Morgunblaðið - 06.07.1978, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 1978
33
KPPVfTf
E I it I i 1 $ I
B I ■ J i;l j. *!
fA f* l/J® f/ft/e* í> » «1
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL 10 — 11
r FRAMÁNUDEGI
heföi upp á að bjóða í ánum og
umhverfi þeirra?
Væri það til of mikils ætlast, að
ein á landsins væri friðuð fyrir
veiðum? Vill ekki Reykjavík verða
fyrst til að friða sína á?
Ingvar Agnarsson."
• Hundahaldið
bannað alveg?
Oft hefur verið mikið rætt um
hundahald í fjölmiðlum og meðal
manna og nú hafa þær fréttir
borizt að búið sé að kæra vegna
hundsbits í fyrsta sinn í Reykja-
vík. Hér fer á eftir smávegis rabb
um hundahald:
„Um langt skeið hafa íslending-
ar haft mikið dálæti á hundum og
talið þá ómissandi, sem þeir
vissulega eru, að minnsta kosti
upp til sveita þar sem þeir koma
að gagni við smalamennsku og
jafnvel við önnur störf. Lengi
hefur það einnig tíðkast að menn
vilja hafa hunda í þéttbýli og er
í sjálfu sér ekkert við það að
athuga, nema hvað að sums staðar
er það bannað í lögum.
Flestir vita að lítið er þó gert í
málinu þó einn og einn sé með
hund á „bannsvæði" og sumir hafa
lýst óánægju sinni með það og
telja að annaðhvort eigi lögin að
gilda eða þá að leyfa eigi hunda-
hald og má það til sanns vegar
færa. En hvort sem hundahald er
bannað eða ekki má velta fyrir sér
frá sjónarmiði hundanna sjálfra
hvort líf í borg sé nokkuð fyrir þá.
Þar eru þeir vart í sínu rétta
umhverfi, nema að sjálfsögðu
einhverjir kjölturakkar, og yfir-
leitt er ferðafrelsi hunda ekki
mikið í þéttbýli, það sem helzt er
hægt að gera með þá er að viðra
þá með því að fara i göngutúra
einu sinni eða tvisvar á dag. Það
er án efa ekki nýtt að spurt sé að
þessu og margir fylgjendur hunda-
halds í þéttbýli segja sjálfsagt að
gott sé fyrir þá að hafa góðan
aðbúnað, allt sé gert fyrir þá sem
þeir þurfi og hvaðeina og það má
vel vera. En er það samt sem áður
nokkurt líf?
Þessu langar mig aðeins að
varpa fram, en ekki ætla ég að
amast við hundum, þetta eru
skemmtilegustu skepnur þó að
mér finnist þær skemmtilegastar í
sveitinni og þá tala ég um
venjulega hunda en ekki litla
kjölturakka, sem mætti e.t.v. kalla
leikföng (og vona ég að ég móðgi
engan með því tali). En það má
sem sé velta þeirri spurningu fyrir
sér hvort leyfa eigi hundahald t.d.
í Reykjavík, úr því það er þegar
fyrir hendi í nokkrum mæli, eða á
að ganga hreint til verks og láta
þá hunda hverfa sem eru fyrir?
Gaman væri að heyra álit manna
á þessu tiltekná atriði.
Hundavinur."
Þessir hringdu . . .
• Húsbyggingar
hálfa ævina?
Húsbyggjandii
— Mjög margir íslendingar
standa um þessar mundir í því að
byggja yfir sig og fjölskyldu sína,
mjög margir hafa lokið því og
mjög margir eiga það vafalaust
eftir. Þessi húsbyggingamál okkar
eru á margan hátt merkileg og hef
ég orðið var við það af þeim
útlendingum, sem ég hefi kynnst,
að þeim finnst þessi þjóðaratvinna
okkar,. eða „þjóðarígripavinna"
vera hið merkilegasta fyrirbæri.
Þessu er nefnilega víðast háttað
þannig erlendis að félög sjá um
allar húsbyggingar, félög, ríkið eða
einhver „aðili" þannig að hinn
væntanlegi eigandi kemur þar
nánast hvergi nærri fyrr en öllu er
lokið. Hér gera menn þetta af illri
nauðsyn, að byggja til að geta
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Hvítur mátar í þremur leikjum.
Staðan kom upp á hinu árlega
skákmóti ungra meistara í Sovét-
ríkjunum. Það var A. Ivanov, sem
hafði hvítt og átti leik, en A.
Petrosjan hafði svart. Lausnin
getur vart einfaldari verið og þeir
sem fundu hana ekki samstundis
verða að æfa sig betur: 41. Dxh7+!
— Kxh7 42. Hh3+ og svartur gafst
upp, því hann er mát í næsta leik.
Panchenko sigraði á mótinu, hann
hlaut. 10Vi v. af 15 mögulegum.
Næstir komu þeir Gavrikov,
Dolmatov og A. Ivanov, allir með
9 'A v.
verið ánægðir með sig, og geta
búið jafnvel og nágranninn eða
kunningjarnir og fer jafnan í
þessa atvinnu hálf ævin og heilsan
með.
Er ekki einhvern veginn hægt að
draga úr þessum mikla byggingar-
áhuga fólks, e.t.v. með því að efla
ýmiss konar byggingarsamvinnu-
félög, eins og nú hafa skotið upp
kollinum í ríkara mæli, og gera
mönnum kleift að fá meiri lán en
nú er, til þess að menn séu ekki á
kafi í byggingum í 10—20 ár?
Þetta hefur orðið til þess að menn
detta út úr öllu félags- og
fjölskyldulífi í svo og svo langan
tíma. Eru þá blessaðar húsbygg-
ingarnar ekki of dýru verði
keyptar?
HÖGNI HREKKVÍSI
„Hann hefur fundið snákinn minn!“
Lokað
verður vegna sumarleyfa
17. júlí—8. ágúst
Blikksmiðjan Grettir.
Lærið
vélritun
Ný námskeiö hefjast þriöjudaginn 11. júlí n.k. Kennsla
eingöngu á rafmagnsritvélar, engin heimavinna.
Innritun oq upplýsingar í síma 41311 eftir kl. 13.00.
Vélritunarskolinn
Suðurlandsbraut 20
HRAUN
KERAMIK
íslenskur listiðnaður
GLIT
HÖFÐABAKKA9
REYKJAVÍK
SiMI 85411
Frá Mrtsubishi Japan:
COLT T120
Pallbílar
Sendiferöabílar
Almenningsbifreiöir
Afbragösbílar af Lancer-Galant ættbálknum.
Nokkrir til afgreiðslu nú þegar.
Leitiö upplýsinga hjá sölumönnum okkar.
Allt á sama staö Laugavegi 118 - Simar 22240 og 15700
EGILL VILHJÁLMSSON HF
L