórir særðust. Samtök puerto-ríkanskra skilnað- arsinna FALN kváðust bera ábyrgð á sprengingunum. — Reynir að stilla Israelsmenn Framhald af bls. 1 heimsókn Mondales vegna spreng- ingarinnar á dögunum í Jerúsalem er tveir biðu bana og 47 slösuðust. Borgarstjórinn í Jerúsalem, Teddy Kollek, sagði að hann teldi að sprengingin, sem Frelsissamtök Palestínu segjast bera ábyrgð á, hafi staðiö í sambandi við heim- sókn varaforsetans. — Fréttaritarar í Moskvu... Framhald af bls. 16 ákærðir fyrir meiðyrði og rógskrif ef þið haldið ykkur ekki við tilvitnanir í yfirlýsingar sovézkra embættismanna," sagði sendiherr- ann. Whitney og Poper báðu réttinn um frest til að ræða við lögfræð- inga og báðir kvörtuðu yfir því að þeim hefði gengið erfiðlega að fá lögfræðilega aðstoð. L.E. Almazov dómsforseti gaf þeim frest til mánudags og fresta réttarhöldun- um til 7. júlí en þeim fannst það ekki nóg. — Þóf um forseta Framhaid af bls. 1 Þingmenn og fulltrúar ein- stakra fylkja, sem kjósa forseta, gengu tvisvar sinnum til atkvæða í dag og kusu hvcr fulltrúa síns stjórnmálaflokks. Einfaldur meirihluti nægir til sigurs eftir fjórðu atkvæða- greiðslu sem fer fram á morgun og þá er búizt við að stærstu flokkarnir bjóði fram sameigin- lega. í atkvæðagreiðslunum í dag kusu kristilegir demókratar Guido Gonella, kommúnistar Giorgio Amendola og sósíalistar Pietro Nenni. Sósíalistar vilja sósíalista fyrir forseta og kommúnistar vilja ekki kristilegan demókrata fyrir for- seta. Kristilegir geta sætt sig vlð mann úr öðrum flokki fyrir forseta en helzt ekki sósíalista eða kommúnista. — Stjómarmyndun Framhald af bls. 36. þeir báðir ekkert hafa rætt við forystumenn annarra flokka í gær. Geir kvað ekkert hafa heldur komið fram frá því er miðstjórnar og þingflokks- fundur Sjálfstæðisflokksins hefði verið haldinn á miðviku- dag, sem gerði að verkum að þörf væri á öðrum fundi. ólafur Jóhannesson kvað fram- kvæmdastjórn Framsóknar- flokksins koma saman eftir helgi. Morgunblaðinu tókst hvorki að ná tali af Benedikt Gröndal formanni Alþýðuflokksins né Luðvík Jósepssyni, formanni Alþýðubandalagsins í gær, en Lúðvík var þá á G-lista hátíð í Valaskjálf á Egilsstöðum. Var hann væntanlegur heim aftur nú um helgina. Nú eftir helgina verður flokksstjórn Alþýðu- flokksins kölluð saman, en það er hún, sem hefur vald til þess að ákveða aðild flokksins að stjórn og hverjir sitji í ríkis- stjórn fyrir Alþýðuflokkinn. Þá hefur í Alþýðubandalaginu verið boðaður sameiginlegur þing- flokks- og flokksstjórnarfundur á mánudag til þess að fjalla um þá stjórnarmyndunartilraunir, sem virðast vera í uppsiglingu, og hugsanlega möguleika í þeim efnum. — Segja sig úr stjórn Desais Framhald af bls. 1 Singh og Narain hafa harðlega gagnrýnt stjórnina fyrir að leiða ekki Indiru Gandhi fyrrum for- sætisráðherra fyrir rétt og láta hana svara ákærum sem. eiga raðtur að rekja til neyðarástands- laga þeirra sem voru í gildi í 19 mánuði á Indlandi. Forsætisráð- herra krafðist þess í gærkvöldi að Singh og Narain segðu af sér þegar Singh hafði krafizt þess að frú Gandhi yrði handtekin þegar í stað. Bæði Singh og Narain vour áður félagar í indverska alþýðuflokkn- um (BLD) sem sameinaðist Janata-flokknum fyrir þingkosn- ingarnar sem leiddu til falls frú Gandhi í fyrra. Gert er ráð fyrir því að lausnarbeiönir þeirra stofni einingu Janata-flokksins í hættu en ríkisstjórnin er ekki í bráðri hættu. Singh sagði í yfirlýsingu að svo væri komið að „varla nokkur starfsmaður Janata-flokksins gæti varið flokkinn af sannfæringu". Hann hefur áður sagt að þeir sem séu honum ósammála geri sér enga grein fyrir því róti sem það hafi komið á hugi fólks að stjórnin hafi látið undir höfuð leggjast að koma frú Gandhi á bak við lás og slá. Desai hefur verið mjög gætinn í afstöðu sinni til frú Gandhi síðan hún var handtekin í fyrra en látin laus einum degi síðar af rann- sóknardómara sem úrskurðaði að hún þyrfti ekki að svara til saka. Fráfarandi ráðherrar voru einn- ig ósammála stjórninni í efna- hagsmálum. Helztu blöð Indlands styðja afstöðu Desais til þeirra og telja rétt að hann reyni að koma á aga í flokknum. — Stórárás í Erítreu Framhald af bls. 1 Talsmaður frelsishreyfingar Tigrehéraðs sagði að þrjár eins konar tilraunaárásir hefðu farið á undan stórsókn þessarri á síðast- liðnum tveimur vikum og hefði liðsmönnum hreyfingarinnar -tekizt að halda her Eþíópíumanna í skefjum. Árásirnar þrjár beindust að sögn talsmannsins að borgunum Hejer, Enticcio og svæðum meðfram landamærum Eritreu. Það kom fram hjá talsmannin- um að Eþíópíumenn beittu nú nýrri hernaðartækni, e.t.v. að ráði Sovétmanna. Væri nú venjan að tefla fótgönguliði Eþíópíumanna á undan en í kjölfarið fylgdu harðar loftárásir og væri það í fyrsta skipti sem það gerðist í Tigrehéraði. Samkvæmt heimildum Addis Ababa útvarpsins hefur leiðtogi Eþíópíumanna Megnistu Haile Mariam látið hafa eftir sér að her hans vinni nú hvern sigurinn af öðrum gegn aðskilnaðarsinnum. Haft er eftir útvarpinu í Moga- dishu í Sómalíu að Eþíópíumenn hafi gert þriðju loftárás sína yfir landamærin, síðan Sómalar drógu herlið sitt til baka úr Ogaden-eyði- mörkinni. Loftárásin var gerð á borgina Beled Wen og einn maður mun hafa látið lífið og fjórir særst. Beled Wen er um 300 kílómetra norður af Mogadishu. Talið er að Eþíópíumenn séu með loftárásum þessum að vara Sóaml- íustjórn við að styðja frekar við bakið á uppreisnarmönnum í Ogaden-eyðimörk.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.