Morgunblaðið - 06.07.1978, Side 12

Morgunblaðið - 06.07.1978, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 1978 Að Saltvík á Kjalarnesi hafa Æskulýðsráð Reykjavíkur og hest amannaf é lagið Fákur rekið reið- skóla hin síðustu ár. Hefur reiðskóla- haldið mælzt vel fyrir og aðsókn ver- ið mikil og góð, það góð að færri hafa jafnan komizt að en vildu. Reiðskólann er ætlaður fyrir börn á aldrinum átta til 13 ára og stendur hvert nám- skeið hans í 10 daga. Mbl. brá sér upp á Kjalarnes í fyrri viku, er langt var liðið á eitt nám- skeiðanna og heils- aði upp á starfs- menn og nemendur skólans. í Saltvík á Kjalarnesi: FYRRI GREIN Er okkur bar að garði var hópur nemenda að ljúka við að leggja á hesta sína og að búa sig undir að halda í útreiðartúr undir leiðsögn kennara síns, Aðalheiðar Einarsdóttur. Alls voru í hópnum 20 börn og er það fjórðungur þeirra barna, sem er á hverju námskeiði. Börnin koma með áætlunarbifreið til Saltvíkur á hverjum morgni og eru þau komin þangað klukkan rúmlega níu að morgni. Leggur bifreiðin af stað frá húsi Æsku- lýðsráðs við Fríkirkjuveg um áttaleytið og er síðan ekið sem leið liggur vestur í bæ og þaðan haldið áleiðis til Saltvíkur. A leiðinni nemur bifreiðin staðar á nokkrum stöðum og kemur þar nokkur hópur barna í hana. Er til Saltvíkur er komið er börn- unum skipt í fjóra hópa, a-, b-, c- og d-hóp og fer hver hópur í einn útreiðartúr á hverjum degi. Útreiðartúrinn er um fimm stundarfjórðunga langur og er ' annað hvort riðið út á nes eða * haldið niður í fjöru og hestunum hleypt þar. Meðan einn hópanna er í útreiðatúr er reynt að hafa ofan af fyrir hinum og er margt gert til að stytta þeim stundir. I Saltvík var áður fyrr rekið bú og standa gripahúsin frá þeim tíma enn. Flestum hefur þeim verið breytt á einn eða annan hátt til að börnin geti haft not af þeim og svo er til dæmis farið með gamla fjósið og hlöðuna. Hlöðunni hefur verið breytt í leiksvæði og er þar aðstaða til iðkunar ýmissa knattleikja svo sem knattspyrnu, körfubolta, brennibolta, kíló og fleiri leikja í svipuðum dúr. Þá hefur hlaðan verið skreytt og reist hefur verið svið við annan enda hennar og er það notað til margvíslegra hluta. Má nefna að einn daginn fór fram á sviðinu sýnikennsla á hesti, en hluti reiðskólans í Saltvík er að kenna börnunum að þekkja hina ýmsu líkams- hluta hestsins með nafni. En þennan fyrrnefnda dag var hestur teymdur upp á sviðið og sýndur krökkunum. Vakti þessi sýnikennsla mikla hrifningu meðal barnanna, þótt hestinum hafi eflaust mislíkað hún. Er sýningunni var iokið átti að teyma hestinn niður af sviðinu sömu leið og áður, en þá brá svo við að hann neitaði að fara niður af sviðinu. Tókst ekki með nokkrum ráðum að fá hestinn til að ganga niður tröppurnar og ekki vildi klárinn stökkva niður af sviðinu. Fóru málin á þann veg að smíðaður var fleki sem lagður var upp að sviðinu og niður hann var hesturinn loks teymdur. Varð af þessu mikið umstang og þótti starfsmönnum nóg um dynti hestsins, en blessuðum klárnum þótti þetta aðeins sjálfsögð þjónusta. Saltvík, — lengst til vinstri er áhaldahúsið, Þar sem kvikmyndirnar eru sýndar, Þá kemur hlaðan, en fjósiö er bak við hana. Súrheysturninn og sviðið eru bannsvæði í Saltvík. „Þegar við förum út ánes, þá eruhestarn- ir oftar á brokki..." Setið að snæöingi í fjósinu. Fjósinu breytt í matsal Sambyggt hlöðunni er fjósið og því hefur einnig verið breytt til betri vegar. Ekki það að básarnir séu þar ekki enn, heldur hafa þeir nú öðlazt meira gildi en áður. Nú matast börnin í básum fjóssins, en flórinn er horfinn og raunverulega er fátt, sem minnir á fyrra hlutverk fjóssins, nema nafnið. Nesti koma börnin með með sér og hefur verið brýnt fyrir þeim að koma með gott og næringarmik- ið nesti og að koma heldur með heitt kakó en gosdrykki. Fer meginþorri krakkanna eftir þessum ráðleggingum, enda er það svo að veður geta verið leiðinleg í Saltvík og þá er gott að hafa eitthvað heitt að dreypa á. En það er ekki aðeins að hlaðan og fjósið séu notuð fyrir nemendur reiðskólans heldur eru húsin einnig leigð út til dansleikjahalds. Hafa nokkrum sinnum verið haldin hlöðuböll í Saltvík og að sögn þeirra sem til þekkja hafa þau böll tekizt með ágætum og mikið fjör ríkt á þeim. Gamla íbúðarhúsið í Saltvík er nú í niðurníðslu, en nú stendur til að hressa svolítið upp á það. Nýverið var komið fyrir sturtum í kjallara þess, en baðaðstaða hefur ekki fyrr verið í Saltvík. Efsta hæð hússins, eða háaloftið, er eini hluti þess, sem eitthvað er notaður að marki, en þar eru haldnar „dagvökur" þegar illa viðrar. Safnast krakkarnir þá þar saman og syngja við undirleik starfs- mannanna, sem leika á gítara og flautu. Hefur sérstök söngbók verið gefin út fyrir reiðskólann í Saltvík, svo allir ættu að geta sungið með. Þá eru sagðar sögur og farið í leiki á „dagvökunni“, en þær eru svo kallaðar vegna þess að þær eru með sniði kvöldvöku, en eru haldnar á daginn. Kvikmyndahús er starfrækt í Saltvík og er það til húsa í gamalli áhaldageymzlu staðar- ins. Kvikmyndirnar, sem þar eru sýndar, fjalla um margvís- leg efni og kennir þar margra grasa. En Roy gamli Rogers og Stjáni blái eru þó sennilega vinsælustu kvikmyndastjörn- urnar í Saltvík og taka krakk- arnir þátt í baráttu þeirra við illþýði heimsins af lífi og sál. En kvikmyndasalurinn er til ann- arra hluta nýtilegur, en að sýna kvikmyndir, þar eru einnig borðtennisborð, sem njóta mik- illa vinsælda meðal barnanna. A Saltvíkur-met í víðavangshlaupi íþróttamót eru haldin af og til í Saltvík og er þar keppt í ýmsum íþróttagreinum svo sem kúluvarpi, víðavangshlaupi og

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.