Morgunblaðið - 06.07.1978, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 1978
Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson.
Fréttastjóri Björn Jóhannsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson
Ritstjórn og afgreiósla Aöalstræti 6, sími 10100.
Auglýsingar Aóalstræti 6, sími 22480.
Áskriftargjald 2000.00 kr. i minuói innanlands.
í lausasötu 100 kr. eintakió.
Hagkvæmara lána-
kerfi fyrir hús-
byggjendur
Asíðustu árum hefur verið unnið að einu mesta réttlætismáli
í fjármálakerfi þjóðarinnar, þ.e. að félagsmenn í almennum
lífeyrissjóðum fái verðtryggðan lífeyri ekki síður en opinberir
starfsmenn. Nokkur árangur hefur náðst eins og glögglega kom
fram í viðtali, sem birtist hér í Morgunblaðinu fyrir nokkru við
Guðmund H. Garðarsson en hann skýrði frá því, að lífeyrir hefði
sjöfaldazt á síðustu tveimur og hálfu ári.
Annað stórmál í fjármálakerfi þjóðarinnar bíður hins vegar
úrlausnar en það eru lánamál húsbyggjenda. Það má heita föst
regla, að ungt fólk, sem er að hefja búskap, reyni þegar í upphafi
að koma sér upp eigin húsnæði. Eign fyrir alla hefur verið
kjörorð stærsta og öflugasta stjórnmálaflokks þjóðárinnar og í
samræmi við það kjörorð hefur verið leitazt við að greiða fyrir
húsbyggingum ungs fólks.
Þetta er mikið átak enda þótt lánamöguleikar hafi aukizt með
eflingu lífeyrissjóða og nýjum sparnaðar- og lánaformum
viðskiptabanka og sparisjóða. í flestum tilvikum tekst ungu fólki
að koma þaki yfir höfuðið og eignast fasteign á nokkru árabili.
En þess eru líka mörg dæmi, að þetta mikla átak leiðir til
sundrungar og upplausnar í sambúð vegna þess hve
erfiðleikarnir eru miklir. Forstöðumenn lánastofnana ekki sízt,
þekkja fjölmörg dæmi þess, að tilraunin til þess að eignast
húsnæði hefur leitt til hjónaskilnaðar og upplausnar
fjölskyldulífs. Þess vegna eru bætt lánakjör húsþyggjenda ekki
aðeins fjárhagslegt atriði fyrir þá, sem í því standa hverju sinni,
^ð byggja yfir sig, heldur félagslegt málefni, sem varðar hag og
heill stórs hóps ungs fólks.
Við íslendingar erum orðnir svo auðug þjóð, að peningarnir
eru til staðar til þess að byggja upp hagkvæmara lánakerfi fyrir
húsbyggjendur en nú er við lýði. En það þarf að leggja mikla
vinnu í að skipuleggja lánakerfi, sem virkjar þá lánamöguleika,
sem nú eru til staðar að því marki, að ungir húsbyggjendur, sem
eru að byggja yfir sig í fyrsta sinn íbúðir af hóflegri stærð, geti
almennt átt kost á 80% láni til langs tíma með hæfilegum
afborgunum.
Við núverandi aðstæður í efnahags- og fjármálum þjóðarinnar
er auðvitað útilokað að byggja upp slíkt lánakerfi án þess að
um einhvers konar verðtryggingu fjármuna sé að ræða. En það
er ekkert að því fyrir ungt fólk að borga lán til baka í sama
verðgildi og þau eru fengin, ef greiðslutíminn er nægilega langur
og vaxtabyrðin hæfileg.
Húsnæðislánakerfið hefur þróazt á undanförnum árum án
þess að veruleg tilraun hafi verið gerð til þess að
endurskipuleggja það með þau markmið fyrir augum, sem hér
hafa verið gerð að umtalsefni. Byggingasjóður ríkisins hefur
reynt að hækka sín lán til samræmis við hækkun byggingar-
kostnaðar. Lífeyrissjóðir hafa einnig reynt að fylgja í kjölfarið
og nokkrar lánastofnanir hafa reynt að koma aðstoð sinni við
húsbyggjendur í fast form. Hér þarf að gera nýtt átak. Það þarf
að greiða fyrir því, að ungt fólk, sem er að hefja lífsferil sinn,
geti eignazt húsnæði án þess að byrðarnar verði svo þungar, að
undir þeim verði ekki staðið og fjölskyldur leysist upp.
Hagkvæmara lánakerfi fyrir húsbyggjendur getur einnig orðið
til þess að draga úr verðbólgunni vegna þess, að nú ýtir þung
greiðslubyrði undir kröfugerð ungs fólks í launamálum og þeir
sem starfa í verkalýðsfélögum vita mæta vel, að þaðan ekki sízt
koma kröfurnar um stöðugt hærri laun, sem atvinnureksturinn
getur ekki staðið undir og einnig vegna þess, að þá verður
verðbólgan ekki lengur í augum ungs fólks, sú hjálparhella, sem
það telur hana vera í dag við að eignast húsnæði.
Framundan eru erfiðar viðræður milli stjórnmálaflokka um
stjórnarmyndun. Fari svo, að Sjálfstæðisflokkurinn eigi aðild að
þeim viðræðum er eðlilegt, að sá flokkur, sem mest hefur barizt
fyrir eign fyrir alla, taki upp baráttu fyrir því að koma hér á
fót hagkvæmara lánakerfi fyrir húsbyggjendur en nú er til.
