Morgunblaðið - 04.08.1978, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST 1978
13
Mótmæla
sovézkum her
Vín 3. ágúst Reuter.
Mannréttindahreyfing í Tékka-
slóvakíu lýsti því yfir í dag að dvöl
sovézkra hermanna í landinu væri
ólögleg og bryti í bága við
alþjóðasamþykktir.
Tígrisdýr lim-
lestir dreng
Gaeta, Ítalíu 3. ágúst. AP.
Tígrisdýr, sem slapp út úr búri í
sirkus, réðst á átta ára gamlan
dreng og lék hann illa. Atvikið átti
sér stað um hábjartan dag og
horfðu hundruð manna aðgerðar-
lausir á atburðinn. Lögregla skaut
tígrisdýrið til bana.
Móðir gekk
berserksgang
Salt Lake City, Bandaríkjunum
3. ágúst. Reuter.
MÓÐIR henti sjö börnum sínum út
um glugga á tólftu hæð hótels og
hoppaði sjálf út um gluggann á
eftir, að því er lögregla í Salt Lake
City skýrði frá í dag. Fimm úr
fjölskyldunni létust þegar, en þrír
liggja þungt haldnir á sjúkrahúsi í
borginni.
Mannfækkun
í London
London 3. ájíúst. AP.
ÍBÚUM London fækkar stöðugt, ef
marka má tölur sem nýlega voru
birtar opinberlega. Þar kemur
fram að um mitt ár 1977 bjuggu
6,970,100 manns í stór-London, en
voru 7,027,600 um mitt ár 1976.
Fundu kaf-
bátsflak
London 3. ágúst. Reuter.
Áhugakafarar tilkynntu í dag að
þeir hefðu að öllum líkindum
fundið flak þýzks kafbáts úr
heimsstyrjöldinni fyrri út af
strönd Suður-Englands.
Kaffiverð-
ið lækkar
London 3. ágúst. AP.
VERÐIÐ á ómöluðu kaffi lækkar
nú og var komið niður í einn
bandaríkjadollar (260 krónur)
pundið í London á miðvikudag. í
upphafi þessa árs var verðið
helmingi hærra og fyrir tveimur
árum komst það upp í þrjá dollara
pundið.
Harrison
orðinn faðir
London 3. ájíúst AP.
Olivia Arras eignaðist á þriðju-
dag son með Bítlinum fyrrverandi,
George Harrison. Harrison er sá
síðasti af Bítlunum sem verður
faðir.
Skotinn
til bana
Belfast, Noröur-írlandi
3. átfúst. AP.
VOPNAÐIR menn í bifreið skutu í
dag til bana þrítugan mann í
varaliði lögreglunnar, að því er
lögregla í Belfast skýrði frá.
Larsen í Ekstra Bladet:
„Taugaveiklun í FIDE”
DANSKI stórmeistarinn Bent
Larsen skrifar grein í Ekstra-
Bladet fyrir skömmu þar sem
hann ræðir framboð til forseta-
embættis FIDE. I grein sinni
ræðir hann fyrst almennt um
samtökin, veikleika þeirra og
kosti. Heldur hann því fram, að
margir af framámönnum í
FIDE hafi séð fram á að ekki
næðist eining um forseta og því
talið að klofningur væri yfirvof-
andi og þess vegna hafi hug-
myndin um endurkjör Euwes
fengið byr. Larsen telur þennan
ótta við klofning barnalegan.
Síðan segir Larsen orðrétt i
grein sinni:
„Nú hafa nokkrir framámenn
í FIDE með Bandaríkjamanninn
Edmondson í broddi fylkingar
sent símskeyti til fjölda skák-
sambanda þess efnis, að þar sem
séð sé fyrir að enginn af
frambjóðendunum þremur nái
kjöri í fyrstu umferð, muni það
riðla samtökunum í heild. Því sé
ekki annað að gera en að kjósa
Euwe aftur.
Friðrik Ólafsson
hafði séð þennan gang mála
fyrir og því hikað í fyrstu við að
gefa kost á sér. Því miður er
hann á ferðalagi í Kanada um
þessar mundir og því verða að
nægja yfirlýsingar frá formanni
SÍ, um að framboð Friðriks
standi." (Greinin er skrifuð áður
en Friðrik lýsti því sjálfur yfir
að hann myndi standa fast við
framboð sitt. Innsk. blm.)
’fTde-panik
Verdensskakforbundet hed-
der som bekendt i fransk
forkortelse FIDE. Det be-
stfir af omtrent hundrede
\ nationale skakforbund.
1 Præsident har \ ae sidste
I otte fir vrcret den hollandske
leksverdensmester Euwe
lludtales Ove), der for ltenge
"tsiden har lovct at trække sig
kilbniro pfi kongresscn \ ftr,
Ma hans' anden valgperiode
fc'dlober. Fristen for opstill-
|«g af kandidater til posten
fsksk
lved
bent
llarsen
• 4rtlr»r mf'íb