Sjálfstæðisflokkurinn er sá flokkur, sem hefur lagt áherzlu á,
að ungt fólk eignist húsnæði. Aðrir flokkar, ekki sízt
Alþýðuflokkur og Alþýðubandalag, hafa lagt mesta áherzlu á
’eiguhúsnæði. Vafalaust er stefna Sjálfstæðisflokksins í meira
amræmi við vilja almennings og æskunnar en leiguhúsnæðis-
tefna Alþýðuflokks og Alþýðubandalags. En þessari stefnu þarf
’jálfstæðisflokkurinn að fylgja eftir á þann veg, sem hér hefur
verið lýst.
„Við Bragi gön
Myndir Braga
Ásgeirssonar,
Sverris Haralds
sonar og Asgríms _
Jónssonar á I ■
sumarsýningu I j
Norræna hússins, I '
sem hefet
álaugardag
Bragi Ási
myndverk
með vatnslitamyndir, fannst mér
tilvalið að koma með eitthvað létt
sjálfur," sagði Sverrir. „Annars
vakti það einkum fyrir mér, að ég
hef ekki sýnt teikningar svo lengi
og auk þess langt síðan ég tók þátt
í samsýningu síðast. Ég var ekkert
í sýningarhugleiðingum þegar ég
fékk boðið frá Norræna húsinu og
teikningarnar eru flestar frá því í
fyrra, en ein olíumyndin er hins
vegar varla þornuð enn.“
Bragi Ásgeirsson var í óða önn
að merkja myndir sínar. Hann
sýnir aðallega teikningar, en auk
þess eru á sýningunni tvö stór
samsett verk, sem í fljótu bragði
virtust vera hugleiðing um tím-
ann, renaissance-málverk í nokk-
urs konar spútnikumgerð og auk
þess í myndfletinum tifandi klukk-
ur og barometer. Sverrir virti um
stund fyrir sér aðra klukkumynd-
ina. „Við Bragi göngum svolítið
hvor sína áttina," sagði hann. „Það
er ekki þar með sagt, að vegur
annars sé meiri en hins. En eftir
FRIÐAÐA svæðið í Reykja-
fjarðarál hefur nú verið
stækkað til vesturs og var
það gert með reglugerð
sjávarútvegsráðuneytisins í
gær, samkvæmt tillögu Haf-
rannsóknastofnunarinnar.
í fréttatilkynningu frá
sjávarútvegsráðuneytinu
segir, að stækkunin sé til
komin vegna þess, að allt frá
því að veiðieftirlit var tekið
upp í núverandi mynd hafi
skyndilokanir verið tíðar á
tilteknum svæðum við vest-
ur- og norðurjaðar friðunar-
svæðisins í Reykjafjarðarál.
Einnig séu þess mörg dæmi,
að togarar hafi hætt veiðum
á þessum slóðum vegna
smáfisks án þess að til
skyndilokana hafi komið.
Því sé augljóst að hér sé um
mikilsverðar uppeldisstöðv-
ar þorsks að ræða.
Reglugerðin um stækkun
svæðisins tekur gildi 10. júlí
n.k. og markast svæðið eftir
það að vestan af línu, sem
dregin er frá Horni í 66° 55‘
n. br. og 21° 50‘ v. lengd., að
austan markast svæðið af
20° 40‘ v. lengd.
Friðað svæði
í Reykjafjarð-
arál stækkað
Á þessari mynd sést hvernig friðaða svæðið í
Reykjafjarðarál lítur út.
• Sumarsýning Norræna
hússins 1978 verður opnuð
á laugardaginn kemur, 8.
júlí kl. 15.00. Þetta er í
þriðja sinn, sem Norræna
húsið gengst fyrir slikri
sumarsýningu, og að þessu
smni sýna þar verk Bragi
Ásgeirsson og Sverrir
Haraldsson í boði hússins,
og auk þess eru sýndar
myndir eftir Ásgrím Jóns-
son, fengnar að láni úr
Ásgrímssafni.
„Þessar sumarsýningar eru
kannski aðallega hugsaðar fyrir
erlenda ferðamenn." sagði Þóra
Kristjánsdóttir, forstöðumaður
safnsins er Morgunblaðsmenn litu
við í kjallara Norræna hússins í
gær. „Gestir Norræna hússins á
sumrin eru flestir erlendir, en á
þeim tíma er einmitt lítið um
málverkasýningar. Því buðum við
tveimur nútímamálurum að sýna
hér, auk þess sem gefið er
sýnishorn af list Ásgríms. En
engar af myndum Braga og
Sverris hafa verið á sýningu áður.“
Þeim Þóru og Erik Sönderholm
bar saman um, að viðtökur er-
lendra ferðamanna við þessum
sýningum hefðu verið góðar og til
dæmis hefðu margar myndir selzt
á sl. ári.
Myndirnar úr Ásgrímssafni
völdu Hjörleifur Sigurðsson og
Bjarnveig Bjarnadóttir forstöðu-
maður safnsins. Bjarnveig sagði
að þau hefðu fyrst og fremst valið
myndir sem fóru vel saman, en
þetta eru vatnslitamyndir og sýna
íslenzkt landslag og ýmsar kynja-
verur úr fornum sögnum að hætti
Ásgríms.
Sverrir Haraldsson sýnir aðal-
lega teikningar, portrett og nekt-
armyndir, en auk þess fáein
olíumálverk úr náttúrunni. „Þegar
ég heyrði að Ásgrímssafn væri